26.03.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1470 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)

116. mál, fjárlög 1980

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. á þskj. 237 við frv. til fjárlaga ásamt fjórum öðrum þm. Vestfirðinga. Það var ætlun mín að rökstyðja þessar till., af hverju þær eru fluttar. Hins vegar held ég að það verði erfitt fyrir meginþorra þm., þegar atkvgr. fer fram á morgun, að gera sér grein fyrir bæði þessum till. og öðrum þegar vantar um 3/4 hluta þm. við þessar mikilvægu umr. og 1/10 er hér af ríkisstj. En það er bót í máli að það er sjálfur hæstv. fjmrh., svo að ekki leggja hinir níu mikið á sig í þessum efnum að sitja fundi, nema þeir hafi lögleg forföll, þá er ekkert við því að segja. (StJ: Það er bara fámennt og góðmennt.) Já, þetta er ágætt lið sem hér er inni, það er rétt hjá hv. þm.

Ég var, að mig minnir, 12 ár í fjvn., svo að ég ætti að þekkja töluvert vel til vinnubragða þar og jafnframt til þeirra miklu erfiðleika sem fjvn. stendur jafnan frammi fyrir í sambandi við skiptingu fjárframlaga. Ég minnist þess, að einn dag fyrir allmörgum árum höfðum við tekið á móti æðimörgum framámönnum í þjóðfélaginu og forstöðumönnum hinna ýmsu ríkisstofnana, og allir sögðu að sitt mál væri það mikilvægasta af öllu og þyldi enga bið. Sumir gerðu kröfu allt upp í 15–20 liði, sem var ekki nokkur leið að verða við nema á mörgum árum, og voru hinir fúlustu ef þeir fengu ekki allt. En ég man eftir einum manni sem bar fram allmargar óskir fyrir sína stofnun, en sagði svo að lokum, að hann legði áherslu sérstaklega á einn lið, en helst tvo, því að hann vissi að fjvn. þyrfti að strengja húðina um stóran skrokk. Og ég held að allir fjvn.-menn á þeim tíma hafi sagt upphátt eftir að hann var farinn: Ég held að það sé ekki hægt annað en verða við þessari hógværu beiðni. — Og við henni var orðið.

Ég skal í upphafi láta það í ljós, að ég er óánægður með skiptingu í mörgum greinum í fjárlagafrv., en mér er líka ljóst að fjvn. hefur eins og jafnan áður þurft að strengja húðina um stóran skrokk. Hann hefur nú heldur vaxið frá því að ég var í nefndinni, en húðin sennilega ekki, svo að þetta er enn erfiðara. Því ætla ég ekki að flytja brtt. við aðra liði en þennan eina sem ég mun koma að.

Ég vil líka taka það fram, að það kjördæmi, sem kaus mig á þing, á engan fulltrúa í fjvn., og sama má segja um Austfirði, þessir tveir útkjálkar landsins eiga engan fulltrúa í þeirri virðulegu nefnd. Mér fannst bera nokkuð mikið á því í dag í umr., að menn fóru að tala um eigið kjördæmi, þegar þeir voru að tala almennt um fjárl., og lýsa þá hvernig ástandið væri eða flytja þakkarávarp fyrir kjördæmi sitt. Það er auðvitað alltaf gott og blessað þegar þakkarávörp eru flutt, því að hv. fjvn. hefur fengið lítið af þakkarávörpum um dagana, eins og við vitum sem höfum verið í nefndinni áður, og eins þeir, sem eru í henni núna.

Þessar till. eru fluttar í sambandi við liðinn um byggingu sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og læknisbústaða annarra en ríkissjúkrahúsa. Ég vissi ekki um þessa skiptingu fyrr en í gær, hvernig hún væri, og ég undraðist það mjög. Ég vil minna á að á árinu 1978 voru á þessum lið fjárl. veittar 11.87 millj. Þá fékk það kjördæmi sem ég er fulltrúi fyrir, 234 millj. af þeirri upphæð. Á árinu 1979 voru veittar 1760.4 millj. og þá fékk þetta sama kjördæmi 340 millj. Núna er þessi liður hækkaður frá því í fyrra að krónutölu um 1213 millj., þannig að hann er nú 2973 millj., og samkv. till. fjvn. eru þessu kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir, ætlaðar 260 millj., m.ö.o. framlagið er lækkað að krónutölu um 80 millj. á milli ára á sama tíma og liðurinn í heild hækkar um 1213 millj. (StJ: Var ekki búið að hygla Vestfjörðum svo mikið í ráðherratíð þm.?) Ég var að lesa upp áðan þessar tölur, en við skulum koma að því betur síðar. Ég ætla ekkert að flýta mér núna.

Stærsta upphæðin, sem veitt er til Vestfjarða, er í sjúkrahúsbyggingu á Ísafirði. Þar er ástandið þannig, að þetta er 55 ára gamalt sjúkrahús, var fyrirmyndarsjúkrahús og það allra fullkomnasta þegar það tók til starfa á árinu 1925, svo að ríkisvaldið hefur ekki lagt til þessa staðar framlög í sjúkrahúsbyggingar eftir að það fór að taka það upp. Og á fyrstu árum mínum á þingi var þetta kjördæmi léttast, a.m.k. fyrstu 8 eða 9 árin, þó við miðuðum við íbúatölu eða kjósendatölu, eins og fleiri vilja nú miða við, ef menn vilja skoða fjárlög aftur í tímann. Hitt er svo annað mál, að þegar búið er að framkvæma stóra og mikilvæga áfanga, þá getur ekkert eitt kjördæmi ætlast til þess, að það haldi alltaf áfram að vera með sama hlutfall. Það verður eðlilega þá að lækka, eftir því sem búið er að vinna og ná settu marki.

Ástandið er þannig á Ísafirði, að þar er framkvæmdin komin eitthvað á tíunda hundrað millj. á verðlagi hvers árs fyrir sig. Húsið var orðið fokhelt á árinu 1978 og hafði borið uppi verulegar framkvæmdir þar, og ætlunin var á næstu tveimur árum að taka heilsugæslustöðina í notkun. En fjárveitingin 1979 upp á 190 millj. liggur ónotuð og ekkert gert í framkvæmdum fyrr en farið er að bjóða út verk í okt. í haust. Peningarnir brenna upp í báli verðbólgunnar og verða því mjög litlir þegar til framkvæmda kemur. Þar er ég ekki að sakast við heilbrmrn., heldur er ég þar að bera sök á fjmrn. — en ekki á núv. hæstv. fjmrh. því hann tók ekki við embætti fyrr en 8. febr. Kerfið, m.ö.o., samstarfsnefndin með opinberum framkvæmdum, lá á þessum framkvæmdum, lét féð brenna upp í báli verðbólgunnar. Og til þess að bíta höfuðið af skömminni er eingöngu talað við samstarfsnefnd með opinberum framkvæmdum, og nm. segja: Við erum búnir að bjóða út verk, það þarf bara ekki meira í það en þetta, — af því að þeir hafa tekið þá ákvörðun og tekið fram fyrir hendurnar á Alþ. og haga sér eftir sínum geðþótta. Alþ. er einskis virði, það virðist ekki koma máli við hvað Alþ. er að samþykkja, því að þegar kemur til framkvæmda er lagst á þær og reynt að gera eins lítið úr þeim og hægt er og skaða bæði ríkissjóð og viðkomandi sveitarfélög sem mest.

Ef við ætluðum að fylgja byggingarvísitölu ætti framlagið, sem var 150 millj. á árinu 1978, að vera 225 millj. 1979 og 345 millj. 1980 —- og þá tek ég ekki með aukafjárveitingu sem fékkst á árinu 1978 upp á 70 millj., — þá mundi þetta hlutfall vera miklu hærra, enda væri ekki sanngjarnt af mér að taka þá aukafjárveitingu með, því að hún ver gerð til þess að ljúka ákveðnum byggingaráfanga.

Svo að ég svari frammígripi hv. 4. þm. Norðurl. e., þá má segja að ég hafi beitt áhrifum mínum sem ráðh. fyrir þann bæ sem ég hef átt heima í frá því að ég fæddist, og það má hver lá mér það sem vill. En ég beitti líka áhrifum mínum til þess að aðrir gætu haldið áfram og byggt upp heilbrigðisþjónustuna í öðrum fjórðungum landsins. Og þegar við lítum á árin 1974–1978, þegar verið var að rýra — þó að það væri ekki eins mikið og árin eftir 1978 — framkvæmdamátt á hinum ýmsu sviðum þjóðarbúskaparins, þá varð, miðað við verðlag ársins 1978, 26.9% hækkun til sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva í landinu. En það kostaði oft æðimikil átök. Skýringin á því var ekki sú, að ég vildi vera það harður bæði við fjmrh., sem þá var, og aðra samstarfsmenn mína í ríkisstj., heldur hitt, að framkvæmdir voru komnar af stað áður en heilsugæslulögin tóku gildi, en þau tóku gildi 1. jan. 1974. Þá eru komnar af stað milljarðaframkvæmdir á verðlagi þess tíma, bæði hér í nágrenni við þéttbýlið og annars staðar. Þá á ég við hér í Reykjavík, á Selfossi, Akureyri, Akranesi og fleiri stöðum sem voru með langstærstu framkvæmdirnar.

Í lögum um heilbrigðisþjónustu, sem þá voru sett, voru sérstök ákvæði sem Alþ. lagði ríkisstj. og framkvæmdavaldinu á herðar, og þessi ákvæði er enn þá í gildi. Þessi ákvæði eru í 33. gr. laganna um heilbrigðisþjónustu og hún hljóðar þannig, með leyfi forseta:

Ráðh. lætur gera áætlun um byggingu heilbrigðisstofnana í samræmi við 14. og 24. gr. Áætlunin skal gerð í samvinnu við viðkomandi heilbrigðismálaráð, landlækni og í samráði við fjárlaga- og hagsýslustofnun. Þau umdæmi eða svæði, sem verst eru sett að því er varðar heilsugæslu og læknisþjónustu, skulu hafa forgang um byggingu heilsugæslustöðva. Áætlun skal gera til 5 ára og endurskoðast árlega og færast fram við gerð fjárlaga.“

Sú áætlun var aldrei gerð og hefur ekki verið gerð síðan, enda erfitt að gera slíkar áætlanir í verðbólguþjóðfélagi eins og okkar. Og það má hver álasa mér sem vill, fyrir að hafa ekki gert það, en ég álasa ekki heldur eftirmönnum mínum í starfinu fyrir að hafa ekki gert það. En hitt ákvæðið stendur óhaggað, að þau umdæmi eða svæði, sem verst eru sett að því er varðar heilsugæslu og læknisþjónustu, skulu hafa forgang um byggingu heilsugæslustöðva.

Ég held að mínir ágætu vinir í hv. fjvn. hafi gleymt þessu ákvæði laga um heilbrigðisþjónustu. Við þm. Vestf. lögðum hart að fjvn. að taka upp framlag til heilsugæslustöðvar á Hólmavík. Fyrir tveimur árum var veitt undirbúningsframlag til þessarar heilsugæslustöðvar. Það féll niður á árinu 1979 og rann þá til sjúkraskýlisins á Hólmavík. En þá flutti ég í fyrsta skipti brtt. við fjárlög fyrir mitt kjördæmi, því ég hef alltaf látið mér nægja að vera í góðu samstarfi og samvinnu við fjvn. Þetta er nú 19. þingið sem ég sit og það er því í annað skipti sem ég flyt brtt. sem varða mitt kjördæmi, vegna þess að mér hefur verið það ljóst að það er erfitt að skipta fjármunum. En þegar mér finnst ranglega skipt, eins og í þessum málalið, þá get ég ekki þagað.

Ég virði það, að fjvn. skuli hafa tekið upp 10 millj. til heilsugæslustöðvar á Hólmavík, en hún bætti við: Til undirbúnings. En undirbúningurinn var búinn að vera á fjárlögum 1978. Ég þakka þessar 10 millj. Þær hafa bara ekkert að segja, ekki nokkurn skapaðan hlut. Það, sem gagn er að, er að geta byrjað framkvæmdir, að það sé hægt a.m.k. að steypa sökkla.

Mér er mjög óljúft að bera saman við önnur byggðarlög. Öll byggðarlög eiga rétt á framkvæmdum. En ef við ætlum að starfa í þeim anda sem Alþ. samþykkti 1973 og samþykkti að nýju með lögum frá 6. maí 1978, — ég er ánægður yfir að hæstv. heilbrmrh. er kominn í salinn, — þá eigum við að fara eftir þessum lögum, en ekki virða þau að vettugi. Ég spyr alla sanngjarna menn: Er frekar hægt að setja Hólmavík í Strandasýslu, einn afskekktasta stað á landinu, út úr, láta hana bíða eftir heilsugæslustöð árum saman, en taka aftur inn — við skulum segja Hvolsvöll? Það þarf ekki að fara í mikinn lífsháska að Hellu. Og ekki er vegalengdin mjög mikil. Nú má enginn taka orð mín á þann veg, að ég vilji standa á móti því að Hvolsvöllur fái heilsugæslustöð. En samkvæmt anda þessara laga er Strandasýsla tvímælalaust langt á undan, svo ég nefni þetta dæmi. (Gripið fram i.) Já, það er erfiður fjallgarður.

Við leyfum okkur því allra náðarsamlegast að fara þess á leit við þingbræður okkar og systur að styðja 20 millj. kr. hækkunartillögu til þess að hægt sé að byrja á þessari langþráðu framkvæmd í einu mesta útkjálkahéraði landsins með erfiðar samgöngur. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að allur sá fjöldi rausnarmanna og höfðingja, sem hér á sæti, láti sig muna um að greiða atkvæði með þessari tillögu, af því það er ekki farið fram á meira. En því förum við ekki fram á meira að við viljum fyrst og fremst fá þessar framkvæmdir af stað og að niður falli orðið: undirbúningur, því þá vitum við að áfram verður haldið. Þá þokast það þó eitthvað. En annars er engin trygging fyrir því, að á næsta ári verði ekki gengið fram hjá því.

Þá leyfum við okkur að flytja till. um 10 millj. kr. fjárveitingu til Flateyrar. Það eru endurbætur og áhaldakaup. Heilbrmrn. lagði til að 25 millj. yrði varið í þessu skyni. Ein upphæðin er upp á 31/2 millj., endurbótakostnaður, sem þetta litla hreppsfélag varð að snara út. Þetta erindi fór í heilbrmrn., það sendi það til fjárveitingavaldsins. Það eru endurbætur á næstum því 40 ára gömlu sjúkraskýli sem þeir fara fram á. En í staðinn fyrir að fara fram á 25 millj., þá förum við fram á 10 millj. þannig að eitthvað sé hægt að gera, a.m.k. borga hreppsfélaginu það sem það er búið að leggja út, í raun og veru fyrir ríkið. Fjvn. sá sér ekki fært að taka inn þessa upphæð. Hvernig á því stóð veit ég ekki.

Í till. fjvn. eru 10 millj. til Bolungarvíkur, heilsugæslustöðvarinnar þar, en bæjarstjórnin hafði farið fram á endurbætur á gamla sjúkraskýlinu þar sem dveljast ellisjúklingar svo að segja eingöngu. Þetta er ódýrt sjúkraskýli með lágu daggjaldi og það mun ekki vera hagkvæmt að flytja þá á sjúkrahús með 60–70 þús. kr. daggjaldi, kannske 7–8 sinnum hærra daggjaldi. Ég held að það sé ódýrara fyrir ríkið að standa undir sinum hluta af þessum endurbótum. En fram hjá þessu er gengið. Þetta eru ekki háar tölur. Mér finnst þetta ekki vera tölur sem séu þess virði að Alþ. hafni þeim.

Fjórða till. okkar er allmiklu hærri, að framlagið til sjúkrahússins á Ísafirði hækki um 110 millj. Samkvæmt því, sem ég sagði áðan, hefðum við átt að fá samkvæmt byggingarvísitölu 345 millj., þó að ég taki aukafjárveitinguna 1978 ekki með, vegna þess að ég tel það ekki sanngjarnt og ekki heiðarlegan samanburð, og því sleppi ég henni. En nú er ekki full byggingarvísitala á það sem hér er um að ræða, og því flytjum við, þessir sömu þm., till. um að þessi upphæð fari í sjúkrahúsið.

Ísafjörður er ekki stór bær. Hann hefur aðeins nokkuð á fjórða þús. íbúa. En að þessu sjúkrahúsi standa allmörg sveitarfélög þar vestra. Þarna varð að fylla upp til þess að fá land til að byggja heilsugæslustöð og sjúkrahús á. Það varð einnig að rýma þar lóðir í kring, bæði vegna sjúkrahúsbyggingarinnar og Menntaskólans á Ísafirði. Ég hygg að þetta bæjarfélag sé á verðlagi ársins í ár búið að leggja fram á annan milljarð kr. til þess að búa til land fyrir þessar tvær stofnanir. Mér þætti gaman að vita hvort nokkur hv. þm. veit um nokkuð nálægt því hjá öðru bæjarfélagi á landinu. Hér er inni varaþm. sem til skamms tíma sat í bæjarstjórn Ísafjarðar, er nú hér sem 4. þm. Reykv., Jón Baldvin Hannibalsson. Hann þekkir þetta mál eins vel og betur en ég, hverju þessi kaupstaður hefur orðið að fórna í þessu skyni.

Svo kem ég að því sem er kannske mest virði. Einn ágætur vinur minn hér á þingi, sá þm. sem ég hef átt fyrir vin eiginlega frá því að ég kom á þing og ég hef miklar mætur á, sagði við mig í gær að þetta sjúkrahús væri allt of stórt. Það þyrfti þá sennilega að brjóta af því, eftir að það er komið upp. Það er alveg rétt hjá honum, þetta sjúkrahús er allt of stórt, og sennilega engin ástæða til að byggja það. Ef það á að vera stefna stjórnvalda í þessu landi að flytja alla sjúklinga til Reykjavíkur þarf ekkert sjúkrahús þarna. Og mæðan, sem var í einum þm. Reykv. áðan yfir fjárframlögum hingað til Reykjavíkur, getur stafað einmitt af því, hvernig er ástatt enn úti á landi. Ásóknin hingað suður er svo gífurleg og það eru margir biðlistarnir þess vegna. Það mun létta af Reykjavík og nágrannabyggðum Reykjavíkur eftir því sem betur er byggt upp annars staðar.

Akureyri er í þeirri sérstöðu, að hún þarf sannarlega á miklu fjármagni að halda, og þó að það sé u.þ.b. fjórföld upphæðin til Ísafjarðar, þá veitir sannarlega ekki af því.

Ef við ætlum að bera saman og vera með meting á milli kjördæma, þá dugar ekki að taka þrjú, fjögur, fimm eða sex ár, eins og einn yfirlæknir gerði sem minntist afmælis síns sjúkrahúss. Þá tók hann framlag til sjúkrahúsa fyrir 70 eða 80 árum og bar það saman við heildarútgjöld ríkisins það ár. En svo liðu 12 eða 14 eða 15 ár, og það var ekkert veitt til sjúkrahúsbygginga. Hann tók bara þetta eina ár. Við skulum bara taka upp hvað hefur verið gert á þessum stað eða hinum. Við skulum fagna því þegar áfangar hafa náðst. Og það var ekkert lítið gert hér á Reykjavíkursvæðinu í aukningu og í nýjum byggingum, bæði á vegum ríkis og borgar. Það var heldur ekkert lítið átak að kaupa Sankti Jósefsspítala, sem var stórhætta á að yrði lagður niður sem sjúkrahús ef ríkissjóður hefði ekki keypt hann.

Ég vona að ég hafi skýrt hér fyrir viðstöddum þm. hvað hér er farið fram á, m.ö.o. að við flytjum hér till. um það, að framlagið verði aukið miðað við árið í fyrra um heilar 68 millj. Ef einhverjum þm. finnst þetta vera frekja af þm. úr einu kjördæmi og algjörlega ástæðulaust að kvarta, þá eðlilega greiða þeir atkv. á móti þessum till. En ef þeir vilja sýna sanngirni og skilja hvað mikið er í húfi fyrir þessi byggðarlög, þá efast ég ekki um að till. þessar verða samþykktar. Og ef þeir vilja fara eftir lögum (Gripið fram í.) Ég gleymdi að spyrja hv. þm. hvernig ég mætti stilla því upp, en ég kannske heyri það á eftir. Við skulum ekki tala saman hérna tveir. (Gripið fram í.) Ég hef aldrei tekið mark á þrýstihópum, jafnvel ekki þó að það sé bara einn maður í honum.

Varðandi framlög til hafnarmála og skiptingu á þeim framlögum, þá álít ég að fjvn. hafi haft allt of lítið fjármagn úr að spila. En ekki get ég leyft mér, sem vil skera frekar niður en að bæta við, að krefjast þess að það sé aukið. Eftir atvikum tel ég menn geta sætt sig við þessa skiptingu. En eitt langar mig að spyrja hæstv. ríkisstj. um. Það hefur verið látið í veðri vaka af ríkisstj. sálugu, þeirri sem sálaðist í haust, að það ætti að verja sérstöku framlagi utan við fjárlög til dráttarbrauta og skapa aðstöðu þar sem væri brýn þörf á. Nefnd hefur starfað í málinu og er búin að skila áliti, og ég hygg að þessi mál heyri sérstaklega undir tvö rn., iðnrn. og samgrn. Ekki er mér grunlaust um að fjmrn. vilji einnig hafa þar hönd í bagga. Því langar mig að spyrja hvort endanleg ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli till. þessarar nefndar, því að þar hefur komið fram að það eigi að aðstoða, — þó eftir hafnarlögum — við kaup á bátalyftu til Ísafjarðar, ásamt fleiri stöðum á landinu sem fjallað er um í þessu nál. En ástandið þar er nú þannig, að ekki er hægt að taka upp smábát, eins og hina svonefndu rækjubáta, hvað þá stærri skip. Skipaskoðunin neitar að veita þessum bátum haffærisskírteini nema þeir fari til næsta staðar þar sem slippur er, annaðhvort hingað til Reykjavíkur eða norður á Akureyri eða Siglufjörð, svo að þarna er ástandið orðið gífurlega slæmt.

Mér er líka ákaflega sárt um einn stað sem fer alveg hörmulega út úr þessum fjárveitingum. Það er Tálknafjörður. Hann var með framlag til undirbúnings skóla í nokkur ár, en er með 2 millj. og ég held að það sé skammt á veg farið. Í öðrum fjárveitingum er hann, held ég, ekki með neitt. Samt ætla ég ekki að flytja brtt. um skiptingu á skólaframlögum. Ég ætla eingöngu að halda mér ásamt meðflm. mínum við þær till. sem ég hef þegar skýrt frá.

Ýmislegt er eftir hjá fjvn. að fara yfir, en ég sé enga ástæðu til að vera að tala um það nú. En lítum á fjárlagafrv., 3. bindi, eins og menn eru nú farnir að kalla það. Þetta er sérstæð fjárlagagerð, að leggja fram þrjú fjárlagafrv. frá hausti og fram í febr. Ég vil gagnrýna alveg sérstaklega eitt atriði fjárlagafrv. sem nú er lagt til grundvallar sem stefna núv. hæstv. ríkisstj. Það er að taka út úr fyrra fjárlagafrv., úr orkumálaliðnum eða til niðurgreiðslu olíu, 2.3 milljarða til þess að hafa frjálsara spil að koma þessum fjárlögum áfram og koma með skatta utan við fjárlögin, miklu hærri en hér var lagt til. Ég tel að þetta hafi verið mjög alverlegt skref aftur á bak.

Hæstv. fjmrh. sagði um þetta afkvæmi sitt, þetta fjárlagafrv., að það væri raunhæfara fjárlagafrv. en flest önnur á undanförnum árum. Það mátti kannske byggja frekar á raunhæfu fjárlagafrv. þegar liðið var á annan mánuð af því fjárlagaári sem frv. á að gilda. Og nú eru senn liðnir þrír mánuðir af árinu áður en þetta fjárlagafrv. er afgreitt. Þó vantar í þetta fjárlagafrv. milljarða. Það vita allir, hæstv. fjmrh. ekki síður en aðrir, jafnvel frekar. Það fer ekki á milli mála, að ef engar lagabreytingar verða gerðar og ekkert verður gert t.d. til þess að draga frekar úr útgjöldum Tryggingastofnunar ríkisins, þá vantar sennilega um 7 milljarða í tryggingadæmið. Það vantar 6–8 hundruð millj. til ríkisspítalanna. Nú er sagt að fæðingarorlofið eigi að koma inn í almannatryggingakerfið. Og ef menn halda áfram svipaðri framleiðslu og verið hefur, þá mun það nema allt að því 1 milljarði. Þannig má lengi telja.

Ég get ekki sagt að slíkt frv. sem þetta sé byggt á raunveruleika. Við viljum allir vera góðir og helst við alla. En við verðum að draga úr og geta sagt líka nei við marga. Ég tel ekki eftir framlag eins og til Lánasjóðs ísl. námsmanna, en ég sé ekki að þjóðin hafi efni á því að hækka það um 141.3% á milli fjárlaga á sama tíma og verið er að stýfa ráðstöfunartekjur heimilanna í landinu, svo ég nefni þetta viðkvæma dæmi. Og að vissu leyti tek ég undir það sem kom fram hjá form. fjvn. hér í dag.

Ég tek t.d. eftir öðru, að vinstri stjórnin lagði stórauknar kvaðir á Aflatryggingasjóð og fyrir jólin lagði starfsstjórn Alþfl. — með samþykki Alþingis auðvitað — enn nýjar kvaðir á Aflatryggingasjóð. En hækkun til Aflatryggingasjóðs er ekki nema 4.3% í þessari verðbólgu. Ég skil ekki hvernig þetta fær staðist, nema eigi að éta með öllu upp Aflatryggingasjóðinn. Hér er verið að fremja stóra synd gagnvart þessum mikilvæga sjóði. Annaðhvort verður að breyta þar bótareglum eða draga aftur úr þeim skyldum sem tvær fyrrv. stjórnir lögðu á Aflatryggingasjóð.

Það verður mörgum á að benda alltaf á Byggðasjóð.

Mönnum verður mjög tíðrætt um að ávísa á Byggðasjóð. Ríkisstj., sem sat á árunum 1974 –1978, lagði fram til Byggðasjóðs 2% af heildarútgjöldum ríkissjóðs öll þau ár. Hún setti sér upprunalega þetta markmið. En eftir að vinstri stjórnin sálaða kom til sögunnar lagði hún sérstaka kvöð á Byggðasjóð að standa undir nýjum útgjöldum. Og form. Framsfl. ætlaði alveg að rifna yfir því, þegar vextir Byggðasjóðs voru hækkaðir úr 14% í 19%, og taldi þetta hræðilegan glæp sem væri verið að fremja. Nú er í þessu fjárlagafrv. sagt að framlag til Byggðasjóðs nemi 2 635 millj. Auk þess er gert ráð fyrir að sjóðurinn taki lán að upphæð 2 500 millj. Síðan er áætlað að eigið fé Byggðasjóðs sé 783 millj. Því verður heildarráðstöfunarfé hans 5 918 millj., sem er 1.78% af heildarútgjöldum ríkisins. Þetta er nú fín rökfræði! Þarna komast þeir sem sagt nærri því — en knapplega þó — að geta uppfyllt lög með því að segja einum sjóði, sem ríkissjóður átti að leggja til framlag: Takið þið, piltar, lán upp á 2 500 millj.

Nú ætla ég að spyrja hæstv. fjmrh. að því, hvort hann viti um einhverja lánastofnun sem vilji lána Byggðasjóði þetta með 19% vöxtum eða jafnvel ekki nema 14% eins og form. Framsfl. vildi að vextir Byggðasjóðs yrðu. Ég yrði mjög glaður ef hæstv. fjmrh. gæti nefnt mér þá lánastofnun sem gæti útvegað Byggðasjóði fjármagn með þessum vaxtakjörum. (Fjmrh.: Svissneskir bankar lána með 8%.) Þá skulum við fá lán í svissneskum bönkum. En megum við treysta því að fjmrh. sjái um þetta? Þá skal ég reglulega bukka mig fyrir honum. En það má ekki vera gengistryggt því að þá versna kjörin. Og svo verður aftur lánað út helst með 14%. Ekki vildi ég vera hluthafi í banka þar sem Steingrímur Hermannsson væri bankastjóri. Það er verst að hann er ekki viðstaddur.

Hvernig verður svo með ráðstöfunarfé sjóða eins og Byggðasjóðs, sem á útistandandi lán í vanskilum upp á 1309 millj. miðað við síðustu áramót? Hvernig ætli gangi að hala það inn, auk vaxtanna sem bara í sjávarútvegi nema 600 millj. þarna til viðbótar? Þar eru komnir þegar 2 milljarðar, svo að það er nokkuð á þriðja milljarð sem þessi sjóður á útistandandi í vanskilaafborgunum og vöxtum og eru þá dráttarvextir ekki reiknaðir. En heildarhöfuðstóll útlána þessa sjóðs er rúmir 16 milljarðar. Ekkert liggur fyrir um það hjá þessari hæstv. ríkisstj., hvernig hún ætlar að leysa þennan risavaxna vanda. Og svo er sagt þegar menn eru að bera upp vandræði sín: Ja, reynið að tala við þennan og þennan, talið þið við Byggðasjóð, talið þið við Fiskveiðasjóð. Ég tala nú ekki um Stofnlánadeild landbúnaðarins og aðra fleiri stofnlánasjóði. Það er lengi hægt að vísa á tóm tékkhefti.

Í lögum um stjórn efnahagsmála, sem samþ. voru hér snemma á s.l. ári, segir alveg fortakslaust í 14. gr: „Ríkisstj. skal leggja fyrir Alþ. fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir fyrir eitt ár í senn og skulu þær fylgja fjárlagafrv. Áætlununum skal fylgja stefnumótun í meginatriðum næstu þrjú árin, eftir lok þess fjárhagsárs sem fjárlagafrv. tekur til. Markmið áætlananna er að tryggja að heildarumsvif í fjárfestingu og þróun peningamála og lánamála samrýmist þjóðhagslegum markmiðum.“

Þetta segir í þessum lögum sem þáv. stjórnarflokkar settu og eru enn í gildi. Fjárlagafrv. er nú til 2. umr. hér í hv. Alþ., en ekkert bólar á fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, ekki fyrir eitt ár, hvað þá heldur stefnumótun fyrir þrjú ár. Ég skil mætavel og við þm. ættum ekki að álasa hæstv. forsrh. fyrir það, þó að hann færist algerlega undan því að flytja stefnuræðu þessarar ríkisstj., vegna þess að hann á enga stefnu til að flytja. Hann las hér upp óskalista sem saminn var af Framsókn og Alþb. og hann mun eiga tvö atriði í sjálfur. Lengra er sköpunarverk og snilligáfa þessarar ríkisstj. ekki komin. (ÓRG: Hvaða atriði eru það?) Ég ætla nú að biðja formann þingflokks Alþb. að snúa sér að sér sjálfum og fulltrúum Alþb. til þess að fá þau atriði upplýst, því að þau eru kunnug í þeim herbúðum, enda höfðu þeir gaman af, hvað lítið kom af óskum frá forsrh., og hafa haft það í flimtingum síðan.

Nú vil ég spyrja hæstv. fjmrh.: Á hún ekki að sjást, þessi fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ríkisstj.? Það er ekki nóg að hún sjáist daginn sem 3. umr. á að fara fram. Hún verður að vera komin a.m.k. tveimur til þremur dögum áður í hendur Alþingis. Ég tel það lagabrot að afgreiða fjárlögin endanlega nema lánsfjáráætlun liggi fyrir. Og þá er ekki nóg að lánsfjáráætlun liggi fyrir sem nær aðeins til A- og B-hluta fjárlagafrv. Það verður líka að liggja fyrir lánsfjáráætlun sem nær til stofnlánasjóðanna og heildarlánsfjáráætlun.

Eins og fram kom hér í dag í umr. um fjárlagafrv., þá er hér um verðbólgufrv. að ræða. Við höldum áfram að elta skottið á verðbólgunni. Hér er einn hringdans ár eftir ár. Á meðan haldið er áfram á þeirri braut verður ekkert stöðvað. Að vísu verður þessari ríkisstj. eitthvað til happs. Það er t.d. mikil gæfa hennar, ástandið á alþjóðamarkaði, hvað bensínið hækkar, því eftir því sem bensínið hækkar fær herra Arnalds meira í ríkiskassann: Hann notar sér þessa dásamlegu aðstöðu sem er í veröldinni núna, hvað bensínið hækkar. Það liggur við að það fari að verða ódýrara að hella úr brennivínsflösku á tankana. (Gripið fram í.) Á meðan haldið er áfram á þessari braut. Hvað er orðið um niðurtalningaraðferðina? Það er hrúgað inn auknum skattafrv. 60% hækkun á flugvallagjaldi kom hér á borðið í gær. En þetta er allt fyrir utan niðurtalningarleiðina. Hún er bara á óskalistanum sem Thoroddsen las upp þegar „lukkan“ var mynduð. Og allir vita að það er von á stórfelldum sköttum. Ríkisstj. grípur í það hálmstrá að strika 2 300 millj. út úr fjárlagafrv. til þess að ráðstafa í annað og ætlar sér svo að leggja á algerlega nýja skatta. Ég segi bara: Mikið leggja menn á sig til að setjast í ráðherrastól eftir að vera búnir að lýsa yfir að það verði að vinna bug á verðbólgunni. Ég sé ekki annað en að gamla framsóknarpólitíkin ráði öllu. Framsóknarmenn hafa verið mestu verðbólgubraskararnir í þessu landi og vilja halda áfram á þeirri braut. Alþb. hefur alltaf sagt að það vilji fyrst og fremst auka kaupmátt launa launþeganna. Nú má ekki á milli sjá hvor fer fram fyrir hinn, Ragnar Arnalds eða Steingrímur Hermannsson, í verðbólgukapphlaupinu. Og svo tölta þeir á eftir, þessir þrír sem hingað til hafa kennt sig við Sjálfstfl. og hafa staðið að samþykkt um að leggja ekki nýja skatta á þjóðina, en rétta svo upp hendurnar með þessum verðbólgubröskurum í Framsfl. og Alþb.

Það er ekki verið að tala núna um rauntekjur verkalýðsins og launþega í landinu. Nú er vandlega þagað um það. Málgagn Alþb. er næstum því mállaust þessar vikurnar. Það er ekki furða þó að marx-lenínistum sé farið að blöskra hvað þetta er mikill afturhaldsflokkur. Þegar þessir menn eru í stjórnarandstöðu er alltaf sagt: Það er aldrei gert nógu mikið, það verður alltaf að auka framkvæmdir í þessu landi. — Og þá er verið á móti öllum sköttum. Nú er stjórnarandstaða sem er alls ekki að biðja um auknar framkvæmdir eða krefjast þeirra. Við skiljum mætavel niðurskurð til ýmissa stofnlánasjóða. Við vitum að það er erfitt að skera niður Byggingarsjóðinn, sérstaklega fyrir það hvað þetta er seint. Og það er ekki hægt að álasa hæstv. ríkisstj. fyrir að hafa ekki tekið ákvarðanir fyrr þar sem hún kemur ekki til valda fyrr en 8. febr. Við vitum að þetta er ekkert gaman, en þetta verður að gerast. Dettur nokkrum manni í hug hérna, ef ríkisstj., sem Sjálfstfl. hefði átt aðild að eða Alþfl. eða Framsfl., að Alþb.-menn hefðu ekki verið með hann opinn upp á gátt dag eftir dag yfir slíkum vinnubrögðum? En nú er eins og það sé búið að setja lás fyrir hann á þeim öllum.

Nei, það fer ekki á milli mála, að þetta fjárlagafrv. verður ekki til þess að draga úr verðbólgunni í þessu landi. Hitt óttast ég meira, að með nýjum álögum ríkisvaldsins, með sífelldu gengissigi, versnandi hag útflutningsatvinnuveganna aukist hraði verðbólgunnar. Hann verður ekki læknaður, verðbólgan verður ekki læknuð nema með samtakamætti alvörustjórnmálamanna í landinu. (StJ: Leiftursókn.) Já, leiftursókn. Það er það sem gildir, Stefán Jónsson. Það þarf leiftursókn gegn þessari ófreskju, ef við ætlum ekki að minnka ráðstöfunartekjur heimilanna svo að lægst launaða fólkið getur ekki lifað. (Gripið fram í.) Það er dýrtíðin sem fer verst með þetta fólk. Hvað sagði farandverkamaðurinn? (Gripið fram í.) Nú, var það hann, fyrirgefið. Var það sjálfur höfðinginn úr Framsfl.? (Gripið fram í: Já, ég sagði að hún hefði lyppast niður.) Það kemur að því, þegar framsóknarsóknin í verðbólguna er búin að tröllríða öllu, sem hún er á góðri leið með að gera með því að bjóða öllum upp í dans og standa aldrei við neitt, — bjóða öllum upp í dans og lofa öllu fögru og svíkja allt. Þá kemur að því, að ekki er hægt að halda áfram lengra. Ég býst við að forseti leyfi Stefáni Valgeirssyni að tala, en ég hef orðið núna. Sú stefna, sem ég aðhyllist, er ekki verðbólgustefna Framsfl. Ef Alþb. heldur áfram að styðja hana og þessir þremenningar, sem komnir eru í ríkisstj. til viðbótar, þá sjáum við að framundan verður algert öngþveiti í atvinnulífinu. Ríkið getur ekki haldið áfram að taka sífellt meira frá atvinnulífinu að það líklega stöðvast og ríkisstj. gerir ekkert viku eftir viku.