26.03.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)
116. mál, fjárlög 1980
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil með örfáum orðum lýsa brtt. sem ég erl. flm. að og hefur verið útbýtt hér í Sþ. Ég vil jafnframt nota tækifærið til þess að hafa orð á nokkrum málum sem ég tel fulla ástæðu til að hv. fjvn. athugi á milli umræðna. Ég hef ekki séð ástæðu til þess að sinni að flytja sérstaka brtt. um það. Flest af því, sem ég hef aðallega í huga, má að öllum líkindum afgreiða með heimildarákvæðum, og þrátt fyrir andstöðu mína við hæstv. ríkisstj. og stefnu hæstv. ráðh. hef ég ekki trú á að þeir muni ekki reyna að koma þar á móti. Alla vega veit ég að hæstv. fjmrh. mun gera það ef það kostar ríkissjóð ekki neitt. En jafnvel þótt það kosti einhverja upphæð, þá veit ég að ef um væri að ræða að leysa vandamál eða að bæta úr agnúum, þá muni þeir reyna að gera það. En ég minnist á þessi atriði hér til þess einmitt að hv. nefnd geti athugað þau mál á milli umr., eins og ég sagði áðan.
Ég þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir þau orð sem hún lét falla um þá brtt. sem ég flyt á þskj. 237 ásamt þeim hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur og Albert Guðmundssyni, um hækkun til Samtaka áhugamanna um áfengisbölið. Ég vil líka nota tækifærið til að þakka fjvn. fyrir að hafa lagt til í brtt. sínum hækkun á þessum lið sem nemur 2 millj. kr., úr 6 millj. í 8 millj. Ég hef ásamt þeim hv. þm., sem flytja þessa brtt. með mér, leitast við að fá þetta enn hækkað, meðfram vegna þess sem fram kom í ræðu hv. síðasta ræðumanns um þá þýðingu og þau miklu áhrif sem þessi samtök hafa haft á liðnum misserum sem þau hafa starfað til mótunar til hins betra á afstöðu fólks til þessa vandamáls sem okkar þjóð óneitanlega býr við. Ég held því að það muni verða til hins betra, þegar lítið er lengra fram í tímann, ef þessi félagsskapur og reyndar aðrir skyldir, sem vinna að úrbótum á þessu vandamáli, eru styrktir á þann veg. Ég vil undirstrika að þeir menn, sem slíkar till. leggja fram, og þeir hv. þm., sem það styðja, hafa trú á að það sé til bóta. Og það er sannast sagna eftirtektarvert og til mikillar umhugsunar, að til fjvn. mun hafa komið í dag — og reyndar til sumra þm. — bréf og áskorun til Alþingis um að hækka allverulega lið til áfengisfræðslu, eins og það er kallað í þeirra erindi, og það er undirritað sameiginlega af aðilum sem hafa barist fyrir þessum málum árum saman, en helst að mati almennings viljað stefna hvor í sína áttina. En þeir hafa þó í þetta sinn loksins tekið höndum saman um að ráðast að þessu vandamáli strax á byrjunarstigi þar sem er fræðslan, að þeirra mati sem þessi mál hafa kynnt sér bæði af raun og á annan hátt, að byrja fræðsluna strax í skólunum. Og það er einmitt slíkt átak sem að er stefnt að gera. Það mál er ekki komið hingað enn inn og ég mun ekki ræða það frekar, þótt ég sjái ástæðu til að fanga því, að þessi samstaða hefur tekist.
Önnur till.; sem ég flyt á þskj. 239 ásamt hv. þm. Sverri Hermannssyni, er um markaða fjárupphæð til ákveðins verkefnis, þ.e. til athugunar á hagkvæmni rafknúinna samgöngutækja. Í mörg ár flutti ég hér á hv. Alþ. þáltill. þessa efnis, og ég flutti hana ásamt hv. þm., sem flytur þessa brtt. með mér nú, og fleiri þm. á þessum árum. En því miður náði hún aldrei fram að ganga. Ég varð því nokkuð undrandi þegar ég sá það fyrir ekki ýkjalöngu, að prófessor einum við Háskóla Íslands hafði tekist að fá milljónatug a.m.k. úr pússi þáv. hæstv. iðnrh., sem enginn vissi reyndar, þegar úr pússi var dregið, hvaðan kom. Mér þótti þetta því furðulegra þegar þess var gætt, að hér var búið að berjast fyrir þessu máli árum saman á Alþ., innan veggja þeirrar stofnunar sem hefur með slíkar fjárveitingar að gera og á að marka stefnu í þessum málum sem öðrum sem fjárveitingar þurfa að renna til af almannafé.
Að sjálfsögðu fagnaði ég því, að það skyldu vera til fjármunir til þess að fara þó út í þessa smávægilegu tilraun sem gerð var, — og hefði jafnvel ekki þurft að fara að á þann veg sem gert var, heldur hefði mátt lesa sér til um þær niðurstöður sem verið er að leita að hér á götum borgarinnar um þessar mundir. Ég tel þetta samt sem áður ekki rétta leið. Ég tel að ef Alþingi Íslendinga og íslenska þjóðin hefur áhuga á að nýta þá orku, sem við eigum að vísu mikið til óvirkjaða enn þá, en þá orku sem þessi þjóð okkar á eftir að byggja á sína lífsafkomu í náinni framtíð, þá verðum við að athuga gaumgæfilega, hvort í henni sé ekki hluti þeirrar lausnar sem við verðum að finna á dýrum samgöngum hér á landi og flutningskostnaði.
Eins og kom fram í þeirri grg. sem fylgdi mínum þáltill., var ekki eingöngu miðað við smábíla. Það var líka miðað við almenningsvagna, við strætisvagna og jafnvel við einbrautalestir og fleira og fleira sem á var bent. Þessi samgöngutækni hefur tekið gífurlegum framförum árlega víðast hvar um heim, sérstaklega þó í þeim löndum sem hafa yfir vatnsafli að ráða og raforku frá því.
Þetta eru þær tvær brtt. sem ég hef flutt við frv. fram til þessa. En að sjálfsögðu væri ástæða til þess að ræða þetta frv. miklu ítarlegar. Það hefur verið drepið hér á nokkur atriði sem ég vildi aðeins fara nokkrum orðum um. Það hefur verið drepið á að fjárveiting til Lánasjóð ísl. námsmanna á að hækka um 141%. En það hefur komið mér mjög á óvart — og má vera að það sé framhald af því sem kom fram í dag hjá frsm. fjvn., hv. þm. Eiði Guðnasyni, að næstum ómögulegt væri að ná sambandi við þá aðila sem ættu að hafa með að gera úrvinnslu og úthlutun úr sjóði þessum, — það sem kom mér sérstaklega á óvart var að það virðist vera búið að afnema það sem vakti hvað mestan fögnuð hjá mér á sínum tíma og hv. þm., sem nú er látinn, Jóni Árnasyni, — ég er á vissan hátt að hrósa mér nokkuð fyrir minn þátt í því, — að við komum inn undir ákvæði þessa lánasjóðs nemendum sem stunduðu nám í öðrum skólum en Háskóla Íslands. Þar á meðal voru þeir menn sem stunduðu nám í sjómannaskólunum, Stýrimannaskólanum og Vélskólanum, og skyldum skólum. Og þetta gerðist þrátt fyrir það og meðfram vegna þess að við bentum á það, að þó að þessir menn hefðu sumir hverjir miklar sumartekjur, þá væru þeir í sínu sumarstarfi vegna þess að það væri hluti af þeirra námstíma. Auk þess er t.d. í Stýrimannaskólanum alþekkt sú staðreynd, að þangað fara mjög margir fullorðnir menn sem eru komnir með þungt heimili og veitir að sjálfsögðu ekkert af þeim tekjum sem þeir fá á þessum tíma.
Ég fór að spyrjast fyrir um mál þetta að gefnu tilefni, vegna þess að einn fullorðinn maður, sem stundar nám í farmannadeild Stýrimannaskólans, sótti um lán og þá kemur í ljós að hann fær neitun við sinni lánsumsókn. Og þá kemur í ljós við frekari könnun, hæstv. fjmrh. tjáir mér það í samtali, að þessu muni hafa verið breytt með reglugerð, þetta ákvæði hafi verið fellt niður, — þegar sumartekjur færu upp fyrir ákveðið mark, sem var ekki ýkjahátt, mundu þessi menn ekki vera gjaldgengir til lána úr þessum milljarða ofan á milljarða lánasjóði.
Ég óska mjög eindregið eftir að fá skýringu á því hér á hv. Alþ., áður en endanlega verður gengið frá samþykkt þessa frv., hvaða reglur gilda um lán úr þessum sjóði, t.d. hvort lánastefna hans sé sú að fyrirbjóða þeim, sem nám stunda, að leita sér atvinnu á milli námsanna og vinna sér inn peninga. Á ég að trúa því, að verið sé beinlínis að gera ráðstafanir til þess að draga úr athafnavilja þessara manna, einmitt þeirra manna sem vinna að þeirri framleiðslu sem við þurfum helst að fá vana menn til, þar sem eru okkar fiskveiðar? (Gripið fram í: Svo mun það vera.) Svo mun það vera, því miður, hv. þm. Nú eigum við hvorugur þátt í þessum ósköpum. (Gripið fram í: Nei, sem betur fer.) En við skulum vera sammála um að knýja fram lagfæringu á þessu.
Það hefur líka verið bent á það í þessum umræðum, að þrátt fyrir skýr ákvæði laga, svokallaðra Ólafslaga, IV. kafla, um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ríkisstj., eigi að liggja hér fyrir lánsfjáráætlun með meiru þegar við ræðum fjárlög. Nú væri það út af fyrir sig sérstakt tilefni fyrir mig að ræða feril núv. hæstv. ríkisstj., en þó frekast stjórnarferil sumra þeirra ráðh. sem þar eiga sæti nú og áttu sæti í fyrri ríkisstj., — ráðh. sem leyfðu sér að koma fram fyrir heilar stéttir og hópa þegna og lofa, en skrökva, lofa og svíkja og brjóta íslensk lög, þ. á m. lög sem þeir sjálfir höfðu sett — þ. á m. brbl. sem þeir höfðu sett til þess að leysa úr verkfalli sem þeir m.a. höfðu með ógætilegu hjali sínu æst og ýft til. Það er ekki í fyrsta skipti sem þessir menn eru að brjóta íslensk lög með því að leggja ekki lánsfjáráætlunina fyrir, því miður. Og mér sýnist á öllu, að á sama hátt og talið er að hæstv. forsrh. þurfi ekki að flytja sína stefnuræðu vegna þess að nokkur tími var um liðinn þegar ríkisstj. hans tók við völdum frá því að þing hafði komið saman, þá megi alveg eins segja og leggja að líku að það megi draga að leggja lánsfjáráætlunina fram, síðan verði staðið upp einn góðan veðurdag og hæstv. forsrh. eða hæstv. fjmrh. segi: Ja, það er svo langur tími liðinn síðan fjárlögin voru samþykkt að við þurfum ekkert að ræða lánsfjáráætlunina. Hana átti að vísu að ræða með fjárlögunum, en það er svo langur tími liðinn síðan að við þurfum ekkert að eiga við hana frekar. — Þetta er sambærileg skýring að mínu mati við það sem hefur verið látið liggja að um stefnuræðu forsrh.
Það hefur líka verið bent ítarlega á það, og það er sjálfsagt að geta um það einu sinni enn — og því vil ég gjarnan að það komi fram frá mér eins og öðrum þm. sem hér hafa talað, að það vantar marga milljarða í ríkissjóð til þess að standa undir þeim kvöðum sem við vitum að eru nú þegar komnar á ríkissjóð og eru ókomnar, skuldbindingum, uppfyllingu á loforðum sem hafa verið gefin. Þetta vantar. Og okkur hefur ekki verið sýnt hvernig eigi að afla þessara fjármuna. Samt vitum við og höfum fyrir framan okkur nú þegar þá staðreynd, að skattheimtan, heildarskattheimtan á þegnana hefur stóraukist frá því sem var í tíð vinstri stjórnarinnar, og þótti mörgum nóg um þá.
Hv. 10. þm. Reykv. drap hér í dag á rekstur sjúkrastofnana. Það er rétt sem hann sagði, að full ástæða hefði verið til þess að tala langt mál um rekstur þeirra og meðferð þeirra embættismanna og ráðh., sem hafa haft með þau mál að gera að undanförnu, og þá misbeitingu valds, sem þeir hafa beitt sumar stofnanir í þessu landi meðan þeir hafa vísvitandi hyglað öðrum. Og kannske er síðasta dæmið eitt það átakanlegasta, þegar hæstv. heilbr.- og trmrh. síðustu stjórnar, stjórnar Alþfl., gefur út reglugerð fyrir daggjaldanefnd sjúkrahúsa skömmu áður en hann fer frá völdum, reglugerð sem hefur stórkostleg áhrif á rekstur ákveðinna stofnana, sem daggjaldanefnd á að fjalla um. Þetta er gert án þess að tala eitt einasta orð við forráðamenn sumra af stærstu stofnunum sem undir þessi ákvæði falla, að ég ekki tali um að neitt sé gert til þess að bæta þann miska sem þessar stofnanir óhjákvæmilega verða fyrir vegna þessara breytinga. — Sjálfsagt mun gefast tækifæri til að ræða þetta mál ítarlegar. einhvern tíma á næstunni, en á þetta er bent sem einn lið í fjármálum ríkisins vegna ákvæða um sjúkratryggingar o.fl. En meðfram vegna þess að ég hef haft þessa gagnrýni uppi, þá vil ég nota tækifærið til þess núna að þakka fjvn. fyrir að hafa viðurkennt — og það gerir fjvn. — þá miklu neyð sem ríkir hér á suðvesturhorni landsins í hjúkrunarmálum aldraðra. Á þessa staðreynd neyðarinnar var einmitt bent af heilbrmrh. þeim sem ég var nú að enda við að gagnrýna, en hann benti réttilega á — og hafði þá tekið þeim rökum sem sumir fyrirrennarar hans tóku ekki — að það væri neyðarástand í þessum málum á þessu svæði.
Það, sem fjvn. gerir nú, er að ýta undir vilja þeirra sem reyna að leysa þennan vanda sjálfir án þess að fara beint í sjóði viðkomandi bæjarfélaga eða ríkissjóð, að styðja við bak þeirra til þess að efla þeirra starf svo að þeir vinni enn betur en ella. Og það er fyrsta fjárveiting sem er veitt til dæmis til hjúkrunarheimilis í Kópavogi. Stjórn kaupstaðarins á nefnilega enga aðild þar að aðra en að úthluta lóðinni. Hún var vanhæf til þess að standa fyrir þessari framkvæmd. Það voru borgararnir sjálfir sem tóku málið í sínar hendur, félög, frjáls félög, einstaklingar þar í bænum, sem hafa staðið fyrir þessari framkvæmd til þessa og safnað stórfé. Og það er bæði rétt og verðugt, að Alþingi Íslendinga komi nokkuð á móti þeim nú þegar og verðlauni þá fyrir þessa framtakssemi sína.
Þá kem ég að þeirri fyrstu athugasemd sem ég vildi beina til fjvn.-manna, hvort þeir vildu ekki gjöra svo vel að athuga milli umr. að flytja brtt. við 6. gr., við eitt heimildarákvæðið sem þar er. Það er gamalt heimildarákvæði þar, sem hefur staðið lengi, um að heimilt sé að gefa eftir skemmtanaskatt af skemmtunum sem eru haldnar til þess að efla slysavarnir. Og nú undirstrika ég mjög rækilega að úr þessu er ég ekki að draga. En ég hefði gjarnan talið, og vil þó ekki að svo stöddu flytja brtt. um það sjálfur, en ég tel rétt að þarna væri bætt við: „og til byggingar dvalar- og hjúkrunarheimila aldraðra“. Ég veit að til þess að fá í gang frjálst framtak til söfnunar til þessara mála, sem þurfa gífurlega mikilla fjármuna við á næstu árum, þá er enginn vafi á því, að við mundum leysa úr læðingi mikið starfsþrek hjá ýmsum aðilum ef þessir aðilar hefðu vissu fyrir að velviljuð ríkisstj. gæfi eftir skemmtanaskattinn hefði hún heimild til þess. Ég efa ekki að núv. hæstv. ríkisstj. hafi velvilja til þessara mála. Nógu er það vel undirstrikað í málefnasamningi hennar, sem ég les kvölds og morgna, eins og ráðh. sjálfir, að þeir vilji mikið gera í sambandi við dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra.
Svo fer kannske ekkert illa á því, að ég minnist aðeins á eitt atriði, sem reyndar hefur ekki enn þá verið flutt till. um, þó að í aths. við fjárlagafrv. sé getið um að fyrirhugað sé að selja vitaskipið Árvakur. En ég tel að það þurfi að leita heimildar til þess og leggja till. um það fram fyrir 3. umr.
Nú vil ég taka skýrt fram, að ég er algjörlega á móti því, að þetta skip sé selt. Þetta er sérbyggt skip, eitt með bestu skipum sem íslenska ríkið á. Það er sérbyggt til ákveðinna verkefna. Þetta er öruggasta og besta skipið til sinna verkefna sem við eigum, og reyndar eigum við ekkert annað skip sem getur annast þau verkefni sem þetta skip á að sjá um. Ég sé enga ástæðu til að fara að selja þetta skip úr landi, til olíuleitar fyrir aðrar þjóðir, ekki síst ef það er haft í huga, að svo gæti farið, að þetta skip gæti orðið mikil tekjulind fyrir íslenska ríkið á næstu árum, ef farið verður í olíuleit einhvers staðar á íslenska landgrunninu eða í grennd við það. Ég fæ ekki séð hvernig við eigum að halda uppi, svo vel sé, góðri öryggisþjónustu við vitakerfið og við annað það kerfi sem skip nota hér á siglingaleiðum — þar á ég við baujur og sjómerki bæði til sjós og lands, — hvernig á að halda uppi góðri þjónustu á þessu sviði öðruvísi en að hafa þetta sérbyggða skip til þess, enda hef ég engan mann heyrt, sem starfar að þessum málum, mæla með þessari sölu. T.d. veit ég að vita- og hafnamálastjóri sjálfur er mjög á móti þeirri hugmynd, að þetta skip verði selt. Ég vona hreinlega að till. um það sjái ekki dagsins ljós.
Hér var af síðasta ræðumanni minnst á vandamál strjálbýlis, og var minnst á þau í sambandi við sjónvarpsmálin. Ég verð síðasti maður til þess að gera lítið úr skoðunum manna á vandamálum strjálbýlisins. En ég minni á að allt sem sagt er um strjálbýli og vandamál þeirra sem þar búa og það sem á skortir að þeir geti fylgst með og notið menningarlífs, sem nú er talið nauðsynlegt — og þar með telst sjónvarpið, það á einnig við um íslenska sjómenn og þótt meira væri.
Ég flutti hér ár eftir ár till. við afgreiðslu fjárlaga um að felld yrðu niður öll aðflutningsgjöld af myndsegulbandstækjum sem væru notuð um borð í skipum. Þetta mátti ekki gera. Það voru bæði sjálfstæðismenn og framsóknarmenn, sem stóðu gegn þessu í stjórnartíð Geirs Hallgrímssonar — og reyndar nokkrir aðrir líka. En ég ætla ekki að láta reyna á það núna, hvort þetta yrði samþykkt nú, ekki að sinni. Ég ætla að sjá til hvort fjvn. vill ekki taka þetta mál upp, því að ég tel þetta svo sjálfsagt, ekki síst vegna þess, að nú í vetur, skömmu fyrir Norðurlandaráðsþing, bað ég tvo af fulltrúum okkar þar, hv. þm. Sverri Hermannsson og Matthías Á. Mathiesen, að taka það upp við viðkomandi ráðherra á Norðurlöndum, hvort íslenski verslunarflotinn gæti ekki fengið aðgang að þeirri þjónustu sem þaðan er veitt þessum flota öllum, hvar sem menn eru í heiminum, að hann fái til sinna nota bæði myndsegulbandsefni og eins kvikmyndir. Þetta er látið til skipanna gjaldfrítt, en viðkomandi stjórnvöld verða að taka þátt í þessari samvinnu og borga lítils háttar þjónustugjald. Mig minnir að það sé miðað við brúttórúmlestatölu þess flota sem undir þetta fellur.
Bæði þetta og svo sú tíðni, sem er orðin á myndsegulbandsefninu, gerir það auðvitað að verkum að íslenskir sjómenn, sem eru fjarri þeim stöðum sem sjónvarpað er frá og úti á hafi, geta notið efnis sem tekið er upp, þótt það sé jafnvel ekki skoðað um leið og það er sent út. — Ég vona að fjvn. geti fallist á að taka þetta upp og veita heimild til þessa í 6. gr.
Af því að ég var að tala um þetta mál í sambandi við starf sjómanna, þá hefur komið upp — ekki að vísu í ræðum í dag við 2. umr. fjárlaga, heldur undir öðrum kringumstæðum, að talað hefur verið um strjálbýli og hin misjöfnu menntunarskilyrði, sem fólk þar býr við, og þó sérstaklega þann mismun, sem er á aðstöðu þess og aðstöðu manna í þéttbýlinu. Í sambandi við þetta hafa komið upp umr. um fullorðinsfræðsluna og öldungadeildirnar, sem hafa verið settar á stofn, og þá staðreynd, að það er útilokað fyrir mjög stóran hóp þegnanna að taka þátt í þessu námi. Þetta er að sjálfsögðu hægt að leysa — bæði fyrir strjálbýli og fyrir þá sem fjarri heimili sínu dveljast atvinnu sinnar vegna, bæði inni í miðhálendi og eins á skipum úti — ekki aðeins með gamla forminu, sem hét og heitir bréfaskóli, heldur einnig núna með segulbandsupptökum sem hægt væri að útvega þeim sem vildu stunda slíkt nám. Það mundi hjálpa þeim mikið. Þeir gætu haldið áfram sínu starfi með námi þótt fjarri væru frá kennurum.
Hann kemur fram á furðulegan hátt ýmis svokallaður sparnaður sem nú er ástundaður af stjórnvöldum, og helst er honum beitt gegn þeim sem hafa ekkert tækifæri til þess að láta í sér heyra eða mótmæla. Það má líka vera vegna þess að stjórnvöld — fyrrv. ráðh. og kannske núv. ráðh. líka — séu orðin svo vön að geta fótum troðið þessar stéttir, og ég tala þá í fleirtölu þegar ég tala um sjómenn, — þau séu orðin svo vön því að geta fótum troðið þá og svikið loforð sín við þá og brotið lög á þeim að það muni ekkert um þótt aðeins sé bætt í posann sem þeir eru búnir að leggja á þá. Eitt dæmi er það, að nú fyrir skömmu var lokað fyrir litla þjónustu til þeirra, sem var í því fólgin að svokallað Nesradíó, sem er ein af strandstöðvunum svokölluðu, sendi út til skipa á 1640 kílóriðum og skip tóku þar að sjálfsögðu einnig á móti. Þetta radíó sendi út kvöldfréttir útvarpsins á þessari bylgju. Skip heyrðu þessa sendingu mjög vel, og ekki aðeins skip, heldur Íslendingar búsettir víðs vegar á Norðurlöndum, skip suður í Ermarsundi, í Norðursjó og inni í Eystrasalti heyrðu þessar ítarlegu kvöldfréttir, sem nú eru hjá Ríkisútvarpinu og vekja athygli sérstaklega þeirra sem hafa ekki tækifæri til þess að fylgjast með öðrum daglegum fjölmiðlum, eins og sjónvarpsfréttum hér heima og dagblöðunum. En allt í einu kemur eitthvert æðra bann sem lokar fyrir þessar sendingar til sjómanna á hafi úti. Það var búið ekki alls fyrir löngu að leggja niður svokallaðar morsfréttir til skipa, sem þannig voru sendar út, og má segja að það hafi verið nokkur ástæða til, því að loftskeytamönnum hefur farið mjög fækkandi á íslenska flotanum. Samt sem áður er sendur út kl. 12 miðdegis á stuttbylgju stuttur fréttaútdráttur, er mér sagt. En ég skil ekki svona sparnað, sérstaklega ekki þegar við höfum það í huga, að Íslendingar hafa eflt þessa atvinnugrein mjög mikið á síðustu árum. Siglingarnar eru orðnar snar þáttur í okkar sjómennsku og okkar útgerð. Við eigum nokkurn flota sem kemur ekki heim mánuðum saman, en aflar gjaldeyris með siglingum á milli landa, milli erlendra hafna.
Það má vel vera að það sé angi af þessum viðhorfum opinberra aðila til þessara stétta, sem nú er að koma fram hjá þeim, ekki aðeins á Vestfjörðum, heldur líka hér í aðalstöðum yfirmanna á farskipum, sem voru beittir því valdinu sem margir, sem nú sitja á Alþingi Íslendinga, telja eitt hið mesta óþurftarverk sem hægt sé að beita íslenska launþegahreyfingu. Það má vel vera, að það séu einhverjar þakkir sem verið sé að færa fyrri stjórnendum þessa lands og reyndar núverandi líka, ég skal ekki fullyrða það. En hitt veit ég, að þessara litlu atriða, sem kosta lítið sem ekkert fyrir þjóðarheildina, á þetta fólk alveg sömu kröfu og aðrir til þess að njóta. Þetta eru menn sem flestir eru heimilismenn og borga sína skatta og skyldur hér á fastalandinu og eiga þess vegna rétt á að njóta einhvers lítils af gæðunum um borð í skipum sínum og á sínum vinnustað. Ég tel að allt, sem gert er til þess að rýra þessi litlu hlunnindi, séu til þess að egna þessa menn, sem ég tel einmitt nú á tímum að lítil ástæða sé til, allra síst fyrir þá sem sitja í hæstv. ríkisstj. og sátu í fyrri vinstri stjórn.