20.12.1979
Neðri deild: 7. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (143)

9. mál, olíugjald til fiskiskipa

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það mál, sem hér er til umr., er gott sýnishorn af þeim skyndiaðgerðum sem alltaf er verið að gera vegna þess skipulagsleysis sem ríkir í sjávarútvegi, og vegna skorts á heildarstefnu sem þarf að eiga sér þar stað. Hér er búið að úthugsa nýtt millifærslukerfi milli fisktegunda, og í reynd er það svo, að hinar arðsamari fisktegundir eru látnar greiða útflutningsbætur með hinum. Í sjálfu sér er það skynsamlegt innan vissra marka. En ég er alveg sammála hv. 1. þm. Vestf. um það, að verði slíkt gert í framtíðinni þarf að ætla því sérstakan tekjustofn, og einnig hitt, að þá hlýtur að verða skilyrði að þeir, sem standa að ákvörðuninni um dreifingu fjármagnsins, hafi meiri yfirsýn yfir landið en þeir sem samþykktu þær aðgerðir sem hér hafa verið lagðar til, því að satt best að segja verður maður ekki var við annað en hér sé verið að framkvæma það sem oft hefur verið gert áður, að það er verið að taka frá hinum dreifðari byggðum og færa til þessa svæðis hér við suðvesturhornið.

Hitt vekur einnig undrun, þegar maður horfir á þær hækkanir sem hér hafa orðið, að hinar verðbættu fisktegundir hafa hækkað allt upp í 120% á sama tíma og þorskurinn hefur hækkað mun minna. Þetta vekur vissulega undrun. Ég minnist þess á sínum tíma varðandi olíusjóð, sem myndaður var, að með honum voru færð til hundruð milljóna. Það voru eitthvað um þrír milljarðar sem fóru þar í gegn þegar hann var á hátindi sinnar frægðar, og þetta millifærslukerfi byggðist allt á því að ýta þeim, sem stóðu upp úr, örlítið niður til að fleyta þeim sem voru komnir niður fyrir yfirborðið. Það er tómt mál að tala um að olíuverðshækkanir séu eitthvert skyndifyrirbrigði sem sennilegt sé að muni hverfa á morgun. Olíuverðshækkanir eru fyrirsjáanleg þróun og þær eru ekki komnar enn á hátind. Það er álit allra þeirra sérfræðinga sem um þessi mál hafa fjallað. Og allar aðgerðir, sem eru miðaðar við að þetta sé eins og hver önnur óáran sem muni mjög fljótlega hverfa, eru fyrst og fremst barnalegar. Þess vegna held ég að það sé tími til kominn að farið verði í það að kanna m.a., hvaða veiðiaðferðir skila mestum fiski á land með minnstri olíunotkun. Það er eitt af því sem þarf að athuga. Og það getur bókstaflega unnið gegn efnahagslegri uppbyggingu að mínu viti ef við reynum ekki að taka mið af þessari þróun, en stefnum alltaf fyrst og fremst að því einu að færa hlutina til eins og þessi þróun hafi aldrei átt sér stað.