26.03.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (1430)

116. mál, fjárlög 1980

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Þessari 2. umr. fjárlaganna er senn lokið, þar sem ekki eru fleiri á mælendaskrá, Ég vil ljúka umræðunni með því að bæta hér nokkrum orðum við.

Fyrst og fremst vil ég þakka fjvn.-mönnum fyrir ágæt vinnubrögð. Ríkisstj. sú, sem nú er við völd, var mynduð 8. febr. s.l., en nýtt fjárlagafrv. var lagt fram 10. mars. Að vísu hafði efni þess verið kynnt nokkrum dögum áður, viku áður, 4. mars, fyrir fjvn.-mönnum til þess að auðvelda þeim störf þeirra. En nú fer sem sagt fram 2. umr. þrem vikum síðar. Hér er tvímælalaust mjög vel að verki staðið og nokkuð ljóst að þetta hefði ekki tekist á svo skömmum tíma ef ekki hefði verið óvenjulega góð samstaða meðal nm. um að afgreiða fjárlagafrv. fyrir páska. Ég vil sem sagt ítreka þakkir mínar til fjvn.manna og þá ekki síst til form. nefndarinnar, hv. þm. Eiðs Guðnasonar.

En úr því ég nefndi nafn hans er kannske eðlilegast að víkja þar næst að þeim ágreiningi sem hann setur fram í séráliti sínu, þar sem hann gerir því skóna að raunhæft sé og skynsamlegt að standa að stórfelldum niðurskurði fjárlagafrv. með ýmsum tilfæringum sem hann gerir þar till. um. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þessar till., en vil segja það eitt almennt um þessar till., að ég tel að þetta séu hreinar málamyndatillögur. Ég get nefnt ýmis dæmi því til sönnunar, að hér er ekki verið að gera till. um raunverulega lækkun fjárlaga eða raunverulegan sparnað í ríkisrekstri.

Við skulum taka hér sem dæmi till. þm. um það, að tekjur af Áfengisverslun ríkisins verði áætlaðar með öðrum hætti en gert er í frv. Í frv. er við það miðað, að skil Áfengisverslunar ríkisins til ríkissjóðs verði 24 milljarðar kr., en það er 40% hækkun skila hennar í ríkissjóð miðað við liðið ár. Þá voru skilin 17.2 milljarðar. Þessi hækkun í frv. er bersýnilega talsvert umfram áætlaðar verðlagsbreytingar á komandi ári, því eins og mönnum er kunnugt eru verðlagsbreytingar í frv. miðaðar við u.þ.b. 31%. En í tekjuáætlun, sem ég tel að sé í raun og veru fulldjörf, er gert ráð fyrir að hækkunin verði 40%, eins og ég hef þegar sagt. Hv. þm. kemur einfaldlega með till. um að bæta þarna við 2 milljörðum, hækka skil Áfengisverslunarinnar úr 24 milljörðum í 26, og er þar kominn með 51% hækkun, 20% umfram almennar verðlagshækkanir.

Eins og ég hef sagt er fremur ástæða til að óttast að frumvarpstalan, eins og hún er nú, sé ofáætluð. Og ég hef ekki neina ástæðu til að ætla það, fremur en hv. þm., að landsmenn verði drykkfelldari á þessu ári en þeir voru á því síðasta. Ég held að æðimiklar líkur séu á því, ef áfengisverð er hækkað í svo miklum mæli sem hér er gerð till. um, að þá yrðu landsmenn eitthvað að spara við sig drykkjuna. Það munu vera ákveðin lögmál þar á milli og enginn vafi að þessi till. er meira eða minna út í bláinn.

Annað dæmi um þessa tillögugerð þm., sem hann flytur hér fyrir hönd Alþfl., er till. hans um hækkun á tekjuskatti félaga. Hann hafði mörg stór orð um það áðan, að við Alþb.-menn vildum greinilega hlífa félögunum, en þeir Alþfl.-menn vildu bæta þar 850 millj. kr. við. Það vantar ekki að þeir eru róttækir í stjórnarandstöðunni, Alþfl.-menn. En auðvitað er það ekki aðalspurningin í þessu sambandi, hvaða áætlunartala er sett inn í fjárlagafrv. Auðvitað er það aðalatriðið, hvernig menn ætla að ná þessum auknu tekjum. Talan í fjárlagafrv. er ósköp einfaldlega fengin frá Þjóðhagsstofnun sem áætlar að fyrirliggjandi frv., sem miðað er við 65% tekjuskatt félaga, skili þessum 10 þús. millj. Ef Alþfl. ætlar að ná þarna 850 millj. kr. til viðbótar, þá verður hann að sjálfsögðu að gera till. um að hækka tekjuskatt félaganna eða með einhverjum hætti að ná þessum viðbótartekjum í ríkissjóð. En ég hef ekki orðið var við að þeir kratar flyttu till. af því tagi. Þvert á móti hafa þeir flutt hér till, um talsverða tekjuskattslækkun. Ég á varla von á að hv. þm. hugsi sér það, að þeir, sem reka fyrirtæki sín í eigin nafni, borgi lægri tekjuskatt en hinir, sem reka fyrirtæki í félagsformi. Að sjálfsögðu er náið samræmi milli þeirrar tillögugerðar sem við höfum haft uppi um tekjuskatt einstaklinga í rekstri annars vegar og tekjuskatt félaga hins vegar. Með þessari tillögugerð Alþfl. yrði þarna bersýnilega mikið bil, þar sem talsvert miklu óhagstæðara yrði að reka fyrirtæki í félagsformi. Ég held að útilokað sé að ætla þeim Alþfl.mönnum að valda hér slíku ósamræmi sem hlyti að vera fólgið í því, að félagsprósentan væri miklu hærri en einstaklingsprósentan. Og ég held að þetta sýni það, að hér er Alþfl. ekki að koma með till. um raunverulega útgjaldalækkun eða tekjuhækkun. Hann er bara einfaldlega að búa til gat, hann er að búa til óraunsæja áætlun sem ekki mundi standast í raun, heldur koma fram sem rekstrarhalli í árslok. Það gildir sem sagt nákvæmlega það sama í báðum þessum tilvikum. Þarna er verið að búa til gat í frv., vísvitandi gat.

Nokkuð svipað stendur á um till. þeirra Alþfl.-manna um að óviss útgjöld frv. verði verulega lækkuð, eða um 500 milljarða kr. Það er nákvæmlega sama till., að stefna í meiri óvissu með tekjuafganginn, því að það segir sig nokkuð sjálft að þessi tala, óviss útgjöld, er einmitt ættuð til þess að koma í veg fyrir það að verulegur rekstrarhalli myndist. Þetta er að vísu ekki eina aðferðin sem beitt er í því skyni, eins og kunnugt er, en með því að lækka tölur af þessu tagi er bersýnilega verið að gera frv. óraunhæfara en ella þyrfti að vera.

Ég vil nú ekki láta sömu orð fylgja þeirri till. krata að lækka útflutningsbætur, því að það hefur verið hugsjónamál þeirra um margra ára skeið að útflutningsbætur verði verulega lækkaðar. Hér er gerð till. um að útflutningsbætur verði lækkaðar úr 10% í 9% af söluverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. En ég minni bara á það, að ekki er nóg með að þetta sé harla köld kveðja í garð bændastéttarinnar í kjölfar þeirra harðinda sem hún hefur orðið að þola á seinasta ári, heldur er þetta einfaldlega till. sem enginn annar flokkur er reiðubúinn til að standa að með þeim Alþfl.mönnum. Þeir geta veifað till. af þessu tagi í fullu trausti þess, að hún verður aldrei framkvæmd. Þeir munu ekki fá nokkurn annan aðila til að styðja sig í að framkvæma slíka tillögu.

Í tillögugerð hv. þm. Eiðs Guðnasonar er gert ráð fyrir því, að framlög til Lánasjóðs ísl. námsmanna verði verulega lækkuð, eða um rúma 2 milljarða kr., 2 milljarða 120 millj. kr. Ég held að það sé út af fyrir sig vel skiljanlegt, að menn láti sér detta í hug að Lánasjóður ísl. námsmanna geti komist af með minni fjármuni en sjóðnum eru ætlaðir í þessu frv., því að óneitanlega hafa framlög til þessa sjóðs hækkað gífurlega á seinustu tveimur árum. Í aths. við fjárlagafrv. hef ég einmitt vakið athygli á því, að þessi framlög til Lánasjóðs ísl. námsmanna hafa vaxið úr 2235 millj. kr. í fjárlögum seinasta árs í 5395 millj., og þó á eftir að telja lántökuna, sem vex úr 1100 millj. í 1700 millj. Þetta eru ískyggilegar upphæðir og ótrúlegar í augum þeirra sem lítið þekkja til. En þó ber þess að gæta, að vonandi gera sér flestir grein fyrir því, að lán til einstakra námsmanna eru ekki fyrirhuguð hærri en þau hafa áður verið. Gert er ráð fyrir að lán til námsmanna verði hlutfallslega nákvæmlega þau sömu og þau hafa verið um mörg undanfarin ár og miðist við 85% af áætlaðri umframfjárþörf, þegar fullt tillit hefur verið tekið til tekna námsmannsins. Tekjurnar eru allar dregnar frá og námsmanninum ekki ætluð meiri þurftarlaun en verkamanni á lægsta taxta.

Skýringin á því, að upphæðin hefur vaxið svo gífurlega, er hins vegar einfaldlega sú, að verðbólga hefur verið mikil, gengisbreytingar talsverðar og fjárlagaupphæðin fyrir 1979 er áætluð á haustmánuðum 1978, en við erum núna komin fram á vormánuði 1980, og enginn vafi er á því, að hér er um miklu raunhæfari tölu að ræða en áætluð var í fjárlögum 1979, enda kom í ljós að þá þurfti að bæta talsverðu fé við.

Það er illt að þurfa að bæta við fé til slíkra hluta sem þessara í árslok vegna vanáætlunar, vegna þess að slíkt veldur rekstrarhalla eða á sinn þátt í að rekstrarhalli skapist. Það, sem gert hefur verið í sambandi við Lánasjóð ísl. námsmanna, er ósköp einfaldlega það, að reynt hefur verið að áætla af fyllsta raunsæi, kannske í fyrsta sinn í mörg ár, hvað sjóðurinn raunverulega þarf, þannig að ekki þurfi að bæta við síðar á árinu.

Önnur skýring á því, að þessi upphæð hefur vaxið svo gífurlega sem raun ber vitni, er greinilega sú, að þegar lánin frá Lánasjóði ísl. námsmanna voru fyrst verðtryggð, sem gerðist fyrir fjórum árum, þóttu þessi lán frekar óhagstæð. Þau voru óhagstæðari en mörg önnur lán sem fáanleg voru á lánamarkaðnum, t.d. bankalán. Þessi lán eru að vísu ekki með vöxtum, en þau eru verðtryggð. Og það var greinilegt, að námsmenn voru frekar hikandi og tregir að taka þessi lán. En eftir að vextir hafa hækkað svo feiknarlega sem raun ber vitni og vaxtaaukalán eru nú þau lán sem menn eiga kannske einna helst aðgang að, þá virðast viðhorf námsmanna gagnvart þessum sjóði og gagnvart þessum lánum hafa breyst mjög verulega og þeir eru farnir að taka þessi lán í miklu, miklu ríkari mæli en áður var. Það verður feiknarleg fjölgun lántakenda á hverju misseri. Og það er fyrst og fremst þetta, sem veldur þessari gífurlegu aukningu á lánsfjárþörf sjóðsins. Þetta eru hins vegar verðtryggð lán. Það má velta því fyrir sér, hvort ekki sé þörf á því að hraða endurgreiðslum til sjóðsins, og í till., sem ég flutti hér á Alþ. í fyrravor í frv.-formi um þennan sjóð, var einmitt gert ráð fyrir því, að endurgreiðslum til sjóðsins yrði verulega hraðað og að þeir, sem hafa miklar tekjur að námi loknu, greiði meira og örar til sjóðsins en verið hefur. Það er afar brýnt að þetta mál verði afgreitt með einum eða öðrum hætti af Alþ., að endurgreiðslur til sjóðsins verði endurskoðaðar. En ég tel ekkert tilefni til þess, eins og nú stendur á, að lækka lánaprósentuna verulega frá því sem verið hefur um mörg undanfarin ár.

Ég get upplýst það hér, að fljótt á litið virðist Alþfl. gera till. um það nú við 2. umr. fjárlaga, að lánaprósentan til íslenskra námsmanna verði lækkuð úr 85% niður í 58%. Ég held ég megi segja að hún hafi ekki á þessum áratug verið svo lág sem Alþfl. gerir nú till. um. Þetta er hressileg kveðja í garð námsmanna og ég vænti þess sannarlega að þeir taki vel eftir henni.

Ég er sannfærður um það, að ef Alþfl. væru nú í stjórn og væri að setja fram till, sem væru alvörutillögur, þá hefði hann ekki sett fram þessa till., hvorki þessa né hinar sem ég hef nú nefnt, því þær eru allar óraunhæfar og verða að flokkast undir sýndarmennsku.

Friðrik Sophusson vék að því hér áðan, að lítt væri skiljanlegt að áformað væri að selja flugvél hjá Landhelgisgæslunni og gert ráð fyrir að andvirði flugvélarinnar kæmi inn sem reiðufé í ríkissjóð í kjörfar þess að vélin væri seld. Ég vil upplýsa þennan leyndardóm fyrir hv. þm. Það er einfaldlega gert ráð fyrir að þessi vél verði seld fyrir allnokkuð hærri fjárhæð en fjárlagafrv. gerir ráð fyrir. Þær upplýsingar, sem við höfum fengið í hendur, eru þær, að hugsanlegt sé að það verð, sem fáist fyrir vélina, sé milli 500 og 600 millj. og sé því fullkomlega raunhæft að gera ráð fyrir að 350 millj. verði greiddar út.

Hv. þm. Friðrik Sophusson spurði hvernig á því stæði, að skipið Árvakur væri á rekstrarfjármagnslista Landhelgisgæslunnar. Það er rétt, sem greinilega fólst í orðum þm., að þetta skip var á sínum tíma keypt fyrir vita- og hafnamálastjórn. Ríkissjóður á hins vegar skipið og hefur látið Landhelgisgæsluna reka það. Það hefur því verið skráð í þessu frv. og fyrri frv. á reikningi Landhelgisgæslunnar, því að það er hún sem rekur skipið. Þegar skipið verður selt er gert ráð fyrir að andvirðið renni í Landhelgissjóð, sem er auðvitað í reynd fyrst og fremst angi af ríkissjóði.

Það hefur verið nokkuð kvartað yfir því hér í kvöld, að lánsfjáráætlun skuli ekki liggja fyrir. Vissulega hefði verið heppilegra að lánsfjáráætlun hefði legið fyrir um leið og fjárlagafrv. var lagt fram. En því er til að svara, að það hefur einfaldlega ekki gefist tóm til þess að vinna að hvoru tveggja á sama tíma, fjárlagafrv. og lánsfjáráætluninni. Þegar ég kom í fjmrn. voru þar fyrir hendi ákaflega ófullkomin drög að lánsfjáráætlun. Bersýnilegt var, að efni hennar þurfti að endurskoða frá grunni, og allar tölur í henni algjörlega óraunhæfar. Undanfarnar vikur hefur farið fram efnissöfnun, en það verður að segjast alveg eins og er, að nægar upplýsingar eru enn ekki fyrir hendi til þess að unnt sé að setja lánsfjáráætlun saman og leggja hana fyrir þingið. Hins vegar höfum við stefnt að því seinustu dagana að reyna að leggja fram upplýsingar um þann hluta lánsfjáráætlunar, sem snertir A- og B- hluta fjárlaga, strax eftir næstu helgi. Ég vænti þess, að þá verði jafnframt hægt að veita upplýsingar um áform fjárfestingarlánasjóða og um fyrirhugaða útvegun lánsfjár til þeirra. En því er alls ekki að leyna, að það skortir upplýsingar um marga þætti lánsfjáráætlunar, t.d. um fyrirtæki sem rekin eru með eignaraðild ríkisins. Þar á ég t.d. við Landsvirkjun, Áburðarverksmiðjuna, Þörungavinnsluna og önnur slík fyrirtæki. Það skortir enn upplýsingar til þess að hægt sé að taka endanlegar ákvarðanir um hve miklar framkvæmdir þessi fyrirtæki ráðist í og hve mikils lánsfjár verði aflað til þeirra. Það skortir líka upplýsingar um það, hver verði fyrirhuguð lántaka atvinnufyrirtækja, þ. á m. eins mjög stórs fyrirtækis, þar sem er Járnblendiverksmiðjan. Staðreyndin er sú, að framkvæmdaáform þessara aðila eru mjög mikil að vöxtum. Framkvæmdaáform Landsvirkjunar eru upp á 32 milljarða, og af þeirri fjárhæð er gert ráð fyrir að taka þurfi að láni 30 milljarða. Framkvæmdaáform Járnblendiverksmiðjunnar eru upp á 10 milljarða og gert ráð fyrir að það verði allt tekið að láni. Aðrar raforkuframkvæmdir og framkvæmdir sveitarfélaga eru áætlaðar í kringum 24 milljarða, og eru það að verulegu leyti raforkuframkvæmdir. Hitaveituframkvæmdir eða áform á því sviði eru upp á 25 milljarða. Hér stefnir greinilega í of miklar erlendar lántökur, og það er talsvert verk sem liggur því að baki að átta sig á hvað sé hægt að takmarka af þessu og hvað sé óhjákvæmileg nauðsyn og verði að hafa forgang. Ég tel að ef framkvæmdaáform Landsvirkjunar og Járnblendiverksmiðjunnar — sem samanlagt eru með erlendar lántökur upp á 40 milljarða, bara þessi tvö fyrirtæki — verða óbreytt, þá horfi nokkuð ískyggilega með erlendar lántökur á þessu ári, það geti ekki farið hjá því. En auðvitað er óhjákvæmilegt að skoða það vandlega, hvort ekki er hægt að fresta einhverjum af þessum áformum til næsta árs, þannig að erlend lántaka á þessu ári fari ekki úr hófi fram.

Ég hef sagt hér og ítreka það, að við erum að vinna að lánsfjáráætlun af fullum krafti og gerum ráð fyrir að geta gefið upplýsingar um þann hluta hennar sem snýr að A- og B-hluta fjárlaganna, strax eftir næstu helgi. En ég geri mér ekki vonir um það, að nægilega ljóst liggi fyrir um þessar miklu orkuframkvæmdir, áður en Alþ. fer í páskaleyfi, til þess að hægt sé að taka þar endanlegar ákvarðanir.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða hér frekar um fjárlagafrv. að sinni, en ítreka þakkir mínar til fjvn.