27.03.1980
Efri deild: 53. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1501 í B-deild Alþingistíðinda. (1433)

131. mál, flugvallagjald

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Lög nr. 8 frá 27. febr. 1976, upphaflega nr. 11/1975, veita ríkisstj. heimild til að leggja á sérstakt gjald, flugvallagjald, sem runnið hefur í ríkissjóð. Á seinasta ári var sú breyting gerð á lögunum, að gjald þetta rennur til flugvallaframkvæmda. Gjaldið er ákveðin krónutala og hefur því þurft að hækka það til samræmis við almenna verðlagsþróun á hverju ári. Með þessu frv. er lagt til að gjaldið hækki til samræmis við verðlagsþróun og þá fyrst og fremst þróun framfærsluvísitölu frá 1. jan. 1979 til 1. jan. 1980. Hækkunin er nærfellt 60%. Samkvæmt því yrði gjaldið 8800 kr. fyrir farþega í millilandaflugi, en 650 kr. fyrir farþega í innanlandsflugi.

Rétt er að hafa það í huga, að á árinu 1979 urðu tekjur af gjaldinu minni en áætlað hafði verið eða einungis 692 millj. af þeim 770 sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárlögunum. Nú eru liðnir þrír mánuðir af þessu ári án þess að gjaldtakan hafi í nokkru breyst og þess vegna er óhjákvæmilegt að hækkunin sé a.m.k. sú sem hér er gerð tillaga um.

Í 2. mgr. 2. gr. frv. er lagt til að ráðh. verði veitt heimild til að hækka flugvallagjald til samræmis við verðlagsbreytingar. Eðlilegt er að sú heimild sé bundin við hækkun byggingarvísitölu þar sem ætlunin er að nota þetta fé til flugvallagerðar, enda er það til samræmis við ákvæði um fjáröflun til vegagerðar, bensíngjaldið. Með þessu móti ætti að vera óþarft að koma með þetta mál inn í sali Alþingis á hverju ári til að breyta upphæðum til samræmis við verðbólguþróun.

Herra forseti. Ég vænti þess, að báðar deildir þingsins sjái sér fært að afgreiða þetta mál fyrir páska, sem þýðir að sjálfsögðu að hv. Ed. verður að hraða afgreiðslu málsins. Ég vil þess vegna mælast til þess við þá n., sem fær málið til meðferðar, að hún reyni að skila áliti hið allra fyrsta.

Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði máli þessu vísað til hv. fjh.- og viðskn.