27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)

116. mál, fjárlög 1980

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. er ákvæði um að verja 5000–7000 millj. kr. til félagslegra aðgerða og verður verulegum hluta þeirrar upphæðar varið til félagslegra íbúðabygginga. Nýlega eru hafnar viðræður milli ríkisstj. og Alþýðusambands Íslands um þessar aðgerðir og með tilliti til áforma stjórnvalda um stórátak í fétagslegum íbúðabyggingum í samvinnu við samtök launafólks hefur þingflokkur Alþb. ákveðið að hafna nú þeirri till. sem hér er á dagskrá. Ég segi því nei.