27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1514 í B-deild Alþingistíðinda. (1472)
116. mál, fjárlög 1980
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vænti þess, að mér leyfist að gera grein fyrir atkv. mínu þó að ég hafi týnt stjórnarsáttmálanum. Það hefur oft komið fram í umr. hér á Alþ. að eitthvert mesta ójöfnunarmál á Íslandi er mismunur kyndikostnaðar. Það veldur lágtekjufólki og gömlu fólki slíkum búsifjum að það hefur varla í sig og á, þegar það þarf að borga margfaldan kyndikostnað á við aðra þegna í þessu þjóðfélagi. Hingað til höfum við aldrei afgreitt fjárlög eftir að þessi vandi skapaðist án þess að ríkissjóður tæki á sig einhvern kostnað í sambandi við lausn þessa vanda.
Það fjárlagafrv., sem núv. hæstv. ríkisstj. byggir fjárlagafrv. sitt á, fjárlagafrv. fyrrv. fjmrh. Tómasar Árnasonar, gerði ráð fyrir því, að ríkissjóður legði fram 2.3 mill jarða í þessu skyni. Nú hefur hæstv. núv. ríkisstj. eytt þessu fé í annað og skilar frá sér fjárlagafrv. án þess að þar sé gert ráð fyrir að ríkissjóður verji svo mikið sem einni krónu af sinni hálfu til lausnar þessum mikla vanda. Í fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. Gunnars Thoroddsens er vandi olíuhitunarsvæðanna ekki lengur til. Hæstv. ríkisstj. lokar augunum fyrir honum eins og fjölmörgum öðrum vandamálum. Það er Alþ. til vansa, eins og málum er háttað úti í hinum dreifðu byggðum, að ætla sér að afgreiða fjárlög án þess að á þetta mál sé minnst. Ég segi því já.