28.03.1980
Neðri deild: 51. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1516 í B-deild Alþingistíðinda. (1479)

97. mál, almannatryggingar

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér kemur nú til umr., er einnig flutt af fráfarandi ríkisstj. Þetta frv. felur í sér veigamiklar breytingar á lögum um almannatryggingar, þar sem tekinn er inn nýr bótaþáttur almannatrygginga í lífeyristryggingu, svokallað fæðingarorlof.

Svo sem kunnugt er hefur verið greitt fæðingarorlof í ákveðnum tilvikum um skeið, en kostnaður við þetta fæðingarorlof hefur verið greiddur úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Í sambandi við setningu laga um eftirlaun til aldraðra nú á þessu þingi er gert ráð fyrir að þessari greiðslubyrði verði létt af Atvinnuleysistryggingasjóði.

Svo sem fyrr sagði er þetta lagaákvæði nýmæli í lögum um almannatryggingar. Hér er gert ráð fyrir að hverju foreldri með lögheimili á Íslandi verði tryggð laun í fæðingarorlofi sem að aðalreglu skal vera þrír mánuðir eða 90 dagar samfellt.

Tilgangur með fæðingarorlofi er að kona fái tækifæri til að ná sér eftir þá áreynslu sem barnsburður óneitanlega er. En þó má minna á að sá þáttur er ekki álitinn síður mikilvægur, að foreldri geti annast barn sitt á fyrsta æviskeiði þess. Með tilliti til þessa er fæðingarorlofsrétti skipt milli fæðandi móður og uppeldisforeldris sé ekki um sömu aðila að ræða.

Sú breyting, sem hér er lög til, gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingu á réttarstöðu fæðandi kvenna og viðkomandi feðra:

1) Allar konur, sem forfallast frá vinnuráðningu vegna barnsburðar, skulu halda dagvinnulaunum sínum í a.m.k. þriggja mánaða fæðingarorlofi.

2) Konur utan vinnumarkaðarins og konur, sem hafa mánaðarlaun undir mánaðarupphæð sjúkradagpeninga, eiga rétt á fæðingardagpeningum í þrjá mánuði sem svarar til sömu upphæðar og nemur fullum sjúkradagpeningum þann tíma.

Í frv. þessu er gert ráð fyrir því, að kostnaði við fæðingarorlof þetta verði skipt milli atvinnurekenda og ríkissjóðs. Er í fylgiskjali rakið hvernig kostnaður skiptist og hver útgjaldaauki ríkissjóðs annars vegar og atvinnurekenda hins vegar er talinn vera á ársgrundvelli af þessu frv. En í stuttu máli er talið að útgjaldaauki ríkissjóðs að óbreyttu frv. væri um 900 millj. kr. á ári og er útgjaldaauki atvinnurekenda svipaður.

Í því fjárlagafrv., sem nú er til meðferðar á hv. Alþ., er ekki gert ráð fyrir viðbótargreiðslum í þessu skyni, enda er í frv. gert ráð fyrir að lögin, ef samþykkt verða, taki gildi frá 1. jan. 1981.

Eftir að frv. þetta var lagt fram á hv. Alþ. hafa mér borist aths. við frv. frá ýmsum aðilum. Í því sambandi vil ég sérstaklega nefna bréf frá Jafnréttisráði sem er dagsett 28. febr. 1980. Þar eru gerð að umtalsefni nokkur atriði frv. og þau gagnrýnd. Einkum er það greiðsluform fæðingarorlofsins sem er gagnrýnt. En í bréfi Jafnréttisráðs segir svo orðrétt:

„Það er álit Jafnréttisráðs, að verði sú greiðslutilhögun, sem gert er ráð fyrir í frv. að lögum, skerðist samkeppnishæfni kvenna á vinnumarkaðinum verulega, bæði hvað varðar atvinnutækifæri og laun.“

Þá hefur mér borist bréf frá Kvenréttindafélagi Íslands, dagsett 19. mars 1980, þar sem sömu aths. eru gerðar.

Loks vil ég láta þess getið, að í þeim viðræðum, sem nú eru nýlega hafnar milli ríkisstj. og Alþýðusambands Íslands, hefur m.a. verið fjallað um þetta málefni sérstaklega, þ.e. fæðingarorlof og hvernig að því yrði staðið.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og tm.