20.12.1979
Neðri deild: 8. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (149)
49. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta og þessari hv. d. fyrir að fallast á að þetta mál verði tekið á dagskrá.
Á árinu 1979 var lagt á og innheimt sjúkratryggingagjald, sem svo er nefnt, samkv. lögum nr. 1 15 frá 1978. Þótt gjald þetta beri nafn sjúkratrygginga rennur það beint og óskipt í ríkissjóð og er fært teknamegin á ríkisreikninginn. Á árinu 1980 er áætlað að gjald þetta nemi 6 milljörðum 950 millj. kr. eða ríflega 14% allra tekjuskatta ársins.
Frv. það, sem hér er flutt, gerir ráð fyrir óbreyttri skattheimtu að þessu leyti frá því sem er á yfirstandandi ári. Það er efnislega shlj. lögum nr. 115 frá 1978, með þeim breytingum þó sem leiðir af gildistöku nýrra laga um tekju- og eignarskatt, nr. 40 frá 1978, svo og með hækkuðum skattleysismörkum hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og hækkuðu skattþrepi. Þannig hækka skattleysismörk hjá elli- og örorkulífeyrisþegum um tæplega 45% og skattþrepið milli 1.5% gjalds og 2% gjalds hækkar um liðlega 30%, en þess ber að gæta í því sambandi, að nú er lagt á hjón sem tvo einstaklinga í samræmi við núgildandi skattalög.
Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn. þessarar hv. d. Ég legg þunga áherslu á að það er nauðsynlegt með þetta mál eins og önnur skattamál að afgreiða það fyrir þinghlé.