31.03.1980
Efri deild: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Guðmundur Bjarnason:

Herra forseti. Félmn. hefur á nokkrum fundum fjallað um þetta frv. um tekjustofna sveitarfélaga og er í aðalatriðum sammála um það, eins og fram kemur í nál., að samþykkja frv. Þó hafa einstakir nm. gert fyrirvara um að þeir muni fylgja brtt. Þessar brtt. höfum við líka að sjálfsögðu rætt nokkuð ítarlega í n. Ég hef lýst því yfir þar fyrir mína hönd, að ég geti ekki staðið að þeim, utan þó að ég er meðmæltur einum liðnum í brtt. á þskj. 246, 2. liðnum sem fjallar um að 6. mgr. 9. gr. falli niður. Eins og síðasti ræðumaður gat um tel ég að þarna orki nokkuð tvímælis og þarna stangist á annars vegar ákvæði í 19. gr. og hins vegar ákvæði í 9. gr. En ég legg líka mikla áherslu á að við reynum að hraða afgreiðslu þessa frv. og það verði reynt að koma því í gegnum þessa d. án þess að það tefjist lengur. Ég vil því vonast til þess og mælast til þess að þetta atriði verði tekið aftur til skoðunar síðar.

Ég tel að það sama þurfi að gera við lög um tekju- og eignarskatt. Þar sýnist mér að ákvæði um dráttarvaxtatöku af gjaldfallinni skuld eða ógreiddri skuld sé hliðstætt og hér virðist vera, að þegar ein greiðsla fellur í gjalddaga megi taka dráttarvexti af öllum ógreiddum eftirstöðvum. Ég tel ekki eðlilegt að haga innheimtu þannig. Mér sýnist að það þurfi að taka hana til skoðunar í báðum tilvikum, bæði hvað varðar tekjustofna sveitarfélaganna og lög um tekju- og eignarskatt, og ég vonast til þess að það verði gert síðar. En til að tefja ekki afgreiðslu málsins treysti ég mér ekki á þessu stigi málsins að fylgja brtt. á þskj. 246.