31.03.1980
Efri deild: 56. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1508)
133. mál, skipulag ferðamála
Flm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Á þskj. 238 hef ég leyft mér að flytja frv. til l. um breyt. á lögum nr. 60/1976, um skipulag ferðamála. Sú breyting, sem hér er lögð til, felur það í sér að Stéttarsamband bænda tilnefni einn fulltrúa í Ferðamálaráð.
Eins og kunnugt er voru lög um skipulag ferðamála sett í þeim tilgangi að stuðla að þróun ferðamála og skipulagningu ferðaþjónustu fyrir íslenskt og erlent ferðafólk með hliðsjón af íslensku atvinnu- og félagslífi og umhverfisvernd. Ferðamálaráð Íslands fer með stjórn ferðamála undir yfirstjórn samgrn. Samgrh. skipar menn í Ferðamálaráð til fjögurra ára í senn. Skulu þrír skipaðir án tilnefningar og skal einn þeirra vera formaður ráðsins og annar varaformaður. Aðra fulltrúa í Ferðamálaráð skipar ráðh. samkv. tilnefningu eftirgreindra aðila, en hver um sig tilnefnir einn. Þessir aðilar eru, með leyfi forseta: Félag hópferðamanna, Félag ísl. ferðaskrifstofa, Félag leiðsögumanna, Félag sérleyfishafa, Ferðafélag Íslands, Flugleiðir hf., Náttúruverndarráð, Samband ísl. sveitarfélaga, Samband veitinga- og gistihúsaeigenda og önnur flugfélög en Flugleiðir hf., samtals 10. Með því, sem hér er lagt til, að Stéttarsamband bænda tilnefni einn fulltrúa yrðu þessir aðilar 11 talsins.
Eins og að líkum lætur eru verkefni Ferðamálaráðs fjölþætt. Gert er ráð fyrir að Ferðamálaráð hafi á hendi skipulagningu og áætlanagerð um íslensk ferðamál sem og landkynningu og þátttöku í fjölþjóðlegu starfi um ferðamál. Hlutverk Ferðamálaráðs er einnig að aðstoða einstök ferðamálafélög við starfsemi þeirra svo og að hafa forgöngu um hvers konar þjónustu og upplýsingastarfsemi fyrir ferðamenn. Ætlast er til frumkvæðis um fegrun umhverfis og snyrtilega umgengni á viðkomu- og dvalarstöðum ferðafólks. Gert er ráð fyrir samstarfi við Náttúruverndarráð og aðra hlutaðeigandi aðila um að umhverfi, náttúra og menningarverðmæti spillist ekki af starfsemi þeirri sem lög um ferðamál ná til. Fleira mætti nefna, en ég sé ekki ástæðu til þess, svo augljóslega sem ofangreind atriði tíunda meginhlutverk Ferðamálaráðs.
Hér verður ekki lagður dómur á það út af fyrir sig hvernig Ferðamálaráð hefur skilað sínu hlutverki á undanförnum árum. Því verður þó ekki neitað að ferðamannaþjónusta er orðin umfangsmikil atvinnugrein hér á landi. Gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum voru árið 1978 um 10 milljarðar og á síðasta ári voru gjaldeyristekjur hátt í 16 milljarða kr. Þar er augljóslega um mikinn búhnykk að ræða.
Fjöldi erlendra ferðamanna hefur farið heldur vaxandi síðustu ár. Árið 1976 voru þeir rúmlega 70 þús., árið 1977 72 690, árið 1978 75 700 og á síðasta ári voru erlendir ferðamenn rúmlega 76 900. Vafalaust mætti auka þann fjölda verulega frá því sem nú er ásamt tilsvarandi aukningu gjaldeyristekna. Til þess að svo megi verða þarf m.a. að lengja ferðamannatímann bæði vor og haust. Nú má enginn skilja orð mín svo, að ég sé talsmaður þess að fylla land okkar af erlendu ferðafólki. En ég vil halda því fram, að við eigum í þessu efni mikla möguleika sem við þurfum að nýta okkur.
Að sjálfsögðu eigum við að vernda íslenska náttúru og umhverfi fyrir átroðningi ferðamanna, jafnt innlendra sem erlendra. Því miður heyrist stundum að við sjálfir göngum verr um eigið land en þeir erlendu gestir sem sækja okkur heim. Hvað sem því líður þarf öllum, sem um landið fara, að vera ljóst að íslensk náttúra er viðkvæm og lítið þarf til að koma svo að jafnvægi hennar raskist.
Með landkynningu og ferðamannaþjónustu almennt er ekki eingöngu verið að laða fólk til landsins, heldur er einnig verið að kynna þjóðhætti og menningu okkar og framleiðslu að ógleymdum kostum landsins að öðru leyti. Hér er því um starfsemi að ræða sem er fjölþætt og vekur áhuga á landi og þjóð, en um leið á söluvarningi okkar erlendis.
Það er ekki síður mikilvægt að við Íslendingar ferðumst um eigið land og lærum að njóta útivistar og umgengni við landið. Með auknum frítíma gefst meira tóm til þess en áður var. En við þurfum að sjá til þess að fólkið hafi eðlilegan aðgang að landinu, að það fái notið náttúruskoðunar, að fólkið komi heim til sín með ljúfar minningar úr vel heppnaðri ferð. Og það þarf líka að veita sem allra besta fyrirgreiðslu og þjónustu sem víðast um landið.
Íslensk gestrisni á vafalaust rætur í íslenskri bændamenningu, enda þótt ég ætti ekki að fara að guma af því hér. Í seinni tíð hefur maður þó heyrt um að kastast hafi í kekki milli einstakra bænda og ferðafólks. Þar hefur e.t.v. á skort gagnkvæman skilning og tillitssemi. Hagsmunir íslenskra bænda hafa lengi verið samofnir ferðamálum í landinu. Bændur eru víða eigendur áningarstaða ferðafólks að ógleymdum hagsmunum þeirra hvað varðar veiðiskap í ám og vötnum. Algengt er að bændur leigi land eða selji undir sumarbústaði. Ekki má gleyma því að sala landbúnaðarafurða er mikilvægur þáttur í ferðamannaþjónustunni. Það er brýnt hagsmunamál bænda að landbúnaðarafurða sé neytt í vaxandi mæli í landinu sjálfu. Þær landbúnaðarafurðir, sem erlendir gestir neyta hér, jafngilda útflutningi án þess að til útflutningsbóta komi.
Ferðamannaverslun fer sífellt vaxandi víða um land, m.a. þar sem verslunarmiðstöðvar eru í höndum samvinnufélaga. Eins og allir vita hafa bændur um árabil verið í tengslum við hótelrekstur í þessu landi, og má í því sambandi minna á Hótel Sögu og Hótel KEA á Akureyri. Ótalmörg fleiri dæmi mætti rekja sem bera vitni um aðild bænda að þjónustu við ferðafólk.
Síðustu ár hefur mikið verið rætt um fjölbreyttara atvinnulíf til sveita. Sú umræða hefur vissulega farið fram í tengslum við þann vanda sem menn standa frammi fyrir hvað varðar hinar hefðbundnu búgreinar. Eitt þeirra atriða, sem þarf að hyggja að, er einmitt þjónusta við ferðamenn. Sú atvinna er stunduð sem búgrein með góðum árangri víða á hinum Norðurlöndunum. Ég held að menn ættu ekki síður að hyggja að eflingu slíkrar starfsemi sem búgreinar hér. Ég vil þó minna á að á Húsafelli í Borgarfirði er þessi atvinnugrein stunduð með góðum árangri, svo að dæmi sé nefnt. Á stöku stað hefur ferðamannaþjónusta í tengslum við fétagsheimilin veitt atvinnu fólki úr næsta nágrenni.
Framtíðarmöguleika þessarar atvinnugreinar þyrfti því að athuga hið allra fyrsta í samvinnu við yfirvöld ferðamála. Þó má segja að allnokkur hreyfing sé komin á þessi mál. Í vetur var stofnaður félagsskapur undir heitinu Landssamtök ferðamannabænda. Tilgangur þeirra samtaka er að vinna að sameiginlegum hagsmunum bænda og annarra eigenda lögbýla, sem inna af hendi hvers konar þjónustu við sumarbústaðaeigendur og ferðamenn. Mér þykir hlýða að lesa hér upp, með leyfi forseta, úr samþykktum Landssamtaka ferðamannabænda:
„Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná með eftirgreindum atriðum:
1. Að stuðla að góðri samvinnu á milli bænda og þéttbýlisbúa varðandi aðstöðu fyrir fólk til byggingar eða afnota af sumarbústöðum og greiða fyrir því, að allir hafi aðgang að landinu til útivistar.
2. Að tryggja ferðamönnum og orlofsgestum góða þjónustu á ferðum sinum um landið eftir því sem kostur er, bæði varðandi gistingu, skipulagningu, hvers konar þjónustu og aðgang að ýmsum gæðum landsins.
3. Að hafa samráð og samvinnu við Stéttarsamband bænda, Ferðamálaráð, Náttúruverndarráð og Félag eigenda sumardvalarsvæða.
4. Að aðstoða bændur við útvegun tæknilegra upplýsinga og veita ráðgjöf við uppbyggingu ferðamannaþjónustu í sveitum.
5. Að vinna að því, að í stað þess að bændur selji skákir úr löndum sínum fyrir sumarbústaði skipuleggi þeir aðstöðu og leigi landið. Stefnt verði að því, að sem flestir sumarbústaðir verði í eigu bænda og reknir af þeim í samvinnu við samtök bænda og Ferðamálaráð.
6. Að finna sanngjarnt árlegt, verðtryggt leigu- og afnotagjald fyrir þjónustu og aðgang að hlunnindum í samráði við Stéttarsamband bænda.
7. Að vinna að því, eftir því sem við á, að ofangreind þjónusta verði talin til landbúnaðar og njóti hliðstæðrar fyrirgreiðslu og aðrar búgreinar varðandi lánskjör og framlög á þeim jörðum sem eru í ábúð.“
Í sambandi við 7. gr. má geta þess, að Landssamtök ferðamannabænda sendu síðasta Búnaðarþingi erindi hvað varðar lánskjör og framlög. Ég tel eðlilegt að ég lesi ályktun Búnaðarþings upp, með leyfi forseta:
„Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags Íslands að taka upp viðræður við stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins í samráði við stjórn Landssamtaka ferðamannabænda um að Stofnlánadeildin hefji lánveitingar til mannvirkjagerðar varðandi ferðamannaþjónustu í sveitum. Njóti þessi atvinna hliðstæðrar lánafyrirgreiðslu og hinar hefðbundnu búgreinar, enda greiði bændur sjóðagjöld af þessari atvinnugrein eins og búvöruframleiðendur greiða.“
Þessari ályktun fylgir greinargerð: „Ferðamannaþjónusta er eitt þeirra mála sem jafnan er rætt um þegar minnst er á fjölbreyttari atvinnumöguleika í sveitum. Nú þegar hefur nokkur hópur bænda atvinnu og búdrýgindi af þessum störfum og öðrum sem þeim tengjast, svo sem leigu sumarbústaða og sumarbústaðalanda. Telja verður líklegt að þessi starfsemi eigi góða vaxtarmöguleika og verði þar með einn þáttur er bætir afkomu og styður búsetu víða í sveitum. Kemur því mjög til greina að líta á þessi störf sem hverja aðra búgrein sem veita beri eðlilega fjármagnsfyrirgreiðslu.“
Herra forseti. Bændur eiga meginhluta þessa lands og einmitt þess vegna er góð samvinna milli þeirra og þéttbýlisbúa forsenda þess að unnt sé að tryggja öllum landsmönnum og þeim, sem sækja land okkar heim, aðgang að landinu með þeim hætti að sem flestir geti vel við unað. Með vísan til þess, sem fram hefur komið í máli mínu, tel ég eðlilegt að bændur fái aðild að Ferðamálaráði og verði þannig virkir þátttakendur með fullri ábyrgð í mótun þeirrar heildarstefnu sem fylgja þarf í ferðamálum.
Að lokinni þessari umr. legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. samgn. þessarar deildar.