31.03.1980
Neðri deild: 53. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1539 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)
135. mál, orkujöfnunargjald
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hér liggur fyrir frv. til l. um orkujöfnunargjald. Í frv. er gert ráð fyrir að lagt verði sérstakt 2% gjald á söluskattstofn allra sömu aðila og lög nr. 1960, um söluskatt, gera ráð fyrir, með þeim síðari breytingum sem orðið hafa á þeim lögum. Hins vegar er sá munurinn á að gjald þetta rennur óskipt til ríkissjóðs.
Á fjárlögum ársins 1979 var gert ráð fyrir rúmum 900 millj. til greiðslu olíustyrks til þeirra sem kynda hús sín með olíu, en í kjölfar olíukreppu á seinasta ári og gífurlegra hækkana á olíuverði hefur verið óhjákvæmilegt að hækka þennan styrk mjög verulega. Var hann seinast hækkaður nú í ársbyrjun í hlutfalli við þá breytingu á olíuverði sem þá hafði orðið. Olíustyrkur á fyrsta ársfjórðungi þessa árs er áætlaður rúmar 900 millj. kr. Ef sá styrkur er nokkuð hækkaður í hlutfalli við þær hækkanir, sem orðið hafa, og að sjálfsögðu í samræmi við þær hugsanlegu breytingar, sem kynnu að verða á gengi íslenskrar krónu á næstu mánuðum, má ætla að olíustyrkur verði á árinu 1980 ekki undir 4000 millj. kr. Olíustyrkur er greiddur til fleiri aðila en heimila og ekki ólíklegt að þær greiðslur séu heldur vanáætlaðar en ofáætlaðar. Auk þess hlýtur að vera nauðsynlegt að verja auknu fé til ýmiss konar orkusparandi aðgerða. Áætlað er að heildarútgjöld vegna greiðslu olíustyrks og orkusparandi aðgerða á árinu 1980 geti orðið um 4500 millj. kr.
Ég held ég geti leyft mér að fullyrða að allir stjórnmálaflokkar séu sammála um að óhjákvæmilegt sé að greiða þennan olíustyrk, sem hækkað hefur svo gífurlega frá því sem var á s.l. ári, og auðvitað eru þá allir jafnframt sammála um að afla verði tekna í því skyni. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um hvernig þeirra tekna verði best aflað og með mestri skynsemi. Vil ég sérstaklega nefna í því sambandi frv. sem iðnrh. ríkisstj. Alþfl. flutti á þessu þingi, en þar er um að ræða 100. mál Ed. Þar er gert ráð fyrir að lagt sé á sérstakt orkugjald frá 1. júlí til 31. des. á þessu ári og verði greidd 1 kr. af hverri kwst. seldrar raforku, 30 kr. af hverjum rúmmetra heits vatns sem er yfir 75 stiga heitt, 15 kr. af hverjum rúmmetra vatns sem er undir því hitamarki, eða milli 55 stig og 75 stig, og 10 kr. af hverjum bensínlítra, 10 kr. af hverjum gasolíulítra og 10 þús. kr. af hverju svartolíutonni.
Ég er ekkert að leyna því, að ég tel að þarna hafi verið skynsamlega að tillögugerð staðið og að Alþfl. hafi markað stefnuna í þessu máli á óvenjulega skynsamlegan hátt miðað við margar aðrar tillögur sem sá flokkur hefur staðið að. Það er heldur ekkert launungarmál, að í þeirri ríkisstj., sem kom til valda eftir að ríkisstj. Alþfl. fór frá, hefur mjög verið rætt um að taka upp þessa tillögu Alþfl. og flytja hana, kannske í eitthvað breyttu formi að nánar athuguðu máli, en styðjast við sömu tekjuöflun í grófum dráttum.
Í grg. frv. Alþfl. var gert ráð fyrir því, að á árinu 1980 yrðu tekjur af þessu orkugjaldi u.þ.b. 4.5 milljarðar kr., ef ekki væri gert ráð fyrir gjaldi af orkusölu til stóriðjufyrirtækja. Þar sem hér var um hálft ár að ræða má reikna með að sá skattur, sem Alþfl. gerði tillögu um, hefði skilað u.þ.b. 9 milljörðum kr. á ársgrundvelli, eins og það heitir nú orðið á máli okkar ágætu hagfræðingar.
Því er hins vegar ekki að leyna, að þessi tekjuöflunarleið er umdeild og sumum hefur fundist að skatturinn legðist með of miklum þunga á innlent eldsneyti og þá alveg sérstaklega á heita vatnið, meðan öðrum hefur fundist að skatturinn legðist of þungt á innflutta eldsneytið og ekki mætti útgerðin við því að greiða t.d. 10 kr. af hverjum gasolíulítra þegar svo illa gengi að ná saman endum á sviði sjávarútvegs. Þannig hefur ekki ríkt einhugur um að þessi leið yrði farin. Nú hefur orðið niðurstaðan hjá þeim aðilum, sem að þessari ríkisstj. standa, og hjá ríkisstj. að fara aðra leið og leggja á sérstakt 2% orkujöfnunargjald í þessu skyni.
Eins og þegar hefur komið fram er gert ráð fyrir að framlög til greiðslu olíustyrks og kostnaður af orkusparandi aðgerðum verði um 4 500 millj. kr., eins og Alþfl. hafði áður gert ráð fyrir. Hins vegar er það svo, að úr því að farin er sú leið að leggja ákveðið gjald á vörusölu varð að sjálfsögðu óhjákvæmilegt að miða annaðhvort við 1% eða 2%. Og með tilliti til þess, að fjárhagsstaða ríkissjóðs er mjög tæp að allra áliti og allir stjórnmálaflokkar sammála um að mjög mikilvægt sé að tryggja að ekki verði um að ræða rekstrarhalla ríkissjóðs á þessu ári, hefur orðið niðurstaðan að hér verði um að ræða tvö söluskattsstig í formi þessa sérstaka orkujöfnunargjalds, og gert er þá ráð fyrir að það skili um 7 milljörðum kr. það sem eftir er ársins 1980.
Það er rétt að taka fram í þessu sambandi, að upphæðin 7 milljarðar kr. er miðuð við u.þ.b. 71/2 innheimtumánuð. Gert er ráð fyrir að gjaldtakan hefjist strax að loknum páskum, þriðjudaginn 8. apríl. Gjaldið er sem sagt miðað við liðlega sjö og hálfan mánuð, þar sem ekki innheimtist á þessu ári seinasti gjaldtökumánuðurinn.
Gjaldið er ekki miðað við aukna verðbólgu frá því sem miðað er við í fjárlagafrv. Að sjálfsögðu er miðað við hliðstæðar forsendur og þar er gert, en ef svo illa tækist til að verðbólgan yrði meiri kemur hitt á móti að olíustyrkurinn mun að sjálfsögðu hljóta að hækka. Ég hef heyrt menn vefengja þessa útreikninga og nefna miklu hærri tölur í því sambandi, en ég hygg að þá hljóti útreikningurinn í fyrsta lagi að miðast við 81/2 mánuð, en ekki 71/2, sem er auðvitað eðlilegra, og í öðru lagi hljóti menn að miða við aðrar forsendur en við gerum í fjárlagafrv.
Eins og ég hef hér tekið fram er aflað meira fjár en beinlínis þarf í því skyni að greiða olíustyrk og til orkusparandi aðgerða. Nemur það u.þ.b. 2500 millj. og mun styrkja fjárhagsstöðu ríkissjóðs. Í því sambandi er að sjálfsögðu óhjákvæmilegt að hafa í huga að orkukreppan hefur með ýmsum öðrum hætti orðið til að veikja stöðu ríkissjóðs og hefur orðið til að kalla á aukin útgjöld úr ríkissjóði, m.a. til Rafmagnsveitna ríkisins og til ýmiss konar verkefna á sviði orkumála. Það má til sanns vegar færa, að þegar lagt er á gjald, sem nemur 7 milljörðum, renni það í raun til orkuviðfangsefna, enda þótt þau viðfangsefni séu að nokkrum hluta þegar komin inn í fjárlagafrv. og hér sé ekki um viðbótaraðgerðir að ræða nema sem nemur 4500 millj. kr.
Ég held að öll þjóðin þekki að um þessar mundir hafa stjórnarandstæðingar hvað mestar áhyggjur af því, að ýmiss konar göt kunni að vera í fjárlagagerðinni, að tekjurnar skili sér ekki í þeim mæli, sem áætlað er, eða útgjöldin verði meiri. Ég treysti því þá að hv. stjórnarandstæðingar hjálpi til við að koma í veg fyrir að hugsanlegur rekstrarhalli verði, en ævinlega verður að gera ráð fyrir nokkrum óvæntum útgjöldum.
Hv. stjórnarandstæðingar hafa einnig gagnrýnt fjárlagagerðina af þeim sökum og með þeim rökum að ekki liggi fyrir frv, um hvernig aflað verði tekna til greiðslu olíustyrks, olíustyrkurinn sé tekinn út úr fjárlagafrv. Menn hafa verið að tala um fjáraukalög í þessu sambandi, það sé ætlunin að leggja á skatta á síðara stigi, eftir að fjárlög hafa verið afgreidd, í stað þess að sjá alveg til botns nú þegar, um leið og fjárlögin eru afgreidd, og geta afgreitt málin endanlega og samtímis. Ég held að þessi gagnrýni hv. stjórnarandstæðinga hafi verið borin fram með fyllstu rökum og átt fullan rétt á sér. Skýringin á þessu er einfaldlega sú, eins og menn þekkja, að ríkisstj. hafði ekki unnist tími til að taka afstöðu til þessara mála og vegna þess að ekki er hægt að gera allt í einu varð hún að taka þessar ákvarðanir í áföngum og var ekki reiðubúin til að leggja fram tillögur sínar um þessi efni. Á tímabili var óljóst hvort það tækist áður en fjárlagafrv. væri afgreitt. Þess vegna veit ég að stjórnarandstæðingar fagna því, að þetta frv. skuli vera fram komið og að það liggi nú fyrir á hvern hátt ríkisstj. hyggst afla þessara tekna og hvernig hún hyggst standa að greiðslu olíustyrks á þessu ári.
Stjórnarandstæðingar hafa einnig gagnrýnt að ekki skuli liggja fyrir upplýsingar um lánsfjáráætlun og lánsfjáröflun til verkefna af ýmsu tagi. Þessi gagnrýni er í sjálfu sér einnig réttmæt þó að dráttur á framlagningu lánsfjáráætlunar eigi mjög einfalda skýringu þar sem er það stjórnleysisástand, sem hefur verið ríkjandi, og sá skammi tími, sem núv. ríkisstj. hefur haft til að undirbúa mál.
Ég vil geta þess í þessu sambandi, að á fundi með fjvn. fyrir rúmum hálftíma lagði ég fram grg. af hálfu ríkisstj. um lánsfjáröflun til verkefna sem nefnd eru í B-hluta fjárlaga. Ekkert á því að vera því til fyrirstöðu að unnt sé að afgreiða fjárlögin, þar sem gerð hefur verið grein fyrir öllum þáttum sem snerta fjárlagaafgreiðsluna. Hitt skal viðurkennt, að önnur lánsfjáröflun á sér stað í þjóðfélagi okkar en sú sem snertir A- og B-hluta fjárlaga. Þar er um að ræða lánsfjáröflun til fjárfestingarsjóða og þar er um að ræða lánsfjáröflun til bæjar- og sveitarfélaga og til stofnana sem ríkissjóður á aðild að, eins og Landsvirkjunar og fleiri stofnana. Þessi mál eru enn í athugun og er því ekki hægt að leggja fram upplýsingar um þann þátt málsins, enda snertir hann ekki beint afgreiðslu A- og B-hluta fjárlaga. Ég tel að eftir að þessar upplýsingar hafa verið lagðar fram ásamt því frv., sem hér liggur fyrir, eigi ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að Alþ. geti afgreitt fjárlögin fyrir páska.
Ég vil bæta því við, að ég tel óhjákvæmilegt að það frv. sem hér er lagt fram, sé einnig afgreitt fyrir páska. Ég verð hins vegar að játa að þá er afgreiðsluhraði á málinu nokkuð mikill. Þar sem vitað er að annríki er á Alþ. er bersýnilegt að stjórnarandstaða hefur það í hendi sér, ef hún vildi og kysi það, að stöðva framgang málsins. Hún þyrfti ekki annað en neita um afbrigði og þá væri ekki hægt að afgreiða þetta frv. Ég tel hins vegar að öllum þm. sé ljóst að afgreiðsla frv. á þremur dögum er ekkert einsdæmi hér í þinginu, síst af öllu þegar mál hefur verið kynnt deginum áður en það er lagt fram í þinginu eins og er um þetta mál. Frv. var kynnt fyrir formönnum allra þingflokka í gær og flokkunum á því að hafa gefist tóm til að undirbúa afstöðu sína til þessa máls.
Ég get auðvitað ekkert um það sagt, hvort stjórnarandstaðan reynist samþykk þessu máli eða ekki, hvort hún snýst til andstöðu við það eða styður það, en ég legg á það áherslu hér að þetta er tiltölulega einfalt mál. Það er ekki og á ekki að vera þörf á því að flækja það á einn eða annan hátt og á ekki að vera þörf á því að afla margra viðbótarupplýsinga við það sem liggur þegar fyrir. Þm. standa að sjálfsögðu fyrst og fremst frammi fyrir því, hvort þeir eru með málinu eða á móti því og hvort þeir eru reiðubúnir að samþykkja það eða ekki.
Ég þarf ekki að segja það neinum hér, að að sjálfsögðu er mjög óheppilegt að draga afgreiðslu frv. af þessu tagi lengi eftir að það hefur verið lagt fram. Það segir sig sjálft að það hlýtur að kalla á ýmiss konar spákaupmennsku úti í þjóðfélaginu ef lengi dregst að mál af þessu tagi sé afgreitt. Því hljóta þm. að hafa þá ábyrgðartilfinningu að þeir sjái að óhjákvæmilegt er að taka afstöðu til málsins með eða á móti á hæfilega löngum tíma og afgreiða það frá þinginu. Ég hygg líka að það hafi ávallt verið gert þegar líkt hefur staðið á og nú og að stjórnarandstaða hafi yfirleitt ekki lagt í vana sinn að tefja mál af þessu tagi. T.d. minnist ég þess oft að frv. um gengisbreytingar hafa verið afgreidd á einum eða tveimur dögum á Alþ., og ég hygg að það séu æðimörg dæmi þess að skattlagningarfrv. hafi verið afgreidd á einum eða tveimur dögum, einfaldlega vegna þess að þar er um að ræða þess háttar mál sem ekki þola neina bið eðli mála samkv. (Gripið fram í: Hvað gerðuð þið á fundinum fyrir hádegi?) Fyrirgefið, ég heyrði ekki í hv. þm. (Gripið fram í: Hvað gerðuð þið fyrir hádegið í morgun?) Mér þykir leitt að ég skil ekki spurninguna og verð því að bíða með að svara henni.
Ég vil segja að lokum, að ég treysti á að stjórnarandstæðingar sýni þá ábyrgðartilfinningu að þeir geri sér grein fyrir að hér er um að ræða mál sem er þess eðlis að það hlýtur að fá hraða meðferð í þinginu hvort sem menn eru út af fyrir sig með málinu eða á móti. Ég vil ítreka það, sem hér hefur þegar komið fram, að full nauðsyn er að þetta mál verði afgreitt áður en þingið fer í páskaleyfi.
Ég vil taka það fram til viðbótar, að að sjálfsögðu er þetta ekki nema önnur hliðin á málinu. Hér er fjallað um tekjuöflunina. Hin hliðin er hvernig þessum 4000–4500 millj. verður varið, hvernig háttað verði greiðslu olíustyrks. Frv. um það efni hefur verið í smíðum og verður lagt fram fyrir páskaleyfi. Ég tel að fátt eigi að vera því til fyrirstöðu að nefndir, sem um þetta fjalla, geti jafnvel áður en frv. er tekið til afgreiðslu í nefndum fengið upplýsingar um hvað menn hugsa sér í sambandi við greiðslu olíustyrksins og hvernig honum yrði hagað. Þar liggja fyrir ákveðnar tillögur, sem ekki eru að vísu endanlega frágengnar, en gert ráð fyrir að þær verði afgreiddar í ríkisstj. á morgun.
Eins og ég hef þegar tekið fram er við það miðað að beinar greiðslur í olíustyrk verði um 400 millj. kr. Því er gert ráð fyrir að fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir, verði breytt á þann veg að tekjur af söluskatti verði hækkaðar um 7000 millj., inn verði tekinn nýr liður, olíustyrkir, sem nemi 2000 millj., óviss útgjöld verði hækkuð um 2500 millj. kr. og rekstrarafgangur aukinn sem nemur 500 millj. kr.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál, en legg til að að lokinni þessari umr. verði máli þessu vísað til hv. fjh.- og viðskn.