01.04.1980
Sameinað þing: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1616 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
116. mál, fjárlög 1980
Frsm. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns taka undir orð hv. þm. Geirs Gunnarssonar um þakkir til formanns n., eins og ég raunar gerði við 2. umr., og til meðnm. minna.
Ríkisstj. hefur tekið ákvarðanir nú um helgina sem hafa í för með sér miklar breytingar á forsendum fjárlagafrv. Í fyrsta lagi ákvað ríkisstj. vegna fiskverðshækkunar að láta gengið falla og síga samtals um 8% á næstunni að talið er. Í öðru lagi ákvað hún að leggja á skatt — nýjan almennan veltuskatt — sem nema átti 2%, þegar síðast var vitað, af allri veltu í landinu. Og í þriðja lagi hefur ríkisstj. í raun tekið ákvörðun um verulegar gjaldskrárhækkanir hjá opinberum fyrirtækjum með breytingu á tekjuáætlun B-hluta fyrirtækja, t. d. hjá Pósti og síma. Þar verður hækkunin 1. maí 17%, hjá Ríkisskip sama dag 25% og hjá Ríkisútvarpi munu afnotagjöld af útvarpi og sjónvarpi hækka um 211/2% eða því sem næst. Þegar þessi umr. fer fram hefur fjvn. á engan hátt getað gert sér grein fyrir því í stórum dráttum, hvaða áhrif þessar ákvarðanir hafa á forsendur fyrir fjárlagaafgreiðslunni. Alvarlegra er þó, að hæstv. ríkisstj. hefur áreiðanlega ekki gert sér grein fyrir því heldur.
Við þetta bætist að ríkisstj. hefur enn ekki tekið mikilvægar ákvarðanir um lánsfjáröflun og ráðstöfun lánsfjár í þjóðfélaginu. Þar er um að ræða ákvarðanir sem eru svo nátengdar ríkisfjármálunum á beinan og óbeinan hátt að útilokað er að gera sér grein fyrir heildarstefnunni í ríkisfjármálum og lánsfjárbúskap þjóðarinnar og afskiptum ríkisvaldsins af þessu tvennu öðruvísi en að taka slíkar ákvarðanir. Þrátt fyrir beiðni og beina kröfu minni hl. fjvn. um, að ríkisstj. gæfi n. upplýsingar um lánsfjáráætlun í heild áður en síðasta umr. fjárlaga færi fram, hefur ríkisstj. einungis séð sér fært að láta nm. í té yfirlit um lánsfjáráætlun sem tengist A- og B-hluta fjárlaga, og mun þessi skýrsla hafa verið lögð fram á Alþ. í dag. Af þessu tilefni, í fyrsta lagi vegna þess, hversu margar ákvarðanir hafa verið teknar með snöggum hætti, sem í raun gerbreyta forsendum fjárlaga, og í öðru lagi vegna þess, að ríkisstj. hefur ekki séð sér fært að verða við þessum sanngjörnu og eðlilegu óskum minni hl. fjvn. um lánsfjáráætlun, óskuðum við fulltrúar Sjálfstfl., sem erum í stjórnarandstöðu, eftir að bókað yrði í fundargerðarbók fjvn. eftirfarandi:
„Við undirritaðir nm. fjvn. mótmælum þeim vinnubrögðum ríkisstj. að veita ekki fjvn. Alþingis upplýsingar um fyrirhugaða lánsfjáráætlun fyrir 1980 í heild fyrir afgreiðslu fjárlaga.
Um mánaðamót mars — apríl er fráleitt að svo mikilvægir þættir lánsfjáráætlunar sem raun ber vitni liggi ekki fyrir við fjárlagaafgreiðslu sem er svo seint á ferð. Í lögum nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o. fl., segir svo: „Ríkisstj. skal leggja fyrir Alþ. fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir eitt ár í senn og skulu þær fylgja fjárlagafrv.“
Auk framangreindra aths. er því um skýlaust lagabrot að ræða, þegar einungis er lögð fram nú lánsfjáráætlun að því er varðar A- og B-hluta fjárlaganna.“
Af þessu tilefni gáfum við út sérstakt nál. við 3. umr. Í nál. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ástæðan fyrir því, að undirritaðir nm. í fjvn. bregða á það óvenjulega ráð að leggja fram nál. við 3. umr. fjárlaga mótast af því sérstaka ástandi, sem nú ríkir í störfum Alþingis.“
Enn fremur segir svo: „Undirritaðir fjvn.-menn töldu ótækt að afgreiða fjárlög án þess að fá greinargóðar upplýsingar um lánsfjáráætlun yfirstandandi árs. Af þessu tilefni lýsti fjmrh. hæstv. því yfir, að fyrir 3. umr. fjárlaga mundi lánsfjáráætlun vegna A- og B-hluta fjárlaga verða lögð fram. Var því jafnframt heitið, að það skyldi gert í síðasta lagi að morgni 31. mars, enda ætlunin að 3. umr. færi fram 1. apríl. Á þessu varð sá dráttur, að svo ófullkomin lánsfjáráætlun kom ekki í hendur nm. fyrr en síðdegis í dag, 31. mars, þannig að komið var í veg fyrir eðlilegar umræður í þingflokkunum og gagngera skoðun fjvn. á breyttum forsendum, sem hljótast af lánsfjáráætluninni.“
Þá segir einnig í nál.:
„Í dag gerðist það til viðbótar, að tvö mál komu fram á Alþ., en þau hafa bæði veruleg áhrif á fjárlög. Annars vegar lýsti ríkisstj. því yfir, að gengissig yrði hraðara en gert er ráð fyrir í forsendum fjárlagafrv. Hins vegar er lagt fram frv. til l. um hækkun söluskatts um 2 prósentustig til að afla tekna í ríkissjóð.“
Þegar þau drög að lánsfjáráætlun eru skoðuð, sem ríkisstj. hefur látið fjvn. og þingflokkum í té, kemur glöggt í ljós hvað gerst hefur í fjárlagagerðinni. Þrátt fyrir gífurlegar skattahækkanir, upptöku markaðra tekjustofna í ríkissjóð og niðurskurð á ýmsum sviðum hefur verið brugðið á það fangaráð að stórhækka innlendar og erlendar lántökur til að fjármagna ýmsa þætti A- og B-hluta fjárlaganna. Innlendar og erlendar lántökur nettó námu samkv. fjárlögum 1979 10.5 milljörðum kr., en samkv. þeim drögum að lánsfjáráætlun og þeim brtt., sem liggja fyrir við frv. sem hér er til umr., nema erlendar lántökur hvorki meira né minna en 36.5 milljörðum kr. eða tæplega fjórfaldast að krónutölu. Athyglisvert er að erlendar lántökur, sem voru samkv. fjárlögum 1979 5 milljarðar 424 millj. kr., hækka upp í 21 milljarð 360 millj. kr. eða fjórfaldast.
Hæstv. fjmrh. kom á fund fjvn. og var þar margspurður eftir stefnu ríkisstj. í lánsfjáráætlun og hvort ríkisstj. hefði markað stefnu í því, hver skyldi vera rammi lánsfjáráætlunar í heild og hvert skyldi vera það mark sem erlendar lántökur mættu ekki fara fram úr. Hæstv. ráðh. svaraði því einu til að nefna nokkrar óljósar tölur, en hann sagði efnislega að engar ákvarðanir hefðu verið um þetta teknar í ríkisstj. og tómt mál væri að tala um stærðir sem ekki hefðu komið til pólitískrar ákvörðunar. Hann gaf þó þær upplýsingar, að framkvæmdaáform stefndu í 125 milljarða kr. sem fjármagna þyrfti með lánsfé ef í yrði ráðist. Þetta kemur heim og saman við umtal um að lánsfjáráætlun gæti orðið á bilinu 100–110 milljarðar kr. Samkv. lánsfjáráætlun í fyrra var stefnt að því, að opinber lánsfjáröflun yrði 44 milljarðar, en í reynd varð hún 58 milljarðar rúmir. Á þessum tölum geta menn séð að stefnt er í tvöföldun á lánsfjáröflun á vegum hins opinbera í ár. Athyglisvert er að í fyrra var áformað samkv. lánsfjáráætlun að taka töng erlend lán að upphæð 39 milljarða kr. Niðurstaðan varð sú, að um 53 milljarðar kr. voru teknir í erlend lán. Ef heildarlánsfjáröflun í ár fer yfir 100 milljarða kr. verða erlendar lántökur ekki langt frá 90–95 milljörðum.
Sú staðreynd, að á þessu ári stefnir í að erlendar lántökur tvöfaldist, er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta lagi segir í málefnasamningnum góða að erlendum lántökum skuli stillt í hóf. En e. t. v. skiptir meira máli að fjvn. og Alþ., sem fjallar nú um fjórföldun á lántökum til fjármögnunar á ýmsum útgjaldaliðum A- og B-hluta fjárlaga, skortir í raun allar forsendur til að taka þessa ákvörðun. Það skiptir miklu máli hvort stefnt er í stórfelldar erlendar lántökur á ýmsum öðrum sviðum þegar slík ákvörðun er tekin. Þetta er eitt glöggt dæmi þess, að hið háa Alþingi getur engan veginn komist að skynsamlegri niðurstöðu um þetta mikilvæga atriði við þessa fjárlagaafgreiðslu.
Lánsfjáráætlanir, sem fjalla um öflun fjár til margvíslegra verkefnaþátta og sjóða fyrir tilstuðlan ríkisvaldsins, eru í raun óaðskiljanlegur hluti ríkisfjármálanna. Hæstv. fyrrv. fjmrh. nefndi lánsfjáráætlun, sem hann mælti fyrir í fyrra, lánsfjárlög. Ég vona að sú nafngift sé merki um skilning hæstv. ráðh. á gildi lánsfjáráætlunar og einkum hversu mikilvægt er að ákvarðanir varðandi lánsfjáröflun og fjárlög séu teknar samtímis.
Lánsfjáráætlun fyrir 1976 var fyrsta heildaráætlun um lánsfjármarkaðinn sem gerð hefur verið. Hún var lögð fram af þáv. fjmrh., hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen, og kynnt á Alþ. við 3. umr. fjárlaga 19. des. 1975. Frv. varðandi hana hafði áður verið lagt fram og samþ. með fjárlögum. Lánsfjáráætlun fyrir 1977 var lögð fram og kynnt á Alþ. við 3. umr. fjárlaga 20. des. 1976. Frv. varðandi lánsfjáráætlun, sem lagt hafði verið fram, var samþ. með fjárlögum 21. des. 1976. Lánsfjáráætlun fyrir 1978 tókst að leggja fram og kynna við 2. umr., 13. des. 1977, og þá afhent fjvn.-mönnum svo og formönnum þingflokka nokkrum dögum áður. Lög varðandi lánsfjáráætlun 1978 voru samþ. 21. des. 1977 með fjárlögum 1978.
Það er athyglisvert að þeir menn, sem ráða nú ríkisfjármálunum, gagnrýndu mjög á þessum tíma að lánsfjáráætlun skyldi svo síðbúin að hún væri ekki til fyrr en rétt fyrir 3. umr. Síðan hafa þeir m. a. tekið þátt í því að samþykkja lög frá Alþ. þar sem lögfest er að lánsfjáráætlun skuli lögð fram með fjárlagafrv., eins og ég sagði áðan.
Ríkisstj. hefur tekið margvíslegar ákvarðanir sem munu hafa verulegar breytingar í för með sér á grundvallarforsendum fjárlagafrv. og áhrif fjárlaga á stjórn efnahagsmála. Í frv. er, eins og kunnugt er, gert ráð fyrir að kaupgjald hækki í takt við stjórnvaldsþvingaða niðurtalningu verðlags. Þessi forsenda er athyglisverð, vegna þess að með henni er viðurkennt að stefna ríkisstj. í verðlagsmálum er um leið að þvinga fram með stjórnvaldsákvörðun hvaða launakjör skuli gilda í landinu. Laun samkv, forsendum frv. eiga að hækka vegna verðbóta um 8% 1. júní, 7% 1. sept. og 5% 1. des. eða eftir hinu fræga niðurtalningarkerfi. Þær ákvarðanir, sem ríkisstj. tók um helgina um gengisfellingu, álagningu söluskatts og hækkun á þjónustugjöldum ríkisfyrirtækja, hafa kollvarpað þessum launa- og verðlagsforsendum nokkrum vikum eftir valdatöku ríkisstj. og áður en fjárlög eru afgreidd.
Samkv. beiðni minni í fjvn. fékk ég rétt fyrir hádegi í dag bréf frá Þjóðhagsstofnun og Hagstofu Íslands sem felur í sér áætlun þessara stofnana um hækkun framfærslu- og kaupgjaldsvísitölu frá febrúar til maí. Reyndar bað ég um áætlun til 1. okt. í haust, en þessar stofnanir hafa sýnilega ekki treyst sér til þess að svo stöddu vegna hinna skyndilegu sviptinga sem nú eru á þessu sviði í þjóðfélaginu. Í þessum minnispunktum frá Þjóðhagsstofnun og Hagstofu segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hagstofa Íslands hefur gert áætlun um hækkun vísitölu framfærslukostnaðar frá febrúar til maí. Áætlunin er í veigamiklum atriðum reist á þekktum verðbreytingum á ýmsum vörum og þjónustu að undanförnu og áætlun um verðhækkanir fram til 1. maí. Niðurstaða áætlunarinnar er tæplega 12% hækkun framfærsluvísitölu.“ — Ég endurtek: „Niðurstaða áætlunarinnar er tæplega 12% hækkun framfærsluvísitölu, til samanburðar við 9.1% frá nóv. — febr. Í þessari tölu, 12%, er ekki innifalin hækkun á gjaldskrám Hitaveitu, Rafmagnsveitu og Strætisvagna Reykjavíkur, en ákvarðanir hafa ekki verið teknar um breytingar á þessum gjaldskrám. Þessi áætlun er án áhrifa af hækkun söluskatts, en hækkun hans úr 22 í 24% þýðir um 0.9% hækkun framfærsluvísitölu. Að þessum áhrifum meðtöldum yrði hækkun vísitölu rúmlega 12.5%, en þó meiri miðað við að gjaldskrá áðurnefndra fyrirtækja hækki fyrir 1. maí.“
Í þessari áætlun eru hins vegar metin áhrif gengisbreytinga til aprílloka. Á þessu sést að hér er í raun um það að ræða að verðbólgan er ekki einvörðungu sú eða svipuð því sem hún var fyrir áramót, hún er ívið meiri og geysist áfram.
Enn fremur segir svo í þessum minnispunktum: „Samkv. gildandi lögum um útreikning verðbótavísitölu verður búvörufrádráttur 1. júní um 0.5%, frádráttur vegna áfengis- og tóbaksverðs 0.6%, en að svo stöddu er erfitt að áætla annan frádrátt. Verði söluskattur hækkaður, m. a. til þess að hækka olíustyrkinn, mun frádráttur vegna greiðslu olíustyrks hækka eitthvað frá því sem nú er. En viðskiptakjaraáhrif á vísitöluna 1. júní er erfitt að segja um að svo stöddu.“
En síðan segir: „Að óbreyttum reglum um greiðslu verðbóta á laun gæti hækkun verðbóta 1. júní orðið á bilinu 10.5–11.5% án áhrifa viðskiptakjara. En um þessa áætlun verður að gera þann fyrirvara, að margt er enn óráðið sem þar gæti haft áhrif á, m. a. hækkanir á gjaldskrám opinberra fyrirtækja.“
Það er sem sagt eftir áætlun Hagstofu og Þjóðhagsstofnunar gert ráð fyrir kaupgjaldsvísitölu sem ekki verði lægri en 10.5–11.5% 1. júní, í samanburði við það sem þetta frv. er byggt á, þ. e. 8%. Hér er því um að ræða að þær ákvarðanir ríkisstj. sem hún hefur tekið upp á síðkastið, eru í raun búnar að kollvarpa öllum forsendum fjárlagafrv. og kippa stoðum undan því að Alþ. viti í raun hvað það er að gera með þessari fjárlagaafgreiðslu.
Ég hef áður gert grein fyrir því, hvernig gegndarlaus útþenslustefna í rekstrar- og millifærsluútgjöldum ríkissjóðs undanfarin ár hefur leikið ríkisfjármálin. Þar hefur flest orðið undan að láta. Gífurlegar skattahækkanir hafa ekki nægt til þess að ná endum saman, upptaka markaðra tekjustofna í ríkissjóð hefur ekki nægt, niðurskurður á framlögum til sjóða og ýmissa framkvæmda hefur ekki nægt. Allt hefur komið fyrir ekki: Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla með þeim alvarlegu afleiðingum sem við blasa í þjóðfélaginu.
Það væri að æra óstöðugan að reyna að henda reiður á þeim feiknalegu skattaálögum sem núv. hæstv. ríkisstj. og fyrrv. vinstri stjórn hafa lagt á þjóðina. Ég vil í því sambandi geta þess hér, að fyrir helgi skrifaði ég grein í Morgunblaðið sem birtist í dag og átti að fjalla um aukaskattreikninga þessa tveggja ríkisstj. til þjóðarinnar, en sú grein er þegar orðin úrelt. Ég vil því enn freista þess við 3. umr. fjárlaga í ár að gera grein fyrir því, hvaða mynd blasir við í þessum efnum.
Heildarhækkun óbeinna skatta einstaklinga til ríkis og sveitarfélaga má ætla samkv. gögnum, sem Þjóðhagsstofnun hefur látið fjvn. Alþ. í té, að sé 24 milljörðum kr. hærri en ef álagning þessara skatta væri hlutfallslega sú sama og árið 1978. Skattauki óbeinna skatta á þessu tímabili er 32 milljarðar kr. Hefur skattbyrðin á þessu ári því þyngst um 56 milljarða kr. vegna aðgerða vinstri stjórnarinnar og núv. hæstv. ríkisstj., en þetta er nálægt 1300 þús. kr. á hvert fimm manna heimili í landinu.
Beinir skattar til ríkis og sveitarfélaga: tekju- og eignarskattar, sjúkrasamlagsgjald og fasteignaskattar, námu samkv. áætlun Þjóðhagsstofnunar 11.6% af brúttótekjum skattgreiðenda á árinu 1978, þ. e. á greiðsluárinu. Eftir að vinstri stjórnin lagði á aftur virka skatta á árinu 1978 og eftir þær hækkanir, sem orðið hafa á beinum sköttum síðan, m. a. á útsvari núna samkv. þeirri heimild sem afgreidd hefur verið frá Alþ., telur Þjóðhagsstofnun að þessir skattar nemi 14.2% af brúttótekjum ársins í ár. En í þessari áætlun Þjóðhagsstofnunar er einungis við það miðað að tekju- og eignarskattur verði í samræmi við tekjuhlið fjárlagafrv. og að heimild til hækkunar útsvara verði einungis notuð að hálfu.
Nú er ljóst að gert er ráð fyrir að tekjuskatturinn gefi 1500 millj. kr. meiri álagningu en gert er ráð fyrir í tekjuáætlun fjárlagafrv. Auk þess má gera ráð fyrir að sveitarfélög noti 10% álagsheimildir útsvara meira en að hálfu leyti, þannig að ekki er óraunsætt að reikna með að hlutfall óbeinna skatta af brúttótekjum skattgreiðenda í ár verði 14.6% af þessum tekjum. Þessi prósenta hefur því hækkað um 3% frá 1978, og þar sem Þjóðhagsstofnun áætlar, að brúttótekjur á þessu ári verði 800 milljarðar kr., þyngjast búnir skattar af þessum 800 milljörðum um 24 milljarða kr.
Þess má geta að skatthlutfall beinna skatta af tekjum greiðsluárs var enn þá hagstæðara skattborgurunum 1977 og hefðu beinir skattar orðið rúmlega 30 milljörðum minni á yfirstandandi ári samkv. því hlutfalli.
Óbeinir skattar verða 32 milljörðum kr. þyngri í át vegna ákvarðana fyrri vinstri stjórnar og núv. ríkisstj. Þetta stafar af söluskattshækkunum, af vörugjaldshækkun, verðjöfnunargjaldshækkun og hækkun á sköttum af bensíni, auk þess sem nýir skattar hafa verið lagðir á. Þennan aukaskattreikning óbeinna skatta má sundurliða samkv. allra nýjustu upplýsingum, og tæplega er ég þó alveg nákvæmur því að einhverjar sögusagnir ganga um sali Alþ. um að einum af þessum sköttum hafi eitthvað verið hnikað til. Raunar kom það fram í máli hv. þm. Geirs Gunnarssonar að eitthvað hafi verið við það frv. fiktað. En samkv. þeim upplýsingum, sem ég hafði síðast, nemur þessi skattauki eftirgreindum upphæðum:
1. Hækkun söluskatts skv. lögum 1979 10.3 milljörðum kr. í aukaálögur á þessu ári. 2. Hækkun vörugjalds 7 milljörðum 715 millj. kr. 3. Gjald á ferðalög til útlanda 1700 millj. kr. 4. Nýbyggingargjald 250 millj. kr. 5. Skattur á verslunarhúsnæði 1700 millj. kr. 6. Aðlögunargjald 1840 millj. kr. 7. Verðjöfnunargjald af raforku, hækkun nemur 1220 millj. 8. Skattahækkun af bensíni umfram verðlagshækkanir 10 milljörðum 100 millj. kr. 9. Ný hækkun á söluskatti nemur 7 milljörðum kr., eða kannske 6 eftir því sem kom hér fram hjá hv. þm. Geir Gunnarssyni. 10. Markaðir tekjustofnar teknir í ríkissjóð nema 4 milljörðum 714 millj. kr., en frá þessari upphæð dregst niðurfelling söluskatts af matvörum og tollalækkun sem framkvæmd var á þessu tímabili.
Út úr þessu dæmi koma 32 milljarðar kr., eða 31 ef hinn nýi veltuskattur eða söluskattur gefur 6 milljarða kr., eins og fram kom áðan.
Margar þessara talna má lesa úr fjárlagafrv. sjálfu, en að auki er stuðst við upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun og úr frv. hæstv. ríkisstj. sem liggja fyrir Alþingi.
Eins og ég hef áður bent á hefur skattlagning á bensín aukist á milli áranna 1978 og 1980 um 20 milljarða kr. eða um 221%. Byggingarvísitala er áætluð hækka um rúm 108% frá miðju ári 1978 og fram á mitt ár 1980. Skattálögur á bensín hafa því aukist um 10.1 milljarð umfram verðlagshækkanir. Þetta stafar að sjálfsögðu af hækkunum á innkaupsverði vegna orkukreppunnar og bætist þannig við þann vanda sem bifreiðaeigendur eiga við að glíma vegna hækkunar á innflutningsverði bensíns.
Það er mjög athyglisvert í þessu sambandi, að 51% af sköttum á bensín fór í Vegasjóð 1978, en samkv. frv. til fjárlaga fyrir 1980 — frv. sem hér er til umr. — fara einungis 37.9% af sköttum á bensín í Vegasjóð og kemur þessi lækkaða prósenta einungis til þess að endurbæta vegina.
Athyglisvert er hversu athafnasöm ríkisstj. Gunnars Thoroddsens hefur verið í því að hækka skatta. Hún ber ábyrgð á 5.6 milljarða kr. hækkun beinna skatta, og er þá við það miðað að sveitafélögin noti 3/4 heimildar um 10% álag á útsvar. Hækkun vörugjalds og söluskatts í fyrrahaust leggur 15 milljörðum meira á þjóðina í ár en árið 1979, vegna þess að þær álögur gilda nú allt árið. Síðast bættist við 2% söluskattshækkunin sem leggur 7 milljarða í nýjum skattálögum á almenning og þó eitthvað minna ef á verður slakað. Þá má minna á flugvallaskattinn o. s. frv. Núv. hæstv. ríkisstj. er því síður en svo eftirbátur fyrri vinstri stjórnar í nýjum skattálögum. Samtals er hér um að ræða 26–27 milljarða kr. ofan á skattasúpu vinstri stjórnarinnar.
Menn horfa að vonum skelfingu lostnir á þessar aðfarir. Í morgun voru birt viðbrögð tveggja fjölmennra launþegasamtaka vegna þessara gegndarlausu skattálaga. Í ályktun Alþýðusambands Íslands segir svo orðrétt:
„Á fundi viðræðunefndar Alþýðusambands Íslands í dag var fjallað um þær auknu álögur sem boðaðar eru í formi útsvarshækkunar, hækkunar tekjuskatts og söluskatts. Alþýðusambandið minnir á að þetta gerist á sama tíma og kaupmáttur launa minnkar stöðugt. Aðgerðir stjórnvalda nú hljóta að auka dýrtíðina og rýra almenna kaupgetu. Aðgerðirnar eru þannig síst til þess fallnar að greiða fyrir kjarasamningum og mótmælir viðræðunefndin þeim því harðlega.“
Og í ályktun frá BSRB segir enn fremur orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Stjórn BSRB mótmælir þeim starfsaðferðum ríkisstj. við undirbúning efnahagsráðstafana að hafa ekki samráð við samtök launafólks um heildarstefnu í þessum málum. Í lögum er gert ráð fyrir samráði við samtök launafólks, og slík samráð eru einnig boðuð í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. En engin samráð hafa verið höfð við launþegasamtökin.
Þær nýju stórfelldu álögur á almenning, sem þegar hafa verið samþ. á Alþ. eða fyrirhugaðar eru samkv. stjfrv., þ. á m. um orkujöfnunargjald, eru olía á verðbólgueldinn, sem enn hlýtur að magnast við gengislækkanir, sem sífellt eru framkvæmdar.
Því mótmælir stjórn BSRB eindregið þessum nýju álögum.“
Ég vona að hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj. taki meira mark á þessari gagnrýni og viðvörunum en raun hefur orðið á um þau varnaðarorð sem við þm. höfum haft hér á hinu háa Alþingi, en það má heita að hæstv. ríkisstj. hafi á engan hátt svarað þeim viðvörunum eða gagnrýni.
Þrátt fyrir nýja skattálagningu, sem er raunverulega 2% söluskattshækkun og eykur tekjur ríkissjóðs um 7 milljarða á árinu 1980, er raunverulegur greiðsluhalli á þessu fjárlagafrv. Þessum 7 milljörðum eða 6, ef þeir verða það, er varið þannig, að áætlað er að 4 milljarðar gangi til að greiða olíustyrk, en síðan er 1.5 milljörðum varið til að bæta rekstrarafkomu og þar með greiðsluafkomu ríkissjóðs, en hálfum milljarði er ætlað að hækka óviss útgjöld og þannig greiðast úr ríkissjóði. Eftir þessa skattahækkun og eftir að fjallað hefur verið um frv. í fjvn. við 2. og 3. umr. er greiðsluafgangurinn aðeins 2.5 milljarðar kr., að því best verður séð, miðað við þær till. sem ég heyrði fluttar hér áðan. Er það nýlunda að hv. fjvn.-menn heyri till. fluttar á þingi án þess að þær hafi verið ræddar í fjvn., en það er svo margt nýtt í dag. En ef þetta er rétt, sem kom hér fram í þeim till., verður greiðsluafgangurinn um 2.5 milljarðar kr.
Hér er þó því miður aðeins um pappírstölu að ræða vegna þess að lántökur voru auknar um hvorki meira né minna en 7 milljarða til að ná saman þessum greiðsluafgangi. Og það er einungis gert ráð fyrir að greiða Seðlabankanum eftir sem áður 3.6 milljarða af óumsömdum yfirdrætti sem nálgast 30 milljarða kr. um síðustu áramót. Þessu til viðbótar bætist það, að til A- og B-hluta er áformað að fjórfalda erlendar lántökur. Allir, sem vit hafa á peningamálum og efnahagsmálum, gera sér grein fyrir því, að slík gegndarlaus erlend lántaka til ríkissjóð hlýtur að vera, eins og kom fram í ályktun BSRB, olía á eld verðbólgunnar.
Hér er allt á sömu bókina lært. Þótt nýir skattar séu lagðir á, söluskattur hækkaður með nokkurra mánaða fresti um mörg prósentustig, fer í raun ekkert fyrir þessari skattheimtu í að gera ríkisfjármálin að virkara tæki í baráttunni gegn verðbólgunni. Þvert á móti eru ríkisútgjöldin þanin út og nýir skattar lagðir á, eins og söluskattur núna, sem munu magna verðbólguna um allan helming.
Eins og ég hef áður bent á er hér haldið áfram sömu stefnunni og 1978 og 1979. 1978 gerði þáv. vinstri stjórn ýmsar ráðstafanir sem hlutu að leiða til stórfellds halla á því ári. Þegar Tómas Árnason, hæstv. núv. viðskrh., mælti fyrir fjárlagafrv. fyrir 1979 lagði hann á það áherslu að rúmlega 8 milljarða kr. greiðsluafgangur, sem ganga ætti til Seðlabankans, væri höfuðatriði fjárlagastefnunnar og að í frv. væri gert ráð fyrir svo hárri fjárhæð að hún næmi í þessu skyni 4% af fjárlögum á skuldahala ríkissjóðs í Seðlabankanum. Reyndin varð þó sú, að þrátt fyrir nýja skatta, sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögunum, var verulegur halli á ríkisbúskapnum 1979, með þeim afleiðingum að 61% verðbólga var á árinu, sem er algert met á síðari áratugum. Í fjárlögum áranna 1978 og 1979 var gert ráð fyrir að greiða af greiðsluafgangi ríkissjóðs í Seðlabankann samtals 8.3 milljarða kr., en reyndin varð sú, að skuldin við Seðlabankann jókst um 6.7 milljarða og staðan við Seðlabankann varð 15 milljörðum verri en fjárlög gerðu ráð fyrir einungis á þessum tveimur árum.
Þegar reynslan hefur verið slík og þróunin undanfarin tvö ár er það algert ábyrgðarleysi að afgreiða fjárlög með svo litlum greiðsluafgangi sem hér er ráð fyrir gert, jafnvel þótt hver einasta tala í fjárlagafrv. stæðist.
Þessu til viðbótar er það að segja, að ríkissjóður skuldaði fleiri en Seðlabankanum um síðustu áramót. Í nýútkominni skýrslu frá ríkisendurskoðun, en það er nýjung að ríkisendurskoðun gefi Alþingi skýrslu um framkvæmd fjárlaga, mjög góð nýjung að mínu mati, kemur fram að ríkissjóður hefur ýtt ýmsum greiðslum á undan sér til þess að laga stöðuna um áramótin. Þar kemur fram að hann hefur átt ógreidda reikninga til mennta- og kennaraskóla um 203 millj., hann hefur átt ógreitt til Aflatryggingasjóðs 280 millj., Fiskveiðasjóðs 513 millj., Byggingarsjóðs ríkisins 2023 millj., til rekstrar sjúkrahúsa 353 millj. og til greiðslu olíustyrks 262 millj. Samtals eru þetta 4 milljarðar 179 millj. kr. Í þessu fjárlagafrv. sést hvergi að ríkissjóður geri ráð fyrir að greiða þessar skuldir, þannig að útgjaldahlið hans sé við það miðuð að hann þurfi ekki að ýta þessum böggum á undan sér um næstu áramót. Í því sambandi er rétt að minna á að það eru feiknalega skornir niður ýmsir sjóðir, eins og t. d. Byggingarsjóður ríkisins, og því þrengra um vik fyrir ríkissjóð að nota Byggingarsjóð ríkisins sem eins konar banka um næstu áramót.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að umfjöllun fjvn. um B-hluta fyrirtæki og um Vegagerðina og fara nokkrum orðum um orkumál.
Ég sagði áðan að það væri gert ráð fyrir að hækka gjaldskrá Pósts og síma um 17% 1. maí, en það er einnig gert ráð fyrir að hækka gjaldskrá um 7% 1. ágúst og 5% 1. nóv. Þrátt fyrir þessar miklu hækkanir eru framkvæmdir Pósts og síma með þessari fjárlagaafgreiðslu skornar niður um 1200 millj. kr. frá tillögum stofnunarinnar að raungildi frá því, sem var 1979, um 500 millj. kr.
Ríkisskip fékk þannig afgreiðslu í hv. fjvn., að þar er gert ráð fyrir að farmgjöld Ríkisskips hækki um 25% 1. maí, 7% 1. ágúst og 5% 1. nóv. Þar er gert ráð fyrir að ævintýraleg aukning verði á flutningum með Ríkisskip, um 40% að magni til frá árinu í fyrra, en samt sem áður þarf framlag ríkissjóðs að verða rúmur milljarður kr. til að greiða halla af þessum rekstri á árinu 1980.
Um Ríkisútvarpið er það að segja, að við þessa fjárlagaafgreiðslu nýtur Ríkisútvarpið ekki neinna framlaga frá ríkissjóði eins og það hefur gert undanfarin ár, þó aðallega sjónvarp, vegna þess að á sínum tíma er gert ráð fyrir að tolltekjur af litsjónvarpstækjum, sem munu nema í ár 1000 millj. kr., eða hluti af þeim tekjum gangi til þess að byggja upp dreifikerfi sjónvarps og til litvæðingarinnar. Við þessa fjárlagaafgreiðslu fer ekki króna úr ríkissjóði, en útvarpinu er heimilað að taka 300 millj. kr. lán sem ríkissjóður ætlar að borga fjármagnskostnað af að hluta. Og eins og ég sagði áðan er gert ráð fyrir að afnotagjald útvarps og sjónvarps hækki um 21.5% á seinni hluta ársins í ár, eftir að hafa hækkað um allt að 25%, þ. e. afnotagjald fyrir litsjónvarpstæki, á fyrra árshelmingi.
Vegamálastjóri kom á fund n. til að gera grein fyrir því, hvað sá rammi, sem niðurstaðan varð að Vegagerðin fengi, hefði í för með sér. Ríkisstj. ákvað að víkka þann ramma um 2 milljarða kr. þannig að úr ríkissjóði kæmi 1 milljarður og hálfur milljarður í lántöku. Það er fróðlegt að bera þessar tölur saman við það sem var 1978, en þá lagði ríkissjóður Vegasjóði til 1500 millj. kr., en það mundi þýða 3.2 milljarða á þessu ári miðað við raungildi. Það er skemmst frá því að segja, að hv. þm. geta átt von á því á næstu dögum að þurfa að draga úr raungildi fjárveitinga í kjördæmum sínum til nýbygginga vega um 34% samkv. þeim upplýsingum sem hv. fjvn. fékk hjá vegamálastjóra, og þá er átt við gildandi vegáætlun. Skylt er að geta þess, að það mun vera um einhverja raunverulega aukningu að ræða miðað við árið í fyrra, sem er það ár sem minnst hefur verið lagt til vegamála í fjölda mörg ár. En hér er um að ræða 34% niðurskurð að raungildi frá vegáætluninni sem gilti í ár, þrátt fyrir fyrirheit stjórnarsáttmálans um að vegáætlun skyldi framkvæmd að raungildi. Á það vantar 4.5 milljarða að vegáætlun haldi raungildi sínu. Samkv. þeirri afgreiðslu sem Vegagerðin fékk hjá meiri hl. fjvn. — Það er athyglisvert við þessa afgreiðslu að eina verkið, sem fær raungildisframlag, er brúin yfir Borgarfjörð.
Þá vil ég víkja örstutt að orkumálum.
Orkumálin hafa verið dálítið undarleg við þessa fjárlagagerð. Það hefur verið staðið dálítið undarlega að þeim. M. a. var olíustyrkurinn, eins og menn vita, numinn út út frv. núv. hæstv. fjmrh. En þegar betur er að gáð er einnig fleira gert þar. T. d. er það svo, að beint framlag ríkissjóðs í Orkusjóð, þegar frá er dregið verðjöfnunargjald, lækkar að raungildi um 500 millj. kr. og fellt er niður beint ríkisframlag til að styrkja dreifikerfi í sveitum og bein fjárveiting til hitaveitulána. Samtals er þarna um skerðingar að ræða upp á 1300 millj. kr., en í staðinn er gert ráð fyrir að Orkusjóður taki miklu meiri lán en hann hefur gert áður. Hér er aðeins um eitt dæmi að ræða um hvernig staðið hefur verið að fjárlagaafgreiðslu núna, því að ríkissjóður dregur úr beinum framlögum til stofnana eins og Orkusjóðs, en síðan er þeim ætlað að taka meiri lán. Þannig er vandanum ýtt út á lánsfjármarkaðinn. Að sjálfsögðu verða ekki búnir til neinir nýir peningar með þeim hætti, en þrengt að öðrum sem þurfa á lánsfé að halda.
Þá vil ég geta þess, að við þremenningar endurflytjum till. okkar um að ríkissjóður skili iðnaðinum á þessu ári aðlögunargjaldi sem hann leggur á. Aðlögunargjald var lagt á fyrst í fyrra. Samkv. upplýsingum ríkisbókhaldsins var óráðstafað af aðlögunargjaldi í ríkissjóð um áramótin 386 millj. kr. Í ár er ætlunin að innheimta 1840 millj. kr. í ríkissjóð af aðlögunargjaldi, en einungis skila iðnaðinum 850 millj. af því. Till okkar þremenninga, sem við flytjum á ákveðnu þskj. og er eina till. sem við flytjum, gengur einfaldlega út á að ríkissjóður stingi þessum peningum ekki undir stól í ár, heldur reiði þá fram til iðnþróunaraðgerða, eins og raunar var lofað í fyrra þegar frv. um aðlögunargjald var flutt á hinu háa Alþingi.
Þegar fjárlagafrv. er til umr. sem eins er staðið að og þessu fjárlagafrv., sem hér hefur verið rætt nú og er rætt við 3. umr., vaknar sú spurning, hvort það sé í raun og veru eina leiðin, þegar menn vilja koma til móts við ýmsar þarfir í þjóðfélagi sem er í mótun og þarf að auka ríkisútgjöldin á sumum sviðum, að hækka skatta. Ég held að menn hljóti að vera mér sammála um að það getur ekki gengið ár eftir ár að hækka söluskatt um 1–2% árlega til að koma til móts við þarfir sem eru margvíslegar í þjóðfélagi í mótun. Þess vegna verður að finna einhverjar aðrar leiðir og gera þetta öðruvísi. Það verður að finna svigrúm til þess á einhverjum öðrum sviðum og lækka þannig útgjöld ríkissjóðs að svigrúm skapist til að taka ný verkefni sem þarf að taka á. Í þessu sambandi er fróðlegt að athuga að útgjöld ríkissjóðs til sjúkratrygginga hækka um 100%, en aftur á móti til lífeyristrygginga elli- og örorkulífeyrisþega og annarra lífeyrisþega um 71%, sem er mjög eðlileg upphæð miðað við allt. Sjúkratryggingar hækka um 100%, læknishjálp hækkar um 163%, lyfjakostnaður um 140%, tannlækningakostnaður um 130% og ýmis sjúkrakostnaður um 159%. Samt sem áður er gert ráð fyrir því í dæminu um sjúkratryggingarnar, þegar útgjöld ríkissjóðs eru reiknuð í því sambandi, að sjúklingar taki á sig hækkun á lyfjakaupum og greiðstu fyrir sérfræðiþjónustu í átt við verðlag. Þannig er gert ráð fyrir því, er mér sagt af hálfu fjárlaga- og hagsýslustofnunar, að sjúklingar greiði fyrir erlend lyf 2900 kr. samkv. forsendum frv., en núverandi verðlag fyrir sjúklinga er 2000 kr. Lyf eiga því að hækka um 900 kr.
Þessi aðferð, að láta sjúklinga taka þannig þátt í lyfjakostnaði, var mjög gagnrýnd á sínum tíma. Þetta er dæmi, t. d. um sjúkratryggingarnar, sem á að hvetja þm. og fjvn. til að spyrja sig þeirra spurninga, hvort ekki sé rétt að taka svona lið til gagngerðrar endurskoðunar einmitt á sama hátt og hugmyndin er með því að menn taki þó að einhverju leyti þátt í þessum kostnaði. Ég er ekki að gagnrýna hæstv. núv. ríkisstj. fyrir að ætla að fara þá leið að láta menn taka þátt í þessum kostnaði, síður en svo. En ég er að benda á að það hlýtur að vera þörf á að taka slíka liði og afmarka hvað hið opinbera á að borga af slíkri þjónustu og hvað einstaklingarnir eiga að borga. Það ætti að sjálfsögðu að vera meginstefna í slíkri athugun að allir, sem á þurfa að halda, án tillits til efnanags, geti notið heilbrigðisþjónustu, en það séu eðlilegri skorður við því, að þessi kostnaður geti rokið upp eins og hann hefur gert á undanförnum árum, og það sé þá gert með því að einstaklingarnir taki þátt í honum.
Í fjárlagafrv., sem við erum að afgreiða við 3. umr., úir og grúir af mótsögnum. Talað er um að veita auknar fjárhæðir til ýmissa félagslegra framkvæmda og til að koma til móts við þá sem miður mega sín í þjóðfélaginu. Á sama tíma sem talað er um að hlúa að öldruðum og öryrkjum er t. d. fé erfðafjársjóðs skorið niður um helming. Gert er ráð fyrir í frv., að tekjur í þennan sjóð nemi 700 millj. kr., en í ríkissjóð er af þeim tekið 370 millj. kr. Hv. þm. til upplýsingar skal ég lesa upp úr lögum sem kveða á um hver skuli vera verkefni erfðafjársjóðs. Í þeim segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Fé því, sem rennur í erfðafjársjóð samkv. 1 gr., skal varið til lána og styrkveitinga til þess að koma upp vinnuheimilum og öðrum stofnunum fyrir öryrkja og gamalmenni í því skyni að starfsgeta þeirra komi að sem fyllstum notum.“ — Síðan segir: „Ef fjárhagur sjóðsins leyfir er enn fremur heimilt að veita framangreindum aðilum lán úr sjóðnum með sömu skilmálum til þess að koma upp elliheimilum.“
Í lögum um endurhæfingu segir: „Heimilt er að veita fé úr erfðafjársjóði til þess að koma á fót dvalarheimilum fyrir öryrkja svo sem hér segir:“ Er þar um að ræða 1/4 hluta byggingarkostnaðar í lán og 1/4 í styrk. Enn fremur er heimilt að styðja endurhæfingarstöðvar við rekstur.
Ég tek þetta sem dæmi, en ég vil líka t. d. minna á annað. Þar er um Bjargráðasjóð að ræða. Hæstv. ríkisstj. aflar Bjargráðasjóði 1500 milljarða kr. láns með vöxtum og þeim skilmálum, sem gilda á lánamarkaði innanlands, og er þar að sögn að koma til móts við bændur sem hafa orðið fyrir skakkaföllum. Á sama tíma liggur frv. fyrir hinu háa Alþingi um að hækka framlag úr ríkissjóði í þennan sjóð, en ríkissjóður lætur honum í té 200 millj. kr. minni fjárhæð en þetta frv. gerir ráð fyrir. Ég endurtek að ég tek þetta sem dæmi um hvað hringlandahátturinn í fjárlagaafgreiðslunni er alger þegar þetta frv. er lesið ofan í kjölinn og þegar menn setja sig inn í hvað í því felst.
Herra forseti. Sú stefna, sem uppi hefur verið síðan haustið 1978 í ríkisfjármálum, er röng. Reynslan sýnir að hún leiðir til gífurlegrar aukningar skattbyrði fyrir almenning. Reynslan sýnir að hún er ekki einungis ófær vegna óhófseyðslu í ríkisfjármálum, heldur er hún ein undirrót verðbólgunnar sem nú er orðin illkynja krabbamein í þjóðfélaginu. Okkur er nauðugur sá kostur að gerbreyta um stefnu. Við sjálfstæðismenn leggjum á það áherslu, svo sem fram hefur komið í nál. okkar við 2. umr. Ég lýk máli mínu með því að ítreka enn brýna nauðsyn stefnubreytingar í fjárlagagerð og ríkisfjármálum ef ekki á illa að fara.