01.04.1980
Sameinað þing: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)

116. mál, fjárlög 1980

Frsm. samvn. samgm. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 249 flytur samvn. samgm. brtt. við 4. gr. fjárlaga, um flóabáta og vöruflutninga. Þar kemur fram, að fyrir töluna 438.6 millj. kr. kemur talan 688.1 millj. Ég vil taka það strax fram, að samstarfið í samvn., eins og nefnið bendir til, var með miklum ágætum og þar sveif bæði eindrægni og friður yfir vötnum.

Það er rétt að fram komi að þarna er um allverulegar hækkanir að ræða á milli ára, en ástæðan fyrir því er einföld. Rekstrarkostnaður, sérstaklega útgerðar flóabáta, hefur hækkað mjög verulega, og er þess þá helst að geta að olíuverð þrefaldaðist á s. l. ári. Rétt er að taka það fram, að margar útgerðir þessara báta standa nú frammi fyrir mjög alvarlegum fjárhagsörðugleikum, mikilli skuldasöfnun. Er þess m. a. að geta að Akraborg og Herjólfur munu við lok þessa árs skulda Ríkisábyrgðasjóði um það bil 3 milljarða kr. Hér er á ferðinni svo stórt og mikið mál að Alþ. og ríkisstj. verða að grípa í taumana og gera sérstakar ráðstafanir til að koma þessum aðilum til aðstoðar. Þá er rétt að taka fram, að margir af flóabátunum eru orðnir gamlir og úreltir og kostnaður við viðhald þeirra orðinn mikill. Þess ber einnig að geta, að það hefur verið vandamál um nokkurra ára skeið hve áhafnir þessara báta hafa verið fjölmennar. Ég vil nefna sem dæmi að áhöfn Herjólfs, Vestmannaeyjaskipsins, er 17 eða 18 manns, en í áhöfn t. d. skips eins og Smyrils, sem gengur á milli Færeyja, Bretlands og Íslands, er einnig 17 manns, en skipið er 2500 brúttórúmlestir eða 1500 lestum stærra en Herjólfur.

Ég mun nú, herra forseti, gera nokkra grein fyrir þeim ákvörðunum eða samþykktum sem liggja að baki þessum brtt.

Lítill hluti þeirra framlaga, sem hér um ræðir, fer til flutninga á landi, sem einkum eru ættaðir til að létta af heimamönnum í snjóþungum héruðum þeirri byrði sem því fylgir að halda uppi samgöngum þar. Til þess liðar í brtt. er áætlað að verja 59.6 millj. kr., en til flóabátanna fara hins vegar 628.5 millj.

Í nál. samvn. samgm. segir m. a., með leyfir forseta: „Nefndin er sammála um það, að þótt viðkomandi aðilum sé þörf á stuðningi þurfi engu að síður að gera sérstaka úttekt á ákveðnum þáttum þessara mála svo afgreiðslur fjárveitinga verði ekki sjálfvirkar frá ári til árs. Bent hefur verið á það, að greinargerðir þyrftu að fylgja öllum umsóknum, svo ljóst yrði hvernig fjármunum er varið. Eins og nú háttar eru umsóknir aðeins nokkrar línur á blaði, skeyti eða tilmæli til þm. Þetta á þó ekki við um umsóknir flóabáta, sem yfirleitt eru vel grundvallaðar.

Þá telur n. fulla ástæðu til þess að vekja athygli Alþ. og ríkisstj. á því alvarlega ástandi, sem nú ríkir um rekstur sumra flóabátanna. Mjög verulegur rekstrarhalli er á útgerð nokkurra þeirra, enda hefur allur tilkostnaður hækkað mikið. Sem dæmi má nefna, að olía hefur hækkað úr 49 kr. hver lítri í mars 1979 í 155.25 kr. í sept. 1979, og staðið í stað síðan, eða rúmlega þrefaldast. Hækkun rekstrarkostnaðar er yfirleitt rösklega 50%.

Þess ber og að geta, að útgerðir sumra flóabátanna heyja nú harða baráttu til að greiða niður skuldir og ekki er fyrirsjáanlegt að þar vinnist sigur. T. d. má geta þess, að skuld Herjólfs við Ríkisábyrgðasjóð nam 1185 millj. kr. í lok ársins 1979 og samkv. upplýsingum sjóðsins er áætlað, að 900–1000 millj. kr. falli á skipið á þessu ári. Um síðustu áramót námu skuldir Akraborgar við Ríkisábyrgðasjóð 521.6 millj. kr., að óbreyttu gengi. — Vandi þessara skipa og þeirra, er búa við svipaðar aðstæður, verður ekki leystur nema með sérstöku átaki ríkisvaldsins.“

N. bárust rösklega 40 erindi um stuðning. Þeir Halldór S. Kristjánsson deildarstjóri í samgrn. og Guðmundur Einarsson forstjóri Skipaútgerðar ríkisins komu á nokkra fundi n. og veittu henni drjúgar upplýsingar og miðluðu af þekkingu, er kom að góðu gagni, og er ástæða til að þakka þátt þeirra.

Það er full ástæða til að benda á nokkur atriði sem koma fram í nál. varðandi einstaka flóabáta — þessi mikilvægu samgöngutæki einangraðra byggðarlaga og eyjabyggða í þessu landi.

Þess má geta að Akraborg hefur sent inn beiðni eða umsókn um 60% gjaldskrárhækkun. Sú umsókn hefur ekki verið afgreidd enn þá frá gjaldskrárnefnd. Í því sambandi er rétt að minna á till. flóabátanefndar, þar sem hún telur að unnt sé og eðlilegt að rekstri Akraborgar verði hagað þannig að ekki þurfi að koma til framlag úr ríkissjóði. Telur n. að þessu markmiði mætti m. a. ná með því að útgerð Akraborgar verði gefnar frjálsar hendur með verðlagningu þannig að hægt verði með breytingum far- og farmgjalda að finna taxta sem gefa hámarksgróða. Það liggur í augum uppi, að ef þessi stefna nær ekki fram að ganga verður afleiðingin annaðhvort rekstrarstöðvun skipsins eða aukið ríkisframlag.

Um flóabátinn Baldur er þess að geta, að haustið 1978 var gerð tillaga um að fækka í áhöfn skipsins um tvo menn, en aðeins náðist samkomulag um fækkun um einn. Gera má ráð fyrir að rekstur skipsins hefði orðið hallalaus á árinu 1979 ef þessi tillaga hefði náð fram að ganga. Fróðir menn telja að fimm menn í áhöfn nægi. Samvn. samgm. leggur á það ríka áherslu að sem fyrst verði hafin athugun á endurnýjun bátsins með aukna hagkvæmni á þjónustu við farsvæði hans í huga.

Um Drang þarf ekki að fara mörgum orðum. Sá bátur hefur yfirleitt verið vel rekinn og er svo enn, en skipið er orðið gamalt og mjög þarf að huga að endurnýjun þess og smíði nýs skips með aukna og bætta þjónustu í huga. Sama er að segja um Fagranes, þann mikilvæga flóabát, en brýna nauðsyn ber til þess að kanna þjónustuhlutverk bátsins og hugsanlega endurnýjun hans.

Ég hef áður nefnt ástand Herjólfs og rekstur þess skips, greint frá skuld útgerðarinnar við Ríkisábyrgðasjóð, sem er að verða svo þungur baggi á útgerð skipsins að slíkt mun ekki geta farið fram miklu lengur eins og verið hefur án þess að til einhverra ráðstafana verði gripið. N. segir orðrétt í nál., með leyfi forseta:

„Nefndin telur, að Alþ. og ríkisstj. verði að taka ákvörðun um hvernig gera eigi upp áfallnar skuldir skipsins við sjóðinn og hvernig standa eigi að greiðslu afborgana og vaxta á næstu árum.“

Þá vil ég að lokum, herra forseti, víkja aðeins að Hríseyjarferjunni. Hríseyingar eignuðust á síðasta ári nýtt og glæsilegt skip sem tók við af gömlum og úreltum bát sem lengi hafði þjónað eyjaskeggjum, en þetta eru einu samgöngur Hríseyinga við land, þ. e. sjóleiðina. Í eynni er lélegur sjúkraflugvöllur sem lítið eða ekkert er notaður. Á þessari ferju hvíla miklar skuldir. Sem dæmi má geta þess, að Framkvæmdasjóður lánaði til smíði ferjunnar 201 millj. kr. Verða greiðslur og afborganir mjög þungar á næstunni miðað við núgildandi vexti, sem eru 33.5%. Á þessu ári eru afborganir fyrir þetta litla byggðarlag 42 millj., en hækka á næsta ári upp í 84 millj. eða um helming.

Hér verður ekki tíundað það sem greinir um aðra flóabáta, sem eru allir minni bátar, en gegna mikilvægu hlutverki hver á sínum stað. Það eru Mjóafjarðarbátur, Langeyjarnesbátur, Mýrabátur og Dýrafjarðarbátur.

Að lokum þetta: Full samstaða náðist í n. um till. hennar N. setur að sjálfsögðu það skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð samkv. till., að rekstri verði hagað svo að landsbyggðir njóti svo sem til er ætlast og í samráði við samgrn.

Samkv. grg. þeirri, er nál. greinir, leggur samvn. samgm. til að á fjárlagaárinu 1980 verði veittar samtals 688.1 millj. kr. sem skiptast svo sem lagt er til á þskj. 249.