01.04.1980
Sameinað þing: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1667 í B-deild Alþingistíðinda. (1550)

116. mál, fjárlög 1980

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Að venju mun ég ekki hafa hér lengra mál en efni standa til. Ég vil fjalla hér, að því er þetta fjárlagafrv. varðar, um þrjá þætti. Í fyrsta lagi svolitla brtt. við fjárlagafrv. sem við flytjum, ég og hv. 6. þm. Reykv., Birgir Ísl. Gunnarsson. Í annan stað langar mig til að fara nokkrum orðum um gengismál og fjárlagafrv., einnig í framhaldi af þeim umr. sem hér urðu í gærkvöldi. Og í þriðja lagi langar mig til að fara nokkrum orðum um landbúnaðarstefnu þessa fjárlagafrv. og einkum og sér í lagi afstöðu Alþb. til þess með sögulegu tilliti til stefnu Sósíalistaflokksins fyrr á árum í þeim efnum.

En fyrst, herra forseti, áður en lengra er haldið, þá er skilningur minn á þingræði sá, að með æðsta vald fer Alþingi og þingmenn. Þingmenn kjósa sér framkvæmdastjóra til að framkvæma þau lög sem þetta sama háa Alþingi setur. Af þessum ástæðum hefur það verið siðvenja hér, að hæstv. ráðh. — a. m. k. sá sem situr í því rn. sem lagt hefur fyrir það frv. sem verið er að ræða — sitji og hlýði á þm. Út af fyrir sig má taka undir það, að hæstv. ráðh. getur verið þeirrar skoðunar að þm. almennt séu asnar, á þá sé ekki hlustandi og yfir höfuð sé ekkert á því að græða sem þeir kunna að segja. En engu að síður er það svo, að hæstv. ráðh. hefur þegið vald sitt úr hendi þessara sömu þm. sem fara með löggjafarvald. Ég vil þess vegna spyrja, herra forseti: Kynni að vera von á hæstv. fjmrh., Ragnari Arnalds, í salinn? Hann hefur ekki sést hér í allt kvöld. Þetta er spurning til forseta. (Forseti: Ég hef ekki hugmynd um það.) Er hægt að (ÓRG: Hann sat hérna lengi í kvöld.) Hann hefur ekki setið hér í kvöld, hæstv. ráðh., þó taskan hans sé búin að vera hér. Og ég skal út af fyrir sig fallast á það, að það er meira vit í töskunni heldur en ráðh. sjálfum. Það er samt ekki nóg. Hæstv. ráðh. hefur ekki setið hér í kvöld. (MB: En taskan hefur setið hér í salnum.) Já, og það er eflaust hlutfallslega meira af vísdómi í töskunni. En mér er sama, það dugar mér ekki (ÓRG: Þm. fer vísvitandi með rangt mál.) Þm. fer ekki með rangt mál.

Nú, ráðh. er ekki sjáanlegur. En þessari ábendingu, herra forseti, er hér með komið á framfæri. Ráðh. eru framkvæmdastjórar sem þessi virðulega stofnun hefur kosið sér, og það ætti að vera sanngjörn krafa að ráðh. — a. m. k. sá sem frv. hefur flutt — sitji hér. Út af fyrir sig kemur mér ekki við hvers konar innanflokksátök eiga sér stað í Alþb., en ráðh. ætti samt að sjá sóma sinn í því að vera hér viðstaddur. Sem sagt, herra forseti, þessari ábendingu er komið á framfæri.

Á þskj. 274, þskj. sem ég t. a. m. hefði áhuga á að hæstv. fjmrh. hlýddi á rök fyrir, er brtt. við þetta frv. til fjárlaga frá þeim sem hér stendur og hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarssyni. Þetta er lítil till. og út af fyrir sig kostar hún skattgreiðendur ekki neitt. Gert er ráð fyrir að 15 millj. kr. séu fluttar til. Það er gert ráð fyrir að þessar 15 millj. kr. séu fluttar af liðnum rekstrargjöld Alþingis og búinn til nýr liður sem yrði nr. 0118 og heitir: Til beins útvarps frá Alþingi. Hugmyndin að baki þessu er sú, að hv. Alþ. veiti til þess nokkurt fé að sett verði upp bæði það sem á útvarpsmáli er kallað stúdíó og eins hafi fullkomna og beina línu, þannig að hægt verði auðveldlega að senda út á loftinu bæði ræðuhöld, sem fara fram á Alþ., og eins upplýsingar, t. d. í formi viðtala ef þurfa þykir. Hvernig þetta þróast og kann að þróast út af fyrir sig er ekki gerlegt að taka afstöðu til í fjárlagafrv. Hér er aðeins verið að leggja til að þessi tiltekna upphæð, 15 millj. kr., sé til þess að framkvæma þetta tiltekna verkefni. Ég er sannfærður um að þetta væri mikið framfaramál. — Ég fagna því að hæstv. ráðh. er genginn í salinn, og þakka honum fyrir það. — Ég hygg að hér gæti verið um mikið framfaramál að ræða. Ég hygg, þó að ekki hafi ég setið lengi á hinu háa Alþingi; að fréttaflutningur frá Alþingi sé oft mjög ófullkominn, og kemur það sennilega fyrst og fremst til af því — og ég er þá fyrst og fremst að tala um ríkisfjölmiðlana — að þeir hafa ekki úr miklum mannafla að spila og fjárveitingar hafa verið ónógar. Afleiðingarnar eru þær, að þar sem það er flókið mál að fylgjast með störfum Alþingis verður fréttaflutningur oft þannig að með mestu eindæmum er. Ég er sannfærður um það, að ef Alþ. veitti fjármuni til hluta eins og hér hefur verið lýst, þá mundi öll slík aðstaða stórbatna og fólkið í landinu fá sannari mynd af Alþ. Þau eru vitanlega mismerkileg, málin sem hér eru til umr., en samt held ég að það sé of mikil gjá á milli þings og þjóðar, á milli fólksins í landinu annars vegar og þingsins hins vegar, og að hluta til er ég sannfærður um að þetta stafar af því að upplýsingamiðlun frá Alþ. út um byggðir landsins er ónóg. Það eru aðeins 15 millj. kr. sem hér er verið að tala um. Og það er ekki verið að tala um að bæta því við þær upphæðir sem við höfum verið að fjalla um og liggja til grundvallar hinu stóra frv. Það er verið að tala um að flytja þetta af rekstrarkostnaði Alþingis. Það má geta þess til dæmis, að í Vestur-Þýskalandi hafa þeir slíkar reglur og beita þessu af mikilli tækni og raunar bæði útvarpi og sjónvarpi. Og dómur dómbærra manna er sá, að þar hafi þetta gefið mjög góða raun, þýði ákveðinn aga fyrir þingið og umfram allt stuðli að upplýsingamiðlun frá þingi, þjóðþinginu, til fólksins í landinu. Þetta eru ekki háar upphæðir, ég endurtek það. Það er ekki verið að íþyngja skattborgurum enn frekar en þegar er orðið. Ég vænti þess, að hv. þm. skoði þessa litlu till. með velvilja. Ég fagna því, að hæstv. fjmrh. er í salnum, og vil auðvitað sérstaklega beina þessu máli til hans.

Í annan stað langar mig til að fjalla nokkrum orðum um gengismál í tengslum við þetta mikla frv. sem hér er til umr. Um það urðu raunar umr. hér í gærkvöld eða nótt. Fróðir menn segja mér að það sé einsdæmi, að jafnróttæk gengisbreyting og sú, sem nú nýverið var framkvæmd, eigi sér stað á milli þess að fjárlagafrv. er lagt fram á Alþ. og þangað til að því kemur að fjárlagafrv. skal samþykkt, sem væntanlega verður nú á allra næstu dögum. Þessi mikla gengisbreyting þýðir auðvitað það, að allar forsendur fjárlagafrv. hafa skekkst. Þessi mikla gengisbreyting þýðir það, að við erum raunverulega að tala um nýjar og allt aðrar forsendur en þær sem upphaflega var gert ráð fyrir. Þetta dæmi er þeim mun verra vegna þess, að í hæstv. ríkisstj. situr maður sem er búinn að verða sér til skammar með ótímabærum yfirlýsingum um væntanlega gengisfellingu.

Hann er ekki viðstaddur hér í kvöld, hæstv. ráðh. Steingrímur Hermannsson, því að ríkisstj. er fjarverandi, úti að aka í þessum efnum eins og öðrum. Ég verð engu að síður að fjalla enn um mál þessa ráðh. í framhaldi af orðum, sem hann lét falla hér í gær í sambandi við fjárlagafrv., og treysti því að einhverjir flokksbræður hans séu hér við til þess að koma þeim skilaboðum áleiðis.

Hæstv. ráðh. reiddist mér í gær og lagði til við mig að ég segði af mér þingmennsku vegna orða sem ég hafði látið falla um frétt sem eftir ráðh. var höfð 10. mars s. l. Í þingræðu fjallaði ég nokkrum dögum síðar um þessa frétt. Hæstv. ráðh. var þá erlendis og ekki viðstaddur, en ég sagði í þessari þingræðu: ... .„og síðan í fréttinni sjálfri gefur hæstv. ráðh. hverja yfirlýsinguna á fætur annarri í þessa veru og tiltekur að til standi að láta gengið síga um 15%, hvorki meira né minna“. Það voru þessi orð: „hverja yfirlýsinguna á fætur annarri,“ sem hæstv. sjútvrh. mótmælti af hinni stökustu hörku, sagði að þau væru lygi, ósannindi og svo ómerkilegur málflutningur, að annað eins hefði ekki heyrst á Alþ., og ráðlagði þeim þm., sem þessi orð hefði látið falla, að segja af sér. Ráðh. var reiður, og það er þó manndómsmerki, það eina manndómsmerki sem hann sýndi í gærkvöld raunar.

Í þessari sömu frétt segir í fyrirsögn: „Víst glæpur að segja það þótt allir viti það.“ Hann er að tala um gengisfellinguna væntanlegu. Fréttin byrjar á þessum orðum: „Það er víst talinn glæpur að segja það þótt allir viti það.“ Síðar í fréttinni segir: „Steingrímur bjóst við að aðgerðir ríkisstj. yrðu talsvert gengissig, þótt hann vonaði að það þyrfti ekki að verða 15%.“ Það er sjútvrh. þjóðarinnar hæstv., sem er að tala. Síðar í sömu frétt segir: „Þess vegna þarf gengissig að koma til einnig“ — og allt með leyfi hæstv. forseta. Og fréttin endar á þessum orðum: „Steingrímur kvaðst búast við að ríkisstj. ákvæði aðgerðir sínar á morgun.“ (Gripið fram í: Þetta er alveg forkastanlegt.) Auðvitað er það svo. Og er það þá rangt að segja „aftur og aftur“, eða eins og ég sagði hér í þingræðu: „síðan í fréttinni sjálfri gefur hæstv. ráðh. hverja yfirlýsinguna á fætur annarri í þessa veru og tiltekur að til standi að láta gengið síga um 15%, hvorki meira né minna.“

Auðvitað vita t. d. hv. þm. Alþb., sem ég enn leyfi mér að halda fram að reyni þó að horfa mórölskum augum, a. m. k. öðrum þræði, á stjórnmál og þar með yfirlýsingar af þessu tagi, — auðvitað vita þessir menn mætavel að þessar yfirlýsingar ráðh. voru svo hneykslanlegar og í raun gáfu braski svo undir fót að með eindæmum er. Og þetta er sagt í tengslum við þetta fjárlagafrv., vegna þess að hér er verið að tilkynna þjóðinni að það standi til að breyta öllum forsendum þessa frv. Það er það sem hæstv. ráðh. er raunverulega að segja og endurtekur aftur og aftur í einni og sömu frétt, sem er 20 línur eða þar um bil í blaði. Og það er um þessa frétt sem hæstv. ráðh. sýndi af sér derring hér í gær, þann derring sem sekur maður einn hefur í frammi. Hann er svo rismikill að hann mætir ekki hér í dag. Ég veit ekki hvort hann mætir hér framar, en í dag a. m. k. er hann ekki mættur, hæstv. ráðh. Ríkisstj. sem hefur slíka ráðh., þarf á þeim að halda og situr uppi með þá, — það eitt er náttúrlega dómur, það eitt segir slíka sögu, og það að þeir sitji gneypir, fjmrh. og flokksbróðirinn — nei, það er rangt hjá mér, Hjörleifur er ekki flokksbróðir Steingríms Hermannssonar, það best .ég man, — en þarna sitja þeir ráðherrarnir, það er samráðherra þeirra hæstv. sem hér á hlut að máli.

Ég sagði sögu frá Bretlandi í gær um gengismál, afstöðu og þegar menn valda spákaupmennsku með ótímabærum yfirlýsingum. Ég sagði hana hér í gær hæstv. viðskrh., sem nú er genginn í salinn, þegar ég var að áfellast hegðan flokksbróður hans hæstv., Steingríms Hermannssonar. Á hinn bóginn lýsti ég fullu trausti á þá afstöðu sem hæstv. viðskrh. hafði sýnt í þessum efnum. En aðra sögu má segja frá Bretlandi um þessi efni fyrir þessa vondu ríkisstj. að hlusta á. Á stríðsárunum var þar fjmrh. sem var aðlaður og hét Sir Stafford Cripps. Hann var Verkamannaflokksmaður, kom úr kristilegum armi Verkamannaflokksins, og var kallaður í vinstri armi. Hann tók að sér á stríðsárunum sem fjmrh. að segja þjóðinni endurtekið í marga daga að gengið yrði ekki fellt. Og þessum manni var trúað. Nokkrum dögum seinna felldu þeir gengið, Churchill og félagar, þetta var á samsteypustjórnarárunum. Sir Stafford Cripps tók á sig skellinn og sagði af sér. Hann varð að fórna ferli sínum að sinni fyrir málstað sem hann taldi vera réttan á styrjaldartímum.

Má ekki líta svo á, að núv. hæstv. ríkisstj., með þetta lið innanborðs, þetta líka lið, geti lært eitthvað af sögum af þessu tagi? Ég mundi halda að á svona sögur ættu þessir hæstv. ráðh. að hlusta vel, því að hér erum við sannarlega að tala um mikið aðalatriði þessa máls.

Spákaupmennsku er hægt að valda með mörgum hætti. Ef þjóðin vissi að einn og sami maðurinn ætti helming eða meira af ríkistryggðum skuldabréfum og sá hinn sami sæist með stórar ferðatöskur á ferli utan við Landsbankann einn morguninn og sá grunur vaknaði, að hann ætlaði að selja af því að hann treysti ekki bréfunum lengur, þá mundi það valda spákaupmennsku. En stjórnvöld gætu ekkert að slíku gert. En þegar ráðh. gefa slíkar yfirlýsingar sem þessar — og ég endurtek traust mitt á hæstv. viðskrh., því ég tel að hann hafi sýnt rétta framkomu í þessum efnum — þegar ráðh. og það formaður í næststærsta flokki endurtekur atriði eins og hér er um að ræða, þá er það alvarlegur áburður, og þegar sá sami ráðh. leyfir sér þann dónaskap að mælast til þess við þm., sem vinnur að þessu, að segja af sér fyrir vikið, eins og hæstv. ráðh. gerði hér í gær, þá er hann náttúrlega slíkur dólgur og með slíkan málstað að með eindæmum er. Ég vænti þess, að hæstv. viðskrh. komi þessum skilaboðum á framfæri til þess sem þau á.

Í þriðja lagi ætlaði ég að fjalla um landbúnaðarmál, till. Alþfl. í þeim efnum, að því er þetta fjárlagafrv. varðar, afstöðu Alþb. í þeim efnum og einkum og sér í lagi afstöðu Sósíalistaflokksins gamla. Og ég hef hér litlar gjafir í formi ljósrita til að færa á eftir þeim þm. Alþb. sem eru í Reykjavík. Ég tímdi ekki að ljósrita meira uppi á Landsbókasafni í dag. (Gripið fram í: Eigum við ekki að fá þær núna?) Nei, á eftir, hlusta fyrst.

Í brtt. frá hv. þm. Eiði Guðnasyni við 2. umr. þessa máls leggur hann til að jarðræktarframlög verði lækkuð verulega. Hann leggur til að dregið verði úr framlögum til framræslu í landi sem býr við offramleiðslu og skert kjör þegnanna í heild fyrir vikið. Hann leggur til að uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir verði lækkaðar, ekki mjög verulega, því hægt skal fara í sakirnar. Þetta eru viðkvæm mál og það er viðurkennt. Hann leggur til að niðurgreiðslur lækki mjög verulega. Við erum að leggja til að hægt og hægt fikrum við okkur inn á nýja landbúnaðarstefnu. Það skal viðurkennt, að hér er ekki um byltingarkenndar tillögur að ræða. Það er farið hægar í sakirnar en t. d. ég hefði kosið en það er verið að freista þess að ná tilteknu samkomulagi á þjóðkjörnu þingi.

Nú langar mig til að segja fyrst og fremst hv. þm. Alþb. hvernig forverar þeirra í Sósíalistaflokki — meðan flokkurinn var og hét og dugði til einhvers — hegðuðu sér. Ég er með grein sem birtist í dagblaðinu Þjóðviljanum föstudaginn 27. ágúst 1943. Þá hét þetta Sósíalistaflokkur, hafði heitið svo í fimm ár, og foringjar og hugsuðir voru sennilega fyrst og fremst Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjarnason. Nú vil ég taka það strax fram, að þessir menn voru kommúnistar, og í kommúnista er að minni hyggju lítið varið í pólitískum skilningi. Þessir menn voru ekki þingræðismenn. Þeir áttu sér vondan feril á stríðsárunum, einkum á tveimur fyrstu árunum meðan Hitler og Stalín voru í bandalagi. Ég er ekki að lýsa neinni aðdáun á þessum mönnum. Hitt vil ég viðurkenna og skal segja, og það er munurinn á þessum mönnum annars vegar og ruglukollunum sem eru í forsvari fyrir Alþb. í dag, að þeir kunnu sína hagfræði. Það er munurinn á þessum mönnum annars vegar og hins vegar þeim lúðvíksku ruglukollum sem um of marka þennan flokk í dag. Það sama gildir um þá Einar og Brynjólf, að ég hygg, og um marxistana yfir höfuð að tala annars vegar og hins vegar föður þeirra í fræðilegum skilningi, Karl gamla Marx, að þó að hann drægi oft forkostulegar og furðulegar og rangar — sannanlega rangar — pólitískar ályktanir, þá í fyrsta lagi frýði honum enginn vits, en í annan stað kunni hann sína hagfræði, karlinn. Nú skulum við heyra hvað sósíalistarnir — og hv. þm. Guðmundur J. er beðinn að hlusta sérstaklega hvað þeir sögðu um landbúnaðarmál árið 1943. Og við skulum bera það saman við það sem við erum að segja nú um þetta fjárlagafrv. Þetta er Sósíalistaflokkurinn, sem hér er að tala, og þetta er fréttaskýringargrein. Ég giska á — það er sagt án ábyrgðar — ég giska á að höfundur sé Einar Olgeirsson, sem er ásamt Sigfúsi Sigurhjartarsyni annar ritstjóri blaðsins á þessum tíma. Í yfirfyrirsögn segja þeir: „Eru framsóknarmenn að verða vitlausir?“ Þeir segja: „Tíminn heimtar þjóðnýtingu landbúnaðarins.“ Svo segja þeir í undirfyrirsögn: „Með þeim hætti að hvaða maður sem er geti framleitt hvaða landbúnaðarafurðir sem hann vill í hvað ríkum mæli sem vera skal, og síðan kaupi ríkið allt saman, þótt ekkert not sé fyrir það.“

Svo segja þeir og stækka upp fyrirsögnina, þetta er undirfyrirsögn enn: „Ætlar Tíminn með slíkri vitskertri heimtufrekju að reyna að hindra það, að bændastéttin hafi samstarf við verkalýð og aðrar vinnandi stéttir að því að tryggja á eðlilegan hátt afkomu þeirra aðila?“ Þessir menn kunnu sína hagfræði. Þeir gerðu það, sósíalistarnir gömlu. Sú vitneskja hefur af einhverjum ástæðum flust yfir Í Alþfl. Og furðulegt er það sem þar á eftir stendur — (Gripið fram í.) Hvað sagði hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson? (Gripið fram í: Hann sagðist vera á leiðinni.) Nú væri konungi marxistanna nær að halda sér saman augnablik og hlusta. — Þeir byrja greinina svona, og hlustið þið vel, moðsósíalistar sem hér eruð í salnum:

„Það munu vera einhverjar undarlegustu og frekustu tillögur sem nokkurn tíma hafa sést á prenti, sem Tíminn gerir í þriðjudagsblaði sínu 24. ágúst. Hann álítur það hvorki meira né minna en sjálfsagt, að ríkið tryggi öllum bændum sölu á öllum þeim afurðum, sem þeim þóknast að setja á markað, með því verði sem vísitölunefndin“ nefnd sem starfaði á stríðsárunum — „hefur komist að niðurstöðu um að þeir þyrftu að fá, og stimplar það bara einfaldlega sem svik og lagabrot, ef ekki sé tafarlaust fallist á þessa heimtufrekju hans.“

Hvað segir t. a. m. hv. þm. Kjartan Jóhannsson? Mundi hann ekki telja að það væri betri ríkisstj., sem hæstv. ráðh. Gunnar Thoroddsen hefði myndað, ef þar sætu Brynjólfur Bjarnason, Einar Olgeirsson — fullorðnir menn, en við hestaheilsu enn, guði sé lof fyrir það, — og hver eigum við að segja sá þriðji? — kannske Þröstur Ólafsson, frekar en þessir tveir og einn í viðbót — (Gripið fram í.) — þessir framsóknarmenn, þessir menn eru gamlir á sína vísu, þeir sem hér sitja, hæstv. ráðh.

Hér í greininni er sagt „Samkvæmt þessum tillögum má hvaða Íslendingur sem er fara að framleiða landbúnaðarafurðir eins mikið og hann vill.“ Þeir eru að tala um till. sem þetta kerfi var að byggja upp. (Viðskrh: Heldurðu að þetta sé satt í Þjóðviljanum?) Þjóðviljinn segir stundum satt, jú. „Það þarf ekkert tillit að taka til þess, hvaða vörur þjóðin þarf eða getur selt við kostnaðarverði erlendis. Það er bara að framleiða vöruna. Og ef þeir Íslendingar, sem ekki gerðust landbúnaðarvöruframleiðendur upp á þessar spýtur, ekki geta eða vilja kaupa allar vörur hans, þá á ríkið bara að borga honum það fullu verði“ — hvað erum við að gera í fjárlagafrv. núna? — „Þó það svo yrði að fleygja þeim eða selja fyrir lítið sem ekkert.“ — Hvað erum við með mikið af útflutningsbótum í þessu frv. núna, hæstv. fjmrh.?

Svo halda þeir áfram: „Slíkt væri sú undarlegasta og vitlausasta „þjóðnýting“ (í gæsalöppum hér í Þjóðviljanum) sem nokkurn tíma hefði þekkst, þar sem þjóðin ætti að kaupa og borga fullu verði vinnuafl allra landbúnaðarvöruframleiðenda án þess að ráða nokkrum sköpuðum hlut um hvernig vinnuafl þeirra er notað, heldur geti hver einstaklingur unnið að því sem honum líst, alveg án tillits til þess, hvort vinna hans yrði þjóð þeirri að nokkru gagni, sem keypti og borgaði vinnuafl hans.“

Hvernig líst hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni á þetta? Ég veit að síðan flokksbróðir hans, framsóknarmaðurinn fyrrverandi, gerðist kommi, þessi konungur marxistanna sem hér situr beint fyrir framan mig, þá hefur hann ekki skoðanir á svona málum — eða neinum. En ég treysti því, hv. þm. Guðmundur J., að ennþá örli á samvisku einhvers staðar undir niðri. Það veit ég raunar.

Þeir halda hér áfram, í Þjóðviljanum frá 1943, í ágúst. (GJG: Það er nú að smáminnka í manni, þetta göfuga.) Ég hef aðrar hugmyndir um það, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson.

„Slíkar hugmyndir sem þessar eru svo fjarstæðukenndar“, segja þessir hugsuðir árið 1943, „að það þarf alveg ótrúlega frekju til að setja þær fram sem framtíðargrundvöll fyrir samstarf vinnandi stéttanna á Íslandi, enda geta þær ekki verið runnar undan rótum bænda, heldur er varpað fram af stjórnmálabröskurum,“ — ég endurtek: „stjórnmálabröskurum, sem einblína á stundarhag í von um að vinna bændafylgi með svo ófyrirleitnu lýðskrumi sem þessu.“ Þetta gæti verið lýsing á þessari bók, sem við erum hér að fjalla um.

Þeir halda áfram, sósíalistarnir frá 1943, og segja: „Það er hverjum manni ljóst, að þjóðfélag, sem ætlaði að framkvæma svona hugmyndir, stæðist ekki stundinni lengur“ — ég endurtek: „stæðist ekki stundinni lengur. Ef landbúnaðarframleiðslan einsömul væri tryggð á þennan hátt, þá þýddi það óhjákvæmilega að aðrir landsbúar mundu flýja atvinnuleysi, taprekstur og skattbyrðar“.— takið eftir: „skattbyrðar við sjávarsíðuna og leita til þessa eina“ — ég les ekki vel hér, það er óskýrt — „í eyðimörk kapítalismans, landbúnaðarins, þar sem ríkið tryggði hverjum manni greiðslu fyrir hverja atvinnustund hans alveg án tillits til þess hvað um afurðirnar yrði.“

Ég segi það enn, að það er ágiskun, því þetta er ómerkt grein, en ég gæti giskað á af stílnum að það væri Einar Olgeirsson sem þetta hefði skrifað á þessu ári. Og hann heldur áfram og segir: „Og afleiðingin yrði auðvitað sú, að allir færu að framleiða þessar landbúnaðarafurðir, sem ríkið tæki sem gulls ígildi, og enginn yrði til að éta þær eða borga uppbæturnar fyrir þær nema bændurnir sjálfir.“

Ég hef lýst þeim fyrirvara sem ég hef á bæði þessum flokki, sögu hans, Sósíalistaflokknum á stríðsárunum og árunum þar um kring, og yfir höfuð kommúnisma, sem ég hef skömm á, en ég viðurkenni bæði gáfur og skilning þessara manna. Og þetta er skynsamleg grein þar um þessi efni er rætt. Mér finnst skelfilegt hvernig það getur hent, á meðan það er virðingarvert, að það hendi einstaklinga að þeir hrörni, því það eru örlög sem við ráðum ekki við og ber að sýna mikla virðingu, þá er skelfilegt að horfa á stjórnmálaflokk hrörna, eins og hér er að eiga sér stað. Sú stefna, sem menn eru að reka í þessu fjárlagafrv. og hæstv. fjmrh. mælir fyrir, hún er skrípamynd af sjálfri sér og sögu sinni, sú landbúnaðarstefna sem þið hafið talað hér fyrir. Og með því að greiða atkvæði gegn till. okkar, sem þó eru hógværar og á fræðilegum grundvelli ganga allt of skammt, — með því að fella slíkar till. gerið þið sögu flokks ykkar skömm til, eins og ljóst má vera af þessum lestri hér.

Og þeir halda áfram í þessari grein. Þeir segja: „Framsóknarmenn verða að gera sér það ljóst“ — þetta ljósrit ætti hæstv. fjmrh. að fara með á ríkisstjórnarfund í fyrramálið. — , Framsóknarmenn verða að gera sér það ljóst, ef þeir ætla að koma fram sem fulltrúar einhvers hluta bændastéttarinnar í þessu máli, að hér er ekki um neitt augnabliksfyrirbæri að ræða, heldur upphafið að skipulegri starfsemi að því að tryggja bændastéttina gegn kreppum og verðfalli, og slíkt starf verður eðlilega að gera samtímis því sem reynt verður að tryggja verkamenn, fiskimenn og aðrar starfandi stéttir gegn atvinnuleysi og öðrum afleiðingum kreppna og skipulagsleysis á framleiðslunni.

Sá sem markar stefnu Tímans í þessu máli,“ — ég er enn að vitna í þessa grein, — „virðist hugsa sem stríðsgróðabraskari, er aðeins vill rífa til sín allt sem krumlur hans fá komist yfir, en hugsar ekkert um framtíðina né heldur þjóðarheildina.“ Þeir halda áfram og segja: „Þessi heimtufrekja og hákröfupólitík, þessi krafa um sérréttindi fyrir sig, þótt allir aðrir eigi atvinnuleysi yfir höfði sér, er merki um viðurstyggilega stjórnmálaspillingu“ — „er merki um viðurstyggilega stjórnmálaspillingu,“ segir hér. Þeir halda áfram og segja: „Og eigi þessi heimtufrekja að verða yfirskin fyrir Framsókn til að koma sér undan samstarfi um að skapa raunhæft öryggi um afkomu bænda og annarra starfsstétta, þá er hér á ferðinni svo mikill yfirdrepsskapur að engu tali tekur.“

Þetta er miklu lengri grein og væri áreiðanlega vel þess virði að lesa hana hér orði til orðs, og það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. En hitt þætti mér vera kjarni málsins, og af þeim sökum hef ég, herra forseti, látið ljósrita fjögur eintök af þessari grein: eitt fyrir hv. þm. Ólaf Ragnar Grímsson, annað fyrir hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson, þriðja fyrir hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur og fjórða fyrir hæstv. ráðh. Svavar Gestsson. Allt eru þetta þingsystkini mín héðan úr Reykjavík, stærsta þéttbýlisstað landsins. Og ef ég mætti biðja herra forseta að vera svo vinsamlegur að koma þessu áleiðis til þessara hv. þm. (ÓRG: Er ekki hægt að fá aukaeintak fyrir starfsmann þingflokksins?) Starfsmaður þingflokksins hefur efalítið lesið þetta á sinni tíð, og vegna þess að hann er þekktur að því að vera maður vel læs og óvitlaus með öllu, þá er óskiljanlegt hvernig þessi sami maður hefur orðið raunar höfundur að þeim furðulega sögulega umsnúningi sem átt hefur sér stað í þessum flokki. (SighB: Hann kemur nú til með að hafa sitthvað annað að gera þegar hann kemur heim núna.) Mér er sagt svo, hv. þm.

Þeir segja hér, þeir félagar, eða sá sem þessa grein hefur ritað: „Hitt má mönnum ekki gleymast“ — má ég biðja höfunda fjárlagafrv. og hæstv. fjmrh. að hlusta vel eftir þessu. — „Hitt má mönnum ekki gleymast, að samtímis því sem gerðar væru ráðstafanir út frá sjónarmiði þjóðfélagsréttlætis gagnvart sveitaalþýðu, þá þarf einnig að byrja á þeim ráðstöfunum gagnvart landbúnaðarframleiðslunni, sem nauðsynlegar eru fyrir þjóðarbúskapinn út frá sjónarmiði hagsýninnar. Og þær ráðstafanir eru í þessu þjóðfélagi óskyldar þeim sem fyrr er um getið.“ Þessi grein var skrifuð seint í ágúst 1943, og þeir kalla þetta slíkar firrur heimtufrekjunnar, sem nýlega birtust í Tímanum.

Ég hygg að hv. Sþ. hafi nú fengið nokkuð glögga mynd af því, hvernig skrifað var í Þjóðviljann, málgagn Sósíalistaflokksins, um landbúnaðarmál síðustu daga ágústmánaðar 1943. Ég hygg að þessi skrif, sagan á bak við þau segi okkur mikla sögu. Og fyrst og síðast hygg ég að þetta segi okkur þá sögu, þegar við skoðum þetta plagg andspænis því fjárlagafrv. sem mér skilst að meiri hl. þessarar virðulegu stofnunar ætli sér að afgreiða innan skamms, því fjárlagafrv. sem hér er til umræðu, að það sé alveg ljóst, að orðið hafi mikil umskipti í íslenskri pólitík — og þau umskipti helst, að helstu málsvarar verkamanna, launafólks, neytenda, skattgreiðenda við sjávarsíðu og í sveitum þessa lands, hafi þeir verið í Sósíalistaflokki árið 1943, — sem út af fyrir sig þyrfti að hafa um miklu lengra mál, sem við skulum láta liggja milli hluta í bili, — hafi þeir verið sérstakir talsmenn þessa fólks á þeim tíma, þá eru þeir það ekki lengur, enda eru þeir orðnir skrípamynd af sjálfum sér. Ég segi það, hv. þm. Halldór Blöndal, sem bendir mér á það að hæstv. fjmrh. er farinn úr salnum; ef ég væri fjmrh. og fengi þessa gusu, þá hefði ég líka stungið af!

Þetta er kjarni málsins, sem hér hefur verið rakinn. Það má endurtaka, að í Sósíalistaflokknum gamla var nokkur fræðileg alvara. Og þó að ég fyrirlíti margar og flestar ályktanirnar, hinar stjórnmálalegu ályktanir, sem höfundar að þessu plaggi, hverjir sem þeir ern, drógu á sínum tíma og hafa dregið til þessa dags, vegna þess að ég fyrirlít kommúnisma í þeim myndum sem hann birtist, þá dreg ég ekki vísdóm þessara manna í efa og ekki heldur kunnáttu þeirra. Að svo miklu leyti sem þessi grein fjallar um hagfræði, að svo miklu leyti sem hagfræði er vísindaleg grein þar sem við getum komist að vísindalegri niðurstöðu, — og við vitum að fljótlega komum við að endimörkum hins vísindalega og að því að taka stjórnmálalegar ákvarðanir, — en að svo miklu leyti sem þetta fjallar um fræði og að svo miklu leyti sem við getum leitað að því sem næst nákvæmum sannleika, þá höfðu þessir menn rétt fyrir sér á þessum tíma. Og það sem meira er, þeir eru raunverulega talsmenn verkamanna, launafólks, neytenda, skattgreiðenda í þessu landi. Hvenær nákvæmlega Alþb. varð að umskiptingi er mér ekki ljóst, hvernig það gerist og hvers vegna. Hvort það er eingöngu sálarkreppan, sem fyrrv. hv. þm. Lúðvík Jósepsson gekk í gegnum þegar hann fór að keppa fyrst og fremst við Framsókn, hvort það er það, sem gerir þennan fyrrv. Sósíalistaflokk — því það var hann þó á sínum tíma — að því ístöðulausa rekaldi sem hann nú er orðinn, t. d. í þessum efnum, hvort það er eingöngu sálarkreppa þessa einstaka manns sem hefur leitt svo alla hersinguna, alla „talsmenn fólksins,“ inn á þessar vitlausu brautir, sem þessi bók er auðvitað gleggst dæmi um, — hvort það er eingöngu sálarkreppa þessa einstaka manns, það viðurkenni ég að mér er ekki ljóst.

Eigum við að taka dæmi? Ég viðurkenni að það er ekki alls kostar réttmætt að vera sífellt að taka dæmi af hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni — hann liggur bara svo dæmalaust vel við höggi — en það er ekki réttmætt að taka alltaf dæmi af sama manninum. (MB: Það er svo gott að hitta hann.) Það er rétt, hann er vörpulegur maður, hv. þm., vörpulegur maður. En þá er það svo, að maður undrast að menn, sem kjörnir hafa verið ekki bara á Alþ., heldur í forustu fyrir samtökum fólks, kannske láglaunafólks eða neytendasamtaka, geti staðið að svona plaggi.

Nú getur auðvitað farið svo að menn séu illa menntir, illa upplýstir, þeir hafi ekki haft aðstöðu til að vita, og slíku ber að sýna skilning. Það má ekki sýna vonsku mönnum sem í því hafa lent að vera kannske í pólitísku umhverfi þar sem menn fá ekki upplýsingar. Það er ekki hægt annað en sýna tilhlýðilega virðingu þegar svo stendur á að vanþekking er ástæðan. Hún getur átt sér margar orsakir. Séu þetta einvörðungu ytri orsakir, óviðráðanlegar, þá er ekki annað hægt en að sýna hina tilhlýðilegu virðingu. En það er sýnt og sannað, m. a. af ívitnun í þessa grein — og þær voru fleiri greinarnar af þessu tagi og það var ekki aðeins 1943, þetta spannar yfir mörg ár — að þeir eiga að vita betur, því að forverar þeirra í flokknum kenndu þeim, og þessir menn hafa gengið í gegnum pólitískan skóla. Auðvitað er t. d. hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni vorkunn. Hann er alinn upp annars staðar, eins og við vitum. En aðrir, sem í gegnum alla söguna hafa verið trúir og dyggir í sínum flokki, þeir eiga að vita betur. Forustumenn í verkalýðshreyfingunni, sem enn eru í Alþb., þeir eru ekki fyrrv. framsóknarmenn, það eru allt aðrar manntegundir, sem eru fyrrv. framsóknarmenn og núv. Alþb.-menn. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur þær skoðanir sem hann hefur fengið uppeldi til, og árum saman var hann í Framsókn. Það gildir hins vegar ekki um þá menn t. d., sem komnir eru til vits og ára, forustumenn í fjöldasamtökum. Þeir eiga að vita betur. Og segjum svo að þeir hafi gengið í gegnum það að hætta að vera kommúnistar, farið að virða lýðræði og þingræði og mannréttindi og hafa skömm á hinum blóðugu athöfnum úti í heimi. Þá er það gott og þróun af hinu góða. En þá eiga þeir líka að vita betur í hagfræðilegum efnum. Þeir eiga að vita að þeir ganga ekki erinda umbjóðenda sinna með svona plaggi. Ég endurtek hverjir eru umbjóðendurnir: Fólkið með lægstu launin, verkamennirnir, launafólkið, neytendurnir, skattgreiðendurnir. Þetta plagg er gegn öllu þessu fólki og fyrir allt aðra. Ég er ekki að segja neinar nýjar fréttir, en það var mjög skynsamlega gerð grein fyrir nákvæmlega þessu sjónarmiði í Þjóðviljanum föstudaginn 27. ágúst 1943. Þetta eigið þið að vita.

Ég segi það enn og aftur: Fyrir því kynnu að vera ástæður að menn vissu ekki, hefðu ekki haft aðstöðu til að vita og gætu ekki vitað. Þessir menn hafa enga slíka afsökun fyrir málstað sínum. Hver er hann? Hann er þessi bók. Ykkur var ráðlagt, herrar mínir, í ykkar eigin blaði fyrir nærfellt 40 árum, fyrir 37 árum nánar tiltekið, að hegða ykkur ekki svona. (Gripið fram í: Áður en ræðumaður fæddist?) Fimm árum áður en ræðumaður fæddist. En ræðumaður virðist hafa það fram yfir ýmsa aðra, t. d. í þeim tiltekna flokki sem hér hefur verið gerður að umræðuefni, að hann er læs. Og ég get meira að segja lesið blöð sem prentuð voru áður en ég fæddist. Ég vildi óska þess, að það gætu fleiri en ég. (Gripið fram í.) Nú játa ég að mig brestur skilning, og mig hefur brostið skilning þegar aðrir ræðumenn hafa verið að tala hér. En ég vil helst ekki þurfa að flokka hv. þm. Stefán Jónsson með ótilgreindum þm., hvorki nafna hans né öðrum.

Hér hefur verið gerð grein fyrir málstað sem ég tel að skipti miklu í sambandi við þetta mál. Við erum auðvitað að ræða hér alvarlegasta frv. þessa þings og raunar sérhvers þings í efnalegu tilliti. Með þessari bók, hvernig sem hún kemur til með að líta út í endanlegri mynd, erum við að taka stærstu efnahagslegar ákvarðanir, ekki aðeins fyrir framkvæmdastigið í landinu, heldur einnig fyrir launastigið og skattastigið. Þetta skiptir auðvitað miklu máli. Það hefur verið sýnt fram á það af fyrri ræðumönnum Alþfl. við þessa umr., að stefnan er í grundvallaratriðum röng. Og það er aðalatriðið. Nú er það út af fyrir sig staðhæfing sem eflaust þarfnast skýringa. Við spyrjum: Af hverju er hún röng? Og við svörum: Hún er röng vegna þess að þeir sem miða við fólkið í þessu landi, þeir sem hafa þær viðmiðanir að fólkið, sem lægst hefur launin, eigi engan skatt að borga og fólk yfir höfuð eigi að borga litla skatta, þeir sem hafa þá viðmiðun að lífskjörin hér eigi að vera góð og helst betri en gerist í löndunum í kringum okkur og alls ekki verri, vegna þess að það þarf ekki að vera svo, þeir sem hafa þá viðmiðun að hagur neytenda eigi að vera tryggður, hagur sparifjáreigenda eigi að vera tryggður, hagur fólksins yfir höfuð að tala eigi að vera tryggður, — frá bæjardyrum slíkra manna er það yfirmáta vont plagg sem hér er um að ræða.

Ég hef eytt hér nokkru máli í að sýna fram á það í fyrsta lagi, að þetta þyrfti ekki að vera vont plagg ef öðruvísi væri stjórnað. Ég hef eytt nokkru máli í að sýna fram á það, einnig með sögulegum rökum, að fyrir nærfellt 40 árum sáu forustumenn í Sósíalistaflokknum, sameiningarflokki alþýðu, eins og hann þá var kallaður, að þetta þyrfti ekki að vera svona. (Gripið fram í.) Er hæstv. fjmrh. með derring þá sjaldan hann kemur í salinn? — Og í þriðja lagi hefur verið sýnt fram á það, að að því hníga rök að nýir menn og nýr flokkur hafi tekið við því hlutverki að halda á lofti málstað þessa fólks, láglaunafólks, skattgreiðenda, neytenda, sparifjáreigenda, þessa venjulega manns, sem þrátt fyrir allt er burðarásinn í þessu þjóðfélagi og þessu þjóðlífi. (Gripið fram í: Hvaða hluti hans?) Má spyrja í fyrsta lagi: Hvaða hluta hans er hv. þm. að tala um?

Herra forseti. Ég sagði upphaflega að ég mundi ekki hafa þessa ræðu lengri en efni standa til og ég hef staðið við það. En að lokum aðeins þetta: Ég veit að þm. þykir þetta vera alvarlegt mál, einnig þeim sem munu setja höfuðið niður í bringu og hendurnar upp í loft á morgun til að samþykkja þessa bók. Og okkur er það ljóst, að með þessari bók erum við að gera lífskjörin verri en þau þyrftu að vera. Við ræddum það hér í gærkvöld að ein hætta er öðrum verri að því er þetta varðar. Þetta kerfi er orðið svo yfirgengilegt, það kerfi sem vakti þessa spurningar Þjóðviljans fyrir 37 árum: „Eru framsóknarmenn að verða vitlausir? Tíminn heimtar þjóðnýtingu landbúnaðarins. Ætlar Tíminn með slíkri vitskertri heimtufrekju að reyna að hindra það að bændastéttin hafi samstarf við verkalýð og aðrar vinnandi stéttir með því að tryggja á eðlilegan hátt afkomu þeirra aðila.“ Þetta dýra kerfi, sem við rekum og hér hefur verið lýst bæði af mér og ívitnuðum höfundum, er kerfi þar sem lífskjörin eru að dragast aftur úr því, sem í fyrsta lagi við gætum haft þau, og í annan stað því, sem gerist með nágrannaþjóðum okkar. Við vitum að við lifum tíma þegar þekking okkar á útlöndum eykst, íslensku námsfólki erlendis fjölgar — sem er af því góða — og þegar öll samskipti við hinar virðulegu þjóðir allt í kringum okkur eru að aukast.

Ég bið hv. þm. að velta því fyrir sér, að við erum á fullri ferð niður í djúpið, líka með þessari bók. En erum við að sökkva svo djúpt að við getum ekki boðið bærileg lífskjör vegna þess dýra bákns sem þessi bók er ávísun á? Ef svo er kann svo að fara að sífellt betur menntað fólk vilji ekki búa í þessu landi, fari að setjast að annars staðar. Það, sem okkur ber að gera, er að byggja sjálfum okkur og börnum þessa lands betri framtíð og efnalegt öryggi. Þetta er ekki leiðin til þess. Það hefur verið sýnt fram á það hér í kvöld, að fyrir nærfellt 40 árum sáu menn glögglega hvert stefndi, þeir lýstu leiðum til úrbóta og spáðu því hvernig fara mundi, ef ekki yrði farið að ráðum þeirra og það sem þeir kölluðu „vitskerta heimtufrekju“ yrði ofan á. „Vitskerta heimtufrekjan“ — ég er að vísa í Þjóðviljann — varð ofan á, því miður. Spádómar hans hafa ræst. Og þeir sem setja höfuðið niður í bringu og hendurnar upp nú innan skamms til að samþykkja þessa bók, þeir eru enn að láta þennan spádóm úr Þjóðviljanum frá 1943 rætast. Það hljóta að vera þung spor.