01.04.1980
Sameinað þing: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (1552)
116. mál, fjárlög 1980
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Þetta er fyrsta fjárlagafrv. sem núv. hæstv. ríkisstj. leggur fyrir Alþ. og knýr mjög á um að sé afgreitt. Maður skyldi ætla að ríkisstj., sem er nýtekin við völdum, fylgi vel eftir þessu fjárlagafrv. sínu, vegna þess að fjárlög eru mikilvægustu lög, sem að jafnaði eru samþ. á hverju ári á Alþ., og varða hag þjóðarinnar mjög miklu. En vinnubrögðin eru með endemum, eins og fram hefur komið hér áður. Þessi umr. átti að byrja kl. 2 í dag, en tækniannmarkar, eins og kallað er, leyfðu ekki að umræður hæfust, því að það var byrjað með klukkutíma frestun og síðan öðrum og þriðja og þá loks hófst athöfnin með ræðum við þessa 3. umr., svo að segja má að þegar kom að kvöldmat hafi hin venjulega umr. verið rétt að byrja. Nú er kl. senn að verða 2 að nóttu, og þegar við lítum yfir þennan kvöldfund, þá hafa ekki sést hér eftirtaldir hæstv. ráðh.: Hæstv. forsrh. Gunnar Thoroddsen, hæstv. landbrh. Pálmi Jónsson, hæstv. dóms- og kirkjumrh. Friðjón Þórðarson, hæstv. sjútv.- og samgrh. Steingrímur Hermannsson, hæstv. menntmrh. Ingvar Gíslason og hæstv. utanrrh. Ólafur Jóhannesson. Þar með eru taldir sjö af tíu. Hæstv. fjmrh. hefur verið hér lengst af, en auðvitað með nokkrum hvíldum, og vitaskuld þurfa menn eitthvað að bregða sér frá á löngum fundi. Ég er ekkert að álasa honum fyrir það, þó hann þurfi að bregða sér frá. Hæstv. iðnrh. sat hér nokkuð lengi í kvöld, en er nú horfinn úr húsinu. Hæstv. félmrh. hefur lítið verið hér inni og er löngu horfinn úr húsinu. M. ö. o.: það er slökkt á níu ráðh. hér frammi, en það týrir enn þá á hæstv. fjmrh.
Þetta er nú áhugi hæstv. ríkisstj. fyrir mikilvægasta máli sem liggur fyrir Alþ., afgreiðslu fjárlaga. Á svo þjóðin að bukka sig og beygja fyrir athafnasamri ríkisstj.? Við skyldum nú láta þetta vera og fella ekki svona harðan dóm, ef þessir merin væru búnir að sitja mjög lengi og væru orðnir alveg sárþreyttir af setu í ráðherrastólum og við að stjórna landinu. En þegar menn eru nýbyrjaðir og ríkisstj., sem er nýsest að völdum, sýnir Alþ. jafngrófa lítilsvirðingu og þessi hæstv. ríkisstj. gerir hér undir umr. um fjárlög ríkisins, þá verður það varla afsakað.
Hæstv. forsrh. sagði, þegar hann rak þingið heim til þess að ríkisstj. gæti hugsað og undirbúið þingmál, að það væri nauðsyn að gefa Alþ. slíkt frí til þess að ríkisstj. gæti einbeitt sér að samningu mála og lagt þau fyrir Alþ., því það væri þingskylda ráðh. að sitja þingfundi. Vegna þess hvað miklar annir voru fram undan við undirbúning mála, og þeir væru — og þá sérstaklega hæstv. forsrh. svo sómakær maður að hann vildi gegna þingskyldum sínum, þá valdi hann þann kostinn að senda Alþ. heim. Og það lá svo mikið á að senda Alþ. heim, að ríkisstj. féll frá að afgreiða frv. um breyt. á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins þó að stjórnarandstaðan — Sjálfstfl., sem búinn var að lýsa yfir stuðningi við frv., og Alþfl., sem studdi það ekki — byðist til að afgreiða frv. þetta kvöld. Það var ekki þegið. Það var mikið fjaðrafok um vorið þegar þetta frv. náði ekki fram að ganga og þá notuðu framsóknarmenn sér það, sérstaklega þáv. hæstv. forsrh., að slíta þingi því hann vildi ekki fá frv. fram. En nú við myndun þessarar stjórnar lá ekki meira á að lögfesta þetta frv. en svo, að það sat fyrir hjá ríkisstj. að sitja veislu hjá forsrh. Þess vegna var ekki þegið að þingið sæti áfram þetta eina kvöld til þess að afgreiða þetta mál. Súpan var að verða köld, ráðherrarnir þurftu að fara í betri buxurnar, og þá var þingið sent heim. Þetta var ástæðan fyrir afgreiðslu þessa máls. (StJ: Veislan var hjá varaformanni Sjálfstfl.) Hún var hjá forsrh. Alþb. og Framsfl., hjá forsrh. sem Alþb. og Framsfl. teyma á milli sín, forsrh. sem lætur sig litlu skipta umræður um fjárlög ríkisins og sést ekki, ásamt fleiri ráðh.
Ég flutti ásamt þm. úr mínu kjördæmi, Vestfjarðakjördæmi, öllum öðrum en þm. Framsfl., nokkrar brtt. vegna ósanngjarnra skipta á framlögum til heilbrigðismála. Þessar brtt. voru felldar af stjórnarliðinu við 2. umr. fjárlaga, og það sáust ekki nein iðrunarmerki á sumum þeirra, sem varla mega vatni halda fyrir kosningar af umhyggju fyrir strjálbýlinu, meira að segja ekki þessum tveimur þm. Framsfl. úr þessu kjördæmi. Það kom mér mjög á óvart miðað við ræðurnar sem þeir fluttu á framboðsfundunum fyrir kosningar. Og ekki gerðu þeir minnstu tilraun til þess að fá leiðréttingu sinna mála innan stjórnarliðsins.
Ég fékk vinsamleg boð undir 2. umr. fjárlaga frá hæstv. félmrh., hvort ég vildi ekki draga eina till. til baka til 3. umr. Ég varð auðvitað fúslega við því og taldi að nú ætti að líta með sanngirni á þessa litlu till. Hún var svo tekin til meðferðar í fjvn., sem hefur fjallað um smáupphæðir síðustu dagana, en hún hafði tekið inn 10 millj. til heilsugæslustöðvar á Hólmavík eftir að ég var búinn að rífast í nm. áður en gengið var endanlega frá þessari skiptingu fyrir 2. umr. En þeir bættu við: „til undirbúnings“, sem þýddi að 10 milljónirnar voru framlag sem átti ekki að koma neinum manni að gagni á árinu 1980. Árið á undan fékkst fjárveiting til endurbyggingar læknisbústaðar, en á árinu 1978 til undirbúnings heilsugæslustöðvar, svo að ég bjóst við að nú yrði farið af stað með byggingu þessarar heilsugæslustöðvar, þó ekki væri nema að grafa grunn og steypa sökkla á þessu ári. En meiri hl. fjvn. hefur flutt hér brtt. núna við 3. umr. fjárlaga sem er stórkostleg. Maður stendur eiginlega alveg barmafullur af þakklæti og lotningu fyrir stórhug og velvilja meiri hl. fjvn., en brtt. er þess efnis, að sama tala verði áfram, en niður falli orðið „undirbúningur“. Þetta er einstök rausn sem meiri hl. fjvn. hefur sýnt, og ég sé að þetta mál hefur notið mikils velvilja hæstv. heilbr.- og trmrh., en hann virðist ekki hafa komið ár sinni betur fyrir borð en þetta. En ég vil minna hann — þó hann sé sennilega sofnaður núna — og þá flokksbræður hans, sem halda vöku sinni og skyldu að sitja hér þingfundi, á stefnu Alþb., sem lögð var fram fyrir kosningarnar 1978, en þar segir m. a. í kaflanum um félagslegar aðgerðir og samneyslu: „Spyrna verður hart gegn viðleitni íhaldsafla til að skera niður framkvæmdir í mennta- og heilbrigðismálum.“ Þetta er mjög myndarleg stefna í þessum efnum.
En reyndin er sú, að í einu afskekktasta kjördæmi landsins hafa framlög til heilbrigðismála verið skorin niður frá s. l. ári úr 340 millj. í 260 millj. Þegar þessi liður í heild hefur hækkað — sem er ekki í hlutfalli við byggingarvísitölu, og ég er ekkert að tala um eða gagnrýna þó hann hækki ekki meira — um liðlega 1200 millj., þá er skorið niður um 80 millj. á þessum lið í umræddu kjördæmi. Þetta er sennilega í anda stefnu Alþb., sem segir að spyrna verði hart gegn viðleitni íhaldsafla til að skera niður framkvæmdir í mennta- og heilbrigðismálum. Þetta er vel af sér vikið hjá Alþb. Eða ætlar kannske Alþb. að halda því fram, að Framsókn hafi staðið þarna í veginum? Eða ætlar kannske Alþb. eða Framsfl. að halda því fram, að þeir félagar Gunnar, Friðjón og Pálmi hafi ráðið einhverju þarna? Þeir eigruðu hér í dag eins og hálfmeðvitundarlausir þegar Alþb. og Framsfl. voru að rífast um hinn nýja söluskatt, svo að ég efast um að þeir hafi nokkuð vitað um það fyrr en þeir heyrðu það í kvöldfréttum, hinir voru búnir að ráðsmennskast með það.
Við afgreiðslu fjárlaga á s. l. ári gerði ég nokkuð að umræðuefni framkvæmdaáætlun Pósts og síma, hvernig sniðgengið væri það kjördæmi sem ég er hér fulltrúi fyrir. Ég gerði þar að umræðuefni framkvæmd til þess að fjölga talrásum á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Talið var, gróft reiknað, að þessi framkvæmd mundi kosta um 100 millj. á verðlagi þess árs. Sömuleiðis gerði ég þá mjög að umræðuefni kostnaðaráætlun við að gera notendur á Drangsnesi að notendum stöðvarinnar á Hólmavík með fjölsímasambandi við Hólmavík. Áætlunin nam 46.5 millj. kr. Ég átaldi mjög harðlega framkvæmdaáætlun Pósts og síma, sem þá lá fyrir, og ég átel það enn að þegar jafnmikilvægar fjárveitingar eins og þessar eru afgreiddar, þá fáum við þm. fyrst að sjá þær þegar seint er liðið á dag og 3. umr. fjárlaga er að byrja. Þó sýnist mér að nú sé mjög tekið tillit til þeirra óska og krafna sem ég þá bar fram í sambandi við bæði þessi verkefni, þó að ég efist um að þetta dugi. En ég hef ekki nægilegar upplýsingar í þessu efni. Ég vil því, þegar ég gagnrýni annað, líka láta í ljós ánægju með það sem tekið er tillit til, þó það séu sjálfsagðar óskir eins og í þessu efni. Eins og gagnrýni mín í þessum efnum kemur fram í þingræðu fyrir afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1979 vil ég líka láta það koma í ljós, að ég kann einnig að meta þegar sýnd er sanngirni og viðleitni til þess að bæta úr því sem fer mjög aflaga.
Þeir tveir flokkar, sem standa að núv. ríkisstj., ásamt þeim kumpánum sem þar bætast við og eiga að teljast til Sjálfstfl., hafa komið sér saman um málefnasamning. Þeir hafa lagt á það áherslu í þessum málefnasamningi að benda fyrst og fremst á það sem er óskalisti, en alls ekki hvernig eigi að afla fjár til þess að uppfylla þennan óskalista.
Það er sagt í stefnuskrá Alþb., að athuganir og endurskipulagning á rekstri ýmissa ríkisfyrirtækja, sem hafnar voru í tíð vinstri stjórnarinnar, verði teknar upp á ný. Markmið slíkra aðgerða verði aukinn sparnaður og aðhald í rekstrinum án þess þó að dregið verði úr gæðum þjónustunnar við almenning. Í fyrstu verði athugunum beint í fyrsta lagi að stjórnsýslukerfi ríkisins, í öðru lagi rekstri ríkisspítalanna og annarra fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, í þriðja lagi Pósti og síma og í fjórða lagi Rafmagnsveitum ríkisins og öðrum stofnunum á sviði orkumála.
Hæstv. fyrrv. samgrh. í vinstri stjórninni, sem nú er fjmrh., sagði hér snemma á valdatíma þeirrar stjórnar að markvisst mundi verða unnið að því að draga úr útgjöldum stofnunar eins og Pósts og síma til þess að komast hjá því að hækka sífellt gjöld á almenningi. Nú hefur hann verið í ríkisstj. síðan haustið 1978, að undanskildum þeim tíma sem starfsstjórn Alþfl. var við völd, og fór fyrst með samgöngumál og nú með fjármál. Ég ætla að þessi hæstv. ráðh., og þá ekki síður sá sem við hefur tekið af honum, hafi komið fram öllu því sem hann ætlaði sér í sparnaði og hagsýni við þennan rekstur. En nú er mér sagt að ætlunin sé hjá þessari hæstv. ríkisstj. að hækka símagjöldin um 15% 1. maí, um 7% 1. ágúst og 5% 1. nóvember, svo að mér finnst að vel eigi að fylgja eftir hækkunum á öllum sviðum eins og fyrri daginn.
Það er ekki að ófyrirsynju að launþegasamtökin í landinu sendi ríkisstj. kveðju sína, eins og viðræðunefndarfundur Alþýðusambands Íslands gerði í dag, þar sem fjallað var um þær auknu álögur sem boðaðar eru í formi útsvarshækkunar, hækkunar tekjuskatts, söluskatts og ýmissa annarra skatta, sem ríkisstj. leggur nú til að séu hækkaðir. Alþýðusambandið minnir á að þetta gerist á sama tíma og kaupmáttur launa minnkar stöðugt. Aðgerðir stjórnvalda hljóti að auka dýrtíðina og rýra almenna kaupgetu, segja forsvarsmenn Alþýðusambandsins. Og þeir bæta því við, að aðgerðirnar séu þannig síst til þess fallnar að greiða fyrir kjarasamningum. Viðræðunefndin mótmælir þessum aðgerðum harðlega. Undir þetta tekur stjórn BSRB. Þeir segja að þær nýju stórfelldu álögur á almenning, sem þegar hafi verið samþykktar af Alþ. eða fyrirhugaðar eru samkv. stjórnarfrv., þ. á m. frv. um orkujöfnunargjald, séu olía á verðbólgueldinn sem enn hljóti að magnast við gengislækkanir sem sífellt eru framkvæmdar. Og stjórn BSRB mótmælir eindregið þessum nýju álögum.
Það er eftirtektarvert, að tveir þeirra flokka, sem standa að núv. ríkisstj., stóðu ásamt Alþfl. að setningu laga um stjórn efnahagsmála o. fl., þar sem segir að efla skuli reglubundið samráð og samstarf stjórnvalda og launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda í efnahags- og kjaramálum. Þátttakendur í samráði samkv. þessari grein þessara laga skulu vera fulltrúar launafólks, sjómanna, bænda, atvinnurekenda og opinberra aðila, og samráðsfundi má halda bæði með fulltrúum einstakra samtaka og fulltrúum ríkisstj. og öllum samráðsaðilum í senn. M. o. ö.: samkv. lögunum ber að hafa samráð við alla þessa aðila. Þessi lög eru þverbrotin. Tveir fyrrv. lagaprófessorar sitja í núv. ríkisstj. og þeir standa að lagabrotum. Þetta eru menn sem hafa verið kennarar lögfræðingaefna um langt árabil. Þeir eru nú farnir að kenna Alþ. að brjóta lög og standa fyrir lagabrotum. Þetta boðar ekki góða og rólega elli hjá þessum mönnum.
Ég kem aftur inn á stefnu Alþb. Í stefnuskrá Alþb. segir: „Ríkisvaldinu ber að hafa náið samráð við samtök launamanna, sjómanna og bænda um allar aðgerðir, sem snerta hagsmuni þeirra, og styðja þessi samtök í sókn til betri lífskjara og réttlátara þjóðféflags.“ Hver er það sem neitar að hafa samráð við þessa aðila? Ekki getur það verið Alþb. Getur það verið Framsfl., sem barðist fyrir setningu þessara laga? Og ekki geta það verið þessir þrír grútmáttlausu ráðherrar sem eru í ríkisstj. Hvernig stendur þá á þessu? Hvernig stendur á því, að ráðh. í ríkisstj., sem í eru menn sem tilheyra þremur stjórnmálaflokkum, segja ekki nokkurn skapaðan hlut hér við afgreiðslu fjárlaga, menn úr tveimur þessum fylkingum.
Þeir þegja þunnu hljóði. Það er fjmrh. einn sem talar og fulltrúi Alþb. í fjvn. lítillega í dag.
Í stefnuskrá Alþb. segir að stéttasamtökin skuli hafa fullt frelsi til samninga um kjör félaga sinna. Gerða samninga ber skilyrðislaust að virða. Launamenn eiga réttláta kröfu til þess, að laun séu verðtryggð samkv. samningum hverju sinni. Allir vita um það sem gerst hefur á liðnum tíma í þessum efnum. Hvað er verið að gera nú í sambandi við samninga sjómanna, sem lagðir voru hér fram í gær? Hvað er stjórnarliðið að afgreiða í þeim efnum og vill knýja fram, þó að tími sé enginn til stefnu? Það ætlar að boða til fundar kl. tíu í fyrramálið í deildum, eftir því sem ég best veit, til þess að reyna að halda áfram sífelldu puði sínu við að koma þessum málum áfram, þó allt sé komið í óefni hvað tíma snertir.
Alþb. segir áfram í stefnuskrá sinni: „Lífskjör ber ekki aðeins að bæta með auknum ráðstöfunartekjum almennings, heldur einnig og ekki síður með vaxandi samneyslu fyrir milligöngu ríkis og sveitarfélaga. Þar sem till. þessar fjalla nær eingöngu um efnahags- og atvinnumál verður hér aðeins minnt á nokkur mikilvæg atriði.“ Og eitt af þessum mikilvægu atriðum er, segir þar, „að í húsnæðismálum verði stóraukin áhersla lögð á félagslegar framkvæmdir. Stefnt verði að því, að a. m. k. þriðjungur nýbygginga á hverjum tíma verði í félagslegri eign, m. a. á vegum lífeyrissjóða.“ Er ekki nú verið að draga verulega úr framkvæmdum í sambandi við byggingar í félagslegri eign? Og síðar í stefnuskrá sama flokks segir: „Árlegar afborganir, vextir og vísitöluálag af lánum Byggingarsjóðs til hverrar íbúðar fari aldrei yfir 20% af daglaunum verkamanns.“ Það væri fróðlegt að heyra nú frá hæstv. fjmrh., hvað eru 20% af daglaunum verkamanns og hvert er meðaltal afborgana af meðalíbúð, - afborgana, vaxta og vísitöluálags af íbúð? Ætli það sé ekki komið allverulega fram yfir 20% af daglaunum verkamanns? (GJG: Ætli það sé ekki um 80%.) Já, ég hugsa að það sé nærri sanni, þó að ég hafi það ekki nákvæmlega. Það mun ekki muna miklu.
Ég held að Alþb. sé komið ansi langt frá stefnu sinni. Og nú hefur það ekki verið svo, að aðrir flokkar hafi verið algjörlega á móti því að gera úrbætur í þessum efnum.
Í sambandi við atvinnustefnu Alþb. segir hér m. a.: „Efla ber markaðsleit og sölustarfsemi á framleiðslu lagmetisiðnaðarins, og stuðla að því, að verðmætustu hráefni sjávarafurða, svo sem grásleppuhrogn og síld, verði í vaxandi mæli seld sem fullunnin vara úr landi.“ Það væri fróðlegt að fá að heyra árangurinn sem náðst hefur, hvað hlutfallið hefur hækkað frá því að áhrifa Alþb. fór að gæta svo mjög á íslenska atvinnustefnu. Og Alþb. segir um veiðar og verkun aflans, að auka þurfi loðnuveiðarnar sem allra fyrst úr 700 þús. tonnum í 1 millj. tonna á ári. Þetta segja þeir á árinu 1978. Ekki boða till. fiskifræðinga og ráðstafanir ríkisvaldsins að hér geti orðið um framleiðniaukningu að ræða. Og þeir vilja stefna að því að auka kolmunnaveiðar sem allra fyrst úr 20 þús. tonnum, sem þá var — þá var verið að byrja þessar tilraunir — í allt að 1 millj. tonna á ári. Hver er nú árangurinn af þessu stefnuskráratriði? Hverjir hafa staðið í veginum? Þeir vilja líka, jafnhliða þessu og eftir því sem vöxtur fiskstofna á næstu árum leyfir, tvöfalda botnfisksaflann úr rúmum 400 þús. tonnum í 850 þús. tonn. En svo ættuðu allir að rifna þegar ekki var farið eftir till. fiskifræðinga með að fiska 230 þús. tonn. Fyrrv. sjútvrh. boðaði það í byrjun árs 1979, að hann teldi að veiða mætti 280–290 þús. lestir, en það var farið í 350 þús. lestir. Og enn er haldið áfram, enn heldur söfnuðurinn áfram sem segir að enginn fiskur sé lengur í sjónum. Það er svo mikið mok af fiski í sjónum að sjómenn hafa aldrei séð annað eins. En samt á að vera búið að drepa allan þorsk fyrir löngu. M. ö. o.: þetta hljóta að vera afturgöngur sem verið er að veiða.
Ég held að það sé alveg óhætt fyrir Alþb. og þá, sem eru í ríkisstj., að endurskoða þessi mál og þá að minnast þeirrar stefnu sem þeir sjálfir hafa markað.
Þá segir líka í atvinnustefnuskrá Alþb.: „Ríkisvaldinu ber á hverjum tíma að tryggja að þau kjör og hlunnindi bjóðist sjómönnum sem ávallt gera starf þeirra verulega eftirsóknarvert.“ Það ætlar Alþb. með hjálp Framsóknar og félaganna þriggja að gera á þann hátt, að sjómenn eiga að fá 4% hækkun þegar aðrir launþegar í landinu fengu 6.67% hækkun frá 1. mars. s. l. Þetta er sennilega til þess að gera starf sjómanna verulega eftirsóknarvert. Þannig á að marka stefnu. Sennilega á að vinna að framkvæmd stefnunnar með þessum hætti.
Í einum kafla í þessari sömu stefnuskrá er talað um almennan iðnað. „Afköst innlends skipaiðnaðar ber að margfalda á næstu árum. Ríkisvaldinu ber að skipuleggja raðsmíði fiskiskipa til endurnýjunar flotans eftir áætlun til margra ára og tryggja viðunandi lánsfyrirgreiðslu sem geri innlendum skipasmíðastöðvum kleift að flytja viðgerðir á íslenskum skipum að mestu inn í landið. Þannig verði afköst skipaiðnaðar til nýsmíði og viðgerða margfölduð á næstu árum.“ Vitaskuld greinir menn ekki á um það, að flytja beri viðgerðir og endurbætur skipa inn í landið og skapa þessum stöðvum möguleika til þess að keppa við erlendar stöðvar. En hitt er fjarstæða, að tala um að margfalda skipabyggingar í landinu á sama tíma og talið er að flotinn sé of stór.
Ég tek ekki undir útreikninga drengja sem segjast vera mjög menntaðir og mata tölvuskepnurnar eftir þeim forsendum, sem þeir gefa sér, telja að fiskiskipaflotinn sé meira en helmingi of stór og vilja helst leggja eða rífa meginhluta flotans, en taka ekkert tillit til aðstæðna og hafa ekkert vit á því sem þeir eru að tala um, en eru afskaplega menntaðir og álita að þjóðin eigi að fara eftir þeim. En það má vera eitthvað á milli þessara spekinga og svona yfirborðsmennsku í till. Alþb. (GJG: Morgunblaðið gapir af hrifningu yfir frv.) Já, ég er enginn málsvari Morgunblaðsins þegar það fer villt vegar. Ég tek oft í það þá, bæði á þessum sviðum og ýmsum öðrum, og hef gert, sérstaklega í sambandi við sjávarútvegsmál og fiskveiðar og alla slíka útreikninga. Ég tel, eins og vafalaust hv. þm. sem greip hér fram í fyrir mér, að þetta þjóðfélag og stjórnmálamennirnir verði sannarlega að vara sig á þessum fræðingum öllum.
Það segir í sambandi við milliliðastarfsemi, að rekstur skipafélaga verði rannsakaður og flutningskostnaður lækkaður og þar með vöruverð með setningu sérstakra kostnaðarreglna. Ég tek alveg undir það, að vitaskuld verður í öllum þessum atriðum að fylgjast vel með frá hendi þjóðfélagsins. En hvað finnst mönnum um það, þegar ríkið sjálft rekur skipafélag, Skipaútgerð ríkisins, og ætlunin er að hækka farmgjöldin frá 1. maí um 25%, aftur 1. ágúst um 7% og enn 1. nóvember um 5%? Er ekki rétt að ríkið líti sér nær og sýni þá að rekstur þess sé til fyrirmyndar? Hér er ekki verið að leggja neinn smáskatt á strjálbýlið í þessu landi. Og samt er reiknað með að um 1 milljarðs halli verði á rekstri þessa fyrirtækis, þrátt fyrir þessa íþyngingu.
Í efnahagsstefnu Alþb. segir í sambandi við tolla- og gengismál: „Stuðlað sé að sem stöðugustu gengi íslensku krónunnar og horfið af braut gengissigsstefnu, sem ríkt hefur í gjaldeyrismálum Íslendinga að undanförnu.“ Er ekki hæstv. fjmrh. hrifinn af framkvæmd stefnu Alþb.? (Fjmrh.: Þetta er góð stefna.) Já, hún er mjög góð og farið eftir henni í hvívetna. Það er haldið áfram í verðbólgubraskinu og gengið lækkað daglega og hefur aldrei tekið fleiri og örari breytingum en eftir að Alþb.-ráðherrar komu í ríkisstj. Það eina hlé, sem varð, var þegar forsrh. talaði af sér, að fiskvinnslan þyrfti ekki nokkrar aðgerðir, þá var gert nokkurra daga hlé á gengissigi. Og hann talaði af sér vegna þess að hann þekkti ekkert inn á reksturinn og skilur hann ekki (Gripið fram í.) Já. Samt var Adenauer kanslari til, held ég, 86 ára aldurs, segir núv. forsrh. einhvers staðar.
Alþb. segir að gerðar verði þjóðhags- og framkvæmdaáætlanir til langs tíma, sem verði grundvöllur meginákvarðanatöku í efnahagsmálum, og taki þær mið af framleiðslugetu þjóðarbúsins, byggðastefnu, hóflegri nýtingu auðlinda og félagslegum markmiðum í umsköpun þjóðfélagsins í samræmi við hagsmuni launafólks. Það hefur gengið vel með þessa langtímaáætlun frá því að vinstri stjórnin var mynduð haustið 1978 og til dagsins í dag. Sex af núv. ráðh. sátu í vinstri stjórn, og þeir sögðu, þegar þing kom hér saman í haust, að lánsfjárætlunin væri næstum því búin. Það átti bara eftir að setja punkt aftan við. Eru það virkilega að þessir fjórir, sem komu inn í ríkisstj., séu svona tregir að skilja lánsfjáráætlunina, eða hefur hinum farið aftur, því að lánsfjáráætlunin sést ekki enn þá nema í köflum? Hún kom að hluta til fram í dag loksins, en lögum samkvæmt — samkvæmt þeirra eigin lögum átti að leggja hana fram með fjárlagafrv. Og enn eiga stofnlánasjóðir að búa við það að bíða eftir lánsfjáráætlun. Það er eftirtektarvert, að þegar vinstri stjórn er mynduð, sem vill byggja allar sínar gerðir á áætlunarbúskap, þá gengur verr en nokkru sinni að gera áætlanir, hvernig sem á því stendur, það veit ég ekki.
Alþb. segir í sambandi við gerbreytt skattakerfi að breytingar á skattkerfinu sé nauðsynlegt að gera til að auðvelda tafarlausa niðurfærslu verðlags. Það hefur lítið farið fyrir því. Og svo segja þeir hér að skattbyrði láglaunamanna léttist, en þyngist á háum tekjum og miklum eignum, m. a. með nýjum stighækkandi álagningarþrepum. Og svo segja þeir það sem skiptir mestu máli og þeir hafa staðið best við, eins og þeir sjálfir geta staðfest, því að þeir segja í sinni stefnu að óbeinir skattar verði lækkaðir, m. a. með verulegri lækkun söluskatts og afnámi sjúkratryggingagjaldsins. (Gripið fram í. ) Hvar er nú litli lávarðurinn? (Gripið fram í: Sofnaður.) Kominn til kojs. (Gripið fram í: Var nokkur að kalla á mig?) 9/10 hlutar ráðherranna — nei, þú ert bara óbreyttur.
Getur nokkur flokkur hafa svikið jafnhrapallega sína stefnu og Alþb. hefur gert? Jú, vitaskuld getur Framsfl. gert það, því hann hefur aldrei staðið við neina stefnu. Þegar Framsfl. setur sér eitthvert markmið, eins og lækka verðbólgu í áföngum, koma henni niður í 30%, eins og formaðurinn segir, eitthvað svoleiðis, svo tekst það ekki og hún fer í 60%, og þá segir hann bara eftir árið: Ja, nú setjum við okkur bara markmið að nýju, 30% næsta ár, þá fer hún niður. — Og verðbólgan heldur áfram upp á við, því að Framsfl. er auðvitað undarlegasta fyrirbrigði sem til er í íslenskri pólitík, því að þetta er ekki flokkur. Ég veit eiginlega ekki hvernig er hægt að skilgreina Framsfl., því að hann er ekki flokkur og hefur aldrei verið flokkur. En hann er afskaplega sterkur á því sviði að vera hagsmunaaðili og láta aldrei undan í þrengstu sjónarmiðum. Og á meðan hann ræður jafnmikið ferðinni í íslenskum stjórnmálum heldur verðbólgan áfram á fleygiferð, því að Framsókn vill halda verðbólgunni áfram. Og ef hér er einhver framsóknarmaður á þingi sem segist ekki vilja halda verðbólgunni áfram þá er hann hreinlega að ljúga því. Þeir vilja halda verðbólgunni áfram, og allar þeirra aðgerðir stefna að því að halda verðbólgunni áfram. Allt það sem þessi ríkisstj. hefur gert, þennan stutta tíma sem hún hefur verið við völd, hefur verið í þá átt að lofa Framsfl. að ráða og kynda undir verðbólgunni. Þetta fjárlagafrv. er fyrst og fremst árangur af þeirri viðleitni Framsfl., með hjálp Alþb., sem svo gersamlega hefur svikið stefnu sína, og þeir hafa teymt þessa þrjá nytsömu sakleysingja, sem eru í ríkisstj., til þess að rétta upp höndina með þeim.
Það er grátlegt til þess að vita, að þessir menn, sem sitja nú í ráðherrastólum, skuli ekki láta sjá sig hér í þingsölum við afgreiðslu fjárlaga, enginn þeirra. Það týrði á einum þeirra hérna í kvöld, en hann kom aldrei inn í þingsalinn. Ég ætlaði að tala betur við þá, en ég sleppi því fyrst þeir eru sofnaðir.
Sjálfstfl. markaði þá stefnu að draga úr skattlagningu. Hann taldi að þegar væri tekið nóg af hinum almennu launatekjum, og með því að halda áfram skattpíningarstefnu þessarar ríkisstj. er fyrst og fremst verið að draga úr viðleitni manna að leggja á sig og hafa háar tekjur. Þeir, sem hafa háar tekjur, borga mest til samfélagsins, en ef farið er of langt, þá dregur úr þessari viðleitni. Og þessir menn, sem styðja ekki þá stefnu sem þeir sjálfir samþykktu í Sjálfstfl., þeir hafa svikið sinn flokk. (StJ: Þeir eru samt í Sjálfstfl. og forsrh. varaformaður hans.) Já, viltu ekki reyna að ná honum til þín? Það væri nú mátulegt á ykkur kommana. Samt er mér ekkert illa við þig, Stefán Jónsson, síður en svo.
Ég hefði viljað koma inn á mörg fleiri atriði, en það er áform ríkisstj. að ljúka nú í nótt þessari umr., þó að 9/10 hlutar ríkisstj. sofi. Hún þarf ekki að vaka, ríkisstj. Henni er ekkert að vanbúnaði. Þeir koma hér á morgun, handjárnað lið, sem afgreiðir það sem búið er að matreiða fyrir þá. Þeir þurfa ekki að hlusta á rök. Þeir ætla að halda áfram í fíflsku sinni að auka skatta, taka meira af ráðstöfunartekjum fólksins í landinu og halda verðbólgunni áfram í sönnum framsóknaranda.
Skattheimtuprósentan var um 25% sennilega fyrir svona 30 árum, og tæplega 35% árin 1960–79, en nú er hún orðin 45%. Vinstri stjórnin náði nýju Íslandsmeti í skattpíningu á þjóðfélagsþegnána. En stjórnin, sem nú situr, lætur ekki sitt eftir liggja. Hún ætlar enn þá að bæta metið. Hún ætlar, að halda áfram að láta verðbólguna fljúga áfram, láta verðbólgupúkann fitna á sama tíma og ráðstöfunartekjur heimilanna fara minnkandi. Og þeir, sem hafa talið sig málsvara þeirra sem minnst mega sín; jafnvel fram yfir aðra í þjóðfélaginu, þeir ganga nú lengst í því að gera þá, sem minnstar tekjur hafa, enn þá fátækari, því að það eru þeir sem verða undir í baráttunni. Eftir því sem verðbólgupúkinn dafnar og fitnar eru það þessi heimili sem verða harðast úti. Og þó að þremur mönnum í Alþb. þyki e. t. v. vænt um að sitja í ráðherrastólum, þá held ég, ef þeir líta á flokkinn sinn, að það verði ekki flokknum þeirra til framdráttar að þeir sitji í þessum ráðherrastólum til þess að halda áfram á þessari braut. Það er betra að skipta um stefnu og taka upp samráð og samstarf við þá aðila í þjóðfélaginu sem vilja fara í verulegt stríð við verðbólgupúkann og vinna á honum sigur. En það vinnur enginn flokkur sigur á verðbólgupúkanum á meðan Framsfl. ræður ferðinni í stjórn landsins, því að þar er verðbólgupúkinn í allri sinni mynd og virðuleik fyrst og fremst.