01.04.1980
Sameinað þing: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)

116. mál, fjárlög 1980

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Þegar fjárlagafrv. er lesið yfir leynir sér ekki að þegar aths. við lagafrv. hafa verið samdar hefur verið hafður í huga sá málefnasamningur sem gerður var þegar stjórnin var mynduð, því að aths. hefjast með nákvæmlega sömu orðum og hinn skráði málefnasamningur, sem hefst á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Meginverkefni ríkisstj. er að treysta íslenskt efnahags- og atvinnulíf, enda er það ein helsta forsenda fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Jafnframt leggur ríkisstj. áherslu á að efla menningarstarfsemi, auka félagslega þjónustu og jafna lífskjör. Ríkisstj. mun berjast gegn verðbólgunni með aðhaldsaðgerðum er varða verðlag, gengi, peningamál, fjárfestingu og ríkisfjármál.“

Þetta er í samræmi við það sem flokkarnir komu sér saman um þegar stjórnin var mynduð, það fer ekki á milli mála. En það er ótrúlegt, að hrópandi ósamræmi er á milli þessara orða og þess sem fjárlagafrv. geymir í tölum og uppbyggingu. Og það sem er allra eftirtektarverðast í þessu hjá ríkisstj., sem ætlaði sér að draga úr verðbólgunni með jafnstórstígum hætti og áform voru um, er að henni skyldi ekki heppnast að koma saman fjárlagafrv. sem undirstrikaði þá ákvörðun ríkisstj. En það er langt frá því að það hafi tekist.

Í aths. segir enn fremur: „Í samræmi við þetta“ — í samræmi við stefnuorðin sem ég las hér í upphafi — „er frv. miðað við það að verðhækkun frá upphafi til loka árs 1980 verði um 31% og meðalhækkun verðlags 1979 1980 verði 45–46%. Um forsendur tekna og útgjalda vísast að öðru leyti til kaflans um meginforsendur frv. hér á eftir.“

Ég ætla nú ekki að fara að tefja tímann með því að lesa það allt saman upp, en mér þykir einkar fróðlegt að drepa hér niður á örfáum atriðum til þess að það komi í ljós, hversu dyggilega er farið eftir því sem hér er sett fram, að miðað sé við það að meðalverðlagshækkun milli áranna 1979–1980 verði 45–56%.

Ég flutti ásamt hv. alþm. Sverri Hermannssyni brtt. við 2. umr. fjárlaganna, brtt. sem miðaði að því að í alvöru skyldi reynt að beita aðhaldsaðgerðum í rekstri ríkisbáknsins. Sú till. var felld fyrir okkur og trúlega á þeim forsendum að þess væri nægilega dyggilega gætt í þessu frv. að beita aðhaldsaðgerðum. Ef maður lítur rétt yfir það, hvernig staðið er við það, þá er það þetta sem ég les út úr frv.: Í forsrn., sem er ekki umsvifamikið rn., hækkar yfirstjórn þess frá fjárlögum 1979 um 78%. Menntmrn., yfirstjórn þess hækkar ekki nema mjög eðlilega, um 45.1%. Landbrn., yfirstjórn þess hækkar um 82.8%. Sjútvrn., yfirstjórnin hækkar um 75.6%. Dóms- og kirkjumrn. 54%. Félmrn., yfirstjórn þess hækkar um 77.6%. Heilbr.- og trnmrn. um 70.2%. Samgrn. um 61.3%. Iðnrn., yfirstjórnin hækkar um 77.4%. Viðskrn. um 65.6%. Fjárlaga- og hagsýslustofnun, yfirstjórnin hækkar um 164%. Og þá er ég kominn nokkurn veginn á enda að fara yfir hvað yfirstjórn hefur hækkað eða hreinir rekstrarliðir rn. Hreinir rekstrarliðir eru allir langt fyrir ofan það mark sem er sett í upphafi þessa frv. við uppbyggingu þess.

Öðru máli gegnir um hækkanir eða framlög til ýmissa þátta sem eru mönnum þó mjög viðkvæmir og mikla þýðingu hefur fyrir þegnana í landinu að vel sé staðið að. Ég vil drepa hér á örfá atriði sem mér sýnist vera athyglisverð í þessu efni. Ég verð nú að segja það, að ég hefði átt von á því að fræðslumálin, menntmrn. í heild, hefðu farið miklu meira úr reipunum en hér hefur komið fram. Eins og ég gat um áðan, er yfirstjórnin með litla hækkun og fræðslumálin yfirleitt í 56%. Ég tel að það sé ekki óeðlilegt hvað þann málaflokk snertir vegna þeirrar grósku sem er í allri fræðslu og menntun breiðist út og það eru miklu fleiri einstaklingar sem njóta hennar en áður var. En eitt er þó í þessu efni sem er athyglisvert og mér þykir rétt að benda á sérstaklega, og það er, í málefnasamningnum að er sagt að það eigi að leggja mikla áherslu á að efla menningarstarfsemi. En hvað hækka fjárframlög til menningarstarfsemi frá árinu 1979? Þau hækka um 35.8%. Það nær ekki þeirri viðmiðun sem talin mun vera eðlileg hækkun milli ára að dómi þess sem semur fjárlagafrv.

Ég efast ekkert um það, að mér verður bent á að í frv. séu þættir sem hækka mjög mikið, og þeir eru til að sjálfsögðu, Það er athyglisvert að fara yfir félmrn., hvernig það er saman sett. Yfirstjórnin hækkaði, eins og ég sagði áðan, um 77.6%. Húsnæðismálin hækka um 16.4%. Það er ekki ríkmannlega staðið að þeim málum og alls ekki í samræmi við það sem heitið var við upphaf þessarar stjórnar. En önnur félagsmál undir því rn. hækka um 123.8%. Það skýrist með því, að stofnaður var á árinu 1979 sjóður sem heitir Framkvæmdasjóður öryrkja og þroskaheftra og hefur að stofnframlagi 1 milljarð kr. og fer eitthvað yfir það með verðbótum, eins og gefur að skilja, sem þó eru ekki fullar.

Eins og ég gat um áðan, fluttum við hv. þm. Sverrir Hermannsson við 2. umr. fjárlaga brtt. um aukið framlag til vegamála. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef hér, hafa vegamál hækkað frá árinu 1979 um 82%, svo að það mætti ætla að ekki þyrfti að vanþakka það. Þess ber þó að geta, að á árinu 1979 var ekki betur búið að vegamálunum en svo, að hækkun milli áranna 1978–1979 var aðeins 31% eða því sem næst, á sama tíma og vísitala vegagerðarkostnaðar hafði hækkað um 50%. Það var því augljóst, að hér þurfti að koma til veruleg hækkun. Og þegar vegáætlun var samin árið 1979 var ákveðin allmikil hækkun fyrir árið 1980. Ef þær krónur stæðu núna óbrenglaðar, þá vantaði 6.5 milljarða til þess að þær krónur héldu sínu framkvæmdagildi. Alþ. féllst ekki á brtt. mínar um aukið framlag til vegamála. Hins vegar liggur nú fyrir að aukið verði nokkuð fé til þessara mála eða um því sem næst 2 milljarða kr., ef ég hef tekið rétt eftir. Ég hef tekið þá upphæð inn þegar ég segi að framlag til vegamála hafi hækkað um 82%.

En þegar ég fór að aðgæta nánar hvernig þessum 2 milljörðum var ráðstafað og hvernig skipt er því fjármagni, sem til vegamála fer, þá fór ánægja mín út í veður og vind. Ég lagði til að það aukna fjármagn, sem gengi til vegamála, yrði fyrst og fremst lagt til nýrra framkvæmda, því að vegagerð hrópar á góðar og miklar nýframkvæmdir, þó svo að viðhald sé að sjálfsögðu einnig mikilvægt. En þó held ég að eftir vetur eins og þann, sem nú er senn á enda, séu vegirnir í því ástandi að þeir hefðu þolað það þó ekki hefði verið aukið verulega fjármagn til viðhalds.

En till. fjvn. eru þessar: Til stjórnunar og undirbúnings voru á vegáætluninni fyrir 1980 áætlaðar 995 millj. kr. En í fjárl., eins og nú er lagt til, er það 1325 millj., þessi liður hækkaður um 33%. Viðhald vega var á vegáætlun 6820 millj., en samkv. fjárl. 8910 millj., hækkar um 30.5%. Til nýrra framkvæmda var á vegáætlun 11 milljarðar 284 millj. kr., en á fjárl. eins og þau eru núna 10 milljarðar 586 millj. kr., fjárhæðin lækkar um 6%. Fjárframlög til nýrra framkvæmda lækkar um 6% á sama tíma og vegagerðarvísitalan hækkar um 30%. Við sjáum að það verður með styttra móti sem við komumst í vegagerð á þessu árinu, eitt árið enn. Og það var sannarlega allt annað, sem með þurfti við framlag til vegáætlunarinnar, en það eitt að draga úr nýframkvæmdum. Til fjallvega er áætluð 30% hækkun, til sýsluvegasjóða 6.5% og til þéttbýlisvega 11% hækkun.

Ég verð að segja það, að ég var að vona að menn gætu af heilum hug verið ánægðir og þakkað það aukna framlag sem átti að ganga til veganna, þó lítið væri. En það er síður en svo að það sé hægt að gera eins og nú standa sakir. Ég þakka að vísu fyrir eitt. Ég þakka almættinu fyrir að ekki skuli vera ákvæði um að hafa fjórar umræður um fjárlagafrv. Ef svo væri mundi sjálfsagt verða dregið enn þá meira úr framkvæmdafénu til vegamálanna, jafnvel þó að skattar séu auknir. Ég held því að það sé best að hafa ekki meiri umr. um þetta að þessu sinni og sætta sig heldur við þennan skerta hlut en að eiga á hættu að hann verði skertur áfram.

Ég mun, herra forseti, ekki hafa mörg fleiri orð um þetta. En mér fannst ég ekki geta látið hjá líða að benda á þá öfugþróun sem ég tel hafa orðið í þessum málum. En áður en ég lýk máli mínu vil ég þó benda á það, að hér er einn liður enn í þessum fjárlögum sem hefur tekið stefnu í öfuga og erfiða átt, og það eru vaxtagreiðslur ríkissjóðs.

Árið 1979 voru vaxtagreiðslur 7 milljarðar 50 millj. kr. En í frv. Ragnars Arnalds eru vaxtagreiðslurnar taldar 16 milljarðar 314 millj. kr., hækkun um 130%. Ég held að engum blandist hugur um það, að þetta er háskaleg þróun og að ástæða hefði verið til að reyna að stemma hér á að ósi. En það er líðileg staðreynd að þurfa að viðurkenna það, að í fyrsta skipti, sem það er skyldugt lögum samkv. að leggja fram lánsfjáráætlun með fjárlagafrv., í fyrsta skipti sem það er skyldugt lögum samkv., þá er skotist undan því. Lánsfjáráætlun hefur fylgt síðari hluta fjárlagavinnunnar undangengin ár, án þess að það væri skyldugt. En sú ríkisstj., sem var við völd næstsíðust, setti þau lög sem ákváðu að lánsfjáráætlun skyldi skilyrðislaust lögð fram með fjárlagafrv. Og það fer ekki á milli mála að þeir ráðh., sem nú sitja í ríkisstj., eru kunnugir því hvað ráðh. gerðu í þeirri ríkisstj. sem sat hér á árinu 1979. Því er það ámælisvert og ég vil átelja það harðlega, að ekki skuli vera staðið við þessa ákvörðun, þessa lögskipuðu ákvörðun, að leggja fram lánsfjáráætlunina. Og ég er sannfærður um að margur maðurinn verður uggandi um þróunina í vaxta- og lánamálum þegar ekki er séð fyrir nú við fjárlagagerðina hver sú endanlega lánaupphæð verður, hvort það er meining ríkisstj. að þenja lántökurnar upp í það sem menn hafa verið að fleygja sín á milli, jafnvel yfir 100 milljarða. Ef svo er eigum við von á grófri hækkun vaxtakostnaðar á næstu árum. Eins og ég sagði áðan, vil ég átelja það og lýsa ábyrgð á hendur ríkisstj., sem hefur skotið sér undan því að standa við þau lög sem hún setti sjálf.