01.04.1980
Sameinað þing: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1692 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

116. mál, fjárlög 1980

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að harma það, hvernig til hefur tekist um þessa 3. umr. fjárlaga. Hún hófst, eins og margsinnis hefur komið fram, í kvöld um fimmleytið, og hæstv. ríkisstj. hefur í stórum dráttum ekki verið viðstödd hér í kvöld til að veita upplýsingar eða svara fsp. í sambandi við ríkisfjármálin, lánsfjáráætlun og annað sem tilheyrir. Ég vil þó segja það, að þessu sinni er ríkari ástæða til þess en sennilega oftast, jafnvel alltaf áður, að menn skiptust hreinskilnislega á skoðunum um ríkisbúskapinn og að ríkisstj. reyndi að gefa heillega mynd af áætlunum sínum í þeim efnum. Og það, sem kannske veldur því, að það er ríkari ástæða til þess en oftast nær áður, er að fyrir tæpum tveimur mánuðum boðaði þessi ríkisstj. allt aðra framvindu mála en nú er raunin á orðin. Skýrasta dæmið um það er að sjálfsögðu verðbólgan sjálf. Þeir voru að tala um að þeir ætluðu að fara eftir niðurtalningarleiðinni. Mér skilst að núna liggi fyrir að framfærsluvísitalan hækki um nálega 13% fram til 1. maí. Og ef við lítum á þetta ár til loka, þá hygg ég að fyrir liggi að verðbólgan verði ekki minni en 50%, og það jafnvel þótt ekki komi til neinna grunnkaupshækkana.

Það gefst væntanlega á morgun eða í fyrramálið tími til þess að ræða verðlagsþróunina frekar í sambandi við fiskverðið. En eins og við vitum veldur fiskverðsákvörðunin nú — sérstaklega sá þáttur hennar að velta yfir á útgerðina byrðum útgerðarinnar, t. d. hraðfrystihúsanna — því, að vandinn verður enn þá stærri í júníbyrjun. Og ef þá verður staðið eins að þeim málum og nú mun bara enn þá fleiri sprekum hent á verðbólgubálið, gengissigið mun halda áfram og koma til nýrrar gengisfellingar um þær mundir. En það er best að geyma sér það til morguns.

Ég vil fyrst segja það, að ég kvaddi mér hér hljóðs vegna heiðurslauna listamanna m. a. Ég hafði beðið um það, að menntmn. Alþingis kæmu saman og ræddu um hvernig þeim launum skyldi skipt. Ég hafði þar skýrt þá skoðun mína, að ég teldi rétt að fjölgað yrði um þrjá í þeim flokki. Niðurstaðan varð sú, að þetta yrði rætt innan þingflokkanna. Nefndin var síðan ekki kölluð saman aftur, enda þótt að um það væri sammæli á þessum fundi, sem er kannske ekki von, vegna þess að í menntmn. Nd. er enginn formaður, hvorki formaður né varaformaður, og kannske mikil áhöld um það hver eigi að kalla nefndina saman. Má raunar segja að þetta sé lýsandi um ástandið í þessu þinghaldi. Það er ekki einu sinni hugsað um að nefndir séu starfhæfar, hvað þá meir. Og þótt einstakir þm. óski eftir fundum og óski eftir því að einstök mál séu rædd, þá fæst það ekki fram og manni er að síðustu réttur miði, eins og sá sem hér er á þskj. 277, og manni er gefinn kostur á að skrifa undir þetta eða lýsa sig andsnúinn þeirri skiptingu sem þar er lýst. Nú vil ég taka það skýrt fram, að ég er síður en svo andvígur því, að þeir 12 menn, sem þarna er um að ræða, hljóti áfram heiðurslaun listamanna. Ég tel að þeir eigi að vera þarna áfram og hef sem varaþm. kosið marga þeirra í heiðurslaunaflokk, og skal ekki ræða það frekar. En ég hefði talið rétt að nú yrði fjölgað um þrjá, en vil ekki ræða það í einstökum atriðum að þessu sinni.

Þorsteinn Valdimarsson skáld orti einu sinni limru sem heitir Ráðherrastólarnir. Hún er svo:

Á Alþingi um nótt

þegar orðið er hljótt

standa upphafin sæti

á einum fæti

í sparnaðarskyni og af lítillæti.

Ég hygg að segja megi að þetta sé kannske sá eini sparnaður sem vart verður í sambandi við þessa ríkisstj. Að flestu öðru leyti blasir reynslan við. Og það er sýnilegt að mönnum þykir orðið nóg um. Þannig hafa tvenn launþegasamtök gert ályktanir af þessari ástæðu. Ályktun Alþýðusambands Íslands er svo hljóðandi:

„Á fundi viðræðunefndar Alþýðusambands Íslands í dag var fjallað um þær auknu álögur sem boðaðar eru í formi útsvarshækkunar, hækkunar tekjuskatts og söluskatts. Alþýðusambandið minnir á að þetta gerist á sama tíma og kaupmáttur launa minnkar stöðugt. Aðgerðir stjórnvalda nú hljóta að auka dýrtíðina og rýra almenna kaupgetu. Aðgerðirnar eru þannig síst til þess fallnar að greiða fyrir kjarasamningum og mótmælir viðræðunefndin þeim harðlega.“

Ályktun Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn BSRB mótmælir þeim starfsaðferðum ríkisstj. við undirbúning efnahagsráðstafana að hafa ekki samráð við samtök launafólks um heildarstefnu í þessum málum. Í lögum er gert ráð fyrir samráði við samtök launafólks og slík samráð eru einnig boðuð í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. En engin samráð hafa verið höfð við launþegasamtökin. Þær nýju stórfelldu álögur á almenning, sem þegar hafa verið samþykktar á Alþ. eða fyrirhugaðar eru samkv. stjórnarfrv., þ. á m. um orkujöfnunargjald, eru olía á verðbólgueldinn, sem enn hlýtur að magnast við gengislækkanir sem sífellt eru framkvæmdar. Því mótmælir stjórn BSRB eindregið þessum nýju álögum.“

Það má margt um þessar samþykktir segja. Í fyrsta lagi blasir það náttúrlega við, að biðlund launþega er á þrotum. Þeir hafa sýnt mikla þolinmæði í sambandi við sín kjaramál. Samningum öllum var sagt upp frá síðustu áramótum á hinum almenna launamarkaði. Sérstaklega hefur Alþýðusamband Íslands mjög stillt sínum kröfum í hóf, þar sem ekki er gert ráð fyrir að grunnkaupshækkanir verði meiri en 5% á þessu ári. Það er ekki nema helmingurinn af því sem samið var um í sólstöðusamningunum 1977, og fátt sýnir betur en þetta að launþegasamtökin líta mjög alvarlegum augum á ástandið í atvinnumálum og gera sér grein fyrir því, að í engu má út af bregða svo ekki komi til stöðvunar í þýðingarmiklum atvinnugreinum eða verulegs atvinnuleysis.

Síðan ríkisstj. settist að völdum hefur hún skilið þessa ábyrgu afstöðu launþegasamtakanna svo, að henni væru allur sjóir færir, hún þyrfti ekki að gæta hófs í skattaálögum, gæti valsað eins og henni sýndist, farið ofan í vasann á skattborgurunum og eytt og sóað eftir sinni hentisemi. Hvergi ber á því, að aðhalds sé gætt, ekki nema þá kannske í framkvæmdaliðunum. Og þó svo að þetta fjárlagafrv. feli í sér jafnmikla skattheimtu og raun ber vitni, þá er síður en svo að þar séu öll kurl komin til grafar. Hins vegar er það eftirtektarvert, að ríkisstj. á sér formælendur, þótt skrýtið sé. Í litlu sjávarplássi austur á landi, Neskaupstað, er gefið út blaðið „Austurland,“ málgagn Alþb. Í nýlegu tölublaði þess segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Launþegasamtökin og allur almenningur eiga að krefjast aukinnar samneyslu og þar með aukinna skatta. En það er ekki sama hvernig skattar eru á lagðir: Það verður að gæta réttlætis af fremsta megni. Beinir skattar, svo sem tekjuskattar og útsvar, eru óvinsælir. Óbeina skatta, svo sem söluskatt og tolla, greiða menn án þess að vita af því og finna því varla til þeirra,“ segir m. a. í forustugrein „Austurlands.“ — Það er kannske þess vegna sem hæstv. ríkisstj. er núna að hækka söluskattinn, að menn finna ekki fyrir því.

Áfram segir í þessari forustugrein, með leyfi hæstv. forseta:

„Óbeinir skattar eru mjög óréttlátir, og því stærri sem fjölskyldurnar eru því meira greiða þær. Það er því líka undrunarefni, þegar það hendir launþegasamtök að krefjast lægri beinna skatta, en hærri óbeinna. Með því er vegið að hagsmunum láglaunastéttanna, og ekki má gleyma því, að lækkun óbeinna skatta hefði áhrif á verðlag til lækkunar og yrði ekki lítið framlag í baráttunni gegn margfrægri verðbólgu. Barátta almennings í skattamálum ætti að beinast að lækkun og afnámi óbeinna skatta af nauðsynjavörum og tilsvarandi hækkunar beinna skatta. En jafnframt þarf að tryggja að allar tekjur komi fram til skattlagningar og skattlagningin verði réttlát.“ — Svo mörg voru þau orð.

Það er nú í fyrsta lagi um þetta að segja, þessa klaufalegu afsökun þeirra Alþb.-manna þarna fyrir austan, sem auðvitað er gerð í nafni launþegahreyfingarinnar, að hún er í algerri andstöðu við yfirlýsta stefnu Alþýðusambands Íslands, þar sem því er lýst að beinir skattar séu fyrst og fremst launþegaskattar, leggist mjög þungt á launamenn, eins og skattskrárnar bera með sér. En ég mun ekki, af því að mjög er áliðið nætur gera þetta atriði sérstaklega að umtalsefni. Ég vil hins vegar láta í ljós — kannske ekki mjög mikla undrun, en vekja athygli á þessari áráttu Alþb.-manna að reyna að mála sinn fífil fagran. Vitaskuld er þessi mikla skattheimta á móti hagsmunum alls launafólks í landinu, á sama hátt og þessi mikla og þunga skattlagning bitnar með fullum þunga bæði á einstaklingunum og atvinnurekstrinum og kemur þannig í veg fyrir aukna framleiðni, sparnað í því skyni, og dregur úr lífskjörunum. Sá sami er einnig skilningur Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Og það er af þeim sökum sem Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Íslands, setti ríkisstj. stólinn fyrir dyrnar í dag og fékk hana þó til þess að gefa eftir 0.5% í sambandi við söluskattinn.

Í sambandi við þessi mál held ég að alveg nauðsynlegt sé að hæstv. fjmrh. gefi þá yfirlýsingu, að hann muni ekki beita sér á þessu ári fyrir frekari sköttum af neinu tagi en felast í þessu fjárlagafrv. og þeim frv. er þegar hafa verið lögð fram á Alþ. Það væri afskaplega þýðingarmikið ef yfirlýsing fengist um það, að álögurnar yrðu ekki auknar frá því sem við höfum nú séð. Og ef þessu yrði svarað játandi, þá yrði náttúrlega meiri virðing borin fyrir slíkri yfirlýsingu ráðh. heldur en gert er fyrir Ólafslögum sem voru samþ. hér á Alþ. fyrir ári eða svo, það var víst á laugardegi fyrir pálmasunnudag.

Ég hef af og til reynt að koma orðum til ráðh. út af því, að yfirlýsing liggur fyrir frá hæstv. fjmrh. um að hann muni ekki sinna samningsmálum bandalags opinberra starfsmanna fyrr en samið hafi verið á hinum frjálsa vinnumarkaði. Og efnislega er það rétt.

Nú hefur komið til vinnustöðvunar fyrir vestan. Skipin eru að byrja að stöðvast og við sjáum að sá langi dráttur, sem orðið hefur, veldur auknum óróa á vinnumarkaðinum almennt. Ég held að ríkisstj. verði að fara að sýna spilin og ég held að það verði að koma fram, hvernig hún hyggst taka á samningsréttarmálum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þeir menn, sem nú fara með undirtökin í þessari ríkisstj., eru sömu mennirnir og á sínum tíma veittust harðast að ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar fyrir að virða ekki að fullu samningsrétt opinberra starfsmanna og taka ekki nægilegt tillit til þeirra.

Ég vil enn fremur benda á það, að Alþb. hefur í gegnum tíðina ævinlega haft það sem rauðan þráð í sínum málflutningi, að launagreiðslur skiptu ekki máli, þær væru ekki rekstrarkostnaður og af þeim sökum væri óhætt að spenna kaupið upp, svo hátt sem hverjum þóknaðist, þ. e. ef Alþb.-menn hafa ekki verið aðilar að ríkisstj.

Hins vegar hefur það jafnan verið svo, í hvert skipti sem Alþb. hefur átt aðild að ríkisstj., að harðar hefur verið gengið að opinberum starfsmönnum en nokkru sinni fyrr. Ég vil í þessu sambandi m. a. minnast mjög fjölmenns fundar sem á sínum tíma var haldinn í Háskólabíói, þar sem Lúðvík Jósepsson var mjög niðurlútur og gat varla komið upp nokkru orði vegna þeirra mörgu svika og brigða, sem Alþb. hafði þá sýnt opinberum starfsmönnum, og einkanlega út af því, að Alþb. hafði alltaf haft það á sinni stefnuskrá, að opinberir starfsmenn fengju fullan samningsrétt. Og ég vil þá líka spyrja hæstv. fjmrh. að því, hvort opinberum starfsmönnum standi nú til boða að fá fullan samningsrétt, og líka um það, ef ríkisstj. yrði nú til viðtals um að rýmka eitthvað samningsréttinn, hvort það mundi þá koma niður á opinberum starfsmönnum í þeirra launakjörum. Ég held að það sé nauðsynlegt að fá um þetta skýr svör.

Ég vil svo segja það, og skal nú reyna að hraða máli mínu, að það veldur að sjálfsögðu ýmsum sjálfstæðismönnum miklum vonbrigðum einmitt þetta, sem hv. 4. þm. Norðurl. e. var að skemmta sér yfir í kvöld, að forsrh. þessarar miklu skattheimtustjórnar skuli vera varaformaður Sjálfstfl. Ég neita því ekki, að menn eiga erfitt með að skilja þetta. Á sínum tíma, þegar hann var í viðreisnarstjórninni, voru viðhorf hans önnur og hann leit öðruvísi á málin, enda þá í betri fálagsskap en núna. En ég held að skýringin á þessu sé bara sú, að þeir sjálfstæðismenn, sem eru í þessari ríkisstj., hafa ekki ráðið ferðinni. Þeir sjá og taka eftir því, að stjórnarskeiðin siglir kynduglega, en þeir hafa engin tök á að breyta stefnunni vegna forsögu málsins. Það eru Alþb.-mennirnir og framsóknarmennirnir sem ráða stefnunni, eins og best kom fram í sambandi við hálfa söluskattsprósentið í dag. Og þeir sjálfstæðismenn, sem styðja þessa ríkisstj., hafa nú af því þungar áhyggjur, að þeir geti ekki ráðið við það verkefni, sem þeir ætluðu sér að leysa, og raunar þann vanda, sem þeir sjálfir bjuggu til. Og ég veit að það er mörgum sjálfstæðismönnum mikið áhyggjuefni að svona skyldi hafa tekist til.

Ég hef líka tekið eftir því, að ýmsir framsóknarmenn eru farnir að ókyrrast mjög út af ástandinu. Fyrst í stað hlökkuðu þeir yfir því, að með þessum hætti skyldi vinstri mönnum takast að vinna það sem kallað hefur verið mesti sigur á öldinni. En ég hef orðið var við það af viðtölum mínum við framsóknarmenn, bæði hér í Reykjavík og úti á landi, að þeir eru orðnir mjög órólegir. Þeir gera sér grein fyrir því, að sá sigur, sem Framsfl. vann í kosningunum nú í desember, veitti þeim ekki umboð til að gera það sem lýsir sér í þessu fjárlagafrv. Menn sjá að það er engin aðgæsla hér á ferðinni, engin forsjá. Það er ekki horft fram á veginn og það er ekki tekist á við þann vanda sem er að tröllríða þessu þjóðfélagi, að innlendu kostnaðarhækkanirnar eru að ríða atvinnuvegunum á slig, fyrst útflutningsatvinnuvegunum og hinum síðan á eftir, eftir því sem minna fjármagn streymir þar í gegn, sem hefur alltaf verið lífæðin í þessu þjóðfélagi. Mjög flókin og erfið staða er að koma upp í þjóðmálunum. Launafólkið finnur að loforðum ríkisstj. er ekki að treysta, jafnvel svo ung loforð sem þau, sem gefin voru í stjórnarsáttmálanum fyrir tveimur mánuðum, hafa verið svikin gjörsamlega að ástæðulausu. Fulltrúi sjómanna í verðlagsnefndinni hefur þá sögu að segja, að ráðh. sjávarútvegsmála hafi ekki í eitt einasta skipti séð ástæðu til þess að yrða á hann orði, þótt hann hafi átt langar tölur við aðra fulltrúa í verðlagsnefndinni. Það hefur einnig komið fram, að ríkisstj. hefur bæði brotið gegn sínum eigin fyrirheitum, brotið gegn skýrum lagabókstöfum og ýft — ég vil segja stráð salti í sárin með því tómlæti sem launasamtökunum hefur verið sýnt.

Allt þetta vil ég harma og að síðustu aðeins segja það, að ég sé ekki að það þjóni tilgangi að hafa hér fleiri orð um. Hæstv. ríkisstj. er ákveðin í því að taka ekki þessa fjárlagaumræðu alvarlega, gera þinginu ekki grein fyrir stöðu þjóðmálanna, eins og hún ætti þó að vera skýr þegar komið er fram í aprílmánuð, og þótt maður í þingnefndum biðji um að fá t. d. upplýsingar um horfurnar í atvinnumálunum, horfurnar í þjóðmálunum, fá upplýsingar um það frá Þjóðhagsstofnun, þá liggja þær upplýsingar ekki á lausu fyrir þann almenna þm. Hins vegar sér maður, þegar maður gengur fram hjá ráðherraborðunum, að sitthvað er til af upplýsingum sem hinum útvöldu eru ætlaðar. Það eru vinnubrögð af þessu tagi sem ekki vekja traust, ekki vekja vonir um góðan árangur né samvinnu í þessum sölum. Þetta allt saman harma ég og verð að reyna að ljúka máli mínu með því segja að öll vonum við að Eyjólfur hressist, en eins og sakir standa eru ekki miklar líkur til þess.