02.04.1980
Sameinað þing: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)

116. mál, fjárlög 1980

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Fyrir síðustu kosningar gerðu fatlaðir sér sérstakt ómak til þess að vekja athygli á sínum málum gagnvart alþm. og gagnvart stjórnmálaflokkum. Ég ætla að haga mér í samræmi við þá afstöðu sem ég tók fyrir kosningar og greiða fyrir málefnum þessa hóps innan Alþingis, eins og allir stjórnmálaflokkar lofuðu að gera fyrir kosningar, og segi já.