09.04.1980
Neðri deild: 56. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1763 í B-deild Alþingistíðinda. (1644)
136. mál, olíugjald til fiskiskipa
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því sem fram kom hjá hæstv. ráðh.
Það kemur mér á óvart, ef það liggur nú fyrir að fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands hafi mótmælt þeirri leiðréttingu sem gera á á sjómannalögunum til samræmis við það sem lofað var sjómönnum með félagsmálapakka. (Gripið fram í.) Ég veit ekki betur en margnefnt frv. sé efnislega það sem sjómönnum var lofað. Ég veit ekki betur. Ef fulltrúar Alþýðusambands Íslands eiga að breyta því, þá kemur mér það undarlega fyrir sjónir. Það á að standa við og framkvæma það sem sjómönnum var lofað, burt séð frá því hvað fulltrúar Alþýðusambands Íslands segja. Það er ekki þeirra mál. Hafi verið búið að lofa sjómönnum þessu, þá á að standa við það.
Mér fannst hæstv. ráðh. vera hálfloðinn í svörunum við því, hvort ætti að standa við hin gefnu fyrirheit varðandi sjómannastofurnar. Það er æðimikill munur á því, að telja æskilegt að það verði gert, eða lýsa því yfir, að það verði gert. Og það er það sem ég er að biðja um. Ætlar hæstv. ríkisstj. að standa við það loforð að það verði gert? Engin spurning er um það, hvað þeim þyki æskilegt. Spurningin er bara: Verður þetta gert?
Svo að vikið sé að samráðstalinu, þá held ég að ég muni það rétt, að fulltrúi sjómanna í Verðlagsráði lýsti því yfir, að núv. hæstv. sjútvrh. væri sá eini sjútvrh., sem gegnt hefði því starfi meðan hann hefur haft afskipti af þessum málum, sem hefði ekki haft samráð við fulltrúa sjómanna. Það getur svo verið matsatriði, hvort hæstv. ráðh. hverju sinni finnst að það eigi að hafa slíkt samráð eða ekki. En sé það rétt, sem núv. hæstv. ráðh. telur, að það sé a. m. k. vafamál að hafa beri þetta samráð, þá hafa hinir allir verið á villigötum, því að þeir höfðu þessi samráð. Það er ekki verið að fara fram á það við hæstv. núv. sjútvrh., að hann taki sæti oddamanns í yfirnefnd. Það er síður en svo. En það er óeðlilegt að viðkomandi ráðh., sem málið heyrir undir, sé ekki í nánu samráði við fulltrúa þeirra hagsmunahópa sem eru að vinna að lausn málsins hverju sinni. Það er óeðlilegt við málið. Það er enginn að biðja hann um að grípa fram fyrir hendur oddamanns í nefndinni. Hann gerir það að sjálfsögðu ef honum þykir ástæða til. En það er skylda hans sem og annarra ráðh. samkv. núgildandi lögum að hafa þetta samráð. Og það er það sem verið er að fara fram á. Það er það sem launþegasamtökin fara fram á, og það er það sem þau ætlast til að verði gert, að framfylgt verði þeim lögum sem eru í landinu um þau efni.