09.04.1980
Neðri deild: 57. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1786 í B-deild Alþingistíðinda. (1658)
135. mál, orkujöfnunargjald
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Skömmu fyrir matarhlé gerði ég aths. við það, að af tíu ráðherrum í hæstv. ríkisstj. væri aðeins einn viðlátinn og sá eini var hvorki flm. umrædds frv., hæstv. fjmrh., né heldur oddviti ríkisstj. og sá ráðh. í ríkisstj. sem fer með efnahagsmál, hæstv. forsrh., né heldur sá ráðh. sem málið varðar einna mest fyrir utan þessa tvo, hæstv. iðnrh. Ég bað forseta að reyna að sjá til þess, að hæstv. ráðh. — sem leggja mjög mikið upp úr því að fá þetta mál afgreitt — sinntu þingskyldum sínum, a. m. k. þeir ráðh. sem eiga sæti í þessari deild, og væru viðstaddir umr. hér í kvöld. — Ég sé mér til mikillar ánægju að einn af þeim þremur hæstv. ráðh., sem málið varðar mest, hæstv. iðnrh., er mættur til leiks, en hvorugur hinna tveggja, hvorki oddviti ríkisstj., hæstv. forsrh., né flm. frv., hæstv. fjmrh. Mér er nú hálfilla við að óska eftir hléi þangað til þessir tveir ágætu heiðursmenn koma í salinn, því að það væri þá í fjórða sinn sem yrði að gera hlé á umr. um frv. um orkujöfnunargjald vegna þess að hæstv. fjmrh., flm. frv., hefði ekki tíma til að sitja þingfundi. En ég vildi engu að síður óska eftir því við forseta þessarar deildar, að hann gerði ráðstafanir til að láta þessa tvo hæstv. ráðh., sem málið varðar mest, af því vita að það er fundur hér í deildinni í kvöld. Þeir eiga sæti í þessari hv. deild og það er verið að ræða mál sem varðar ríkisstj. þeirra mjög mikið, annar þeirra er flm. að því og hinn, hæstv. forsrh., er oddviti ríkisstj. (Gripið fram í: Hann er í Ed.) Hann er í Ed. að vísu, en hann er engu að síður oddviti ríkisstj. og hefur kannske áhuga á því að vera viðstaddur umr. um það mál sem hann leggur svo mikið ofurkapp á að fá afgreitt. Ef mjög löng bið verður á því, að flm. frv., hæstv. fjmrh., gangi í salinn, sé ég ekki aðra leið en gera enn einu sinni hlé á máli mínu og óska eftir því — það er þá í fjórða sinn við 2. umr. um þetta mál — að gert verði hlé á þingstörfum þangað til flm. frv. þóknast að vera viðstaddur.
Það er dálítið athyglisvert að bera saman annars vegar orð einstakra ráðh. í þessari ríkisstj. — bæði úr síðustu kosningabaráttu, stefnuskrám sem menn gáfu þá út, og enn fremur frá fyrstu dögum ríkisstj., — bera saman þau orð og þær yfirlýsingar, sem þessir ágætu menn létu þá falla, og efndirnar og þær aðgerðir sem þeir láta nú frá sér fara. Ég man t. d. vel eftir því, að í umr. um stjórnarmyndun að loknum kosningum í des. skar formaður Framsfl. sig nokkuð frá forustumönnum annarra flokka að því leyti, að hann var stöðugt, við öll möguleg og ómöguleg tækifæri, að gefa út alls konar yfirlýsingar um möguleg og ómöguleg mál, og hefur ekki í seinni tíð fundist annar forustumaður stjórnmálaflokks, sem er eins yfirlýsingaglaður og hæstv. ráðh., formaður Framsfl. Sú yfirlýsing, sem hæstv. ráðh. gaf á þeim tíma í blöðum og fjölmiðlum og lítill vandi er að fletta upp, — sú yfirlýsing sem hann gaf hvað oftast og var þó af mörgu að taka, var þess eðlis, að Framsfl. teldi að ekki ætti nú að hækka skatta. Hæstv. ráðh., formaður Framsfl., tók hvað eftir annað fram að efnahagsvandann og fjármálavanda ríkisins yrði að leysa án þess að til kæmi hækkun skatta. Hæstv. ráðh. tók þetta fram hvað eftir annað á meðan hann stóð í stjórnarmyndunarviðræðum, m. a. á fjölmörgum fundum, sem ég átti sæti á með honum, og við blöð og fjölmiðla á þessum tíma, og endurtók þessa yfirlýsingu sína í nafni Framsfl. og allra þm. hans, m. a. þeirra sem hér sitja nú og búa sig undir að greiða atkv. með söluskattshækkun upp á tæpan milljarðatug. Hann endurtók þetta ekki aðeins á meðan hann var í viðræðum við okkur og aðra um ríkisstjórnarmyndun. Hæstv. ráðh. margendurtók þetta eftir að til ríkisstj. hafði verið stofnað, bæði hér á Alþ. og í fréttum fjölmiðla. Þetta voru yfirlýsingarnar sem hæstv. ráðh. gaf í nafni Framsfl. fyrir nokkrum dögum. Nú er komið að því að flokkur hans ætlar að standa við stóru orðin. Og hann gerir það svona, eins og við höfum séð nú í dag og dagana áður en við tókum páskafrí.
Hæstv. forsrh., — sem er hættur að mæta hér á þingfundum nema rétt á meðan fundir eru settir kl. 2 á daginn, en svífur að öðru leyti í sjöunda himni síns virðulega embættis utan og ofan við þá atburði sem gerast hér í þingsölum, — margendurtók slíkar yfirlýsingar. Það er ekki langt síðan hann svaraði fsp. á vegum dagblaðsins Vísis, þar sem hann var m. a. spurður um skattamálin. Þá margtók hann fram að það væri ekki aðeins vilji hans og þeirra málaliða sem honum fylgja, að skattar verði nú ekki hækkaðir, heldur væri það stefna ríkisstj., stjórnarinnar sem hann veitti forstöðu, að nú ætti að taka öðruvísi á málum en aðrar ríkisstjórnir Framsóknar-kommaáratugarins hafa gert, nú ætti að leysa málin án þess að hækka skatta. E. t. v. veit hæstv. forsrh., — sem hefur, eins og ég sagði áðan, svifið um í sjöunda himni síns virðulega embættis utan og ofan við þá atburði sem gerst hafa hér á Alþingi Íslendinga undanfarna daga, — e. t. v. veit hæstv. forsrh. ekki að ríkisstj. hans hefur lagt fram ekki eitt, ekki tvö, heldur mörg frv. á undanförnum dögum, sem öll stefna í þveröfuga átt við það sem hann hafði lofað kjósendum sínum í kosningabaráttunni — og þjóðinni eftir að ríkisstj. var stofnuð. E. t. v. er hæstv. forsrh. ekki kunnugt um þetta. Og það er e. t. v. ekkert einkennilegt að honum sé það ekki kunnugt, því að hann er yfirleitt ekki viðstaddur þingfundi hér. En það væri þá ráð, að einhver góðviljaður maður segði honum frá því, svo að það kæmi honum ekki mjög á óvart næst þegar hann þarf að svara fsp. á vegum dagblaða, — svo að maður tali nú ekki um ef það dettur í hann að leita endurkjörs eins og Adenauer — ef það dettur í hann að fara að endurtaka yfirlýsingar sínar um það, að nú eigi að leysa málin án skattahækkana.
Hvað er það, sem formaður Framsfl., hæstv. ráðh. Steingrímur Hermannsson, og varaformaður Sjálfstfl., hæstv. forsrh. Gunnar Thoroddsen, ásamt gáfumannafélaginu í Alþb., — hvað er það, sem þessir þrír aðilar í sameiningu hafa ýmist fengið afgreitt hér á Alþ. undanfarna daga eða biðja um afgreiðslu á í sambandi við skattamál og skattahækkanir? Það er búið að hækka útsvar um rúma 5 milljarða kr., um 10%. Þessi útsvarshækkun er, eins og öllum þm. er ljóst, brúttóskattur sem tekur lítið sem ekkert tillit til raunverulegra tekna þeirra, sem skattinn greiða, að því leytinu til að hann leggst af fullum þunga á lægst laun. Og ég spyr: Var það þetta, sem hæstv. forsrh. Gunnar Thoroddsen bað fólk um að styðja sig til, þegar hann sóttist eftir atkvæðum þess í síðustu kosningum? Var það þetta, sem hæstv. félmrh. Svavar Gestsson fékk sín atkvæði út á í Reykjavík? Eða hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson? Eða hv. þm. Guðrún Helgadóttir? Eða hæstv. ráðh. Hjörleifur Guttormsson? Eða hæstv. ráðh. Ragnar Arnalds? Var það þetta, sem þeir voru kosnir til að gera? Var það þetta sem þeir báðu um atkvæði fólksins til að gera í des. s. l.?
Þá hafa þessir sömu menn með fjárlagaafgreiðslu sinni og með frv. um skattstiga óskað eftir því, að tekjuskattar verði hækkaðir um 40% frá því fjárlagafrv. sem minnihlutastjórn Alþfl. lagði fram. E. t. v. vilja menn ekki miða við það, telja það óraunhæft. Þá skulum við miða við skattbyrðina sem hlutfall af tekjum greiðsluárs. Með þessari afgreiðslu er ríkisstj. að hækka skattbyrði í hlutfalli af tekjum úr 13.4% á árinu 1979 í um 14% á árinu 1980. Það er sem sé verið að hækka skattbyrði í tekjuskatti til viðbótar við hækkun skattbyrðar í útsvari. Var það þetta, hæstv. ráðh. Friðjón Þórðarson, sem þú baðst um atkvæði kjósenda þinna í Vesturlandskjördæmi til að gera? Var það til þess að gera þetta, hæstv. ráðh., sem þú varst kjörinn á þing? Hæstv. félmrh. Svavar Gestsson, var hann kjörinn hingað á þing til þess að standa að þessu? Hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson ásamt hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur, var það þetta sem þið báðuð um atkvæði ykkar kjósenda í síðustu kosningum til að standa að að framkvæma.(GJG: Nei. Það var nú ekki þetta.) Það var ekki þetta. En það er ekki nóg með það, heldur flýgur það nú manna á milli hér í Alþ., að hæstv. ríkisstj. hafi komist að þeirri niðurstöðu, að sá skattstigi, sem hún lagði fram í frv. rétt fyrir páska, sé ekki nógu hár. Þrátt fyrir það að hæstv. ríkisstj. reikni í þessum skattstiga með því að hafa 2–3 milljarða upp á að hlaupa í tekjum af tekjuskatti umfram það sem fjárlög gera ráð fyrir, þá telur hún, eftir því sem hvíslað er hér í sölum Alþingis, að þessi áætlun sé of lág. Og hún ráðgerir nú — hvort sem af því verður eða ekki — að fá stuðningslið sitt í þeirri nefnd, sem fjallar um frv. þetta, til að flytja till. um aukahækkun á tekjuskatti.
Nú liggur það fyrir — ég veit ekki hvort öllum þm. er það ljóst — en það liggur fyrir að sú tekjuhækkun, sem liggur til grundvallar þessum skattstiga, sú spá um tekjuhækkun milli ára er byggð á því, að tekjur á milli áranna 1978 og 1979 hafi vaxið um 45%. Á þeirri forsendu eru allir útreikningar skattstigans byggðir. Nú hafa flestallir einstaklingar á Íslandi skilað sínum skattframtölum og þegar hafa verið tekin úrtök úr þessum skattframtölum í nokkrum stærstu sveitarfélögum landsins. Þessi úrtök benda til að tekjur á milli áranna 1978 og 1979 hafi hækkað um meira en 45%, eða 46–47%. Það mun færa ríkisstj. 2–4 milljarða kr. tekjur af tekjuskatti umfram það sem áætlun hennar um skattstiga gerði ráð fyrir. Ég er alveg sannfærður um að hæstv. ríkisstj. og ráðh. hafa ekki flaggað þessum upplýsingum við stuðningsmenn sína á Alþ., sem þeir ætlast til að flytji nú till. í nefndum þingsins um að hækka þessa skattstiga, þannig að skattbyrðin í prósentum af tekjum greiðsluárs verður meiri, hækkar úr 13.4% á síðasta ári í 14% á árinu 1980.
Í þriðja lagi leggur hæstv. ríkisstj. fram frv. um að hækka söluskatt um 1.5%. Og samkv. orðanna hljóðan í því frv. á sá skattur allur að renna í ríkissjóð. Það er ekki gert ráð fyrir því í frv., að gildistíma þess séu nokkur takmörk sett, heldur gildi það hér eftir þangað til ákvæði laga um þessa skattheimtu verði numin úr gildi. Og það er heldur ekkert í frv. sem bindur núv. ríkisstj. né heldur þær, sem eiga eftir að taka við af þessari ríkisstj., — það er ekkert í frv. sem bindur ríkisstj. þessa eða þær komandi til þess að ráðstafa einhverjum hluta af þessari söluskattshækkun til jöfnunar kyndikostnaðar eða til úrbóta í húshitunarmálum, — ekkert. Þessi skattlagning hefur upphaf, en engan endi. Hún hefur þann almenna tilgang að útvega meira fé í ríkissjóð til almennrar greiðslu, en það er ekki stafkrókur í frv. sem bindur þær tekjur, sem aflað er samkv. frv., á einn eða neinn hátt, hvorki til jöfnunar kyndikostnaðar né annars þvílíks. Þetta er athyglisvert fyrir menn að gera sér í hugarlund, t. d. fólk eins og hv þm. Guðmund J. Guðmundsson eða hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur, í þeim aðstæðum sem Alþ. ánú við að búa, þegar búið er að afgreiða fjárlög án þess að þar sé gert ráð fyrir neinu framlagi öðruvísi en með þessum hætti til jöfnunar kyndikostnaðar. Ef þessir hv. þm. gæfu nú gaum að málinu er ekki víst að þeir væru reiðubúnir að afgreiða slíka hækkun á .söluskatti með upphafi, en engum endi, þ. e. að leggja upp í hendurnar á öllum ríkisstj. — bæði þeirri ríkisstj., sem þau styðja nú, og þeim ríkisstj., sem eiga eftir að taka við af henni einhvern tíma í framtíðinni og ekki er víst að þessir hv. þm. styðji — leggja öllum slíkum ríkisstj: upp í hendurnar 1.5% hækkun á söluskatti. Eru þessir þm. reiðubúnir að afgreiða þá söluskattshækkun án þess að eitt eða neitt sé sagt í því frv. um að tekjunum af hækkuninni eigi að verja t. d. til jöfnunar kyndikostnaðar? Hafa þessir hv. þm. hugleitt þetta?
Það gefur auðvitað auga leið, að jöfnun kyndikostnaðar hefur alls ekki vakað fyrir þeim hæstv. ráðh. sem þetta frv. hafa samið. Ef jöfnun kyndikostnaðar hefði vakað fyrir þeim og úrbætur í því, þá hefðu þeir auðvitað í frv. sjálfu bundið tekjuöflunina til þessara tilteknu þarfa. En það er ekki gert. Það eina, sem á eitthvað skylt við jöfnun kyndikostnaðar í þessu frv., er fyrirsögnin. Lögin, eins og þau eru úr garði gerð, eru lög um almenna tekjuöflun fyrir ríkissjóð, þar sem söluskattur verður hækkaður úr 22% í 23.5% án þess að þeirri hækkun sé nokkurn tíma ætlað að enda. Þetta er viðvarandi söluskattshækkun í fyrsta lagi og í öðru lagi án þess að tekjur af þeirri söluskattshækkun séu með nokkrum hætti bundnar til þess verkefnis í framtíðinni sem sagt er að þær eigi að renna til, þannig að t. d. við gerð næstu fjárlaga er sú ríkisstj. — hver svo sem það verður — sem annast gerð þeirra fjárlaga, alls ekki bundin við það að nota tekjurnar eða brot af tekjum af þessari söluskattshækkun til verðjöfnunar á kyndingarkostnaði. Hún gæti átt það til — alveg eins og núv. hæstv. ríkisstj. — að skila fjárlagafrv. sínu með þessum tekjum, en ekki með einnar einustu krónu útgjöldum til jöfnunar kyndikostnaðar, og koma svo aftur til Alþingis og sega við það.: Nú þurfum við 1.5% söluskattshækkun í viðbót í jöfnun kyndikostnaðar. Nú þurfum við að hækka söluskattinn úr 23.5% upp í 25%. — Og hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, hv. þm. Guðrún Helgadóttir og aðrir þeir þm., sem ætla að styðja ríkisstj. í þessu, eiga sér enga vörn fyrir slíkum vinnubrögðum, vegna þess að þessir hv. þm. hafa ekki gætt þess í fyrsta lagi, að þessi söluskattshækkun ætti sér einhver endalok, hún stæði t. d. ekki nema bara á þessu ári og hana yrði síðan að endurnýja á næsta ári ef ekki fyndust aðrar leiðir. Þessir hv. þm. hafa ekki gefið gaum að því. Og þeir hafa ekki heldur gefið gaum að því að binda þá tekjuöflun, sem þarna á fram að fara, við þau útgjöld sem sagt er að verið sé að afla teknanna til. Þessir hv. þm. hafa m. ö. o. látið hlunnfara sig með fyrirsögninni og leggst þá lítið fyrir kappana.
Þá er mjög athyglisvert í sambandi við þetta mál og þau tíðindi, sem hafa orðið hér á Alþ. í sambandi við afgreiðslu þess, að hugleiða hver er staða hæstv. forsrh. og málaliða hans í þessari ríkisstj.
Þessir hv. þm., núv. hæstv. ráðh., komu fram fyrir kjósendur sína í desembermánuði s. l. og boðuðu allir eina ákveðna stefnu, sem var sameiginlegt einkenni á öllum málflutningi sjálfstæðismanna í síðustu kosningum, án tillits til þess, hvort þeir buðu sig fram á D-lista eða einhverjum öðrum lista. Það var sameiginlegt í málflutningi allra þessara manna að þeir sögðu: Ef kjósendur veita okkur traust og við komumst til áhrifa á landstjórnina, þá verður það okkar fyrsta verk að afnema skatta vinstri stjórnarinnar, þá skatta sem við teljum ekki aðeins óþarfa, heldur rangláta. — Þetta var rauði þráðurinn í málflutningi allra sjálfstæðismanna í desembermánuði s. l., án tillits til þess, hvort þeir buðu sig fram á D-lista eða undir öðrum listabókstaf. Og þá var þetta líka sannfæring hv. þm. Alberts Guðmundssonar, því að þetta er sjálfsagt sú eina sannfæring hv. þm. sem hefur haldist nokkurn veginn óbreytt þann tíma sem hann hefur setið hér á þinginu, þangað til nú. Það var þetta, hæstv. landbrh., hæstv. dómsmrh., sem kjósendur ykkar áttu von á að þið munduð gera — ef þið fengjuð aðstöðu til — eftir að þið höfðuð verið kjörnir hingað til þings. En hver eru örlög ykkar og annarra þeirra sem ykkur fylgja að málum í Alþb. og Framsfl.? Jú, þeir búa sig ekki aðeins undir að framlengja alla þessa vondu skatta sem þeir börðust svo hart gegn fyrir einu ári og báðu um atfylgi kjósenda sinna til þess að afnema, þeir ætla ekki aðeins að sporðrenna þeim hverjum á fætur öðrum og öllum í einu, heldur ætla þeir að gera sér lítið fyrir og ganga skrefinu lengra. Þeir ætla að ganga í það verk sem við Alþfl.-menn neituðum að ganga í fyrir Framsfl. og Alþb., að bæta ofan á skattaklyfjarnar sem búnar voru til í fyrra. Þetta er hlutskipti hæstv. forsrh. og málaliða hans nú á þessum dögum. Var það þetta, hæstv. landbrh., sem þú varst kjörinn til að gera? Var það þetta, hæstv. dómsmrh., sem þú fékkst atkvæði kjósenda í Vesturlandskjördæmi til að framkvæma? Sjálfsagt þurfa einhverjir kjósendur ykkar að spyrja ykkur þessarar spurningar og ykkur vefst sjálfsagt ekki tunga um tönn að svara henni.
En það er mjög athyglisvert, að þessir hv. þm. og ráðh. hafa ekki sagt aukatekið orð um þær skattahækkanir sem hafa verið til umr. og afgreiðslu hér á þingfundum. Þeir hafa látið sér nægja að horfa í gaupnir sér og rétta síðan upp höndina þegar samráðherrar þeirra í Alþb. og Framsfl. hafa gefið þeim olnbogaskot. Og það er líka mjög athyglisvert, að þegar stöðugir fundir voru hjá stjórnarliðnu hér fyrir páska, þar sem mótmæli komu við áformum hæstv. ríkisstj. um að hækka söluskatt um 2%, þá komu þau ekki frá þessum mönnum. Þau komu ekki frá hæstv, forsrh., þau komu ekki frá hæstv. landbrh., þau komu ekki frá hæstv. dómsmrh. og þau komu ekki frá hv. þm. Eggert Haukdal, ekki aldeilis! Þessir menn höfðu ekkert við þessar fyrirætlanir að athuga. Nei, það voru nokkrir þm. í Framsfl. og Alþb. sem var nóg boðið. En þessir hv. þm., sem voru kjörnir hingað á Alþ. til þess að afnema skatta vinstri stjórnarinnar, höfðu ekkert til málanna að leggja annað en samþykki sitt. Þeir biðu tilbúnir með höndina — hvort sem það var sú vinstri eða hægri sem átti að rétta upp — þegar hæstv. félmrh. eða hæstv. iðnrh. þóknaðist að gefa sitt olnbogaskot. Og þeir bíða tilbúnir enn. Þessir hæstv. ráðh. þurfa enga grein að gera fyrir sinni afstöðu. Þeir sitja bara hér, hæstv. ráðh., ef þeir þá mæta á þingfundi, horfa í gaupnir sér, segja ekki eitt einasta aukatekið orð, en bíða tilbúnir með höndina.
Það er mjög athyglisvert, hver staða þessara manna er í núverandi stjórnarsamstarfi. Tvo dagana fyrir páska var ekki hægt að halda þingfundi á eðlilegum tíma vegna þess að þingflokkar Alþb. og Framsfl. voru á stöðugum fundum til þess að reyna að jafna ágreining um þessa nýju skattaöflun. Það var mjög lærdómsríkt að sjá hæstv. ráðh., félagsmenn Gunnars Thoroddsens, labba hér milli herbergja. Ég býst við að þeir hafi verið einu mennirnir í öllu Alþ. sem höfðu ekki hugmynd um hvað var að gerast
Það hafði enginn áhuga á því að leita álits þeirra. Þeir vissu ekkert hvað var að ske. Þeir voru að „spekúlera“ í því, hæstv. ráðh., hvort þeir ættu að fara upp á skrifstofu hjá sér eða hvort fundur mundi hefjast eftir klukkutíma og hvað menn væru nú eiginlega að ræða um. Það hafði enginn áhuga á því að leita álits þeirra. Það hafði enginn áhuga á því að bera neitt undir þá, hafa samráð við þá um eitt né neitt. Og það er einkar lærdómsríkt, að eftir tveggja daga fundi og deilur í þingflokkum Alþb. og Framsfl. varð einum forustumanni í Sjálfstfl. gengið fram á forsvarsmann í Framsfl., síðla dags síðasta deiludaginn, og hann sagði honum það í óspurðum tíðindum, að nú væri búið að ná samkomulagi milli Alþb. og Framsfl. um að lækka hina fyrirhuguðu söluskattshækkun úr 2% í 1.5%. Þá varð viðkomandi forustumanni Sjálfstfl. að orði: En hvað segir Gunnar? — Þá var svarið: Ja, ég veit nú bara ekki hvort búið er að spyrja hann. — Þetta er nú staða ykkar, hv. þm. og hæstv. ráðh., í þessu stjórnarsamstarfi. Og þið vitið þetta. Hvort sem þið viljið viðurkenna það eða ekki, þá hlýtur ykkur að vera þetta ljóst.
Hér á dögunum, þegar blöð og fjölmiðlar biðu spennt eftir því að vita hvort Alþb. og Framsfl. tækist að verða sér úti um þingmeirihluta til þess að geta sest við stjórnvöl á þjóðarskútunni, þá var þungt í þessum mönnum pundið. Þá komu skyndilega margir menn í sviðsljósið sem höfðu ekki verið mikið í opinberri umræðu eða í sviðsljósinu á árunum áður. Þá skipti miklu máli hvorum megin hryggjar einstakir þm. lágu. En eftir að hæstv. ríkisstj. hefur verið mynduð hefur gengið á þessum sömu hv. þm. fallið niður í núll. Það hefur orðið algert gengisfall á þeim hér innan veggja Alþingis. Það er ekki einu sinni haft við þá samráð. Þeir vita ekki hvað er að gerast. Þeir koma af fjöllum þegar gerð er grein fyrir því, hvaða samkomulag hefur orðið á milli þeirra sem ráða ferðinni í ríkisstj., Alþb. og Framsfl.
Það er í sjálfu sér auðskilið, og við höfum allir okkar metnað. Enginn verður þm. öðruvísi en hafa talsverðan metnað fyrir sína hönd. Það er ósköp eðlilegt að sá metnaður verði mönnum oft fjötur um fót, og þarf ekki annað en að líta á hæstv. landbrh. til að sjá það. En það er að sjálfsögðu fleira sem hefur ráðið ferðinni hjá þessum ágætu þm., t. d. fylgispekt þeirra við þann merka mann, hæstv. forsrh., sem er mikil persóna og á margan hátt mikill stjórnmálamaður. Þessir hæstv. ráðh. halda sér í hann eins og í bjarghring. En það getur líka fokið í það skjól. Og hvað væri Björn í Mörk án Kára eða Ketill skrækur án Sveins? Og hvaða viðspyrnu hafa þessir hv. þm. í þeirri ríkisstj. sem þeir sitja í, eftir að þeir eru á annað borð komnir inn í hana? Viðspyrna og viðnám, sem flokkar geta veitt sem aðild eiga að ríkisstj., er auðvitað fyrst og fremst, að ef þeim líka ekki verk þau sem ríkisstj. ætlar sér að vinna, þá hafa þeir frelsi til þess að yfirgefa hana og beita sér gegn henni. Hafa hæstv. forsrh. og fylgismenn hans slíka viðspyrnu? Nei, það hafa þeir ekki lengur. Þeirra gengi er ekki lengur svo hátt..En hvað ætla þeir svo að gera? Hvað mundu þessir ágætu þm. gera ef þeir tækju nú þá ákvörðun, að þeim litist ekki betur en svo á þann framsóknarkommúnisma sem þeir verða nú að framkvæma, að þeir vildu kveðja ríkisstj.? (Gripið fram í.) Ættu þeir að fara aftur inn í Sjálfstfl. og biðja um náð og miskunn? Eða ættu þeir að stofna flokk? Og þá til hvers? Til þess að beita sér gegn stefnu ríkisstj. sem þeir voru í? Af hverju fóru þeir þá í hana? Til þess að berjast fyrir stefnu ríkisstj. sem þeir voru í? Af hverju fóru þeir þá úr henni? Gengi þessara hv. þm. er komið langt niður fyrir núll. Og auðvitað vita þeir það. Þeirra pólitíska líf er fast njörvað við líf núv. hæstv. ríkisstj. Ef þeir ætla að halda sinni pólitísku vígstöðu, þá gera þeir það ekki öðruvísi en með því að halda lífinu í ríkisstj. Þess vegna er það alveg ljóst, að þeir menn, sem síðast fá nóg og síðast segja nei og ávallt verða neyddir til að samþykkja allt, sem Framsfl. og Alþb. koma sér saman um í þessari ríkisstj., eru hæstv. ráðh. Gunnar Thoroddsen, Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson. Þetta vita Alþb. og Framsfl. Þess vegna telja þeir sig ekki þurfa að hafa samráð við þessa hæstv. ráðh. Það er nóg að segja þeim það áður en að atkvgr. kemur, hvernig þeir eigi að greiða atkv.
Við Alþfl.-menn höfum að sjálfsögðu ekki neitt á móti því, að þessi klofningur komi upp í liði Sjálfstfl., síður en svo. Þessi klofningur hefur verið þar lengi og gert bæði flokknum og öðrum, sem við hann hafa átt samstarf, erfitt fyrir. Það er ekkert við því að segja, þó að það brjótist út, alveg sjálfsagt að það komi einhvern tíma upp á yfirborðið sem lengi er búið að „grassera“ undir niðri. Við hörmum það síður en svo, að þessi tíðindi hafi gerst hjá Sjálfstfl. Hitt er öllu verra, að þetta hefur gert ríkisstj., sem á að vera meirihlutastjórn hér á Alþ., að veikri stjórn, vegna þess að einn aðilinn af þremur í þessari ríkisstj. er alger bandingi hinna tveggja og verður ávallt að gera það og það eitt, sem hinir tveir ná samkomulagi um. Það er slæmt fyrir íslenska pólitík á viðsjárverðum tímum eins og nú eru að hafa slíka ríkisstj., sem á ytra borðinu er meirihlutastjórn, en er bæði veik og minnihlutastjórn í reynd. Og í öðru lagi er það hörmulegt, hvernig þessi leikaraskapur kemur til með að torvelda þingstörf hér á Alþ., þar sem ákveðnar venjur og siðir hafa skapast um samstarf manna og hópa og þingflokkar eru einhver þýðingarmesta stofnun þingsins. Að því leyti er þetta ekkert einkamál Sjálfstfl., heldur mál þingsins í heild. Það nær ekki nokkurri átt, að menn geti gert sér leik að því hér á Alþ., að torvelda störf þingsins með því að rýra og á sumum tímum að gera að engu jafnmikilvægar stofnanir á Alþ. eins og þingflokkar eru. Það verður að vera ákvörðun viðkomandi hvernig þeir halda á því máli í framtíðinni.
Herra forseti. Á það hefur verið bent, að allt frá því að það mikla misrétti, sem er fólgið í hinum mikla mismun kyndikostnaðar, kom til hafi ríkisstj. talið nauðsynlegt að afgreiða fjárlög þannig að ríkissjóður legði eitthvað til til þess að leysa þennan vanda. Þau tvö fjárlagafrv., sem lögð voru fyrir þetta þing á haustdögum, gerðu bæði ráð fyrir því, að ríkissjóður legði fram sem sitt framlag til jöfnunar kyndikostnaðar 2.3 milljarða kr. Bæði þessi fjárlagafrv. voru þess eðlis, að ekki var gert ráð fyrir að efna þyrfti til sérstakra skattahækkana til þess að þetta gæti orðið, að ríkissjóður legði fram 2.3 milljarða til jöfnunar húshitunarkostnaðar. Þetta var bæði í frv. minnihlutastjórnar Alþfl. og því frv., sem hæstv. fyrrv. fjmrh., Tómas Árnason, lagði fram. Fjárvöntunin í þessu sambandi, til jöfnunar kyndikostnaðar, var því 1.7 milljarðar kr. og fyrir báðum aðilum, bæði hæstv. þáv. ríkisstj. og minnihlutastjórn Alþfl., vakti að ná þessu fé með sérstökum hætti, 1.7 milljörðum sem upp á vantaði. Núv. hæstv. ríkisstj. er hins vegar fyrsta ríkisstj. á Íslandi síðan þessi húsakyndingarvandi skapaðist, sem telur verjandi að leggja fram fjárlagafrv. þar sem hún er búin að eyða í annað öllu því fé sem aðrir á undan henni höfðu gert ráð fyrir að verja til jöfnunar húshitunarkostnaðar. Þannig hafði hún búið til fjáröflunarvanda vegna jöfnunar kyndikostnaðar sem var 1.7 milljarðar, en varð 4 milljarðar, 2.3 milljörðum kr. hafði hæstv. ríkisstj. eytt í annað, sennilega til þarfa hæstv, landbrh. sem virðist ganga með alla vasa gatslitna. Búið var að eyða þeim fjármunum í annað og búið að skapa fjárhagsvandamál upp á 4 milljarða kr.
Við þetta tækifæri, þegar fjárlög voru lögð fram, lýsti hæstv. fjmrh. því yfir hvað eftir annað, að ríkisstj. mundi sjá sérstaklega fyrir fjáröflun upp á 4–5 milljarða kr. vegna vanda þeirra sem kynda hús sín með olíu og rafmagni. Hæstv. ráðh. kom raunar fram með þá barnalegu skýringu, að þetta mál ætti ekki að fara í gegnum fjárlög þar sem hér væri um millifærslu að ræða. Þetta sagði hæstv. fjmrh., þó vonandi vitandi um að meginhlutinn af því fé, sem fært er inn og út af fjárlögum, er millifærsla. Það er verið að taka skatta af tilteknum þjóðfélagsþegnum, bæði beina skatta og óbeina, til þess að færa til tiltekinna þarfa. Og fjárlögin öll eru millifærsla, og auðvitað er þá engin sérstök röksemd að hafa þessa sérstöku millifærslu utan fjárlaga. Þannig væri þá hægt að meðhöndla hvaða millifærslu sem er, svo sem tekju tilfærslu vegna almannatrygginga. En látum það nú vera.
Yfirlýsing, sem hæstv. fjmrh. gaf hvað eftir annað, var að aflað yrði sérstakra tekna að upphæð 4–5 milljarðar til þeirra þarfa sem hér um ræðir. En þrátt fyrir þessa margítrekuðu yfirlýsingu er raunin sú, að þegar þessi fjáröflun sá dagsins ljós var ekki gert ráð fyrir að hún næmi 4–5 milljörðum, heldur 12–13 milljörðum. Þar af átti aðeins að nota 4 milljarða eða 4.5 milljarða til jöfnunar húshitunarkostnaðar og til annarra orkusparandi aðgerða. Afganginn ætlaði ríkissjóður að taka til sín sem aukna skattheimtu, þannig að þessi yfirlýsing stóðst ekki heldur. Það stenst ekki til kvölds sem hæstv. ráðh. segja að morgni. Og þeim datt í hug það snjallræði, hæstv. ráðh. í ríkisstj., að kalla þetta frv. til l. um orkujöfnunargjald. Það var auðvitað gert í tvennum tilgangi: Í fyrsta lagi að nota þetta heiti sem skálkaskjól fyrir almenna söluskattshækkun sem að mestu leyti á að ganga í ríkissjóð. Það var önnur skýringin. Hin skýringin var sú — og það er athyglisvert fyrir þá sveitarstjórnarmenn sem hér eru inni — að með því móti að kalla þetta orkujöfnunargjald, en ekki almenna hækkun á söluskatti, er komið í veg fyrir að sveitarfélögin fái sinn hluta af þessum tveimur söluskattsstigum, sem nú er orðið 1.5 söluskattsstig. Ef frv. héti „Frumvarp til laga um hækkun söluskatts“, eins og frv. í rauninni er, þá fengju sveitarfélögin 8% af þeirri fjáröflun sem ráð er fyrir gert að ráðist verði í samkv. frv. Með því að kalla þetta frv. til l. um orku jöfnunargjald og láta í veðri vaka að þetta sé allt annað en almennur söluskattur er komið í veg fyrir að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fái sinn hluta. Og svo eru þessir sömu þm. og eiga aðild að þessu með hástemmdar yfirlýsingar um hver fjárhagsvandi sveitarfélaga sé orðinn mikill og nauðsynlegt sé til þess að jafna þann fjárhagsvanda að heimila 10% hækkun á útsvari. Ég fullyrði að ef sveitarfélögin hefðu fengið sinn hluta af þessum tveimur söluskattsstigum, sem verið var að ræða um hér upphaflega, þá hefði ekki þurft að heimila þá 10% hækkun á útsvari, sem nýlega er búið að afgreiða á Alþ. að tilhlutan ríkisstj.
Þá vil ég leyfa mér að benda á það, að ef frv. þetta verður samþ., þá er almennur söluskattur — sem er þá tekinn í þremur skömmtum — orðinn 23.5%. Næstum því fjórða hver króna, sem ýmsar nauðsynjavörur kosta, er þá söluskattur til ríkisins. Hvað halda menn að það hafi í för með sér fyrir þá sem innheimta söluskattinn fyrir ríkið, þegar fjórða hver króna, sem þeir taka á móti frá neytendum, er orðin í formi söluskatts? Nú vita það auðvitað allir, að söluskattur — þegar hann er orðinn jafnhár og hann hefur verið á Íslandi — er fyrir margar sakir einkar óheppilegur skattur. Þegar söluskattur er orðinn eins hár og hann hefur verið hér, þá er hann farinn að skipta ákaflega miklu máli fyrir þá aðila, sem innheimta skattinn fyrir ríkissjóð, og freistingin til að grípa einhvern hluta af þeim innheimtutekjum í eigin vasa verður stöðugt sterkari. Og við vitum það öll — hvort sem við viljum viðurkenna það eða ekki — að tilteknar atvinnustéttir, sem eiga að innheimta söluskatt fyrir ríkissjóð, standa ekki skil á nema broti af skattinum, vegna þess að það er gert að sameiginlegu hagsmunamáli þessara innheimtuaðila og viðskiptavina þeirra að svíkja undan skilum til þess að geta hagnast á því og þurfa ekki að skila söluskattinum.
Mér er það mætavel ljóst, að a. m. k. var málum þannig háttað í Alþb., að Alþb.-menn gerðu sér grein fyrir þessu og höfðu af því áhyggjur. En skyldu ekki áhyggjur Alþb.manna vegna vanskila á söluskatti magnast þegar þeir hækka nú söluskattinn úr 22% í 23.5%, þannig að hartnær fjórða hver króna, sem almenningur greiðir fyrir ýmsar nauðsynjavörur, er söluskattskróna sem á að renna til ríkisins og er stórkostleg freisting fyrir þá sem taka við söluskattinum að halda eftir? Ég held að það sé orðið alveg ljóst, að eitt þýðingarmesta viðfangsefni okkar Íslendinga í skattamálum er að hverfa frá söluskatti á síðasta stigi viðskipta, ekki síst þegar söluskatturinn er orðinn eins hár og hann nú verður, 23.5%. Það hlýtur óhjákvæmilega að verða til þess að skapa slíkar freistingar til undanbragða frá skattinum, bæði fyrir þá, sem skattinn eiga að innheimta, og hina, sem eiga að greiða skattinn, að ég fullyrði og við vitum það allir, að það eru heilar atvinnustéttir í þessu landi, sem bókstaflega eru sagðar byggja afkomu sína á því að gera samninga við þá, sem njóta þjónustu þessara tilteknu stétta, um það að stela söluskattinum undan skilum. Þetta vitum við öll. Og þeim mun hærri sem þessi söluskattur, sem innheimtur er á síðasta stigi viðskipta, verður, þeim mun ríkari verður slík freisting.
Auk þess er söluskattskerfið orðið svo götótt vegna margfaldrar undanþágu frá söluskattinum, að það er varla að menn ráði lengur við að innheimta skattinn og leggja hann á. Og það er almennt viðurkennt af þeim mönnum, sem vel eru heima í skattamálum, að söluskatturinn — eins og hann er framkvæmdur á Íslandi — sé ekki lengur tækur til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð. Hér á landi hefur lengi verið rætt um að taka upp svonefndan virðisaukaskatt í stað söluskatts á síðasta stigi viðskipta, og eru nú 10 ár liðin síðan fyrsta skýrsla um framkvæmd slíkrar skattheimtu var samin fyrir stjórnvöld. Síðast var mjög ítarleg skýrsla um framkvæmd virðisaukaskatts miðað við íslenskar aðstæður samin og gefin út árið 1974 eða 1975 — ég man ekki hvort heldur var. Það er mikill viðbúnaður fólginn í því að semja frv. um slíkan skatt og gera sér grein fyrir því, hvernig hann verkar. En þrátt fyrir það, hversu mikið hefur verið um þetta mál talað, m. a. hér á Alþ., hefur aldrei verið tekin ákvörðun um það eða komið fram í samþykkt þáltill. eða með öðrum hætti, hvort vilji sé fyrir því hér á Alþingi, þannig að þá sé a. m. k. reynt að setja sérstaka vinnu í það að semja frv. til l. um virðisaukaskatt í stað söluskatts og slíkt frv. kynnt fyrir þeim aðilum sem hagsmuna eiga að gæta.
Þm. Alþfl. hafa lengi talið að það væri fyrir löngu orðið nauðsynlegt að leggja niður söluskattinn í þeirri mynd, sem við nú þekkjum hann, og taka upp virðisaukaskatt í staðinn. En það mál kemst ekki á neinn rekspöl fyrr en fyrir liggur hvort vilji er fyrir því að reyna að framkvæma þá hugmynd og stuðningur almennt við hugmyndina hér á Alþ. Þess vegna brugðum við á það ráð, Alþfl.-menn, að leggja fram á þskj. 134 till. til þál. um virðisaukaskatt í stað söluskatts á síðasta stigi viðskipta, þar sem ákveðið yrði af hálfu Alþingis, ef till. yrði samþ., að fela ríkisstj. að hefja nú þegar undirbúning að upptöku virðisaukaskatts, sem miðist við að frv. til l. um virðisaukaskatt verði lagt fyrir Alþ. á næsta hausti og stefnt síðan að því að hægt væri að ná afgreiðslu á slíku frv. á næsta þingi, þannig að virðisaukaskattur geti leyst núv. söluskatt af hólmi 1. jan. 1982, ef vilji væri fyrir því hér á Alþ. að gera slíka kerfisbreytingu, eftir að alþm. hefði verið með þessum hætti sýnt fram á, hvernig slík kerfisbreyting mundi verka og hvernig hið nýja skattform mundi verka við eðlilegar aðstæður. Í grg. með þessari þáltill. er nákvæmlega rakið, hvernig að slíkri framkvæmd væri hægt að standa. Þar er nákvæmlega sagt hvaða tíma menn telja sig þurfa til samningar frv., til að fjalla um frv. úti í þjóðfélaginu, í þingnefndum o. s. frv. Í raun réttri er lagt til að umræddri ákvörðun um virðisaukaskatt yrði skipt í tvö þrep, þar sem fyrst yrði leitað eftir því, hvort þingvilji væri hér á Alþ. fyrir því að láta vinna frv. og aðrar athuganir á þessari kerfisbreytingu, hvort fylgi væri á Alþ. við hugmyndina almennt, og síðan gæti Alþ. tekið ákvörðun af eða á, þegar fyrir lægi slíkt frv. ásamt aths. þeirra aðila í þjóðfélaginu sem hagsmuna eiga að gæta. Þessi till. til þál. var flutt í jan. s. l. Hún hefur ekki enn fengist tekin til umr. í Sþ. og fer nú senn að verða hver síðastur, ef á að vera hægt að viðhafa einhverja afgreiðslu á málinu fyrir vorið. En ég tel nauðsynlegt — og tel raunar löngu orðið nauðsynlegt miðað við hve hár söluskatturinn er orðinn — að breyta innheimtunni á honum, breyta honum frá söluskatti, sem er innheimtur á síðasta stigi viðskipta, yfir í virðisaukaskatt. Ég vara þess vegna mjög við því, hreint skatttæknilega séð, að afgreiða nú hækkun á söluskatti úr 22 í 23.5%, vegna þess að svo slæmur sem þessi skattur reyndist í innheimtu á meðan hann er 22%, þeim mun verri mun hann verða í innheimtu þegar búið er að hækka hann eins og til stendur.
Herra forseti. Menn hafa margvakið athygli á því, að í lögum, sem samþ. voru á Alþ. 7. apríl 1979, er sérstakur kafli sem helgaður er því viðfangsefni að stjórnvöld hafi samráð við samtök launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda um tiltekin mál. Þar stendur í 1. gr. kaflans, sem er 3. gr. laganna, að efla skuli reglubundið samráð og samstarf stjórnvalda og launafólks í efnahags- og kjaramálum. Í 4. gr. er nánar skýrt hvað átt sé við með orðinu stjórnvald í þessu sambandi, en þar er tekið fram að samráðsfundi skuli halda með fulltrúum ríkisstj. og fulltrúum viðkomandi samtaka, annaðhvort saman eða hver samtök fyrir sig. Það liggur því ljóst fyrir, að sú lagaskylda, sem er lögð á herðar stjórnvalda í þessu sambandi, er skylda hæstv. ríkisstj. sem á að skipa fulltrúa sína til þessa samráðs.
Í 5. gr. laganna er síðan fjallað um hver þessi samráð skuli vera. Þar er hæstv. ríkisstj. lögð sú skylda á herðar að hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins um meginþætti í efnahagsmálum og helstu efnahagsmarkmið ríkisstj., í því skyni að leggja grundvöll að samræmdum ákvörðunum á sviði opinberra fjármála, peninga- og lánamála o. s. frv. Nú er nýbúið að leggja grundvöll að ákvörðunum á sviði opinberra fjármála með afgreiðslu fjárlaga. Ekkert samráð var haft við aðila vinnumarkaðarins um þá afgreiðslu. Það er nýbúið að afgreiða hér á Alþ. frv. um 10% hækkun á útsvari. Ekkert samráð var haft við aðila vinnumarkaðarins um þá afgreiðslu. Nú er til meðferðar hér í þinginu frv. um hækkun á söluskatti úr 22% í 23.5% og hæstv. ríkisstj. hefur ekki heldur haft nein samráð við aðila vinnumarkaðarins um þá stefnumótun, þó að það sé tekið fram í 2. tölul. 5. gr. laga um stjórn efnahagsmála o. fl., að eitt af því, sem skuli án undantekningar fjallað um á samráðsfundum við aðila vinnumarkaðarins, skuli vera tekjustefna ríkisins, — sú tekjustefna sem ríkisvaldið mótar við afgreiðslu laga um skattlagningu o. fl. Ekkert af þessu hefur þó verið gert.
Þegar hæstv. ríkisstj. var fyrst á þetta bent, virtist hæstv. félmrh. ekki hafa hugmynd um til vist þessara laga. A. m. k. virtist það koma hæstv. ráðh. algerlega á óvart, þegar lesið var upp fyrir hann ákvæði þessa kafla. En eftir þá velviljuðu fræðslu ætti hæstv. ríkisstj. ekki að hafa komið neitt á óvart þar lengur. Hvernig stendur þá á því, að hæstv. ríkisstj. leggur fram hér á Alþ. frv. til l. um skattstiga og frv. til l. um hækkun söluskatts um 1.5% — var raunar 2% í upphafi — án þess að sinna þessum lagaskyldum sínum um að hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins, eins og henni er uppálagt að gera í lögum sem afgreidd voru héðan frá Alþ. fyrir nokkrum mánuðum og flestir ráðh. í ríkisstj. áttu sjálfir hlut í að afgreiða? Við stjórnarandstæðingar höfum ekki heldur fengið svar við þessari spurningu og fáum það sennilega aldrei. En hvernig stendur á því, að verkalýðshreyfingin og aðilar vinnumarkaðarins krefja ekki ríkisstj. svars? Hvernig stendur á því, að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson spyrst ekki fyrir um hvernig á því standi, að hæstv. ríkisstj. virðir að vettugi skilyrðislaus ákvæði laga um samráð við hans samtök og önnur samtök launafólks um jafnmikilvæg atriði og ákvörðun um að hækka tekjuskatt, um að hækka söluskatt og um að hækka útsvar? Hvers vegna gengur ekki hv. þm. eftir því, að ríkisstj., sem hann sjálfur styður, virði þessi ákvæði laga?
Ég held að það hafi verið hv. þm. Karvel Pálmason sem sagði hér fyrr í ræðu, að hann hefði kosið hv. þm. Guðmund J. Guðmundssyni annað hlutskipti og betra en að vera neyddur til að greiða atkv. með þessu frv. En hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson er ekkert neyddur til að greiða atkv. með þessu frv. Honum ber samkv. drengskaparheiti sínu og stjórnarskrá íslenska lýðveldisins að greiða atkv. eftir sannfæringu sinni. Það getur enginn neytt hv. þm. til að greiða atkv. með því sem hann vill ekki, og auðvitað greiðir hv. þm. ekki atkv. með öðru en því sem hann vill styðja. Ef mál er á ferðinni hér á Alþ. sem er hv, þm. andstætt, þá greiðir hann auðvitað ekki atkv. með því. Hver neyðir hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson til þess að greiða atkv. öðruvísi en samviskan býður honum?
Alþb. og þm. þess hafa komist upp á það í þeim ríkisstj., sem þeir hafa setið í, að leika tveimur skjöldum. Ráðherrar flokksins hafa komist upp með að krefjast útgjalda til þeirra verkefna sem þeir hafa farið með sem ráðh., en komist jafnframt upp með að mótmæla tekjuöflun til þeirra verka. Mér er t. d. í fersku minni þegar hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson — sem þá var ekki orðinn formaður þingflokks Alþb. — lýsti því yfir á s. l. sumri, þegar hæstv. þáv. fjmrh., Tómas Árnason, krafðist tekjuöflunar fyrir útgjöldum sem stofnað hafði verið til, fyrst og fremst af ráðh. Alþb., að það væri ekki verkefni sitt eða annarra stjórnarsinna að afla tekna, það væri mál sem hæstv. fjmrh. ætti að sjá um einn og kæmi sér ekki nokkurn skapaðan hlut við. Það kærði hann sig ekkert um að ræða. Þannig hefur Alþb. komist upp með það í þeim ríkisstjórnum, sem það hefur átt sæti í, að leika þeim tveimur skjöldum að stunda kröfugerðir fyrir sín verksvið, en neita að standa að aðgerðum til tekjuöflunar á móti.
Nú hefur orðið breyting á þessu. Nú er Alþb. komið með fjármálin. Nú fer Alþb. ekki bara með útgjaldahlið í ríkisbúskapnum, heldur fjáröflunarhliðina líka. Og hvernig er starf þess í þeim efnum? Þegar við ræddumst við, hv. þáv. alþm. Svavar Gestsson, núv. hæstv. ráðh., um möguleika á myndun samsteypustjórnar með aðild Alþfl. og Alþb., þá var það hvað eftir annað tekið fram af þessum ágætu mönnum, að ekki kæmi til nokkurra mála fyrir ríkisstj. að fara að boða það — hvort heldur í viðræðum við samtök opinberra starfsmanna eða í forsendum fjárlaga — að ríkisstj. ætti að ganga út frá einhverri tiltekinni launastefnu. Það var margfaldlega tekið fram af þessum ágætu mönnum, að það væri ekki aðeins rangt, heldur heimskulegt að ríkisstj. færi að hafa uppi einhverjar áætlanir um það, hvað laun ættu að hækka í landinu þegar samningar væru lausir.
Ég minni hv. þm. á að það varð ekki svo lítill hvellur á Alþ. í fyrra þegar lagt var fram fjárlagafrv. sem byggðist á tilteknum launaforsendum. Alþb. krafðist þess, að það fjárlagafrv. yrði tekið og umreiknuð hver einasta tala í frv. og horfið frá allri launaspá í sambandi við fjárlagagerðina, en fjárlögin yrðu reiknuð á desemberverðlagi. Mér er sem ég sjái núv. hæstv. ráðh. Alþb. neita þessu, því að það þurfti að leggja í það sérstaka vinnu í fjmrn. að endurreikna allt fjárlagafrv. Tómasar Árnasonar frá því í fyrra, vegna þess að Alþb. krafðist þess að launaforsendur yrðu aldeilis ekki teknar inn í það frv., heldur yrðu forsendur þess frv. byggðar á desemberverðlagi. Það var ekki ný stefna sem þeir héldu fram í viðræðum um stjórnarmyndun við okkur Alþfl.-menn, sem ég var að segja hér frá áðan. En þegar núv. fjárlagafrv. Alþb. kom fram, þá hafði orðið stefnubreyting í þessum málum. Það fjárlagafrv. var lagt fram með ákveðinni launaforsendu, með ákveðinni stefnu ríkisstj. og Alþb. um hver launaþróun í landinu ætti að vera árið 1980, þegar allir samningar eru lausir, — yfirlýsingu frá ríkisstj. um hvað launafólkið ætti að bera úr býtum.
Það var ekki nóg með það, að Alþb. hefði breytt grundvallarafstöðu sinni í þessu máli. Hver var launastefnan sem boðuð var í forsendum fjárlagafrv., stefna ríkisstj. um þau laun sem m. a. hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson á eftir að semja um? Launastefnan í fjárlagafrv. var sú, að á sama tíma og verðlag í landinu á að hækka um 46.5%, mættu laun ekki hækka um meira en 42%. Á þessu byggist fjárlagafrv. Alþb. og ríkisstj. Á þessari launastefnu byggist fjárlagafrv. Þetta er meginforsenda frv., sem sérstaklega var fram tekin í aths. Þetta er skoðun hæstv. ríkisstj. og Alþb. á því, hvað launafólkið eigi að bera úr býtum á árinu 1980, þegar allir samningar eru lausir. Nú er ekki aldeilis verið að byggja fjárlög á desembergrunni. Nú er ekki aldeilis verið að halda því fram, að launamálin eigi að útkljá á grundvelli frjálsra samninga aðila vinnumarkaðarins, — ekki aldeilis. Nú er það bara boðað sem ein meginforsenda fyrir efnahagsbúskap ríkisins, að launin megi ekki hækka nema um 4.5% minna en verðlagið. Þetta er launaforsenda fjárlagafrv., þetta er það sem hæstv. ríkisstj. —þ. á m. hæstv. ráðh. Hjörleifur Guttormsson, hæstv. ráðh. Ragnar Arnalds og hæstv. ráðh. Svavar Gestsson — segir hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni að hann megi semja um, þetta, en ekki krónu meira, vegna þess að ef hann semji um krónu meira sé hann að taka ábyrgð á því að gera fjárlögin, sem hv. þm. hefur samþ., að marklausu plaggi.
Til viðbótar við þetta hefur nú ríkisstj. Alþb., Framsfl. og Gunnars Thoroddsens og félaga hans hækkað tekjuskatt úr 13.4% í 14% af tekjum greiðsluárs, hækkað tekjuútsvar um 10%, ætlar að hækka söluskatt um 1.5% og hækka flugvallargjald, gengið hefur verið fellt um 8%, raunar um 11% síðan núv. hæstv. ríkisstj. tók við. Mér er spurn: Hvað þýðir þetta mikla kaupmáttarrýrnun til viðbótar þeirri kaupmáttarrýrnun, sem boðuð er í fjárlagafrv.? Að mati Þjóðhagsstofnunar þýða þessar aðgerðir ekki undir 3–4% kaupmáttarrýrnun. Með fyrstu aðgerðum sínum, að fjárlagafrv. meðtöldu, hefur hæstv. ríkisstj. sem sé boðað á árinu 1980 kaupmáttarskerðingu — einhvern tíma hefði nú Alþb. kallað það kauprán — upp á 8.5%. Svo segja menn eins og hv. þm. Karvel Pálmason, og hefur sjálfsagt orðið mismæli, að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Íslands, sé neyddur til að greiða atkv. með þessu. Ég spyr: Hver neyðir hv. þm.? Hver neyðir hv. þm. til að greiða atkv. með þessu? Er þetta ekki það sama, hv. þm., eins og hún gerði, ríkisstj. sem við börðumst svo hart gegn á árunum 1974–1978? Væri ekki líklegt, hv. þm., að Verkamannasamband Íslands eða Alþýðusamband Íslands hefði verið búið að boða útifund á Lækjartorgi gegn þessum aðgerðum, ef þær hefðu verið gerðar fyrir þremur árum? Hver er það sem getur neytt formann Verkamannasambands Íslands og stjórnarmann í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja til að greiða atkv. með slíku kaupráni hér á Alþ.? Og hvað ætla þessir hv. þm. síðan að gera, þegar þeir koma út í sín félög? Hvernig ætla þeir hv. þm. að réttlæta það, að félög launafólks berjist fyrir kauphækkunum og lagfæringum á launatöxtum, þegar þeir greiða hér á Alþ. atkv. með því að stefnan sé mörkuð á þann veg, að laun skuli lækka á árinu um 8.5%? Geta menn greitt atkv. með hægri hendi hér í Alþ. með kaupráni og farið svo út úr þessu þinghúsi og greitt þar atkv. með vinstri hendi með kauphækkunum? Hvernig er hægt að koma þessu heim og saman og hver neyðir þá hvern til hvers? Eru viðkomandi þm. neyddir hér innan þessara veggja til þess að greiða atkv. gegn sannfæringu sinni og með 8.5% kaupráni? Eða eru þeir neyddir af einhverjum aðilum utan þessara veggja til að greiða atkv. á móti sannfæringu sinni og með kauplækkun? Hvers konar kleyfhugastarfsemi er hér á ferðinni?
Það er athyglisvert, að núna kveður við þann tón í því merka blaði Þjóðviljanum, sem á að heita málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis, að það sé hlutverk blaðsins að vera ráðherrahollt blað. Þessi frækni flokkur, sem áður fyrr barðist fyrir réttindum launafólksins í landinu og átti blað sem segist vera baráttublað sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis, — þessi flokkur lýsir nú yfir að hann sé ráðherraflokkur og blaðið sé ráðherrablað og hlutverk blaðsins sé að gera og styðja allt það sem ranglátt sé. Það er ekki aðeins nýtt andlit, sem hefur komið á þennan flokk með þeim hv. þm. Svavari Gestssyni, Hjörleifi Guttormssyni og Ólafi Ragnari Grímssyni. Þetta er líka nýtt innræti. Ráðherraflokkurinn og ráðherrablaðið eru ekki aðeins með ný andlit, heldur líka nýtt innræti. Þetta er allt annar flokkur heldur en sá flokkur sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson gekk einu sinni til liðs við, annar en sá flokkur sem Magnús Kjartansson stýrði einu sinni hér innan veggja Alþingis, annar en sá flokkur sem Lúðvík Jósepsson var einu sinni í forsvari fyrir. Þetta er allt annar flokkur en sá flokkur sem ég þekki t. d. úr mínu kjördæmi. Málgagn Alþb. í Vestfjarðakjördæmi telur það ekki höfuðskyldu sína að vera ráðherrahollt blað. Kjósendur Alþb. í Vestfjarðakjördæmi telja það ekki höfuðskyldu sína að vera varðhundar kerfisins. Hvaða flokkur er það nú á Íslandi sem berst fyrir því að allt verði óbreytt, það verði „status quo“ í öllum málum — og ekki aðeins það, heldur verði alltaf beitt sömu vinnubrögðum? Það má ekki einu sinni breyta um vinnubrögð. Hvaða flokkur er það sem á Íslandi í dag er orðinn varðhundur kerfisins? Það er Alþb. Alþb. berst fyrir því að hér megi engu breyta. Alþb. berst harðast fyrir því t. d., að engu sé breytt í landbúnaðarpólitíkinni. Þar á bara að bæta við, þar má engu breyta. Alþb. berst fyrir því, að engar breytingar séu gerðar í sambandi við gerð fjárlaga eða í ríkisbúskapnum. Það eru aðeins sex mánuðir liðnir síðan söluskattur var hækkaður úr 20 í 22%. Nú er verið að hækka söluskattinn úr 22 í 23.5%. Þetta eru sömu vinnubrögðin, þetta eru sömu íhaldsúrræðin, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, eins og við börðumst á móti á sinni tíð. Þetta eru sömu íhaldsvinnubrögð, „status quo“ í öllum málum, bara svolítið stærri skammtar, stærri íhaldsskammtar. Og svo kemur Þjóðviljinn, blað sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis, og segir: Mitt hlutverk er að vera ráðherrahollt blað. — Nú spyr ég hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson, hvort hans hlutverk sé að vera ráðherrahollur þm., eins og það hlutverk Þjóðviljans að vera ráðherrahollt blað. Er það hans hlutverk hér á Alþ. að vera varðhundur óbreytts ástands á öllum sviðum, berjast gegn öllum breytingum? Er það nú orðið hlutskipti mannsins, sem einu sinni gamnaði sér við hugsjón byltingarinnar að vera varðhundur óbreytts ástands, vera í svipuðu hlutverki og hæstv. forsrh., hæstv. dómsmrh. og hæstv. landbrh., að rétta upp höndina þegar honum er gefið olnbogaskot?
Það hefur margoft verið vitnað hér í álit Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. En góð vísa verður aldrei of oft kveðin. Í ályktun Alþýðusambands Íslands — þar sem ég held að Verkamannasamband Íslands sé stærsta aðildarsambandið — segir svo, með leyfi forseta:
„Á fundi viðræðunefndar Alþýðusambands Íslands í dag var fjallað um þær auknu álögur, sem boðaðar eru í formi útsvarshækkunar, hækkunar tekjuskatts og söluskatts. Alþýðusambandið minnir á, að þetta gerist á sama tíma og kaupmáttur launa minnkar stöðugt.“ Er hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Íslands, samþykkur þessu? Síðan segir: „Aðgerðirnar nú hljóta að auka dýrtíðina og rýra almenna kaupgetu.“ Er þetta álit stjórnar ASÍ rétt, hv. þm.? Að lokum segir í ályktun Alþýðusambandsins: „aðgerðirnar eru þannig síst til þess fallnar að greiða fyrir kjarasamningum.“
Er það líka álit hv. þm. Guðmundur J. Guðmundssonar, að með því að greiða atkv. með frv. um hækkun söluskatts sé hann að torvelda kjarasamninga? Ætlar hv. þm. að standa ábyrgur fyrir því sem formaður Verkamannsambands Íslands að torvelda gerð kjarasamninga með atkv. sínu hér á Alþ., eða er hann andvígur þessari niðurstöðu Alþýðusambands Íslands? Ef hann er sammála þessari afstöðu Alþýðusambands Íslands, en ætlar samt sem áður að greiða atkv. í berhögg við Alþýðusambandið, þá er hann að eigin áliti ekki bara að auka dýrtíðina og rýra almenna kaupgetu, heldur með atkv. sínu að torvelda gerð nýrra kjarasamninga. Ætlar hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson að láta neyða sig til þess?
Mér er sagt, að hv. þm. Guðrún Helgadóttir sé í stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Sú stjórn hélt fund um það mál sem hér er til umr. Ég veit ekki hvort hv. þm. og stjórnarmaður í bandalaginu hefur sótt þann fund. Ég veit það ekki, en ég vona það. Þessi fundur gerði ályktun, og mér er ekki kunnugt um annað en hún hafi verið gerð með atkvæðum allra stjórnarmanna, án þess að nokkur hafi skorist úr leik. Þar segir, með leyfi forseta:
„Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja mótmælir þeim starfsaðferðum ríkisstj. við undirbúning efnahagsráðstafana að hafa ekki samráð við samtök launafólks um heildarstefnu í þessum málum.“ Ég spyr: Er þetta skoðun stjórnarmannsins í BSRB, hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur? Mótmælir hún þessu líka, hv. þm., eða er hún neydd til þess að sætta sig við þetta? Í áframhaldi af þessari ályktun segir:
„Í lögum er gert ráð fyrir samráði við samtök launafólks og slík samráð eru einnig boðuð í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. En engin samráð hafa verið höfð við launþegasamtökin. Þær nýju stórfelldu álögur á almenning, sem þegar hafa verið samþykktar á Alþ. eða fyrirhugaðar eru samkv. stjórnarfrv., þ. á m. um orkujöfnunargjald, eru olía á verðbólgueldinn,“ segir stjórn BSRB. Er hv. þm. Guðrún Helgadóttir, sem á sæti í stjórn BSRB, sammála þessu? Er hún sammála því, að þær aðgerðir, sem hún hefur átt þátt í að samþykkja hér á Alþ., séu olía á verðbólgueld? Ef svo er, ef hún er samþykk því, hv. þm., gerir hún sér ljóst hvaða ábyrgð hún tekst á hendur með því að veita atfylgi sitt slíkum ráðstöfunum? Ef hún er ekki samþykk þessari niðurstöðu stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hefur hv. þm. þá látið það koma fram?
Þá segir einnig, að verðbólgueldurinn hljóti að magnast við gengislækkanir sem sífellt eru framkvæmdar. Er hv. þm. Guðrún Helgadóttir sammála þessu? Er hún sammála því, að þær gengislækkanir, sem ákveðnar eru af hennar eigin flokki í núv. hæstv. ríkisstj., séu þannig til þess fallnar að auka enn á verðbólgubálið, til viðbótar við þau mál sem hún sjálf hefur samþykkt hér í þinginu? Og ef svo er, ef hún er sammála félögum sínum í stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hvers vegna beitir hún þá atkvæðisrétti sínum hér á Alþingi Íslendinga til þess að standa að slíkum aðgerðum? Ef hún er ekki sammála félögum sínum í stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, af hverju gerir hún þá ekki grein fyrir þeirri sérstöðu sinni?
Okkur er uppálagt það, þm., að greiða atkvæði samkvæmt sannfæringu okkar. Hv. þm. Guðrún Helgadóttir er í samtökum sem hafa mótmælt athöfnum hennar hér á Alþingi Íslendinga. Ætlar þessi hv. þm. að standa að þeim mótmælum gegn henni sjálfri? Ætlar hún að greiða atkvæði hér á Alþ. með hægri hendi með aðgerðum sem magna verðbólgubálið, sem rýra kaupgetu almennings o. s. frv., o. s. frv., fara síðan út úr þessu húsi, setjast á stjórnarfund í launþegasamtökunum, sem hún er aðili að, og greiða þar atkvæði með hinni hendinni til þess að mótmæla þeim aðgerðum sem hv. þm. gerir hér á Alþingi Íslendinga.
Ég held að það sé óhjákvæmilegt, að þessir tveir hv. þm. geri grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls. Ég tel að það sé bráðnauðsynlegt, vegna þess að ég hreinlega trúi því ekki að til sé neinn sá aðili sem geti neytt þessa hv. þm. til að greiða atkvæði gegn félögum sínum í launþegasamtökunum og gegn þeirri sannfæringu sem þessir hv. þm. hafa haldið fram innan þessara launþegasamtaka að þeir hafi.
Hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sagði í umr. um þetta mál fyrir páskana að það væri ekkert að því að halda fund á Alþ. á skírdag því að þá væri fólk í frystihúsum og verkafólk við sjávarsíðuna að vinna. Það er rétt hjá hv. þm., að þá er launafólkið að vinna. Nú skyldi maður ætla, þar sem ekki var fundur hér á Alþingi Íslendinga á skírdag, að hv. þm., formaður Verkamannasambands Íslands, hefði notað tækifærið til þess að kalla framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands saman svo að henni gæfist tækifæri til að fjalla um þau skatthækkunarmál sem liggja fyrir Alþingi Íslendinga. Ríkisstj. hefur átt að hafa samráð við þessa aðila um þau, en hefur svikist um það. Framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands hefur nú verið kölluð saman af minna tilefni. Hefur þetta verið gert?
Ég er sennilega ekki fundarglaðari maður en hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson. En ég skal gera honum hér eitt tilboð í fullri alvöru. Nú skulum við nota tímann, hv. þm., og ganga um vinnustaði hér í Reykjavík, þar sem starfar fólk sem ber úr býtum lægstu launin í þessu þjóðfélagi og m. a. hv. þm. er sannur fulltrúi fyrir í stjórnmálalífinu. Hann er það, hefur ávallt verið það og er það enn — og verður það vonandi áfram. Við skulum nota frístundir okkar til þess að ræða við þetta fólk og spyrja það álits á þeirri aðgerð, sem verið er nú, að sögn hv. þm. Karvels Pálmasonar, að neyða hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson til að taka þátt í.
Ég held að þeir fundir væru mjög gagnlegir fyrir láglaunafólkið í Reykjavík. Og ég held að þeir fundir væru miklu gagnlegri fyrir hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson, vegna þess að staðreyndin er sú, hv. þm., að hér greinir á annars vegar „gáfumannafélagið“ í Alþb., sem flytur þessi skattahækkunarfrv., og hins vegar launafólkið í landinu, fólkið í Alþýðusambandinu og BSRB, sem látið hefur frá sér fara það álit sem ég las upp áðan á þessum aðgerðum. Hin einfalda samviskuspurning er sú: Með hvorum ætlar hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson að standa í þessum ágreiningi, samtökum launafólksins eða „gáfumannafélaginu“ í Alþb.? Það verður lærdómsríkt að sjá það. Ég held að það væri mjög æskilegt fyrir alla aðila að hv. þm. léti sér ekki nægja að greiða bara atkvæði um málið, heldur líka að gera grein fyrir því, einkum og sér í lagi ef hann greiðir nú atkvæði með „gáfumannafélaginu“ gegn verkalýðshreyfingunni, hvers vegna. Það getur vel verið hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson verði einhvern tíma aukafélagi í „gáfumannafélaginu“, en ég óska honum ekki svo slæmra örlaga, það verð ég að segja alveg eins og er. (Gripið fram í: Hverjir eru í þessu félagi?) Það er langbest að hv. þm. skýri það sjálfur, ég held að hann sé kunnugri öllum hnútum í þessum félagsskap en ég. Og ég tek það fram í þessu sambandi, að þetta ágæta orð bjó hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson til sjálfur, þekkir þetta sennilega miklu betur en flestir aðrir hér inni, e. t. v. að einum manni undanteknum. (Gripið fram í: Er hann í félaginu?) Ekki virtist það vera síðast þegar hann fjallaði um „gáfumannfélagið“, að hann væri í því. Hins vegar getur vel verið að það sé búið að draga hann í það núna. Ef svo er, þá er alveg víst hver hefur staðið fyrir því. (Gripið fram í: Þá er það súkkulaðidrengurinn.)
Herra forseti. Ég læt nú máli mínu lokið og ætla ekki að kveðja mér hljóðs aftur nema ástæða gefist til, sem e. t. v. verður, það er aldrei að vita. Þegar ráðh. eru farnir að tala fimm sinnum í einu og sama málin við eina og sömu umr., eins og gerðist hér í dag, þá er aldrei að vita nema þolinmæði okkar stjórnarandstæðinga bresti og við förum að halda lengri ræður en við ætluðum okkur upphaflega. Það verður að bíða og sjá til með það. Eini maðurinn, sem ég bíð eftir að hlusta á sérstaklega, er hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson og vonandi hv. þm. Guðrún Helgadóttir líka.
Að lokum ætla ég aðeins að benda á það enn og aftur, sem ég drap á í máli mínu áðan.
Í fyrsta lagi: Það er ekkert í þessu frv. sem skuldbindur þá, sem við fénu taka sem á að afla með frv., til að verja fénu til þeirra aðgerða sem látið er í veðri vaka í heiti frv. og í grg. með því að verið sé að afla fjár til. Því er spáð, að þessi hækkun á söluskatti muni skapa ríkissjóði auknar tekjur sem nemi um 2 milljörðum kr. fram yfir það sem nota þarf til að jafna kyndikostnað í landinu. Tekjuöflun með þessum hætti er auðvitað háð því, hver verðlagsþróunin í landinu verður. Ef verðlag í landinu hækkar meira en gert er ráð fyrir í þessari tekjuspá, þá verða auðvitað tekjur ríkissjóðs af söluskattshækkuninni þeim mun meiri. En upphæðin, sem á að ganga til verðjöfnunargjaldsins, er fastákveðin í fjárlögum. Hún hækkar ekki. Ef verðbólgan eykst, eins og allar líkur eru til, umfram það sem ráð er fyrir gert í frv., þá hækkar ekki sú fjárhæð sem verja á til jöfnunar kyndikostnaðarins, heldur hækkar sú fjárhæð sem ríkissjóður hefur í hreinar tekjur af þessari skattahækkun. Og ég ítreka: Það er ekkert, ekki einu sinni ákveðnar hundraðstölur af þeim tekjum sem aflað er í þessu skyni með 1.5% hækkun á söluskatti, sem bindur framlög til þeirra þarfa sem látið er í veðri vaka að vakað hafi fyrir mönnum með framlagningu frv. Þær ríkisstj., sem við taka geta notað þetta fé, sem aflað er með þessum sérstaka hætti, eins og þeim sýnist. Það er ekkert í frv. sem bindur menn til þess að nota þetta fé eða hluta þess til verðjöfnunar á kyndikostnaði. Og það sýnir auðvitað betur en flest annað, að það er ekki það sem vakir fyrir mönnum með samþykkt þessa frv., heldur fyrst og fremst að afla ríkissjóði almennra tekna. Þetta misrétti í húshitunarmálunum er svo notað sem eins konar skálkaskjól yfir þá athöfn.
Í öðru lagi er ekki heldur gert ráð fyrir því — það benti ég líka á í upphafi ræðu minnar — að þessi tekjuöflun taki neinn endi. Það er gert ráð fyrir því, að þetta sé almenn hækkun á söluskatti, og til þess að hún afnemist þarf að samþykkja lög sem fella þessi lög úr gildi. Og við vitum það, allir alþm., að slík lög verða aldrei samþykkt. Þegar þessi hækkun hefur einu sinni komist á, þá er hún komin á og mun verða að eilífu, þangað til söluskattur á síðasta stigi viðskipta verður afnuminn og látinn víkja fyrir öðru innheimtuformi. Þetta held ég að ýmsum stjórnarsinnum hafi sést yfir, þessar tvær staðreyndir, en ég held að þeir ættu að huga betur að þeim.
Að lokum, herra forseti, vil ég aðeins segja þetta: Stjórnmálaflokkar geta unnið landi sínu mikið gagn og látið mikið gott af sér leiða, þó að þeir séu ekki í ríkisstj. Sumir flokkar eru þannig, að þeim lætur betur og þeir gera landi sínu meira gagn í stjórnarandstöðu en í stjórnaraðstöðu. Það er ekki nokkur vafi á því. Og reynslan af undanförnum áratug hefur sýnt okkur fram á það, að Alþb. er slíkur flokkur. Alþb. lætur ekki að starfa í ríkisstj. Sem ríkisstjórnarflokkur gerir hann meira ógagn fyrir landslýðinn en gagn. Menn þurfa ekki annað en líta yfir valdaferil Alþb. s. l. tíu ár. Kaupmátturinn eftir þessi tíu ár er 10% minni en hann hefði verið, ef hinni umdeildu — og að áliti margra Alþb.-manna vondu stefnu viðreisnarstjórnarinnar hefði verið fylgt. Og hversu vond hefur þá ekki kjaramálastefna Alþb., sem hefur ráðið ferðinni í þessi tíu ár, verið? Hversu illa hefur þeim ekki tekist að vinna að hag þjóðarinnar, fyrst afleiðingarnar af stjórn þeirra eru svona miklu lakari fyrir launafólkið í landinu en verið hefði ef hin vonda viðreisnarstefna hefði fengið að lafa áfram.
Ég held að þetta sé augljósasta sönnun þess, að Alþb. er ekki flokkur sem getur verið í stjórn, vegna þess að það getur ekki látið þar gott af sér leiða. En það er ekki þar með sagt að Alþb. geti ekki gert landsfólkinu ýmislegt gott. Alþb. er ágætur stjórnarandstöðuflokkur, hentar ágætlega vel vegna eðlis flokksins til þess að veita ríkisstjórnum aðhald. Þar er verksvið Alþb.
Það er með Alþb. og Framsfl. nákvæmlega eins og áhöfn á skipi. Maður getur staðið sig vel á dekki þó hann henti ekki vel uppi í brú. Það held ég að verði íslenskum kjósendum ljóst hvenær svo sem þessu stjórnarfari lýkur, þar sem nokkrir þm. Sjálfstfl. hafa á elleftu stundu hlaupið undir bagga með Alþb. og Framsfl. til þess að hægt væri að viðhalda þeirri stjórnleysis- og óðaverðbólgustefnu sem tók hér við árið 1971. Þegar valdaferli þessar hæstv. stjórnar lýkur á ég ekki von á því, að neinir þm. verði lengur til þess að hlaupa undir okið. Þá held ég að þjóðinni verði ljóst að það sé rétt að gera tilteknar breytingar á áhöfninni á þjóðarskútunni til þess að ná betri árangri og breytingin sé fólgin í því, að þeir sem verið hafa í rórhúsinu s. l. tíu ár, verði fluttir fram í lúkar.