09.04.1980
Neðri deild: 57. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (1659)

135. mál, orkujöfnunargjald

Birgi Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Hér hafa nú verið haldnar langar og ítarlegar ræður um þetta mál og er eðlilegt að þm. sé mikið niðri fyrir þegar jafnmikil skatthækkun og raun ber vitni um er á ferðinni. En engu að síður hafi ég hugsað mér að flytja ekki langa ræðu, heldur drepa á nokkur atriði í þessu sambandi.

Það hefur verið vakin athygli á því við þessar umr., að frv. ber nafnið „frv. til l. um orkujöfnunargjald“, en ljóst er þó að þar er um rangnefni að ræða. Ég hygg að það sé fátítt á hv. Alþ. að þm. finni sig knúða til að flytja sérstakar brtt. við fyrirsögn frv., en hv. 1. landsk. þm., Pétur Sigurðsson, hefur flutt sérstaka brtt. og lagt til að fyrirsögn frv. verði réttilega breytt og orðist þannig: Frv. til l. um breyt. á lögum um söluskatt, nr. 10/1969, með áorðnum breytingum. Auðvitað er hér ekki um neitt annað að ræða en hækkun á söluskatti, sem á að hluta að nota til orkujöfnunar, en að hluta til almennrar eyðslu fyrir ríkissjóð.

Vandi þeirra, sem kynda með olíu, hefur oft verið til umr. á hv. Alþ. nú í vetur, og tilefni þeirra umr. hefur oftast komið frá þm. Sjálfstfl. Ég minni á frv. sem hv. 4. þm. Vestf., Þorv. Garðar Kristjánsson, flutti ásamt fleiri þm. í Ed., þar sem bent var á ákveðna leið til lausnar þessum vanda. Ég minni enn fremur á þáltill. hv. 11. landsk. þm. og hv. 7. landsk. þm., þeirra Egils Jónssonar og Halldórs Blöndals, þar sem þeir gerðu þetta að umtalsefni. Sú till. varð tilefni umr. í Sþ.

Ég hygg að flestir sjálfstæðismenn innan þings hafi verið og séu sammála um að ákveðnar aðgerðir séu nauðsynlegar til að koma til móts við það fólk sem býr við óheyrilegan upphitunarkostnað vegna síhækkandi olíuverðs. Auðvitað þarf að leita skynsamlegra leiða til slíkrar jöfnunar. Ég hef verið þeirrar skoðunar, að aðgerðir í þessu skyni eigi að markast frekar sem viðlagaaðgerðir þ. e. aðgerðir til að koma tímabundið til móts við þá sem í mestum erfiðleikum eiga, en ekki að festa ákveðið kerfi til langframa í þessu efni og umfram allt ekki að samþykkja neitt sem gæti orðið til að draga úr frumkvæði manna til að nota innlenda orkugjafa, þá einkum jarðhita og rafmagn. En það vekur sérstaka athygli við þetta frv., að engin tilraun er gerð til þess að gera tillögur um hvernig ráðstafa eigi því fjármagni sem til þessa er ætlað, og verður maður þá að líta svo á, þar til annað upplýsist, að reiknað sé með að sömu reglur eigi að gilda um þetta efni sem gilt hafa að undanförnu.

Þegar hinar miklu umræður um erfiðleika þeirra, sem hita með olíu, eru hafðar í huga vakti það óneitanlega athygli þegar fjárlagafrv. var lagt fram, það frv. sem afgreitt var fyrir páska, að þeir 2.3 milljarðar, sem voru í 2. útgáfu fjárlagafrv., voru teknir út úr frv. og boðuð var sjálfstæð skattlagning og þá helst í formi orkuskatts til að koma til móts við þennan vanda. Það stóð þó lengi á því að tillögur um orkuskatt sæju dagsins ljós. Það fór ekki milli mála að um þetta var ágreiningur innan ríkisstj., um þetta var þrefað lengi og niðurstaðan birtist svo í því frv. sem hér er til umr. Þá hafði verið horfið frá orkuskatti, en sérstakur söluskattsviðauki tekinn upp í staðinn. Síðari umr. um þetta mál og yfirlýsingar einstakra þm. og einstakra ráðh. benda til þess, að ágreiningurinn hafi aðallega legið þannig að Framsfl., þ. e. ráðh. Framsfl., hafi verið á móti sérstökum orkuskatti, en Alþb. með orkuskatti, en þetta frv. hafi verið sú leið sem endanlega varð ofan á.

Þegar ljóst var og það spurðist út, að ágreiningur var á milli Framsfl. og Alþb. um að leggja sérstakan skatt á í þessu skyni, þá byggðu menn að sjálfsögðu miklar vonir við ráðh. Sjálfstfl. í hæstv. ríkisstj., ekki síst vegna þess að skattalækkanir höfðu verið á stefnuskrá þeirra eins og annarra sjálfstæðismanna fyrir síðustu þingkosningar. Og það lyftist heldur betur brúnin á þeim, sem eru á móti skattahækkunum, þegar hæstv. forsrh. gaf mjög afdráttarlausar yfirlýsingar um það í dagblaðinu Vísi, þ. e. á beinni línu, að skattar yrðu ekki hækkaðir. Það vakti vissulega vonir um að farnar yrðu aðrar leiðir í þessu efni, — leiðir sem vissulega voru færar, eins og fram kom í brtt. sem þm. Sjálfstfl. fluttu við fjárlagafrv. Þetta stjfrv. olli því verulegum vonbrigðum. Það virðist svo vera af þeim umr., sem fram hafa farið um þetta mál eftir á, a. m. k. hefur ekkert annað komið fram, að þeir ráðh. í hæstv. ríkisstj. sem tilheyra Sjálfstfl., hafi ekki haft ákveðna eða sjálfstæða skoðun á því, hvor leiðin skyldi farin. Og það fór ekkert á milli mála að ákvörðunin um lækkun úr 2 söluskattsstigum í 1.5 söluskattsstig var tekin á þingflokksfundum Alþb. og Framsfl. s. l. þriðjudag.

Það er margt athugavert við undirbúning og meðferð þessa máls. Þegar hæstv. fjmrh. lagði frv. fram fyrir páska flutti hann ræðu til rökstuðnings því, að nauðsynlegt væri að leggja á 2 ný söluskattsstig. Hann gat þess jafnframt að það mundi gefa í tekjur á þessu ári 7 milljarða, en af þeim áttu 4 að ganga til niðurgreiðslu á olíu eða til olíustyrks, hálfur milljarður til sérstakra orkusparandi aðgerða, en afgangurinn átti að renna í ríkissjóð sem almenn eyðsla. Daginn eftir voru komnar nýjar upplýsingar. Þá lá ljóst fyrir að fjmrh. hafði farið með rangt mál. Í stað þess að frv. gæfi 7 milljarða á þessu ári lá ljóst fyrir að það mundi gefa 8–9 milljarða og það mundi gefa 11–12 milljarða í tekjur á heilu ári, en af þessum upphæðum áttu aðeins 4 milljarðar að renna til olíustyrks.

Þá hófust fundarhöldin miklu sem við urðum vitni að í þingflokkum Alþb. og Framsfl. á þriðjudag, og spurðist fljótlega út af þeim fundum að það væri orðin niðurstaða að lækka söluskattsstigin úr 2 í 1.5. Varla var þessum þingflokksfundum lokið fyrr en hv. 4 þm. Reykn., Geir Gunnarsson, mælti fyrir brtt. við fjárlög um að orkujöfnunargjaldið ætti að gefa 6 milljarða í tekjur í staðinn fyrir 7 milljarða, en olíustyrkurinn þó áfram að vera 4 milljarðar. Þannig átti áfram að taka hluta af þessu gjaldi í ríkissjóð. Það átti að halda því áfram, sem að var stefnt upphaflega, að nota það sem almenna tekjuöflun fyrir ríkissjóðshítina.

Auðvitað er ósæmilegt með öllu að nota sér mál eins og þetta, að nota sér bágindi fólks sem á um sárt að binda, til að auka tekjur ríkissjóðs. Allur undirbúningur þessa máls er með eindæmum. Hér voru gefnar rangar upplýsingar, lagðir fram vitlausir útreikningar og fyrirsögn frv. er röng. Allt þetta er hæstv. ríkisstj. til vansæmdar og ber vott um flaustursleg vinnubrögð, stefnuleysi og rótleysi.

En það er fleira í undirbúningi og málsmeðferð sem athygli vekur. Hefur það reyndar verið gert ítarlega að umræðuefni við þessa umr. og skal ég ekki fara nákvæmlega út í það, en get þó ekki annað en minnst á hversu gjörsamlega hafa verið sniðgengin ákvæði laganna um stjórn efnahagsmála, svokallaðra Ólafslaga, sem samþ. voru á Alþ. í fyrravetur. Í þessum lögum er, eins og rakið hefur verið af öðrum hv. þm., sérstakur kafli sem heitir: „Um samráð stjórnvalda við samtök launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda.“ Í 3. gr. segir:

„Efla skal reglubundið samráð og samstarf stjórnvalda og launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda í efnahags- og kjaramálum.“

Í 4. gr. segir hverjir skuli vera þátttakendur í þessu samráði. Það eiga að vera fulltrúar launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda og opinberra aðila. Og í 5. gr. er ákvæði um hver eigi að vera verkefni þessa samráðs. Þar segir m. a. í 2. tölul., að það eigi að vera verkefnið að fjalla um þjóðhags-, fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir, tekjustefnu og forsendur þeirra.

Það hefur verið rakið af öðrum hér, að þetta var að engu haft og þessi samráð voru gersamlega sniðgengin við undirbúning þessa máls. En það er athyglisvert að rifja upp sögu þessa ákvæðis og hvernig það er til komið í lögin.

Í upphaflegu lagafrv. Ólafs Jóhannessonar, sem hann lagði fram í febr. í fyrra, var gert ráð fyrir samráði, en það átti að vera með ákveðnum hætti. Þar var gert ráð fyrir að sett yrði á stofn sérstakt kjaramálaráð sem hefði með höndum viðræður við samtök launafólks. Þessu hafnaði Alþb. alfarið í umræðum um þetta frv. og Alþb.-menn skrifuðu um það í málgagn sitt og héldu um það ræður á hv. Alþ. að slíkt fyrirkomulag samráðs væri með öllu óhæft. Þeir vildu alls ekki setja á fót sjálfstæða, sérstaka stofnun, sem héti kjaramálaráð, heldur vildu þeir koma á virku og lifandi samstarfi við samtök launafólks. Og þegar frv. loksins, eftir margra vikna samningaviðræður innan ríkisstj. og milli ríkisstjórnarflokkanna, sá dagsins ljós í apríl í fyrra hafði þessu verið breytt í það form sem það er nú í II. kafla laganna. Það var ein af fjöðrunum í hatti Alþb. að þessu ákvæði var breytt. Það var ein af niðurstöðum margra vikna samningaþófs milli stjórnarflokkanna um þetta mál. Og Alþb.-menn hældust sérstaklega um af því að þessu ákvæði hefði verið breytt í þetta form. Það var stolt hæstv. félmrh. Svavars Gestssonar, það var stolt hæstv. fjmrh. Ragnars Arnalds að hafa getað fengið þessu breytt, að hafa getað fengið breytt ákvæðinu í form sem fæli í sér virkara samstarf og virkara samráð milli ríkisvaldsins og samtaka launafólks.

Nú eru þessir hæstv. ráðh. í lykilstöðu til að framfylgja þessu ákvæði, til að koma á því virka samráði sem þeir hældust um fyrir ári að hafa komið í lög. En nú sjáum við árangur þess í þeim frv. sem þeir keppast um að leggja fram á Alþ., um hækkaðan söluskatt, um hækkaðan tekjuskatt, um hækkaða skatta á ýmsum öðrum sviðum, að þetta er gjörsamlega sniðgengið. Það var ekki fyrr en þingnefndin hér í hv. d. gerði kröfu um að kallaðir væru á fund fulltrúar BSRB og Alþýðusambands Íslands til að tjá sína skoðun á þessu frv. að fulltrúar þessara samtaka fengu að tjá sig. Ég ætla ekki að rekja þá skoðun, hún kemur fram í þingskjölum, hún kemur fram í fskj. með nál. þeirra þm. Matthíasar Á. Mathiesen, Alberts Guðmundssonar og Sverris Hermannssonar. En önnur samtök launþega hafa ekki verið kölluð til Hvað með samráðið við bændur, sem áskilið er í þessum lögum, hvað með samráðið við sjómenn, sem áskilið er í þessum lögum? Allt þetta hefur verið gjörsamlega sniðgengið. Sýnir þetta betur en flest annað hvern hug hæstv. ráðh., og þá ekki síst hæstv. ráðh. Alþb., sem í orði kveðnu telja sig sérstaka samstarfsaðila verkalýðshreyfingarinnar, bera í raun til þessara samtaka. .

Ég minntist áðan á brtt. sem hv. 1. landsk. þm., Pétur Sigurðsson, hefur flutt. Hún er efnislega á þá leið að breyta fyrirsögn frv. í það rétta horf, að hér sé um að ræða breytingu á lögum um söluskatt. Ef brtt. verður samþ. og frv. að öðru leyti breytt í samræmi við það munu sveitarfélögin fá sinn hlut af þessum söluskattsauka. Því er enn möguleiki á því hér á hv. Alþ. að sveitarfélögin fái auknar tekjur og því möguleiki á að draga úr líkum á því að sveitarfélögin þurfi að nota það 10% álag sem hér var samþykkt á sínum tíma, þ. e. þurfi að fara upp í 12.1% af brúttóútsvarsstiganum.

Við þm. Sjálfstfl., sem ekki styðjum þessa ríkisstj., höfum talið óþarfa að leggja á sérstakan nýjan skatt eða skatta til að bregðast við þeim vanda sem við er að glíma. Við erum á móti sérstökum orkuskatti, við erum á móti sérstökum söluskattsauka eða sérstöku orkujöfnunargjaldi, eins og hér hefur verið lagt til. Í samræmi við það fluttu tíu þm. Sjálfstfl. brtt. við fjárlagafrv. Það var hv. 4. þm. Vestf., Þorv. Garðar Kristjánsson, sem var 1. flm. þeirrar till. og flutti fyrir henni ítarlega framsögu í Sþ. fyrir páska. Þar var bent á þá leið að taka 5 milljarða úr ríkissjóði í Orkusjóð, en lækka niðurgreiðslur að sama skapi. Það er mun eðlilegri leið en að leggja á aukna skatta í þessu skyni.

Það vekur líka athygli í þessu sambandi, að þrátt fyrir miklar umr. um þetta vandamál og þrátt fyrir að ýmsir hv. þm., sem styðja þessa ríkisstj., hafi talað mikið, sumir digurbarkalega, um nauðsyn þess að ráðast gegn þeim vanda sem fólkið, sem hitar upp með olíu, á við að glíma, þá er ekki gert ráð fyrir í frv. að það verði neitt lengra komið til móts við það en raunverulega er gert með þeim reglum sem nú eru. Þvert á móti þyngir þessi leið, sem hér er farin, hlut þessa fólks vegna þess að söluskatturinn leggst að sjálfsögðu á það með fullum þunga eins og aðra landsmenn.

Þegar þetta söluskattsfrv. bætist ofan á þau mörgu frv. sem eru að tínast inn á Alþ., að því er manni virðist skipulagslítið, um hverja skattahækkunina á fætur annarri, hlýtur maður að spyrja sjálfan sig: Hvers vegna allt þetta ráðleysi? Hvers vegna er þessi lélegi undirbúningur af hálfu hæstv. ríkisstj. þannig að gjörbreyta þarf frv. frá degi til dags eftir því sem nýjar upplýsingar koma fram? Ég held að svarið liggi í augum uppi. Það er augljóst að innan ríkisstj. er engin ákveðin stefna í efnahagsmálum eða fjármálum. Það kom glögglega fram þegar fjárlagafrv. var afgreitt, að þar er ætt áfram í sama ráðleysinu, í sömu óvissunni, án þess að nokkuð sé reynt að horfa fram á veginn. Það er sama ráðleysið og var hjá þeirri vinstri stjórn sem hér sat á síðasta ári og fór frá í október í haust.

Þessi stjórn er reikul í ráði, hún virðist hrekjast fyrir veðrum og vindi. Ég held að um hana megi segja eins og Jóhann Sigurjónsson sagði í einu kvæða sinna:

Reikult er rótlaust þangið, rekst það um víðan sjá. Straumar og votir vindar velkja því til og frá.