09.04.1980
Efri deild: 60. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)

135. mál, orkujöfnunargjald

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég mun reyna að verða ekki til þess að rjúfa heitstrengingar Ed. um að afgreiða málið á umsömdum tíma. Um örfá atriði langaði mig til að leggja orð í belg.

Það fer auðvitað ekki milli mála að hér er um stórmál að ræða þar sem er annars vegar niðurgreiðsla á olíu til húshitunar. Ég hygg að það séu engar ýkjur að víða úti um landsbyggðina hafi menn áhyggjur af því að hinn óbærilegi hitunarkostnaður muni óhjákvæmilega valda verulegri búseturöskun ef ekki verður eitthvað að gert. Það mun í sumum tilfellum kveða svo rammt að þessum þungbæru útgjöldum að meira en helmingur venjulegra daglauna verkamanns fari til að borg hitun hússins og er þá í nokkurt óefni komið.

Ég hlýt að taka undir orð hv. 4. þm. Vestf. um að þessir 4 milljarðar muni því miður ekki hrökkva mjög langt til að létta undir með þessu fólki. Þess ber og að geta og leggja áherslu á að þau 25% landsmanna, sem ekki njóta nú jarðvarma í upphitun, greiða sinn hluta af hinum aukna söluskatti, sem ég hygg muni nema um 1 milljarði af þessum 4. Ég veit að erfitt er að haga olíustyrk þannig að hann komi eins réttlátlega niður og æskilegt er og þá fyrst og fremst með það fólk í huga sem býr við olíuhitun. Ég tek einnig undir að það þyrfti eftir einhverjum leiðum að finna þessum styrk betri farveg en tíðkast hefur hingað til. En út í það skal ég ekki fara nánar.

Það, sem var helsta tilefni þess að ég kvaddi mér hér hljóðs, var atriði sem raunar aðrir ræðumenn hafa minnst á. Það er hið svokallaða samráð við aðila vinnumarkaðarins sem nú upp á síðkastið er orðið eitt af skrautorðum, slagorðum í íslenskri pólitík. Mér fannst að það hljómaði undarlega í eyrum þegar ég hlustaði á sjálfan fjmrh., fulltrúa þess flokks sem hvað hæst hefur hampað þessum hugsjónum um samráð við launþega. Hann telur það hjal út í bláinn þegar fundið er að því að við meðferð þessa máls hafi verið sveigt allmikið frá fyrirheitum og raunar lagafyrirmælum um slíkt samráð.

Hv. 5. þm. Vesturl. vitnaði í svokölluð Ólafslög um ákvæði hér að lútandi, sem eru allafdráttarlaus, um að þetta samráð skuli haft. Það var ekki látið sitja við lögin ein saman. Í anda þeirra og beint á þeim byggð var gefin út reglugerð s. l. haust, sem byggðist á þessu ákvæði í efnahagslögum Ólafs Jóhannessonar frá aprílmánuði 1979, þar sem kveðið er mjög nákvæmlega á um hvernig samráði skuli hagað. Segir, með leyfi forseta, í 1. gr. reglugerðarinnar:

„Ríkisstj. mun beita sér fyrir reglubundnu samráði og samstarfi við eftirtalin samtök launafólks, bænda og atvinnurekenda um efnahags- og kjaramál með samráðsfundum og gagnkvæmri upplýsingamiðlun.“

Síðan eru taldir upp þeir hópar sem eiga skulu aðild að þessari samráðsnefnd. Þar er efst á blaði Alþýðusamband Íslands, síðan Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, BSRB, BHM, Samband ísl. bankamanna, Stéttarsamband bænda, Samband ísl. sveitarfélaga, Vinnumálasamband samvinnufélaganna, Vinnuveitendasamband Íslands. Þetta eru níu aðilar. En síðar í reglugerðinni er kveðið á um hve margir fulltrúar frá hverju skuli skipa samráðsnefndina. Samtals eru það 20 manns.

Ég vil ekki gera lítið úr því að hér liggi góður vilji á bak við. En þessi nefndarskipun ein með 20 manna aðild gefur sannarlega ekki vonir um að slík nefnd næði miklum árangri. Það má líka deila um með hverjum hætti þetta samráð geti tekist í raun, hvað sem sett er í lög og reglugerðir. En það verð ég að segja um rök hæstv. fjmrh. um að samráð hefði verið haft um frv. sem hér liggur frammi um orkujöfnunargjald, að það hefur verið haft á þann hátt að lagafrv. var lagt fram í fjh.- og viðskn. hinn 1. apríl s. l., þegar að sjálfsögðu allar ákvarðanir höfðu verið teknar í málinu og ætlunin var að hespa málið af á einum til tveimur dögum, enda er það orða sannast að þeir fulltrúar launþegasamtakanna, sem hér hefur verið vitnað í, talsmenn BSRB og ASÍ, sem komu þarna báðir, m. a. forseti ASÍ, voru býsna framlágir og býsna hnuggnir á fundi fjh.- og viðskn. Og þótt þeir væru ekki orðmargir var greinilegt að þeim var allmikið niðri fyrir og þótti að lítið væri gert úr efndum stórra loforða.

Ég er ákaflega hlynnt samráði við launþegasamtökin. Ég hugsa þó að við séum öll sammála um að launþegasamtökin í landinu geta aldrei sagt Alþ. og ríkisstj. fyrir verkum, hvað eigi að gera þegar stórar ákvarðanir í efnahags- og almennum peningamálum standa fyrir dyrum á Alþingi. Ég tel samráð mjög mikilvægt og nauðsynlegt í þeim tilgangi að reyna einmitt að halda upplýsingamiðlun í gangi, reyna í samráði og samræðum við þessa aðila að sætta sjónarmið áður en til árekstra kemur í illvígum kjaradeilum, auka skilning forsvarsmanna launþegasamtakanna á ákvörðunum sem Alþ. og ríkisstj. telur nauðsynlegt að gera hverju sinni. En hitt er auðvitað stórhættulegt, ef Alþ., kjörið af hinum almennu kjósendum í landinu, á að hlíta fyrirmælum þessara aðila.

Það var að vonum að hv. 5. þm. Vesturl. fengi sitt frá fyrrv. samstarfsráðh. þeirra kratanna um að lítið hefði farið fyrir þessu samráði í tíð vinstri stjórnar sem Alþfl. átti aðild að. Auðvitað var það alveg sama sagan. Alþfl. hefur síst af miklu að státa í þessum efnum. Það var talað hátt, að ég ekki segi gatað hátt, í kosningabaráttunni 1978 um kjarasáttmála sem Alþfl. setti allt sitt traust á. Og þá var líka galað hátt af Alþb.-mönnum, sem sögðu að hornsteinn stjórnarsamstarfs, sem þeir ættu aðild að, yrði einmitt traust samráð við launþegasamtök landsins. Ég held þess vegna að alveg nauðsynlegt sé að stjórnvöld geri heiðarlega grein fyrir því, hvað átt er við með hinu margumtalaða samráði við launþegasamtökin. Hingað til hefur þetta reynst glamur eitt og notað í harðvítugri kosningabaráttu til að smjaðra fyrir hinu vinnandi fólki í landinu og fá það til að bíta á hið pólitíska agn sem þarna þótti tiltækast til að afla hinum svokölluðu verkalýðsflokkum fylgi.

Ég held að það hljóti að koma að því að hinn almenni launþegi í landinu og þjóðin öll láti ekki lengur hafa sig að fíflum í þessu efni. Og það er tími til kominn að ríkisstjórnir á Íslandi hætti að setja slíkt sem þetta í stjórnarsáttmála ef þær eru hugsanlega fyrir fram ákveðnar í að standa ekki við gefin heit, þ. á m. núv. ríkisstj. sem segir í stjórnarsáttmála að leggja eigi höfuðáherslu á þetta títt umtalaða samráð. Ég held að tími sé til kominn að fólk opni augun og fari að hugsa um hver raunverulega er tilgangurinn með slíkum yfirlýsingum. Og þótt ég geri mér grein fyrir því og hæstv. fjmrh. hefði að sumu leyti rétt að mæla þegar hann talaði um að ekki væri hægt að hlaupa með alla skapaða hluti og leggja til umsagnar allra aðila vinnumarkaðarins, þá verður að standa betur að en gert hefur verið.

Ég held að sá trúnaðarbrestur, sem talað er um að orðinn sé á milli almennings og íslenskra stjórnmálamanna, verði ekki minni við þessar aðgerðir núv. ríkisstj., sem hét því í upphafi ferils síns að hækka ekki og þyngja ekki skattabyrðina frá fyrrv. vinstri stjórn, en gengur nú á undan með meiri og þungbærari skattaálögum, en dæmi eru til.