10.04.1980
Efri deild: 62. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1846 í B-deild Alþingistíðinda. (1690)

135. mál, orkujöfnunargjald

Frsm. 1. minni hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. N. hefur fjallað um þetta mál og vil ég þakka meðnm. mínum fyrir snör handtök og góðan samvinnuvilja við afgreiðslu málsins milli funda í dag.

Eins og fram hefur komið í umr. er þetta frv. flutt af ríkisstj. Af hálfu fjmrh. og í öðrum umr. í þinginu hafa komið fram þær meginröksemdir sem liggja að baki þessu frv. Sé ég ekki ástæðu til að tíunda þær hér, en við stuðningsmenn ríkisstj. sem myndum 1. minni hl. fjh.- og viðskn., leggjum eindregið til að frv. verði samþykkt.