10.04.1980
Efri deild: 62. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1846 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)
135. mál, orkujöfnunargjald
Frsm. 2. minni hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Það varð ekki samkomulag um þetta mál í hv. fjh.- og viðskn. Við í 2. minni hl. fjh.- og viðskn. lítum á þetta frv. sem skattheimtufrv. og í þetta sinn er um að ræða hækkun á söluskatti. Við erum þess vegna andvíg frv. og leggjum til að það verði fellt.
Við vekjum enn athygli á því, að frv. þetta er flutt undir því yfirskini að útvega fjármagn til að standa undir niðurgreiðslu á olíu til upphitunar húsa. Við erum þeirrar skoðunar, að jöfnun upphitunarkostnaðar og niðurgreiðsla á olíu í því skyni sé svo stórt og sjálfsagt mál að ekki komi annað til álita en veitt sé fjármagn til þess af almennum skatttekjum ríkissjóðs, eins og verið hefur á undanförnum árum. Við lítum svo á, að með því að fara þá leið, sem hæstv. ríkisstj. gerir í þessu máli, sé hún að finna tækifæri og tilefni til að stofna til aukinnar skattheimtu, og teljum ekki á bætandi í því efni. Við. minnum á að Sjálfstfl. lagði til við afgreiðslu fjárl. að veittir yrðu á árinu 1980 5 milljarðar til niðurgreiðslu olíu og það yrði gert án þess að auka skattheimtu ríkissjóðs. Við erum enn á sömu skoðun, að það sé hin eðlilega leið.
Nú er ákveðið í fjárlögum þeim sem nú hafa verið samþ. fyrir þetta ár að einungis sé varið 4 milljörðum til niðurgreiðslu olíu. Það fylgir þó böggull skammrifi. Ef ríkisstj. fær vilja sínum framgengt er gert ráð fyrir að það fólk, sem býr við vanda olíukostnaðarins, þurfi, ef svo mætti að orði komast, að greiða fyrir þá aðstoð sem felst í þessum 4 milljörðum. Það á að skattleggja þetta fólk til að standa undir fjárútlátum ríkissjóðs því sama fólki til aðstoðar. Við teljum að farið sé rangt að. Í raun og veru sé það svo, að bæði upphæð olíustyrksins, 4 milljarðar eins og ákveðið er í fjárlögunum sem nú hafa verið samþykkt, og fyrirætlanir um skattheimtu þá, sem frv. þetta fjallar um, þýði að olíukyndingarfólkið, sem menn hafa svo mjög rætt um á undanförnum vikum og mánuðum varðandi aðstoð til þess að fá aukna aðstoð frá því sem verið hefur, standi ekki einu sinni jafnfætis því sem það stóð eða hefur staðið, heldur verði hlutur þess enn lakari en hann hefur verið.