12.12.1979
Sameinað þing: 1. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (17)
Kosning forseta og skrifara
Forseti (Jón Helgason):
Ég vil þakka hv. alþm. það traust, sem þeir hafa sýnt mér, og láta í ljós ósk um góða samvinnu. — [Fundarhlé.]
Hinn kjörni forseti lét fara fram kosningu 1. varaforseta. Kosningu hlaut
Gunnar Thoroddsen, 8. þm. Reykv., með 41 atkv. — Karl Steinar Guðnason, 3. landsk. þm., hlaut 10 atkv., en 9 seðlar voru auðir.
Annar varaforseti var kosinn.
Karl Steinar Guðnason, 3. landsk. þm., með 37 atkv. -Friðjón Þórðarson, 2. þm. Vesturl., hlaut 22 atkv., en 1 seðill var auður.
Þessu næst voru kosnir skrifarar. Fram komu tveir listar. Á A-lista var FrS, en á B-lista JE. — Þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kjörnir væru án atkvgr.:
Friðrik Sophusson, 10. þm. Reykv., og
Jóhann Einvarðsson, 5. þm. Reykn.
Þá fór fram kosning kjörbréfanefndar. Fram komu fjórir listar með jafnmörgum nöfnum samtals og menn skyldi kjósa. Samkvæmt því lýsti forseti yfir að kjörnir væru án atkvgr.:
Friðjón Þórðarson (A),
Ólafur Jóhannesson (B),
Birgir Ísl. Gunnarsson (A),
Skúli Alexandersson (C),
Jóhanna Sigurðardóttir (D),
Tómas Árnason (B),
Friðrik Sophusson (A).