10.04.1980
Neðri deild: 59. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1705)
109. mál, tollskrá
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fjh.- og viðskn. fyrir að hafa afgreitt málið frá n. þó að með annmörkum sé. Ég held að öllum hv. alþm. sé ljóst að þessi lagabreyting, sem var lögð fram í byrjun þessa þings, hefur orsakað að þeirri úthlutun, sem öryrkjar eiga að fá árið 1980, hefur verið frestað. Það er búið að úthluta þessum 400 bifreiðum, en ekki búið að tilkynna úthlutun vegna þess að beðið er eftir örlögum þess frv. til l. sem hér er til umr.
Þegar ég flutti framsögu fyrir þessu máli fyrr á þinginu óskaði ég sérstaklega eftir að því yrði hraðað, einmitt með tilliti til þess sem ég hef áður sagt. Þær undirtektir, sem frv. fékk í d., voru þess eðlis að gera mátti ráð fyrir að svo yrði. Hins vegar hafa örlögin orðið þau, að þessi dráttur er á orðinn. Einmitt vegna þess, sem hér hefur komið fram, vil ég rifja upp, að þegar þessi lagabreyting var gerð 1979 fórum við þáv. flm. þess máls mjög vandlega í málið hjá þeim stofnunum sem um þetta eiga að fjalla, þ. e. fjmrn. og tollayfirvöldum, í samráði við samtök öryrkja. Niðurstaðan varð sú, að talið var neikvætt að setja í vald fjmrh. að gera þá breytingu, sem hér hefur verið lögð fram brtt. um, að hækka eftirgjöfina árlega með tilliti til verðlagsþróunar eða breytingar á vísitölu. Það var talið svo flókið mál og mundi hafa þau eftirköst gagnvart ýmsum öðrum þáttum, að þessir opinberu aðilar töldu það neikvætt og vildu ekki fallast á það. Þar af leiðandi var lagafrv. afgreitt á þinginu 1979 í sama formi og hér liggur fyrir í frv. á þskj. 167, þannig að það var ákveðin upphæð samþykkt. Hins vegar tökum við fram í grg. með frv. á þskj. 167 að við flm. höfum þá skoðun að rétt væri að athuga hvort setja ætti í lögin ákvæði um að heimila fjmrh. að hækka árlega niðurfellingu gjalda, þar með talið innflutningsgjald, í samræmi við verðlagsbreytingar, og það komi í stað lagabreytingar.
Það hefði verið æskilegt í þessu tilfelli að fjh.-og viðskn. hefði haft aðstöðu til að fá umsögn fjmrn., embættis tollstjóra og úthlutunarnefndar og samtaka öryrkja um málið til að hægt væri að fjallaum það ítarlegar, en eins og fram kom hjá frsm. n. hefur ekki gefist tími til þess. Ég hefði talið eðlilegt að fara fram á það nú í hv. d. við þá aðila, sem flytja brtt., að þær yrðu dregnar til baka, en gefið vilyrði um að málið yrði tekið til athugunar fyrir næsta þing og þá miðað við að gera fleiri breytingar og víðtækari á ákvæðunum um bifreiðar til öryrkja, þá ekki hvað síst miðaðvið þær aths. sem komu fram hjá hv. 6. þm. Norðurl. e., sem eru alveg réttmætar, og margar fleiri aths. hafa verið gerðar í umfjöllun um þetta mál. Öryrkjarnir sjálfir eða samtök þeirra hafa jafnvel ýmislegt um þetta ákvæði í lögum að segja. Ég hefði þess vegna talið að æskilegt væri, ef orðið gæti um það samkomulag hér, að afgreiða frv. óbreytt nú til að flýta fyrir þeirri afgreiðslu sem þegar er búið að úthluta eftir, en samkomulag yrði um það í hv. deild að þm. kæmu sér saman um að undirbúa heildarlöggjöf um þetta atriði og jafnvel taka fleiri atriði inn í það fyrir næsta reglulegt Alþingi.
Ég held að við gerðum þeim öryrkjum, sem bíða eftir breytingu, mestan greiða með því að afgreiða málið á þennan hátt. Ég er ekki þar með að tala gegn brtt. sem hér liggja fyrir, því efnislega er ég þeim samþykkur. En ég þykist vita af þeirri reynslu sem ég hef fengið í samtölum við þá aðila sem um málið eiga að fjalla, að það getur orðið erfitt að afgreiða svona breytingu á síðustu stundu án þess að þessir aðilar hafi fengið um slíkt að fjalla og gera aths. Ég vil þess vegna endurtaka að ég óska eftir því í fyllstu einlægni að hægt væri að koma sér saman um þetta til að flýta málinu í gegnum þingið nú.