10.04.1980
Neðri deild: 59. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1853 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)
109. mál, tollskrá
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég hugðist bera fram sömu ósk til flm. brtt., að þeir drægju þær til baka a. m. k. til 3. umr. En út af því, sem hér hefur verið sagt í sambandi við umfjöllun á þessu máli í n., tók ég skýrt fram að það var ósk n. og ætlun hennar að flýta fyrir því að fjárhæðir eftirgjafar mundu hækka. Það má vel vera að ýmsir þdm. þurfi að fá umsagnir um hvort fjárhæð eigi að hækka úr 500 þús. í 750 þús. eða úr 1 millj. í 1500 þús. Nefndin taldi samt enga ástæðu til að leita neinna umsagna um það. Við töldum enga ástæðu til að kalla á embættismenn og spyrja þá hvort þeim þætti eðlilegt að hækka um eina fjárhæð eða aðra. Okkur þótti þetta vera algerlega pólitískt mál sem þyrfti engrar umsagnar við og svo einfalt að við þyrftum út af fyrir sig ekki að liggja mjög lengi yfir því. Það var ljóst að eftirgjöfin mundi þýða 200 millj. kr. tollatap miðað við að þessar bifreiðar væru keyptar hvort eð væri, sem má sjálfsagt draga í efa. Það var þó fyrst og fremst málið sem þurfti að taka ákvörðun um og það gerðum við eftir að fjárlagaumfjöllun var komin vel á veg.
Ég verð að segja það um brtt. frá hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur, að sjálfsagt er mikið nauðsynjamál að lækka þau mörk sem þar er um að tefla, því mér skilst að það, sem hún á við, sé að þessir aðilar geti fengið úthlutun fyrr í seinni skipti. En það er ekki nóg að gera slíka breytingu því það eru biðlistar og ekki hægt að uppfylla allar þær umsóknir sem berast..Mér finnst það út af fyrir sig breyting sem lítt væri til bóta á þessari löggjöf að stytta þennan tíma án þess að fjölga leyfum og setja þá meira fjármagn til þessara hluta. Að mínu mati er nóg af alls konar biðlistum og hraðlistum og forgangslistum í kerfi okkar og verið að hlaða þeim upp. Mér finnst ekki vera mjög heiðarlega að staðið að fara að breyta löggjöf ef slíkt hefði einungis í för með sér að biðlistarnir yrðu lengri. En ég tel að ef þessi brtt. á að koma til atkv. þurfum við að taka málið fyrir að nýju í nefndinni.
Ég er sammála mörgu af því sem hv. þm. Árni Gunnarsson sagði áðan. Ég er þess fullviss að taka þarf þessa löggjöf til endurskoðunar. Það, sem hér er um að ræða, er þó fyrst og fremst að hækka fjárhæðir þannig að úthlutun geti farið fram núna. Í sjálfu sér væri þá mjög æskilegt að áhrif breytinga, sem þessar brtt. hafa í för með sér og kannske ýmsar aðrar, gætu legið fyrir fljótlega í skýrslu t. d. með þeim hætti að hæstv. ráðh. skipaði nefnd til að fjalla um það eða þá að nokkrir þm. tækju sér fyrir hendur eða jafnvel n. að endurskoða þessa löggjöf. En ég vil taka það skýrt fram, að það var ósk, n. og stefna hennar að greiða fyrir því að hækkun á upphæðum eftirgjafarinnar gæti náð fram að ganga helst fyrir páska. Hún taldi sig ekki þurfa neinar umsagnir um það og málið fékk alveg nægilega umhugsun og umfjöllun í n. því okkur þótti ekki erfitt að huga að því hvort fjárhæð hækkaði úr 1 millj. í 1500 þús.