14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)

11. mál, útibú frá Veiðimálastofnun

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Atvmn. Sþ. hefur fjallað á fundum sínum um till. til þál. um útibú frá Veiðimálastofnuninni á Austurlandi og leitað umsagnar frá veiðimálastjóra um þetta mál. Hefur það orðið niðurstaðan, að mæla með samþykkt till. eins og hún er á þskj. 11.