14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (1727)

11. mál, útibú frá Veiðimálastofnun

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Það er myndarlegt að tarna. Það lá ljóst fyrir að þingheimur var tilbúinn til þess að samþykkja þáltill. um að stofna útibú frá Veiðimálastofnuninni á Austurlandi. En þegar kom til kasta fjárveitingavaldsins var enginn eyrir til að sjá af til þeirra starfa. Það er auðvitað gersamlega þýðingarlaust að standa þann veg að málum eins og hér ber raun vitni um. Ég hef ekkert um málið annað að segja en það, að ég fylgi því fram og greiði atkv. með till., en þarna skýtur skökku við og myndarlegra væri af þeim, sem stjórna fjármálum, að hinkra við með samþykktir á fjármálatillögum og fjármálaútlátum, eins og þessi till. felur í sér, þangað til þeir eru tilbúnir að fylgja þeim eftir með fjárveitingum.