14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)
81. mál, innkaup opinberra aðila á íslenskum iðnaðarvörum
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Það er orðið nokkuð langt síðan mælt var fyrir þessari till. til þál. Það eru kannske einhverjir búnir að gleyma efni hennar, en ég vona að svo sé ekki.
Það má segja margt hvað varðar iðnaðinn. Ég hugsa að það sé flestum orðið ljóst, hversu brýnt er að standa við bakið á honum yfirleitt ef hann á að geta sinnt því hlutverki sínu að verða ein af meginstoðum í efnahagslífi okkar.
Eins og fram hefur komið á iðnaður okkar í ört vaxandi samkeppni við erlenda iðnaðarframleiðslu, ekki aðeins í samkeppni á erlendum vettvangi, heldur — og ekki síður — á hann í ört vaxandi samkeppni og harðvítugri baráttu á heimamarkaði. Það er auðvitað nauðsynlegt að standa við bakið á útflutningsiðnaði okkar með gjaldeyrisöflun að markmiði, en ég hygg að hitt sé þó ekki síður mikilvægt, að rækta heimamarkað okkar með gjaldeyrissparnað í huga og þann fjölda fólks sem óhjákvæmilega verður að leita athvarfs í iðnaðarstörfum á næstu árum.
Sú till. til þál., sem hér er fjallað um, er að mínum dómi mjög jákvætt innlegg í alla þá umfjöllun sem á sér stað um iðnaðinn nú á tímum. Ég tel eðlilegt að Alþ. láti frá sér fara viljayfirlýsingu af því tagi sem hér er lagt til, þ. e. að opinberir aðilar sýni frumkvæði á því að skipta við íslensk fyrirtæki, íslenska framleiðendur, a. m. k. ætíð þegar það þykir fært.
Á 38. Iðnþingi voru samþykktar fjölmargar ályktanir um hin margvíslegustu málefni iðnaðarins. M. a. lét Iðnþing frá sér fara ályktun um það efni sem þessi till. til þál. fjallar um, þ. e. um innkaup opinberra aðila. Ályktunin hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Iðnþing skorar á alla opinbera aðila að setja fastar viðmiðunarreglur um viðskipti og val verktaka, þannig að opinberum innkaupum verði markvisst stefnt til innlendra aðila innan ramma raunhæfs samanburðar á verði og gæðum. Enn fremur bendir Iðnþing á að hið opinbera hefur oft með sinni ákvarðanatöku beint eða óbeint úrslitaáhrif á ýmis stór innkaup. Sérstaklega má þar nefna innflutning og viðgerðir skipa, val verktaka og innkaup vegna stórframkvæmda, svo sem orkuvirkja eða stóriðjuframkvæmda. Þá þurfa opinber innkaup að vera skipulögð þannig að þau geti stuðlað að örri þróun, nýsköpun og vexti í innlendum iðnaði.
Iðnþingið bendir á eftirtalin atriði, sem opinberir aðilar þurfa að hafa í huga:
Nauðsynlegt er að innkaupastofnanir og innkaupastjórar setji sér þá almennu reglu að athuga, hvort vara eða þjónusta sé fáanleg innanlands, og gefi innlendum aðilum ævinlega kost á að gera tilboð.
Setja ber reglur um mat og samanburð á innlendum og erlendum tilboðum opinberra aðila þar sem tekið sé mið af fleiri atriðum en tilboðsupphæð. Er þá átt við atriði eins og það að innlend tilboð megi vera ákveðinni hlutfallsupphæð hærri en erlend, t. d. 20–30%.
Útboð þurfa að koma með það löngum fyrirvara að innlendum fyrirtækjum sé mögulegt að bjóða í verkið. Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að oft er ekki á færi innlendra aðila að afgreiða vöru eða inna af hendi þjónustu á jafnskömmum tíma og erlend fyrirtæki. Lengri afgreiðslufrestur kemur því í mörgum tilfellum innlendum aðilum til góða. Ástæða er því til að hvetja innkaupastjóra og stofnanir til að hraða gerð útboðs frá því að ákvörðun er tekin um framkvæmd eða innkaup. Stuttur afgreiðslutími veldur því í sumum tilfellum að jafnvel gefst ekki tími til öflunar hráefna, sem oftast koma erlendis frá, hvað þá að tími gefist til að vinna úr efninu. Þetta hefur margoft valdið því að innlendir aðilar hafa hreinlega engin tök á að bjóða í verk.
Hins vegar ætti í mörgum tilfellum að vera hægt að anna fleiri stórum verkefnum á íslenskan mælikvarða ef innlendum aðilum væri gefinn kostur á að afhenda vöru eða vinna að verkefnum í fleiri og smærri áföngum vegna þeirrar sérstöðu umfram erlendu aðilana að vera á staðnum svo að segja, en slíkt er oft ekki hægt þegar seljandi eða verktaki er erlendur. Þannig gæti lengri afgreiðslufrestur unnist upp og jafnvel sparast kostnaður.
Einnig má benda á að víða hjá hinu opinbera eru mörg smáinnkaup sem mætti bjóða út í einu og stuðla þannig að vöruþróun og skapa stærri markað. Í hönnun bygginga og í útboðsskilmálum almennt eru oft ónauðsynleg ákvæði um það efni sem nota skal. Er af þessum sökum oft ógerlegt að nota íslenska framleiðslu þó jafngóð sé og fullnægi að öllu leyti kröfum um notagildi sem gera þarf.“
Ég tel ekki óeðlilegt að kynna þingheimi þessa ályktun 38. Iðnþings.
Í grg. með þeirri till. til þál., sem hér er fjallað um, er lítillega minnst á þá herferð sem gerð var á dögunum undir nafninu „Íslensk iðnkynning.“ Ég held að það hafi verið samdóma álit manna að sú herferð hafi glætt mjög skilning á íslenskum iðnaði, ekki aðeins ráðamanna, heldur og ekki síður atmennings í landinu og hafi vakið hugi almennings virkilega til baráttu fyrir málefnum iðnaðarins.
Í þessu sambandi hljótum við að vera sammála um að íslenskri iðnkynningu má raunverulega aldrei ljúka. Sú till., sem hér er til umfjöllunar, þ. e. um innkaup opinberra aðila, er vissulega gott fordæmi og ég er sammála um efni till. Hins vegar vil ég ítreka að það er ekki síður mikilvægt að almenningur í landinu sé sér alltaf meðvitandi um þjóðhagslegt gildi þess að við kaupum íslenskar iðnaðarvörur, að við skiptum við íslensk fyrirtæki.
Herra forseti. Að endingu: Síðasti hv. ræðumaður talaði um fiskkassa. Eigum við ekki að stefna að því að framleiða umrædda fiskkassa á Íslandi?