14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (1733)

108. mál, ávöxtun skyldusparnaðar

Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég hef ásamt þm. Páli Péturssyni. Stefáni Valgeirssyni, Alexander Stefánssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni lagt fram svo hljóðandi þáltill. um ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að gera nú þegar nauðsynlegar ráðstafanir til þess, að ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks verði ekki lakari en ávöxtun ríkistryggðra skuldabréfa.“

Á undanförnum mánuðum og árum hafa orðið miklar umræður um ávöxtun skyldusparnaðar. Þær umræður hefur borið hingað inn í þingið og get ég t. d. í því sambandi nefnt að hv. 1. þm. Norðurl. v., Páll Pétursson, lagði fyrir 97. löggjafarþingið svo hljóðandi fsp., sem ég vil lesa, með leyfi forseta:

„Hvað hyggst ríkisstj. gera til þess að leiðrétta vísitölu- og vaxtareikning á inneign skyldusparnaðarinnleggjenda hjá Byggingarsjóði ríkisins og hvenær má vænta þess að leiðrétting verði gerð?“

Þessari fsp. var á sínum tíma ekki svarað.

Eins og reyndar flestir, sem hér eru inni, vita, er samkv. lögum nr. 30 frá 1970 öllum einstaklingum á aldrinum 16–25 ára skylt að leggja til hliðar 15% af launum sínum, sem greidd eru í peningum eða sambærilegum atvinnutekjum, í því skyni að mynda sjóð til íbúðarbyggingar eða bústofnunar í sveit. Upphaflega var þessi prósentutala um 6%. Fé það, sem á þennan hátt safnast, er nú ávaxtað í innlánsdeild Byggingarsjóðs ríkisins.

Í lögunum segir:

„Þegar sá, sem sparað hefur fé og lagt í sjóð samkv. 1. mgr., hefur náð 26 ára aldri — eða stofnað til hjúskapar, verði það fyrr, kaupir eða byggir íbúð til eigin þarfa, sbr. e-lið 12. gr. — skal hann eiga þess kost að fá endurgreitt sparifé sitt samkv. 1. mgr. með 4% vöxtum frá þeim tíma, er það var innlagt, og með viðbót samkv. kaupgjaldsvísitölu.“

Þá segir í lögunum:

„Undanþegnir sparnaðarskyldu eru: a) Gift fólk, sem hefur stofnað heimili. b) Skólafólk, sem stundar nám í skóla 6 mánuði eða meira á ári, og iðnnemar meðan þeir stunda iðnnám. c) Unglingar í sveitum, sem vinna hjá foreldrum sínum eða fósturforeldrum og leggja árlega 25% af kaupi sínu, að fæði frádregnu, í bústofnsaukningu. d) Þeir, sem hafa börn eða aðra skylduómaga á framfæri sínu, þó ekki þeir, er hafa yfir 75 þús. kr. skattskyldar tekjur, enda hafi þeir ekki fyrir heimili að sjá. e) Þeir, sem kaupa eða byggja íbúðir til eigin þarfa.“

Með lögum nr. 87 frá 1975 voru undanþáguheimildir veittar öryrkjum, einstæðum foreldrum og námsmönnum.

Rétt er að benda á að í þessum umræddu lögum eru sérstök ákvæði sem heimila 25% hærri lánveitingar til þeirra sem skyldusparnað leggja inn á þennan hátt. En mér er tjáð að engin dæmi muni vera til um að þetta ákvæði hafi verið notað.

Á undanförnum árum hefur sparifé þeirra ungmenna, sem með lögum hafa verið skylduð til að leggja fyrir fé, rýrnað mjög í vörslu opinberra sjóða. Hafa ungmenni þannig verið skylduð til að leggja fyrir fé með mun lakari ávöxtun en þau gætu fengið með öðrum sparnaðaraðferðum. Ræður þar mestu um hvaða útreikningsaðferð er beitt við ávöxtun fjárins, en andi laganna verður vart skilinn á annan hátt en þann, að hið skyldusparaða fé skuli fyllilega verðtryggt samkv. kaupgjaldsvísitölu.

Reiknireglur veðdeildar Landsbankans við ávöxtun skyldusparnaðar fela í sér eftirtalin atriði:

1. Verðbætur reiknast einu sinni á ári.

2. Verðbætur reiknast 1. febr. ár hvert og þá á upphæð skyldusparnaðar eins og hún var 1. febr. árið áður.

Dæmi: Einstaklingur, sem hefur skyldusparnað 1. febr. 1979 og leggur mánaðarlega fyrir fé og á 300 þús. kr. á skyldusparnaðarreikningi 1. febr. 1980, fær engar verðbætur það ár, því að lægsta innistæða 1. febr. árið áður er 0.0 kr. 1. febr. 1981 gæti innistæða hans t. d. verið orðin 800 þús. kr. Þá fær hann verðbætur reiknaðar á 300 þús. kr. eða þá innistæðu sem inni var á reikningi 1. febr. 1980 eða árið áður.

3. Verðbætur reiknast ekki á verðbætur. Verðbætur eru hins vegar lagðar á sérstakan reikning til hliðar við aðalreikning skyldusparanda og er sá reikningur vaxtalaus og ekki útleysanlegur fyrr en við lokauppgjör.

4. Þeir sem undanþegnir eru skyldusparnaði, t. d. vegna náms, leggja samt til hliðar 15% launa sinna. Þetta fé fá þeir síðan endurgreitt, en þá engar verðbætur, ef féð er leyst út fyrir 1. febr. Vexti fá þeir hins vegar 4%. Þessir vextir ásamt verðbótum; ef einhverjar eru, fást þó ekki greiddir út fyrr en reikningur er endanlega útborgaður. Vextirnir eru lagðir á bók sem verðtryggist á ofangreindan hátt með 4% vöxtum.

Samkv. þessum reglum er hugsanlegt, og e. t. v. raunar dæmi um það, að ungmenni, sem skyldað er til að leggja fyrir fé, hljóti engar verðbætur á fé sitt í nærfellt tvö ár. T. a. m., ef við búum okkur til dæmi, mundi einstaklingur, sem leggur inn eða hefur skyldusparnað 15. febr. 1979, engar verðbætur fá 1. febr. 1980 vegna þess að innistæðan var engin 1. febr. 1979. Ef þessi einstaklingur síðan af einhverjum ástæðum breytti svo högum sínum að hann keypti íbúð og næði því að taka þetta fé sitt út — við skulum segja í des. 1981 — fær hann fé sitt útgreitt vegna íbúðarkaupanna, en engar verðbætur vegna þess að verðbætur eru ekki reiknaðar fyrr en 1. febr. 1982. Þarna er því um aldeilis fráleitar reiknireglur að ræða, og getur hver maður séð í hendi sér hversu undarleg dæmi geta upp úr þessu komið og hvert réttlæti getur verið í því fólgið að skylda ungt fólk á aldrinum 16–25 ára til að leggja fyrir verulegan hluta af tekjum sínum á slíkum kjörum.

Af þessum reiknireglum leiðir margs konar óréttlæti. Ungt fólk er þannig skyldað til að leggja fyrir fé með mun lakari ávöxtun en það getur fengið með öðrum hætti. Þessu til skýringar má búa til ýmis dæmi. Við höfum sett fram í grg. með þessari þáltill. athugun á ávöxtun 2 millj. kr. í fimm ár með þrennu móti. Til þess að skýra málið betur og til einföldunar er í dæmunum reiknað með 50% hækkun kaupgjaldsvísitölu og framfærsluvísitölu á ári. Hér er eingöngu valin þessi prósenta til að sýna að þessar reiknireglur verða þeim mun óréttlátari sem verðbólgan er meiri og sérstaklega þegar litið er til þeirrar óðaverðbólgu sem við höfum búið við að undanförnu.

Í fyrsta lagi: Ef við hugsum okkur að einstaklingur leggi 2 millj. kr. inn á skyldusparnaðarreikning með ávöxtun sem nú gildir um skyldusparnað ungs fólks á hann að fimm árum liðnum á þessum reikningi um 8 millj. kr. Ef þessi einstaklingur leggur hins vegar 2 millj. kr. inn á tólf mánaða vaxtaaukareikning, sem nú er með 43.5% vöxtum, á hann að fimm árum liðnum 12 millj. kr.

Hátekjumaður, sem hins vegar er skyldaður með skattalögum til að leggja 2 millj. kr. fyrir og lætur þær ávaxtast samkv. þeim reglum sem nú gilda um skyldusparnað hátekjumanna, ætti eftir fimm ár 15 millj. kr. Hefðu 2 millj. kr. verið lagðar í ríkistryggð skuldabréf væri ávöxtunin mun meiri.

Af þessu sést, ef borinn er saman skyldusparnaður hátekjumanna og skyldusparnaður ungs fólks, miðað við þessar forsendur, að fé hátekjumanna er nær tvöfalt betur ávaxtað. Skyldusparnaður hátekjumanna er þó talinn til skattlagningar, en skyldusparnaður ungs fólks er hugsaður til þess að búa í haginn fyrir það í framtíðinni.

Inngreitt fé í skyldusparnað mun á árinu 1979 hafa numið um 6 milljörðum kr. Verulegur hluti þess, eða um 5 milljarðar, mun hafa verið endurgreiddur á árinu, ýmist vegna undanþága eða lokauppgjörs. Þeir tæpu 6 milljarðar, sem inn komu á tímabilinu frá 1. febr. 1978 til 1. febr. 1979, verðbætast ekki á því ári. Hins vegar eru greiddir á féð 4% vextir. Skólanemandi, sem vinnur sér inn fé yfir sumartímann og leggur 15% launanna í skyldusparnað, fær nokkrum mánuðum seinna féð útgreitt án verðbóta, en með 4% vöxtum, sem haldið er þó fyrir honum við lokaávöxtun í mörg ár. Ríkið hefur þannig orðið sér úti um ódýrt lánsfé.

Ekki er ljóst hvert eftirlit er af opinberri hálfu með því að skyldusparnaður, sem tekinn er af ungmennum, komi til skila í opinbera sjóði. Á þessum aldri eru ekki allir hirðusamir um fé sem ekki fæst útgreitt fyrr en eftir mörg ár. Mikil ábyrgð hvílir á opinberum aðilum að ungt fólk beri ekki af þessu fyrirkomulagi enn frekara tjón en er lýst að framan.

Samkv. lögum nr. 10 frá 1961 höfum við flm. helst skilið það svo að bankaeftirlit Seðlabankans eigi að hafa eftirlit með ávöxtun skyldusparnaðar. Við höfum sagt í grg. að óljóst sé hvernig það eftirlit fari fram. Forstöðumaður bankaeftirlitsins hefur tjáð mér að hann telji það ekki hlutverk bankaeftirlitsins að fylgjast með ávöxtun skyldusparnaðar og hafi bankaeftirlitið því ekki skipt sér af því máli. Það vekur auðvitað enn á ný sterkar upp þá spurningu, hversu eftirliti sé háttað með framkvæmd þessara laga.

Í frv. til l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins, sem nú liggur fyrir Alþ., eru ákvæði um skyldusparnað ungs fólks. Segir þar að verðtrygging skyldusparnaðar skuli vera samkv. lánskjaravísitölu Seðlabanka Íslands. Ekki er kveðið á um hversu reikna skuli. Er þá litlu eða engu betur komið en í eldri lögum þar sem kveðið er á um verðtryggingu samkv. kaupgjaldvísitölu. Þetta kann mörgum að þykja nokkuð harkalega orðað, en þetta er þó sagt af biturri reynslu. Ég segi það, að mér er ómögulegt að skilja anda hinna eldri laga á annan veg en þann að skyldusparnaður ungs fólks skuli ávaxtaður samkv. kaupgjaldsvísitölu. Framkvæmdin er þessi vegna reiknireglnanna. Samþykki menn á Alþ. lög um að skyldusparnaðurinn skuli í stað þess að vera ávaxtaður eftir kaupgjaldsvísitölu vera ávaxtaður samkv. lánskjaravísitölu fullyrði ég að við erum engu betur komin nema nánar sé kveðið á um hversu reikna skuli.

Í Ólafslögum svonefndum er kveðið á um skilyrði verðtryggingar og jafnframt um grundvöll verðtryggingar. Seðlabankinn hefur sett sérstakar reglur um lánskjaravísitölu og jafnframt um verðbætur,— þá á útlán að því er ég best fæ skilið. Þær reglur, sem Seðlabankinn hefur sett, ná því að mínu viti engan veginn yfir ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks. Þess vegna er alveg óhjákvæmilegt að alþm. taki ákvörðun í þessu máli og geri sérstaka samþykkt, því ég hygg að það hljóti að vera alveg ljóst að þegar alþm. á sínum tíma samþykktu að skyldusparnaður ungs fólks skyldi ávaxtaður samkv. kaupgjaldsvísitölu hafi enginn þeirra reiknað með þeirri framkvæmd sem nú hefur komið fram í reynd.

Mikil nauðsyn og réttlætismál er að nú þegar og án tafar verði útreikningsreglum um ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks breytt á þann veg að ávöxtun þessa lögþvingaða sparnaðar verði eigi lakari en ríkistryggðra skuldabréfa. Ella verður þessi lögþvingaði sparnaður ungs fólks ekki skilinn öðruvísi en sérstök skattlagning á þessa hópa í þjóðfélaginu. Slík skattlagning brýtur að líkindum í bága við stjórnarskrá landsins. Skyldusparnaður af þessu tagi er því aðeins réttlætanlegur að féð sé ávaxtað með bestu fáanlegu kjörum. Þessi þáltill. er flutt hér á Alþingi til að taka af öll tvímæli.