14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1890 í B-deild Alþingistíðinda. (1746)

113. mál, útreikningur framfærsluvísitölu í hverju kjördæmi

Flm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég sakna þess að hæstv. félmrh. er ekki staddur hér. Þegar umr. dragast jafnmikið á langinn og átt hefur sér stað með það mál sem nú er tekið aftur til umr. gerir það umræðuna mjög erfiða að þeir, sem deildu á till., eru ekki við þegar ég hef lokatölu um málið.

Mér fannst skjóta nokkuð skökku við hjá hæstv. ráðh. þegar hann lýsti því yfir, að hann væri andvígur þessari till., og kom með ýmsar „billegar“ glósur, eins og þær, að Kópavogur væri svo nálægt Reykjavík að ekki þyrfti af þeirri ástæðu að reikna út framfærsluvísitöluna í Reykjaneskjördæmi. Nú er það svo, að á bak við neyslukönnunina liggur athugun á lifnaðarháttum hjá 100 fjölskyldum. Að sjálfsögðu væri það eðlilegur vinnumáti að byrja á því, þegar neyslugrunnurinn væri gerður, að velja þessar fjölskyldur úr hverju kjördæmi fyrir sig, þ. e. 100 úr hverju kjördæmi, og dreifa þeim um kjördæmið í samræmi við þéttleika byggðar á því svæði.

Ég vil líka alfarið mótmæla þeim hugmyndum sem fram komu hjá sumum, að það væri dulbúin árás á höfuðstaðinn að flytja þessa till. Sannleikurinn er sá, að það er ekki hægt að líta á þetta svæði á annan veg en sem stór-Reykjavíkursvæði. Reykjavíkurborg vex að vísu ekki mjög ört, en ástæðan fyrir því, að þar hefur ekki orðið mjög ör fólksfjölgun, er fyrst og fremst að einbýlishúsahverfi borgarinnar eru í öðrum sveitarfélögum. Þessu veit ég að hver einasti maður gerir sér grein fyrir sem sest niður og hugleiðir þessi mál.

Ég tel að með þeirri þáltill., sem hér er lögð fram, muni aftur á móti koma mjög skýrt í ljós í afstöðu manna til hennar, hvort þeir eru í eðli sínu eða innst inni hlynntir jöfnun lífskjara í þessu landi eða hvort þeir eru það ekki. Það segir ekkert um hvernig eigi að hagnýta sér niðurstöður. Það er farið fram á að þessir útreikningar verði gerðir.

Það kom líka fram hjá hæstv. ráðh., að svokölluð byggðanefnd hefði ekki lagt til að það yrði reiknuð út vísitala í hverju kjördæmi. Það er rétt. Hún lagði ekki til að það yrði reiknuð út vísitala í hverju kjördæmi, en hún lagði engu að síður til að vísitalan yrði reiknuð út á ýmsum stöðum úti á landi. Á þeim tillögum byggi ég mína till. Hún lagði til að vísitalan yrði reiknuð á fjórum stöðum utan Reykjavíkur. Ég sé engan grundvallarmun á því að reikna hana út á fjórum stöðum utan Reykjavíkur og á því að reikna hana út í hverju kjördæmi.

Ég vænti þess að hæstv. félmrh. endurskoði afstöðu sína í þessu máli, gefi sér tíma til að kynna sér það betur, geri sér grein fyrir því, að ójafn framfærslukostnaður stuðlar að fólksflutningum innan þessa lands sem geta þegar til lengdar lætur — og hafa nú þegar — skaðað þjóðfélagið.

Ég vil þakka þeim ræðumönnum, sem tóku til máls um þessa till., og þó sérstaklega þeim sem lýstu yfir stuðningi við hana. Þar sem hv. 9. þm. Reykv. er ekki heldur staddur hér mun ég láta ógert að svara þeim aths. sem frá honum komu og var kannske meira beint til mín persónulega en að þáltill. því að hann lýsti yfir efnislegum stuðningi við hana.

Herra forseti. Ég vil svo leggja til að þessari þáltill. verði vísað til allshn.