14.04.1980
Sameinað þing: 43. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1897 í B-deild Alþingistíðinda. (1754)
118. mál, eftirgjöf á ársfjórðungsgjaldi fyrir síma hjá elli- og örokulífeyrisþegum
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil í þessu sambandi segja það, að alltaf þegar um eftirgjöf fyrir ákveðinn hóp er að ræða vill fara svo, að nýtt ranglæti skapast, ef svo má segja, og væri miklu eðlilegra ef hægt væri að hafa almennar reglur um þessi efni. En ég tek líka undir það, ekki síst eftir þá söluskattshækkun sem orðið hefur á símgjöldum upp á síðkastið, að nauðsynlegt sé að reyna að koma til móts við þetta fólk.
En ég vil vekja athygli á því, að það eru fleiri hús en þarna er talað um sem undir þetta heyra, eins og Hrafnista við Jökulgrunn og Hrafnista í Hafnarfirði. Ég vil vekja athygli á því, að þetta mál hljóti góða athugun og athygli sé vakin á þeim sérréttindum sem aldraðir njóta að þessu leyti. Það er alltaf svo þegar um slík sérréttindi er að ræða, að fjöldi fólks veit ekki um möguleika sem í slíku felast.