15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1904 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)

131. mál, flugvallagjald

Guðmundur Bjarnason:

Herra forseti. Í fjarveru formanns og frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn., hv. 11. þm. Reykv., Ólafs Ragnars Grímssonar, mun ég gera hér grein fyrir nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn.; en þar segir á þskj. 310:

„Nefndarálit um frv. til l. um breyt. á l. nr. 8 27. febr. 1976, um flugvallagjald, sbr. lög nr. 110 30. des. 1978. Nefndin hefur athugað frv. og skilar þremur álitum.

Við undirritaðir leggjum til að frv. verði samþ. óbreytt.

Alþingi, 14. apríl 1980.

Ólafur Ragnar Grímsson. Guðmundur Bjarnason. Davíð Aðalsteinsson.“