15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1906 í B-deild Alþingistíðinda. (1768)
140. mál, almannatryggingar
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að við afgreiðslu síðustu skattalaga var framtalsskylda tekna af sparifé aukin án þess að um væri að ræða verulega breytingu á eldri ákvæðum um skattfrelsi þessa fjár. Nú er það svo, að af gildandi lögum verður helst ráðið að vaxtatekjur einmitt af sparifé geti skert tekjutryggingu hjá öldruðum og öryrkjum. Ég trúi því ekki, að það hafi verið ætlun löggjafans að skerða tekjutryggingu fólks vegna hugsanlegra tekna sem það hefur haft af sparifé. Á undanförnum árum hefur sparifé sem sagt ekki verið framtalsskylt og það hefur í raun og sannleika ekki reynt á það ákvæði, hvort sparifé gæti skert tekjutrygginguna.
Það frv., sem hér er flutt, er flutt til að taka af öll tvímæli í þessum efnum, að það sé ekki vilji Alþingis — jafnvel þótt gamalt fólk hafi einhverjar tekjur af sparifé sínu — að það verði til þess að skerða tekjutryggingu þess. Ég held að þetta sé sjálfsagt mál. Ég vil benda á í þessu sambandi að eigi gamalt fólk eitthvert sparifé, þá er áreiðanlega búið að rýra það hörmulega mikið að verðgildi á undanförnum árum með þeirri neikvæðu vaxtastefnu sem fylgt hefur verið í landinu. Það væri því að bera í bakkafullan lækinn, að höggva tvisvar í sama knérunn, að ætla sér fyrst að stela stórum hluta af raunverulegri eign fólksins með neikvæðri vaxtastefnu í þessari gífurlegu verðbólgu og láta það síðan skerða líka tekjutryggingu þess.
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta frv. til l. Ég vænti þess, að skilningur minn á því, hver sé vilji löggjafans í þessum efnum, sé réttur og þetta mál fái greiða afgreiðslu í gegnum þingið. Ég mæli með því, að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar.