15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1770)

141. mál, framkvæmd eignarnáms

Flm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Alþfl. hefur á mörgum undanförnum þingum flutt frv. og tillögur sem hníga í þá átt að landið væri sameign, það væri óréttlátt að menn gætu auðgast sérstaklega á því t. d., að jarðskorpan væri þynnri þar sem þeir búa heldur en annars staðar. Hann hefur líka flutt frv. með tilliti til þess, að land hækkar í verði í nágrenni þéttbýlis, ekki fyrir framtak búandans sjálfs, heldur fyrir tilverknað annarra, þ. e. þeirra sem þéttbýlið hafa byggt.

Sömu sögu má segja í sambandi við vegalagningu. Við lagningu þjóðbrauta hækkar land í verði samkv. þeim lögmálum sem gilda í grennd við þjóðbrautina, án þess að sá, sem landið á, hafi nokkru til kostað. Svo öfugt er þessu meira að segja farið, að það er ekkert tillit tekið til þess, þegar eignarnámsmat er framkvæmt, að landið í grennd við þjóðbrautina hafi hækkað í verði. Það er reyndar svo, að nýlega er genginn dómur einmitt í máli af þessu tagi. Það varðaði Vesturlandsveg. Hann hafði verið fluttur um set og Vegagerðinni var gert að greiða fyrir það land sem hefur farið undir hinn nýja veg. Ríkissjóður gerði þá lítilmótlegu kröfu, að til frádráttar yrði fært að það, sem væri eftir af landskikanum í grennd við veginn, hefði hækkað í verði og mætti því verðhækkunin af völdum þess að vegurinn hefur verið lagður dragast frá þeirri fjárhæð sem landið væri metið á er undir veginn fór. Hæstiréttur dæmdi samkvæmt gildandi lögum að við slíku væri ekki hægt að verða.

Þessa dagana er bújörðin Fífuhvammur í Kópavogi auglýst til sölu í dagblöðum og það er yfirlýst af hálfu eigenda, að hæfilegt verð að þeirra dómi sé um einn milljarður kr. Það er reyndar jafnframt upplýst, að fasteignamat sé um 885 millj. Enn má það tilfæra, að í Dagblaðinu nýverið var þess getið, að hugsanlega mundi Reykjavíkurborg kaupa þessa landareign í sveitarfélaginu Kópavogi. Nú dettur auðvitað engum í hug að það sé svo blómlegt búskaparlag í Fífuhvammi eða landeigandi hafi hýst jörðina svo vel, að hún sé 800 til 1000 millj. kr. virði. Hliðstæð jörð með húsum í Stafholtstungum, Skútustaðahreppi eða á Barðaströndinni fengist fyrir lítið brot af því verði sem hér er til umr. Skýringin á þessum verðmismun liggur sem sagt alls ekki í framtaki eða atorku ábúandans í Fífuhvammi. Hún liggur í því, að fyrir framtak fjölda annars fólks og atorku hefur risið þéttbýll í Kópavogi og nærtækt land fyrir frekari þróun þéttbýlisins þar er m. a. og kannske ekki síst í landi Fífuhvamms. Hliðstæða sögu má segja um okurverð á landi víðs vegar að af landinu, t. d. úr Keflavík, þar sem menn hafa tekið á sig miklar og þungar byrðar við að kaupa land undir byggðina. Og nýlega átti svipað sér stað á Eskifirði, svo að aðeins fáein dæmi séu nefnd.

Þéttbýlissveitarfélögin standa þannig frammi fyrir því, að eðlilegur viðgangur þeirra og vöxtur sé kyrktur með afarkjörum á nærtæku landi, sem taka má til skipulags, og þá stendur verðlagning landsins ekki í neinu samhengi við afraksturinn af því til þeirra nota sem það er í, heldur hugsanlegt söluverð til lóðaúthlutunar. Þær reglur, sem hafa verið í gildi við ákvörðun eignarnámsbóta og reyndar fasteignamats, hafa í raun og sannleika rennt stoðum undir þetta óréttlæti, sbr. líka hæstaréttardóminn sem ég vitnaði til áðan, og komið ýmsum sveitarfélögum í óbærilega aðstöðu vegna þess að matsreglurnar grundvallast á svonefndu markaðsverði. Landeigandinn skákar þannig í skjóli þeirrar aðferðar sem er beitt við eignarnámsmatið sjálft fyrir opinbera tilstuðlan og eftir opinberri formúlu. Það er opinber blessun yfir því, hvernig verð á landi er ákveðið með þessum hætti. Með þessu móti geta fjársterkir aðilar ráðið byggðaþróun í raun og sannleika. Og samkvæmt þeim hugmyndum, sem kynntar voru í greininni í Dagblaðinu um að Reykjavíkurborg kaupi land í Kópavogskaupstað, gætu auðvitað fjársterk sveitarfélög keypt upp land í umdæmi fjárvana sveitarfélaga. Spyrja má hvort sá háttur geti leitt til þess, að Hafnarfjarðarbær stundi lóðabrask á Siglufirði, Húsavíkurkaupstaður stundi það á Reyðarfirði og Akureyri stundi lóðabrask á Selfossi. Það er hliðstætt við þá hugleiðingu sem uppi er um að Reykjavík kaupi land í Kópavogskaupstað.

Ég held að öllum hljóti að vera ljóst að hér er fetuð röng braut. Allir sanngjarnir menn vilja auðvitað að við eignarnám sé hverjum og einum umbunað fyrir það sem frá honum er tekið, en sú umbun á ekki að fara fram úr þeim afrakstri sem hann hafði af eign sinni til þeirra nota sem hún er í, og með opinberri blessun, með aðferðum sem ákveðnar eru fyrir opinbera tilstuðlan, á ekki að sprengja verð á land upp eins og nú er gert.

Nú vill svo til, að með því að breyta aðferðum við ákvörðun eignarnámsbóta — og það er hlutverk Alþingis — má einmitt tryggja framgang þeirrar stefnu, að menn fái umbun í samræmi við þann afrakstur sem menn hafa haft af eigninni. Það má þannig með þessum hætti afnema það óréttlæti, sem nú viðgengst, og jafnframt koma þéttbýlissveitarfélögunum úr þeirri úlfakreppu sem þau eru nú í. Ef eignarnámsbætur eru miðaðar við þá notkun sem eignin er í þegar beðið er um eignarnámsmat, þá er mörkuð ný braut í þessum efnum.

Tilgangur þess frv., sem hér er flutt, er að tryggja framgang þeirrar stefnu, að eignarnámsbæturnar séu miðaðar við þá notkun sem eignin er í þegar beiðni um eignarnámsmatið hefur borist, en ekki metnar verðbreytingar sem rekja má til tilgangs eignarnámstökunnar eins og nú er gert. Frv. um þetta efni var flutt af Braga Sigurjónssyni, Ágústi Einarssyni, Braga Níelssyni og Karli Steinari Guðnasyni á 100. löggjafarþingi. Það frv., sem nú er flutt, er samhljóða því frv. Í grg. með frv. þeirra Braga Sigurjónssonar o. fl. á 100. löggjafarþingi sagði — ég ætla að leyfa mér að lesa það — með leyfi hæstv. forseta:

„Í áliti nefndar þeirrar, sem undirbjó lög nr. 116. apríl 1973, er að því er vikið, að nefndin hygðist semja sérstakt frv. til l. um fjárhæð bóta vegna eignarnáms fasteigna eða sameina slíkt frv. því frv. til l. sem nefndin samdi. Af því hefur ekki orðið og er ætlunin að bæta úr því með þessu frv.

Í áðurgreindu nál. voru talin ýmis vandkvæði á því að taka í lög ákvæði um fjárhæð eignarnámsbóta. Stafi það m. a. af því, að ákvæði 67. gr. stjórnarskrárinnar um „fullt verð“ setji slíkri löggjöf vissar óhagganlegar skorður. Þá sé ákvörðun eignarnámsbóta margþætt og flókið viðfangsefni, sem naumast verði settar tæmandi reglur um, eða a. m. k. ekki reglur sem leiði sjálfkrafa til afdráttarlausrar niðurstöðu. Því virðist varla annað og meira koma til greina en að lögfesta vissar meginreglur um fjárhæð eignarnámsbóta. Með því frv., sem hér liggur fyrir, er lagt til að svo verði gert varðandi ákvörðun eignarnámsbóta þegar fasteign er tekin eignarnámi.

Við framkvæmd eignarnáms hér á landi hefur lengi gætt misræmis varðandi túlkun ákvæðis 67. gr. stjórnarskrárinnar um „fullt verð“. Í lögum nr. 61/1917, um framkvæmd eignarnáms, voru ákvæði þess efnis, að verð eignar skyldi miðast við gangverð sem eignin hefði í kaupum og sölum. Í núgildandi lögum, nr. 11/1973, er hins vegar enga slíka viðmiðunarreglu að finna.

Gamla reglan þótti orka tvímælis og var túlkun ákvæða um eignarnámsbætur á ýmsan veg í úrskurðum dómkvaddra matsmanna og er svo enn.

Eitt umdeildasta atriðið í sambandi við eignarnámsbætur er það, hvort taka skuli tillit til fyrirhugaðra nota lands, eftir að eignarnám hefur farið fram og eftir að eignarnemi hefur með skipulagi og síðari framkvæmdum breytt möguleikum til nýtingar þess. Margir eru þeirrar skoðunar, að eðlilegast sé að miða eignarnámsbætur við þá raunverulegu eða eðlilegu nýtingu, sem eigandi hefur af landinu þegar til eignarnáms kemur.

Á móti þessu eru borin fram þau rök, að eigandi fasteignar, sem verður að þola eignarnám, verði lakar settur en nágranni hans, sem eigi land utan þess svæðis, en njóti hagræðis, t. d. af lagningu hraðbrautar, í hækkun verðs á landi sínu. Skattfrelsi ávinnings af slíkri verðhækkun lands, sem ekki stafar af aðgerðum eiganda, hefur styrkt þessa skoðun, en það er skoðun flm. frv. þessa, að lögfesta beri verðaukaskatt, sem skattleggi ávinninginn í þessu tilviki til ríkissjóðs. Flm. telja ekki rétt, að eigandi lands njóti ávinnings vegna framkvæmda, sem ætlunin er að ráðast í eftir að land hans hefur verið tekið eignarnámi, eða ávinnings vegna framkvæmda opinberra aðila í nágrenni við hann, án þess að hann hafi átt þar nokkurn hlut að máli.

Bent hefur verið á dæmi um óeðlilega niðurstöðu matsmanna við mat á verðmæti lands, t. d. í sambandi við þarfir sveitarfélaga, vegna nauðsynlegrar vegagerðar, orkuvinnslu o. s. frv.

Sveitarfélögin hafa m. a. talið á sig hallað í ýmsum tilvikum með úrskurðum matsmanna á eignarnámsbótum. Má um það atriði vísa til niðurlags grg., sem núv. formaður Sambands ísl. sveitarfélaga, Jón G. Tómasson, samdi að tilhlutan sambandsins og send var með tillögum þess til stjórnarskrárnefndar Alþingis hinn 29. jan. 1975.“

Í 1. gr. þessa frv. til l. er auðvitað að finna meginreglur þær sem eiga að gilda samkv. þessu um ákvörðun eignarnámsbóta, þegar fasteign er tekin eignarnámi, og meginsjónarmið varðandi mat á eignarnámsbótum, en almennt er viðurkennt að lögfesting slíkra viðmiðunarreglna með almennum lögum brjóti ekki í bága við ákvæði 67. gr. stjórnarskrárinnar. Þá er þess að geta, að ákvæði greinarinnar eru sniðin eftir sams konar ákvæðum norskra laga frá 26. jan. 1973 um bætur vegna eignarnáms fasteigna. Ákvæði 105. gr. norsku stjórnarskrárinnar eru reyndar hliðstæð ákvæðum 67. gr. íslensku stjórnarskrárinnar, þannig að þar er líka um vissa samsvörun að ræða.

Þá má geta þess, að hæstiréttur Noregs hefur skorið úr því, að áðurnefnd lagaákvæði fari ekki í bága við ákvæði norsku stjórnarskrárinnar. Hér er auðvitað ekki stigið til fulls það skref, sem Alþfl. hefur boðað varðandi sameign á landi. Hér er í staðinn leitast við að sníða agnúa af því kerfi, sem fyrir hendi er í landinu, sníða af óréttlæti sem skapar öngþveiti hjá þéttbýlissveitarfélögum mörgum hverjum. Við viljum freista þess enn að fá þetta lögfest hér í þinginu með tilliti til þess, að hér er um að ræða himinhrópandi óréttlæti, sem alls ekki er með neinum hætti hægt að verja, og jafnframt því er verið að bjóða upp á að skipulag sveitarfélaga fari úr skorðum, að fjársterkir aðilar geti kyrkt viðgang sveitarfélaganna, að sterk sveitarfélög geti jafnvel farið að braska með land í öðrum sveitarfélögum. Alla þessa agnúa má sníða af með samþykkt þessa frv. sem ég mæli hér fyrir hönd okkar flm.

Ég vil vænta þess, að þetta frv. fái greiða afgreiðslu hér í þinginu. Hér er um ákaflega takmarkað mál að ræða með tilliti til þess heildarstefnumiðs sem við Alþfl.-menn höfum boðað, en þetta ætti að geta verið skref í rétta átt.

Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.