15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Guðmundur Bjarnason:

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. Ed. hefur á nokkrum fundum tekið til umfjöllunar frv. til l. um breyt. á l. nr. 40 18. maí 1978, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. lög nr. 7 22. febr. 1980, um breyting á þeim lögum, sem birt er á þskj. 219 og er 127. mál. Ed. Sumir þessara funda voru sameiginlegir nefndarfundir með fulltrúum úr fjh.- og viðskn. Nd. einnig. Á þessa fundi komu m. a. fulltrúar frá Þjóðhagsstofnun, Reiknistofnun Háskólans og fleiri aðilum.

Á þskj. 308 hefur 1. minni hl. fjh.- og viðskn. leyft sér að birta nál. þar sem segir m. a.:

Nefndin hefur fjallað um frv. og skilar þremur álitum. Við, sem skipum 1. minni hl. nefndarinnar, flytjum á sérstöku þskj. brtt. við 2., 3. og 4. gr. frv. Þær fela í sér nýjan skattstiga, þar sem m. a. er ákveðið að 50% greiðsla komi ekki fyrr en við 7 millj. kr. markið. Einnig er persónuafsláttur hækkaður í 525 þús. kr. úr 440 þús. og barnabætur hækkaðar í 150 þús. kr. með fyrsta barni úr 130 þús. kr. og 215 þús. kr. með hverju barni umfram eitt, sem er einnig hækkun, var 200 þús. kr. Í till. er kveðið á um að fyrir börn yngri en 7 ára skuli barnabætur vera 65 þús. kr. hærri og barnabætur með börnum einstæðra foreldra skuli þó ætíð vera 280 þús. kr. með hverju barni.

Þessar brtt. gera ráð fyrir að ríkissjóður taki meiri áhættu vegna skattkerfisbreytingarinnar en áður hafði verið reiknað með. Þær fela í sér um 1.5 milljarða kr. lækkun tekjuskattsins miðað við fyrri forsendur. Sú lækkun kemur einkum til góða hjónum með tvö börn eða fleiri, hjónum sem njóta innan við 2 millj. kr. tekna eiginkonu, öðrum hjónum með lægri miðlungstekjur og ýmsum tekjuhópum einstaklinga. Allir þessir tekjuhópar munu samkv. grundvelli tillögugerðarinnar bera lægri tekjuskatt en á síðasta ári.

Í frv. ríkisstj. var gert ráð fyrir að ríkissjóður tæki minni áhættu vegna skattkerfisbreytingarinnar. Einnig kom í ljós skekkja í tæknilega reiknilíkaninu sem lagt var til grundvallar upphaflegum tillögum. Hafði sú skekkja verið í líkaninu frá áramótum, en hefur nú verið leiðrétt. Tillögur okkar taka mið af þessari leiðréttingu, jafnframt því sem við leggjum til að áhætta ríkissjóðs verði aukin með fyrrgreindri lækkun tekjuskattsins.

Á fundum nefndarinnar voru lögð fram gögn frá dr. Þorkatli Helgasyni um óvissumörk álagningaráætlunarinnar, sem eru nú óvenjumikil vegna skattkerfisbreytingarinnar, og einnig endurskoðuð áætlun Þjóðhagsstofnunar um tekjubreytingar milli áranna 1978 og 1979. Niðurstaða dr. Þorkels Helgasonar er að óvissumörk álagningarinnar nú séu a. m. k. plús eða mínus 2 milljarðar kr. og geti jafnvel numið enn hærri upphæð. Þótt Þjóðhagsstofnun telji í nýrri spá, dags. 10. apríl 1980, að tekjuhækkun milli ára geti orðið 1–2% hærri en gert er ráð fyrir í frv. — meðalhækkun á framteljanda á öllu landinu 46–47% samkvæmt grg. Þjóðhagsstofnunar — þá er sú hækkun innan fyrrgreindra óvissumarka. Hækkun tekna um 1% milli ára jafngildir um 1 milljarði fyrir ríkissjóð. Þótt tekjuhækkun verði í hærri mörkum endurskoðaðrar áætlunar Þjóðhagsstofnunar er ljóst að tekjuskattur til ríkissjóðs gæti samt sem áður orðið minni en nú er gert ráð fyrir ef óvissan reyndist ríkissjóði óhagstæð. Tekjutap ríkissjóðs gæti jafnvel numið 1–2 milljörðum kr. Verði óvissan hins vegar ríkissjóði hagstæð yrði um tekjuaukningu að ræða. Á þessu stigi er ógerlegt að fullyrða hvort heldur verði.

Þessi mikla óvissa er óhjákvæmileg afleiðing þeirrar skattkerfisbreytingar sem var lögleidd á fyrri hluta ársins 1978 af þáv. ríkisstj. Þar eð við teljum nauðsynlegt að Alþ. geri sér skýra grein fyrir þessari óvissu birtum við í nál. grg. dr. Þorkels Helgasonar sem lögð var fram hjá nefndinni.

Í lok grg. dr. Þorkels segir hann m. a.:

„Ég hef í fyrri grg. til hv. þingnefnda giskað á að heildaróvissa í mati á tekjum ríkissjóðs af tekjuskatti einstaklinga sé allt að 2 milljörðum kr. til eða frá, að því tilskildu að áætlun um meðaltalsbreytingu reynst rétt. Í ljósi ofangreindra dæma mætti ætla að heildaróvissa geti verið mun meiri. Talan tveir milljarðar í þessu sambandi grundvallast því einkum á þeirri óskhyggju, að óvissuþættirnir vegi hvern annan upp að einhverju leyti, en leggist ekki allir á sömu hliðina.“

Þetta segir í lok grg. dr. Þorkels Helgasonar.

Í samræmi við framangreinda afstöðu leggjum við undirritaðir til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem við flytjum till. um á sérstöku þskj., þskj. 309, og ég var áður búinn að gera grein fyrir.

Undir þetta rita Ólafur Ragnar Grímsson, Guðmundur Bjarnason og Davíð Aðalsteinsson.