15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)
127. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 3. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Það er víst liðið hátt í tvo mánuði síðan þessi skattstigamál bar fyrst á góma í þessari hv. deild. Þá taldi hæstv. fjmrh., og reyndar hæstv. forsrh. líka, að nauðsynlegt væri að athuga þessi mál langtum betur og undirbúa, og hæstv. fjmrh. hafði meira að segja á orði að það kynni að vera nauðsynlegt að grípa til þess úrræðis að nota skuggamyndavélar til að útskýra hvernig hlutirnir kæmu út. En einmitt þann sama dag hafði einn af flokksbræðrum hæstv. fjmrh. haft orð á því, að þær breytingar, sem verið væri að gera á skattalögunum, væru stökk út í myrkrið. Vegna þess að ekki var gripið til þess ráðs á þeim tíma að ákveða skattstigann urðu allir venjulegir framteljendur að ganga frá framtölum sínum án þess að hafa hugmynd um hverjir skattarnir yrðu. Þeir voru skildir eftir í myrkrinu.
Nú hefur hæstv. fjmrh. haft ágætan tíma og allt stjórnarliðið til þess að fara ofan í það, hvernig skattstiginn ætti að vera, og vafalaust framkvæmt mikla og ítarlega athugun á því. Það er því varla um að efast, að allt, sem stjórnarliðar leggja nú til, sé gert að vel athuguðu máli, ekki bara af því er varðar heildarskattlagninguna, heldur líka hvernig hún skiptist á hina einstöku þjóðfélagshópa. Allar þessar ákvarðanir eru teknar eftir þennan langa umhugsunartíma og væntanlega og áreiðanlega að vel yfirveguðu máli.
Nú verður það að segjast um þær tillögur, sem hér liggja fyrir, að þær fela í sér verulega skattahækkun, ég spyr nú ekki að ef maður tekur líka tillit til þeirrar hækkunar á útsvari sem stjórnarliðar hafa samþykkt. Þannig mun heildarskattbyrði til ríkis og sveitarfélaga aukast um nálega 8 milljarða kr. samkv. fyrirliggjandi áætlunum frá Þjóðhagsstofnun um 47% hækkun tekna — sem er líklega vanáætlað frekar en hitt — og þeim útreikningum sem Reiknistofnun hefur gert, enda verði þá heimildin til 10% hækkunar á útsvörum ekki nýtt nema í 55% tilvika. En verði sú heimild nýtt í eitthvað ríkari mæli en í 55% tilvika, þá eykst auðvitað skattbyrðin umfram þessa 8 milljarða sem reiknaðir hafa verið út af Þjóðhagsstofnun og Reiknistofnun Háskólans.
Þessa skattahækkun boðar ríkisstj. samtímis því sem hún gerir ráð fyrir 4.5% kjaraskerðingu af völdum verðlagshækkana. Ég held að öllum ætti að vera ljóst hvert óráð það er, að ríkisvaldið gangi þannig á undan að heimta sem mest í sinn hlut á sama tíma og það boðar aðhald hjá öðrum. Með þeim tillögum, sem hér liggja fyrir, er meira að segja farið fram úr fjárlögum að því er varðar lagningu tekjuskatts á einstaklinga, á venjulega launþega í landinu, og reyndar á sama tíma og gerðar eru sérstakar ráðstafanir til þess að lækka tekjuskatt af fyrirtækjum og félögum samkv. till. hæstv. fjmrh.
Ég verð að segja það eins og er, að ég kannast ekki beinlínis við það úr boðskap hæstv. fjmrh. áður fyrr að þannig ætti að fara að, að hækka sérstaklega tekjuskattinn á launþegum í landinu, en lækka hann á fyrirtækjunum.
Það hefur verið stefna Alþfl., að gæta þurfi aðhalds á öllum sviðum efnahagslífsins, en þó alveg sérstaklega í ríkisbúskapnum, en jafnframt ætti að vernda raunkjör launafólks, eftir því sem mögulegt væri, með því að draga úr tekjuskattsheimtu, einkum hjá hinum tekjulægstu, enda tekjuskatturinn að ýmsu leyti óréttlátur skattur eins og dæmin sanna. En skattastefna ríkisstj. gengur að öllu leyti í þveröfuga átt. Heildarskattbyrði eykst. Skattar af lægstu tekjum hækka. Skattar af miðlungstekjum eru stórauknir. Og meira að segja skattar hjá einstæðum foreldrum hækka líka. Kannast nokkur við að það hafi verið boðskapur hæstv. fjmrh. fyrir nokkrum vikum eða mánuðum að einkum og sér í lagi bæri að hækka skatta á einstæðum foreldrum?
Sannleikurinn er sá, að með offorsi sínu í skattlagningu kippir ríkisstj. stoðunum undan allri viðleitni til að hafa hemil á verðbólgunni. Sú leið að rýra lífskjör launaþega alveg sérstaklega með skattaálögum er ógæfusamleg, eins og nú er ástatt í þjóðarbúi okkar. Við í Alþfl. teljum að af þessari braut verði að snúa. Þess vegna er hér flutt brtt. um skattstiga sem er efnislega samhljóða því, sem við höfum áður talað fyrir, og kemur til móts við launafólkið. Samkv. þessum tillögum okkar Alþfl.manna yrði álagður tekjuskattur einstaklinga nettó um 35 milljarðar kr. í stað um 46 milljarða kr. samkv. fyrirliggjandi tillögum ríkisstjórnarflokkanna, og er þá í báðum tilvikum miðað við 47% tekjuaukningu milli ára samkv. úrtaki Þjóðhagsstofnunar.
Samkv. þeim till., sem ég mæli fyrir hér fyrir hönd okkar Alþfl.-manna, yrði innheimtur tekjuskattur um 7.5 milljörðum kr. lægri en fjárlög gera ráð fyrir, enda höfum við flutt till. um samsvarandi niðurskurð útgjalda og erum tilbúnir til þess að standa að því hvenær sem er.
Sú lækkun, sem við viljum ná fram til þess að afstýra því, að út í það fen verði vaðið sem ríkisstj. vill endilega komast út í, sú lækkun mundi m. a. koma til góða hinum tekjulægstu, fólki með miðlungstekjur svo og einstæðum foreldrum. Það er athyglisvert að líta á það, hvernig tekjuskattur og sjúkratryggingagjald að frádregnum skattafslætti og barnabótum koma út miðað við annars vegar tillögur Ragnars Arnalds eða ríkisstjórnarflokkanna núna og hins vegar ríkisstjórnar Alþfl. Fyrir barnlaus hjón mundu tillögur okkar Alþfl.-manna vera 2.2 milljörðum lægri en samkv. því sem hér er gert ráð fyrir, það mundu vera 12 milljarðar í staðinn fyrir 14.2. Fyrir hjón með eitt barn mundi þetta verða 9.7 milljarðar kr. samkv. þeim till. sem stjórnin talar hér fyrir, en 8.0 milljarðar samkv. því sem við Alþfl.-menn höfum lagt til. Þannig má áfram telja. Það munar u. þ. b. hálfum milljarði fyrir hjón með tvö börn og u. þ. b. einum milljarði ef börnin eru þrjú, hvað skattatillögur Alþfl. eru lægri en það sem ríkisstjórnarflokkarnir bera nú á borð fyrir okkur. Ekki gildir þetta síður ef við lítum á hjón þar sem eiginkonan hefur tekjur upp á 1–2 millj. kr. Þar mundi muna tæpum 2 milljörðum miðað við 45% tekjuaukningu milli ára, en sjálfsagt yrði munurinn eitthvað meiri ef tekjuaukningin verður meiri, eins og gera verður ráð fyrir.
Hjá einhleypum, sem margir hverjir eru meðal hinna tekjulægstu í þjóðfélaginu, nefnilega ekkjur, gamalt fólk og námsfólk, hefði samkv. till. Alþfl. og samkv. þeim till., sem ég tala hér fyrir, miðað við 45% tekjuaukningu milli ára, heildarskattur — tekjuskattur og sjúkratryggingagjald að frádregnum skattafslætti og barnabótum — numið 10.2 milljörðum. En samkv. því frv., sem hér er flutt fyrir hönd ríkisstj., yrðu það 14.7 milljarðar kr. sem lagðir yrðu á þennan hóp.
Að því er varðar einstæð foreldri með eitt barn, þá er það svo að samkv. gamla skattkerfinu hefðu þau fengið eilítinn skatt, um 20 millj. kr. í heild sem hópur. Stjórnarliðar nú ætla að hækka þennan skatt upp í 200 millj. kr., úr 20 millj. í 200 millj. En samkv. till. okkar Alþfl.-manna hefði þessi hópur fengið 100 millj. kr. endurgreiddar til að mæta útsvari og til beinnar útgreiðslu. Sama verður líka uppi á teningnum varðandi einstæða foreldra með tvö börn. Þar hófum við Alþfl.menn — og samkv. þeim till. sem ég mæli hér fyrir — gert ráð fyrir að komið yrði sérstaklega til móts við þetta fólk núna, þegar talað er um að kjörin skerðist vegna verðlagsþróunar og gert ráð fyrir aukningu endurgreiðslu til að mæta útsvari og til beinnar útgreiðslu sem nemur 200 millj. kr. En þess sér engan stað í þeim till. stjórnarliðanna sem hér liggja fyrir. Þannig er allt á eina bókina lært í þessum efnum.
Það er fróðlegt að bera saman og taka nokkur dæmi um það, hver yrði tekjuskattur hinna ýmsu gjaldþegna miðað við annars vegar þær till., sem við Alþfl.-menn mælum hér fyrir, og hins vegar þær, sem ríkisstj. hefur nú áhuga á að lögleiða. Ef við tökum t. d. barnlaus hjón, þar sem bóndinn vinnur fyrir 3.5 millj. kr. og konan fyrir 2.5, þá hefði tekjuskattur orðið 250 þús. kr. samkv. till. okkar Alþfl.-manna, en 505 þús. kr. samkv. því sem hér er boðað. Þetta er 100% hærra en við Alþfl.-menn höfðum gert ráð fyrir. Það verður svipað uppi á teningnum ef þessi hjón eiga eitt barn og bóndinn ynni fyrir 6 millj. kr., en konan fyrir 3 millj. Þá mundi skatturinn verða rúmlega 1 millj. kr. samkv. till. okkar, en tæp 1400 þús. samkv. því sem ríkisstj. leggur til. En sé farið yfir í hærri tekjur, þar sem bóndinn ynni fyrir 7.5 millj. og eiginkonan fyrir 7 millj., þá hefur bilið mjókkað. Þar er skatturinn samkv. till. Alþfl. einungis örlítið eða 6% lægri en samkv. þeim till. sem stjórnarliðar boða nú. Af þessu sést að það eru þeir, sem lægri hafa tekjurnar, sem fyrst og fremst eiga að bera þyngri skatt samkv. þeim till. sem ríkisstj. talar hér fyrir, öfugt við það sem við Alþfl.-menn höfum gert að till. okkar. Og þeir, sem eru einstæðir, eiga reyndar að bera langtum hærri skatt.
Ég vil benda á fylgirit með því nál. sem hér er lagt fram, sem eru samanburðardæmi um tekjuskatt af lægstu tekjum og eru prentuð aftan á nál. Ef brúttótekjurnar hefðu verið 3 millj. hjá einhleypum manni, t. d. ekkju eða námsmanni, þá hefði samkv. gömlu skattalögunum tekjuskatturinn verið á bilinu 91–121 þús., eftir því hvernig frádrætti hefði verið háttað. En hvað er hann samkv. þeim till. sem hér eru boðaðar? Hann er 152 þús. hjá þessum manni sem hefur til ráðstöfunar 225–250 þús. kr. á mánuði. Það er verið að auka skattana um 30–60 þús. eða 34–67% hjá þessari ekkju sem hefur ekki nema 225–250 þús. á mánuði. Það skyldi þó ekki vera að hana munaði um þessa skattahækkun? Samkv. till. okkar Alþfl.-manna hefði þessi aðili 35 þús. kr. í skatt í staðinn fyrir 152 þús. samkv. þeim till. sem stjórnin ber hér fram og gera sérstaklega ráð fyrir því að hækka tekjuskattinn á lægstu tekjunum eins og þessi dæmi sanna.
Svipað verður uppi á teningnum þó að tekjurnar væru örlítið meiri, brúttótekjurnar t. d. 3 millj. 167 þús. Þá munar allt að 68 þús. kr. á því, hvort farið er eftir gamla skattkerfinu eða þessum nýju till. ríkisstj. Ríkisstj. þarf líka að næla sér í 68 þús. kr. af honum, en náttúrlega ekki öllu meira en hún nældi sér í af þeim sem var með heldur lægri tekjurnar.
En þetta er vafalaust gert eftir vandlega íhugun, eftir mikla yfirvegun. Ríkisstj. taldi sig þurfa tíma til að gera það upp við sig, hvar hún ætti að grípa niður, á hvaða hópum ætti sérstaklega að hækka skattana. Og þetta er ávöxturinn af hugarverki ríkisstj., að hækka sérstaklega t. d. á þessum hóp, einhleypu fólki með mjög lágar tekjur, ekkjum, námsmönnum, ekklum og þess háttar, — eða á ellilífeyrisþegum sem eru að reyna að vinna sér inn eitthvað smávegis.
Þetta bil hefur reyndar aukist. Skattbyrðin á þessum hóp hefur aukist við seinustu meðferð ríkisstj. á þessu máli. En hins vegar er það augljóst, að maður, sem er með t. d. 10–12 millj. kr. tekjur, fær skattalækkun upp á um 85 þús. kr. eftir seinustu meðferð málsins. Þannig hefur nú farið með stefnumörkunina í þessum efnum.
Ef við lítum á skattleysismörkin fyrir einstakling, fyrir einhleypan mann eða konu, þá gerðum við Alþfl.-menn ráð fyrir því og gerum hér till. um það, að þau verði 2 millj. 870 þús. kr. miðað við brúttótekjur, en skattleysismörkin samkv. þeim till., sem hér eru boðaðar, eru 500 þús. kr. lægri. Samkv. till. ríkisstj. mega menn ekki fara yfir 2 millj. 333 þús. í brúttótekjur, eða tæpar 200 þús. kr. á mánuði, — þá verða menn að gera svo vel að borga tekjuskatt. Þetta er meira að segja lægri tala en samkv. gömlu skattalögunum því að samkv. þeim var þetta á bilinu 2 millj. 400 þús. til 2 millj. 500 þús., eftir því hvernig frádrætti væri hagað. Það er því ekki einungis að hér sé gert ráð fyrir að fara langtum lengra niður, seilast dýpra til þeirra sem minnstar hafa tekjurnar en við Alþfl.-menn höfum gert ráð fyrir, heldur er meira að segja seilst dýpra en samkv. gamla skattkerfinu sem íhaldsstjórnin, samstjórn íhalds og Framsóknar, setti á sínum tíma og íhaldsfjmrh. er kannske fyrst og fremst ábyrgur fyrir. Kannast nokkur við að það hafi sérstaklega verið tekið fram í málflutningi Alþb. fyrir nokkrum mánuðum að einkum og sér í lagi ætti að skattleggja þá sem lægstar hafa tekjurnar, eða að það ætti að lækka skattleysismörkin frá því sem í gildi var hjá ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar? Ég kannast ekki við það. En þetta er nú engu að síður raunin.
Það er eins og mig rámi líka í það, að Alþb. og hæstv. fjmrh. hafi stundum talið að það væri ekki úr vegi að standa svolítinn vörð um kjör einstæðra foreldra. En það er fróðlegt að sjá hvernig skattbyrði þeirra breytist samkv. þeim till. sem hér eru boðaðar. Við skulum taka þessar sömu lágu brúttótekjur, 3 millj. kr., hjá einstæðu foreldri með eitt barn. Samkv. gamla kerfinu hefði verið borgaður 20% skattur af fyrstu 2 millj. 855 þús. Við skulum segja að frádráttur hafi numið 5% af tekjum. Þá hefðu fengist 510 þús. kr. í skatt. Skattafsláttur er 672 þús. kr. og samkv. gamla kerfinu líka. Þá eru barnabætur 146 þús. kr. Miðað við að brúttótekjurnar séu 3 millj. kr. og nettótekjurnar 2 millj. 850 þús., þ. e. 5% frádráttur af tekjunum — það er eins og lífeyrissjóðsgjald, rétt rúmlega það — þá hefði afgangur til að mæta útsvari og til hreinnar útborgunar samkv. gamla kerfinu orðið tæpar 249 þús. kr. En samkv. till. núna eru það 129 þús. Ef þessi einhleypingur hefði verið að basla við að kaupa íbúð eða eitthvað slíkt, þá hefði hann sjálfsagt verið með meiri frádrátt. Hann hefði kannski verið með 10% af tekjum sínum í frádrátt, þannig að mismunurinn á nettó- og brúttótekjum væri 300 þús. kr. Þá hefðu 279 þús. kr. verið til útborgunar. Ef 15% munur á nettótekjum og brúttótekjum hefðu verið 309 þús. kr. til útborgunar samkv. gamla kerfinu. En samkv. nýja kerfinu eru það 129 þús. kr. Það er 25% skattur af þessum 2.7 millj. kr. innan við 3 millj. Það gerir 675 þús. Persónuafslátturinn er 525 þús. og barnabæturnar eru 280 þús. Það gerir 130 þús., eða með því að taka tillit til byggingasjóðsgjalds 129 þús. kr. í útborgun, í staðinn fyrir að samkv. gamla kerfinu hefði þetta verið á bilinu 250–280 þús. kr. Þarna er þessi hópur skattlagður sérstaklega, samkv. þeim till. sem nú liggja fyrir, um 120–150 þús. kr. Hann verður að taka á sig útsvarsgreiðslur og verða af greiðslu á negatífum tekjuskatti, útgreiðslum sem nema 120–150 þús. kr. Það er skorið niður um helming frá því sem var áður. Ég hefði haldið að einstætt foreldri með kannske 225–250 þús. kr. til ráðstöfunar á mánuði munaði um hálf mánaðarlaun, og að ekki væri sérstök ástæða til — eins og nú hagar til í þjóðfélaginu — að Alþb. fylgdi í reynd þeirri stefnu að skattleggja þennan einstakling, þetta einstæða foreldri með eitt barn, aukalega umfram það, sem áður hefur verið, um 120–150 þús. kr. En þetta er sjálfsagt gert að vel yfirveguðu ráði.
Ég skal ekki lengja þessa umr. öllu frekar. Það hefur komið fram, að skattar eru stórlega auknir með till. stuðningsmanna ríkisstj. Það er rangt, það er hættulegt á þessum tímum, á sama tíma og menn tala um að draga úr verðbólgunni, á sama tíma og menn tala um að rýra lífskjör vegna verðlagsþróunar um 4.5%, að skattleggja menn sérstaklega og skattpína í ofanálag og einkum og sér í lagi þá sem lægstar hafa tekjurnar, eins og ég hef hér rakið, einhleypt fólk með mjög lágar tekjur, einstæð foreldri með mjög lágar tekjur.
Við Alþfl.-menn höfum viljað freista þess að ná fram nýrri stefnu í þessum efnum sem þjónaði betur þeim aðstæðum sem nú ríkja í þjóðfélaginu, þar sem komið væri til móts við fólkið í landinu við þær aðstæður sem nú ríkja, þannig að ráðstöfunartekjur þess væru heldur auknar hlutfallslega með skattlagningarstefnunni en rýrðar, og þar sem sérstaklega væri gert ráð fyrir að létta sköttum af þeim sem verst eru settir. Þær till., sem ég tala hér fyrir fyrir hönd okkar Alþfl.-manna, eru efnislega samhljóða því sem við höfum flutt áður og þær ná einmitt þessu markmiði.