15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)
127. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 3. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Það er einungis stutt athugasemd. Mér þykir nú heldur rislágt að forsrh. sé fjarstaddur jafnágæta ræðu og hér var flutt áðan og er í sjálfu sér ástæða til þess að halda umr. áfram og þeim orðaskiptum sem nauðsynleg eru í þessu sambandi. Í annan stað þykir mér súrt í brotið og heldur rislágt að fjmrh. geri hér ekki grein fyrir máli sinu og þeirri stefnu sem hann fylgir fram um það að hækka sérstaklega skatta á þeim sem tekjulægstir eru í þjóðfélaginu, einstæðum foreldrum og einhleypu fólki.
Ég legg til að umr. verði frestað og haldið áfram við betra tækifæri þegar ráðh. eru betur upplagðir.