15.04.1980
Efri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (1778)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég hef þegar mælt fyrir því frv., sem hér er til umr., og hef þar fáu við að bæta. Ég tel ekki ástæðu til að lengja þessa umr. því að ég sé ekki að hér hafi neitt nýtt komið fram sem krefjist þess að menn haldi uppi löngum rökræðum.

Hv. þm. Kjartan Jóhannsson og flokksbræður hans hafa flutt hér till. sem fela í sér verulega skattalækkun, og sama gildir um hinn stjórnarandstöðuflokkinn, Sjálfstfl. Þm. hans hafa flutt hér till., sem fela í sér verulega lækkun á tekjuskatti. Þessum ágætu þm. er að sjálfsögðu heimilt að flytja hér hverjar þær till. sem þeim sýnst, hvort sem þær geta talist skynsamlegar eða ekki.

Ég er hins vegar sannfærður um það, að öllum þeim, sem þekkja hvernig ástandið er í fjármálum þjóðarinnar og hvernig ástatt er með þá miklu verðbólgu sem geisar í landinu, er fullljóst að það er ekki nokkurt svigrúm til skattalækkana, almennra skattalækkana eins og á stendur. Með slíkum ráðstöfunum væri beinlínis verið að gera vandann meiri og stærri en hann er nú.

Það er alveg laukrétt, sem kom hér fram hjá hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni áðan og hann nefndi sem mjög mikilvægt og stórt atriði þessa máls, að afkoma ríkissjóðs sé í sæmilegu lagi. Ég tek mjög sterklega undir þetta sjónarmið sem fram kom hjá honum áðan. En það verður ekki ef menn eru að leika sér að því að gleðja kjósendur sína með skattalækkunum í stórum stíl, sem vissulega hljóta að leiða til þess að ríkissjóður yrði rekinn með verulegum halla. Svo þykjast menn ætla að afla tekna með ýmsum undraráðum, eins og t. d. þeim að lækka verulega niðurgreiðslur. Það á að taka verulegan hluta af því fé, sem forgörðum fer við skattalækkun samkv. till. Sjálfstfl. og Alþfl., með því að lækka niðurgreiðslurnar. En hefur það dæmi verið reiknað til enda og hafa menn gert sér grein fyrir því, hvað lækkaðar niðurgreiðslur hafa í för með sér mikinn kostnaðarauka fyrir ríkissjóð? Gera menn sér grein fyrir því, að ef t. d. þeir 24 milljarðar, sem í niðurgreiðslur fara, væru afnumdir úr fjárlögum og vöruverð í landinu hækkaði að sama skapi, þá mundu laun almennt hækka um 8%? Það mundi auka útgjöld ríkisins um u. þ. b. 8 milljarða, auk þess mundi það auka greiðslu tryggingabóta frá ríkinu um aðra 8 milljarða, þannig að það er nokkuð ljóst að menn eru ekki bara að spara þá upphæð sem felst í lækkun niðurgreiðslna, heldur verða þeir að koma þá á móti með tekjur upp í þann mikla kostnaðarauka sem því fylgir að niðurgreiðslur eru lækkaðar. Auk þess mundi auðvitað af þessu hljótast það, að landbúnaðarvörur mundu seljast tregar og hægar og útflutningsvandi bænda aukast að sama skapi, sem er enn önnur hlið málsins.

Nei, auðvitað eru þetta ekkert annað en gervitillögur. Það vita hv. stjórnarandstæðingar fullvel og þeir gera því ekki kröfu til þess í fullri alvöru, að við — hvorki ég né forsrh. - stöndum hér í löngum viðræðum um till. af slíku tagi. Það vita allir sem vilja vita, að ekkert svigrúm er til almennra skattalækkana í þjóðfélaginu öðruvísi en að það komi niður á fjárhag ríkissjóðs og leiði með þeim hætti til verulegrar verðbólgu. Og það er mjög slæmt, að fjárhagur ríkissjóðs sé erfiður þegar ástandið í efnahagsmálum er eins og það er nú.

Hér hefur verið fjölyrt um það, að sú breyting á skattstiga, sem hér er gerð till. um, feli í sér svo og svo mikla hækkun fyrir þennan hópinn eða hinn. Auðvitað segir það sig sjálft, og það á við um alla skattstiga sem eiga að skila nokkurn veginn sömu tekjum og fyrra skattakerfi átti að gera — og þetta kerfi er miðað við að skila nákvæmlega sömu tekjum og gömlu skattalögin hefðu gert, — það segir sig sjálft, að þegar breytt er um kerfi þannig að sumir fá minni skatt, þá hljóta einhverjir aðrir að fá ívið meiri skatt. Við teljum hins vegar að hvergi sé um mjög ósanngjarnan mun að ræða, og við erum sannfærðir um að það væri leitun að því skattakerfi sem kæmi þannig út að allar hliðar þess yrðu eins og best yrði á kosið. Slíkt skattakerfi er áreiðanlega ekki til. Í þessu nýja skattakerfi, sem nú er verið að taka upp, er meginbreytingin auðvitað sú, að skattar á hjón, sem bæði vinna úti, aukast heldur, einkum og sér í lagi ef tekjur eiginkonu eru yfir 2 millj. kr., en meginreglan um einstaklinga er aftur á móti að skattar þeirra lækka. Þetta er sú mynd sem skín í gegn, ef tölvukeyrslur þessa skattkerfis eru nákvæmlega skoðaðar.

Vissulega er það ákveðið áhyggjuefni, að við tölvukönnun á þessu nýja skattkerfi, sem við erum að taka upp, koma einstæðir foreldrar ekki eins vel út og við hefðum helst kosið. Þeir nutu mjög verulegra fríðinda í hinu gamla kerfi, en það er ekki hægt að sýna fram á það, þegar þetta nýja kerfi er tekið upp og þeir fá mjög hliðstæð fríðindi, að þau skili sér með nákvæmlega sama hætti og þau gerðu í gamla kerfinu. Það er alveg hárrétt. En munurinn er mjög óverulegur í þeim tiltölulega fáu tilvikum sem þetta á við. Það, sem hefur verið gert fyrir einstæða foreldra, er, eins og menn vita, fyrst og fremst það að þeir fá tvöfaldar barnabætur með öllum börnum sínum og það hæstu barnabætur, eins og öll börn væru undir 7 ára aldri. En eins og menn vita eru veittar aukabarnabætur fyrir börn undir 7 ára aldri og það eru veittar hlutfallslega meiri barnabætur þegar börnin verða fleiri. Einstæðir foreldrar njóta þessara hlunninda í eins ríkum mæli og hægt er að veita. Það hefur verið talin viðunandi lausn á þeirra vanda, þótt hitt skuli viðurkennt, að einstæðir foreldrar í hinum einstöku tekjuhópum koma ekki nákvæmlega eins út og þeir gerðu samkv. fyrra skattkerfi. Þar er alltaf einhvern mun hægt að finna.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég hef áður gert grein fyrir því í ítarlegri framsöguræðu. Hér er fáu við að bæta. En vegna þeirra ögrandi orða, sem hér voru mælt af hv. þm. Kjartani Jóhannssyni, þótti mér rétt að bæta fáeinum orðum í belg. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér, að till. stjórnarandstæðinga um skattalækkanir eru óraunhæfar yfirborðstillögur, sem þeir vita sjálfir að standast ekki í reynd ef menn hafa vilja til þess að berjast gegn verðbólgunni. Ég tel því ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þessar till. Ég vil bara bæta því við, að þetta er 2. umr. málsins og þó að forsrh. hafi ekki átt þess kost að hlýða á þessar umr. nú, þá ætti hann að geta svarað þeim fyrirspurnum, sem menn vildu beina til hans, við 3. umr. málsins. Því legg ég áherslu á að þessari umr. ljúki nú og menn haldi þá áfram umr. þegar færi gefst til þess við 3. umr. málsins, að lokinni atkvgr. eftir 2. umr.