17.04.1980
Sameinað þing: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Pétur Sigurðsson):
Mér hafa borist svo hljóðandi bréf:
„Ólafur Ragnar Grímsson, 11. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varam. Alþb. í Reykjavík, Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Þorv. Garðar Kristjánsson,
forseti Ed.“
Og enn fremur:
„Þorv. Garðar Kristjánsson, 4. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er nú á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með skírskotun til 138 gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður minn, Sigurlaug Bjarnadóttir menntaskólakennari, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Þorv. Garðar Kristjánsson,
forseti Ed.“
Hingað hefur borist kjörbréf Guðrúnar Hallgrímsdóttur, sem er undirritað af yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis. Það hefur ekki borist enn kjörbréf frú Sigurlaugar Bjarnadóttur, en staðfesting þess er á leiðinni og verður að bíða um sinn að staðfesta rétt hennar til þingsetu. Ég bið hana hins vegar velkomna að sitja fund á meðan. Þetta eru aðeins formsatriði.
Ég óska eftir því, að kjörbréfanefnd hv. taki nú þegar til athugunar kjörbréf Guðrúnar Hallgrímsdóttur. Ég fresta fundi á meðan í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]