17.04.1980
Sameinað þing: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1960 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Hv. þm. Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn., hefur borið fram fyrirspurn um 3. umr. í Ed. um frv. um tekju- og eignarskatt og hvenær hún fari fram. Er það í sjálfu sér ekkert óeðlileg spurning, miðað við að áður hafði verið gert ráð fyrir að hún færi fram í kvöld. Hitt er annað mál, að hv. þm. væntir þess vafalaust ekki að fá ítarleg svör við spurningu sinni og allra síst væntir hann þess að ég fari að ræða hér málið efnislega að öðru leyti.

Eins og kunnugt er hefur 2. umr. í Ed. þegar farið fram og 3. umr. var fyrirhuguð í dag. Það átti að vera útvarpsumræða. Hins vegar stendur svo á, að fyrir sex dögum var tekin ákvörðun um verulega breytingu á frv. því, sem lagt hafði verið fram, og gerð tillaga um nýja og breytta skattstiga. Sú breyting var gerð á frv. við afgreiðslu málsins í Ed. við 2. umr.

Nú er það svo, að þegar útvarpsumræða fer fram um mál er eðlilegt og nauðsynlegt að málið sé komið í endanlegan búning, og við töldum að svo væri nokkuð örugglega. En síðari hluta dags í gær, eftir að ákvörðun hafði verið tekin um útvarpsumræður, að vísu nokkuð óvænt og skyndilega, bárust fjh.- og viðskn. Ed. nýir útreikningar frá ríkisskattstjóra sem beðið hafði verið um fyrir helgi, en voru að koma fyrst í gær. Því er alls ekki að leyna að í vissum atriðum er niðurstaðan í þessum útreikningum nokkuð á annan veg en verið hafði í útreikningum sem við höfðum fengið frá Reiknistofnun Háskólans. Því er ekki að leyna að niðurstaðan stingur í stúf við þá útreikninga sem áður lágu fyrir.

Á þessu geta auðvitað verið ýmsar skýringar. Kannske finnst mönnum nærtækust sú skýring, ef menn vilja vera illgjarnir, að síðari upplýsingarnar eru handunnar, en þær fyrri eru tölvuunnar. En þetta er þó ekki skýringin ef nánar er að gáð. Það er ljóst að í þessum útreikningum eru mismunandi forsendur lagðar til grundvallar, einkum og sér í lagi hvað snertir frádrátt frá tekjum eða frádrátt frá skatti samkv. eldri lögum. Nú erum við að taka upp skattkerfi þar sem framteljendum er heimilt að draga 10% af skattgjaldstekjum frá áður en skattur er á lagður, en sú heimild var ekki áður fyrir hendi. Menn geta gefið sér svolítið mismunandi forsendur við hvað eigi að bera saman þegar borið er saman nýtt kerfi að þessu leyti og gamalt kerfi þar sem þessi heimild var ekki fyrir hendi. Ég tel víst að munurinn á þessum tveimur útreikningsdæmum liggi að verulegu leyti í því, að menn hafa gefið sér mismunandi forsendur í þessum efnum.

En hver svo sem skýringin er á þessum mismun þótti okkur rétt, eftir að þessir útreikningar lágu fyrir, að þeir yrðu teknir til nánari skoðunar og gengið rækilega úr skugga um að ekki væru einhverjir þeir vankantar á skattstiganum eins og hann liggur fyrir eftir 2. umr. í Ed., sem ekki væri unnt að una við. Því hefur verið ákveðið að ríkisstj. og stjórnarþm. gefi sér tíma til þess fram yfir helgi að skoða þessi mál nánar og athuga hvort ástæða sé til að gera tillögur til breytinga.

Að sjálfsögðu höfum við ekki neitt á móti því að þetta mál sé tekið til umr. þannig að útvarpað sé frá henni. En okkur þótti einfaldlega rétt að fresta seinustu umr. í fyrri deild áður en málið væri endanlega afgreitt frá deildinni, og þar með frestast útvarpsumræðan af sjálfu sér. Þá fáum við í stjórnarmeirihlutanum, eins og ég sagði áðan, tíma til að skoða málin, eins og það heitir á nútímaíslensku, og stjórnarandstæðingar fá þá líka kærkomið tækifæri til að brýna vopn sín og fínpússa ræðurnar. En við göngum út frá því að 3. umr. um málið verði útvarpað, nema samkomulag verði um að útvarpað verði einhverri umr. í Nd.

Ég vænti þess, að þessar upplýsingar séu fullnægjandi fyrir hv. þm.