17.04.1980
Sameinað þing: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1969 í B-deild Alþingistíðinda. (1822)

Umræður utan dagskrár

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Þetta gerast æðifróðlegar umr., sem von er til. Hv. 3. þm. Vestf. hefur mjög miklar áhyggjur út af innanhúsvandamálum í Sjálfstfl. Ef honum er einhver huggun í því get ég upplýst hann um að það hafa fleiri. Á mínum fyrstu árum hér höfðum við margir hverjir allmiklar áhyggjur út af þingflokki Alþfl. — Það er kominn tími til að fleiri taki þátt í að vera áhyggjuefni á þingi — og það var vegna þess að þingflokkur Alþfl. var að þurrkast út. En það voru smáræðisáhyggjur á borð við þær sem við fengum þegar allt stóðið smalaðist inn í hann 1978. Þannig hefur þetta gengið í eilífum sveiflum, að menn hafa svo sem haft sem mest að vinna og mörgu að sinna og mörg áhyggjuefnin að þeim sótt. Ég læt hæstv. forsrh. um að svara því, hvar í þingflokki hann er staddur, en síðast þegar ég vissi til — það var í gær — var hann allur inni í þingflokki Sjálfstfl.

Hv. 9. þm. Reykv., Vilmundur Gylfason, talaði hér í ræðustólnum eins og Eggert, hv. 6. þm. Suðurl., sé enn utan þingflokks og eigi einhvern sérræðutíma hér. Svo er ekki. Hann var tekinn inn með miklum fögnuði, leiddur inn í hús föður síns þar sem eru margar vistarverur, þannig hljóðaði það, í gær rúmlega fjögur, þannig að ekki er afgangs neinn sérræðutími fyrir hann úr þeim flokki.

Ég hafði svo sem fáu við umr. að bæta og það efni sem þær snerust um núna. Það má heita að menn veigri sér við því að eiga orðastað við hæstv. ríkisstj. eins og nú er komið hennar málum. Það er auðvitað erfitt að hugsa sér að allir tíu hæstv. ráðh. séu gengnir af göflunum, en það er alveg öruggur meiri hl. sem þannig er ástatt fyrir í hæstv. ríkisstj. Það bera ekki allir tíu þau einkenni með sér, ekki hér í þingsölum enn þá, hvernig svo sem þeir haga sér uppi í stjórnarráði. En fyrir þessu er alveg öruggur meiri hl. í hæstv. ríkisstj., hjá því fer ekki eins og öll mál ganga til hér á hinu háa Alþingi, eins og við fáum að sjá í öllum málatilbúnaði í sambandi við fjárlög og fjáröflun hins opinbera.

Þetta tekur auðvitað engu tali. Ekkert af því, sem gert er og máli skiptir, er í samræmi við það sem upp var sett í því hrófatildri sem nefnt hefur verið stjórnarsáttmáli. Blátt áfram ekki neitt! Þar eru helmingaskipti, eins og jafnan hefur verið haft á orði, í þeim stjórnarsáttmála, þar sem helmingurinn er tekinn frá Framsfl. og hinn helmingurinn frá Alþb. og þeim sullað saman (Gripið fram í: Það eru þrír helmingar.) Það eru halarófur þar, nokkrir halar á, nokkrir skrauthalar sem eru saumaðir á Framsóknar- og Alþýðubandalagsfargangið, það er nú ekki meira, — nokkrir skrauthalar við alla hina skrauthalana. En Framsfl. og Alþb. hafa ekki séð um að reynt yrði með einhverju móti að framkvæma þá stefnu sína, sem er til helminga í þessum stjórnarsáttmála. Ekki er svo að sjá. Allt, sem gert hefur verið í fjárlögum og í fjáröflunarmálum ríkisins, stefnir þvert á yfirlýsingar hæstv. ríkisstj. um að reyna að draga úr verðbólgunni, — alveg þvert, hvert einasta aukatekið atriði.

Það er misskilningur hjá hv. 3. þm. Vestf., a. m. k. að einhverju leyti er það misskilningur, ætlaði ég mér að segja, að íhaldið í Vinnuveitendasambandinu eigi að sjá um samninga fyrir hæstv. ríkisstj. Ég sé ekki betur en að hv. 6. landsk. þm., Karvel Pálmason, sé búinn að taka skrið í þeim efnum heldur bærilega vestur þar, ef ég hef fylgst nægjanlega glögglega með því sem fram hefur farið þar í Bolungarvíkinni hin síðustu dægrin. Það verða því fleiri til þess að leggja henni lið e. t. v. en íhaldið í Vinnuveitendasambandinu.

Varðandi vinnumarkaðinn sjálfan er að sjálfsögðu hið sama uppi á teningnum, að allt það, sem er aðhafst með þeim hætti sem raun ber vitni um, um nýjar skattaálögur, er auðvitað til þess að torvelda stórkostlega alla þá möguleika sem manni virtust betri en jafnan áður á því að ná skaplegum samningum á vinnumarkaðinum. Ég minnist þess ekki um árabil um áramót eins og nú, að þannig væri ástatt á vinnumarkaðinum að reikna mætti með skaplegu ástandi og skaplegum samningsmöguleika, og á ég þá líka við að séð yrði til þess að þeir lægst launuðu eða lægra launuðu fengju rétt sinn hlut. Í heild tekið mátti segja að skaplega horfði, einmitt skaplega með það fyrir augum að takast mætti að draga úr hinni feiknalegu spennu og æðinu á verðbólgunni. En þá er ástandið notað, þessar girnilegu ástæður, sem ég vil kalla, þar sem þetta er þýðingarmikið atriði í allri fjármálastjórn ríkisins, og farið alveg öfugt að. Þá er spanað áfram með þeim hætti að engin dæmi eru til um slíkt, jafnvel ekki í upphafsskrefum vinstri stjórnarinnar á árinu 1971, og var þó stórt lagt undir þá.

Til hvers halda menn að þetta leiði, eða hvað hugsar hæstv. ríkisstj. um framhaldið þegar stefnir nú í 12% hækkun kaupgreiðsluvísitölu hinn 1. maí? Og hvernig ætla menn að bregðast við þessu? Með því að halda áfram að draga í milljarðatali inn tekjur til ríkissjóðs? Það dugar ekkert í áflogum við verðbólgu ef öllu er eytt aftur um leið og meira til. Það stefnir í að lánsfjáráætlun tvöfaldist á einu einasta ári. Og það virðist hver fagráðh. keppa sem ákafast við hinn. Allt þetta stefnir upp úr öllu valdi og öllum mönnum sýnilegt og vitanlegt að þetta getur ekki borið í skauti sínu annað en enn hraðari snúningi verðbólguhjólsins, enn miklu, miklu hraðari, þannig að við stefnum ekki í 30 eða 35%, heldur 65 eða 70% eða guð má vita hvað, ef þessum ókjörum linnir ekki sem hæstv. ríkisstj. gildrar til sjálf.

Það er ekkert undarlegt þó að ríkisstj. viti ekki frá degi til dags hvernig eigi að bregða við. Það er ekkert undarlegt þó að hún veigri sér við því að flytja stefnuræðu sína og verja hana. Og það getur vel verið að hæstv. forsrh. kunni því ekkert illa að hafa ekki samkv. þingsköpum málfrelsi í fjölmiðlum fyrir framan alþjóð í eldhúsdagsumræðunum eða þegar farið er svo til að útvarpa frá hinu háa Alþingi. Það getur vel verið að hv. 9. þm. Reykv. hafi rétt fyrir sér að því leyti, sem mér skildist á honum, að þannig væri ástatt fyrir hæstv. formanni ríkisstj. að hann treysti sér ekki til — (Gripið fram í: Og varaformanni Sjálfstfl. ) Og varaformanni Sjálfstfl. (Gripið fram í. ) Nei, það er að vísu misskilningur hjá hv. þm. Stefáni Jónssyni. Hann er það ekki í bili, og það er aðallega vegna þess að hann kýs ekki að vera það. En formlega séð er hann varaformaður Sjálfstfl. og gæti sjálfsagt tekið þau völd að sér núna ef hann seildist svo langt um hurð til lokunnar. En það er svo annað mál.

Það kann að vera að svona standi á fyrir hæstv. forsrh., og ég verð að segja að eins og nú stendur í bæli hæstv. ríkisstj. eru ráðh. ekki öfundsverðir af því að verða að verja orð hennar og gerðir. En þá hlýtur spurningin að vakna: Hví í ósköpunum koma þeir sér með þeim hætti fyrir eins og þeir liggja nú? Á þessum örskamma tíma hefur þeim tekist að koma sér þannig fyrir að með öllu er óverjandi. Samþ. er stórkostleg hækkun fjárlaga og síðan ekki nóg með það að margfalda sérskatta til að standa undir öllum útgjöldunum, heldur er reynt í viðkvæmu máli og gert í viðkvæmu máli, eins og orkujöfnunarmálinu, þá er tækifærið notað til að draga inn tvöfalt í ríkissjóðshítina, tvöfalt við það sem á að nota til að jafna og leysa úr þeim gífurlegu örðugleikum sem fólkið í landinu á við að búa að þessu leyti. Það er aldrei látið hendi óveifað á mestu þenslutímum, sem við höfum lifað í þessu landi, til þess að ausa bensíni á eldinn. Það er eðlilegt að fólkið í landinu sé farið að spyrja hverju gegni. Og það er auðvitað eðlilegt að hv. þm. fari að ókyrrast mjög þar sem allt stefnir í eina átt, þessa ófæru leið sem menn hafa rætt hér áratugum saman um að mundi leiða til ófarnaðar fyrr en seinna ef ekki er hægt að stemma stigu við.

Það hefur verið lögð geysileg áhersla á að hraða þessum stórmálum, sem hljóta að kallast, þ. e. skattamálunum og ýmsum öðrum málum, sem hæstv. ríkisstj. þarf auðvitað að fá sett í lög. En síðan eru málin undirbúin þannig og slík er auðvitað undiraldan meðal stjórnarflokkanna, að frá degi til dags bera öll störfin á hinu háa Alþingi merki þess, að þeir vita vart orðið sitt rjúkandi ráð, eins og kemur fram í þessum ráðgerðu útvarpsumræðum, hálftíma á flokk, sem þeir áttu að ræða þetta mikilvæga mál. Þá þykjast þeir fá nýjar upplýsingar sem hafi svo gagnger áhrif í þessu efni að ekki sé hægt að taka málið til umræðu. Var þá ekki einmitt hægt að nota tækifærið til þess að upplýsa um þær breytingar sem hefðu orðið á niðurstöðunum eftir þessa handavinnu, auðvitað var þetta ekki handavinna, þetta er allt handarbakavinna hjá hæstv. ríkisstj., — og breyta þá, ef þetta hafði örlagarík áhrif, að því leyti að þyngja eða þá létta, sem mér hefur oft skilist að hæstv. ríkisstj. hefði meiri áhyggjur af, skattaálögur á fólk? Mátti þá ekki skýra hreinskilnislega frá því í umr. og tilkynna fólki á hverju það gæti átt von? Og ef ríkisstj. var búin að leggja það glöggt niður fyrir sér með hvaða hætti þessir skattar skyldu leggjast á fólkið ætti að vera auðvelt mál að setja sig í nýjar stellingar, taka nýjar ákvarðanir og skýra jafnóðum frá þeim. En það er eitthvað meira sem að baki býr. Hæstv. ríkisstj. þarf að geta haldið fundi með sínum stuðningsmönnum um eitthvað stærra en þá útreikninga sem upplýstir hafa verið. Hún er vonandi orðin hrædd við afleiðingarnar af gerðum sínum og ætlar nú að breyta til í þá átt að halda ekki þeim ókjörum áfram sem nú blasa við og hefur verið sýnt fram á tölulega.

Hvaða afsökun er það fyrir hæstv. ríkisstj. að hafa ekki áttað sig fyrr á þessu máli, þar sem henni hefur verið sýnt fram á það af skilgóðum mönnum hér um alllanga hríð hvert stefndi um skattaálögur? Það er alls engin afsökun fyrir þessu. Það er brostinn flótti í lið hæstv. ríkisstj. og er að vonum. (StJ: Nei, nei, Sverrir.) Það er ekki nokkur minnsti vafi á því og þetta eru bara mannalæti hjá hv. þm. Stefáni Jónssyni. Þetta hef ég séð undanfarnar vikur þegar ég mæti honum á ganginum, hvað þá heldur ef ég hef séð hann í ræðustól. Nei, þannig standa mál nú að það er varla gerandi að standa hér uppi til þess að halda einhverjar lokuræður yfir þessum ókjörum. Menn eru það þrumu lostnir að þeir mega vart af sér bera, en menn verða samt að reyna að halda uppi merkinu í þeirri von að hægt verði að koma einhverju viti fyrir — eigum við að segja meiri hl. af hæstv. ríkisstj.

Ég orðlengi ekki meir um þetta mál, nema að því leyti að ég fullyrði að ef hæstv. ríkisstj. hefði frá upphafi ekki haldið þann veg á fjármálum og fjáröflunarmálum öllum hjá ríkinu hefði henni ekki átt að verða skotaskuld úr því að mæta til leiks og ræða þau þannig að skikkanlega færi úr hendi eina kvöldstund í Ríkisútvarpinu. Það er auðvitað háðulegt fyrir hæstv. ríkisstj. eftir nokkurra vikna setu að þora ekki í fyrsta lagi að ræða fyrir framan alþjóð um stefnuskrá sína, svo sem segir í þingsköpum, í öðru lagi að skjótast þann veg fyrir horn nú í sambandi við að ræða skattamálin fyrir framan alþjóð. Þetta er auðvitað eitt það háðulegasta sem sést hefur í þingi. Í þau 9 ár, sem ég hef átt sæti á hinu háa Alþingi, hefur ekkert sambærilegt heyrst eða sést, að þeir skyldu nú ekki manna sig upp og reyna að tala í hálftíma hver í útvarpinu til þess að verða sér ekki til þeirrar háborinnar skammar sem við höfum nú fyrir augum! Mér satt að segja rennur þetta til rifja, þó að ég eigi ekki að gæta bræðra minna nokkurra sem þarna eru í bland við tröllin, því að það kemur að því að við þurfum að fara að vinna að skynsamlegum málum með þessum mönnum, vonandi fyrr en síðar. Og því legg ég á það áherslu að þótt stjórnarandstæðingum blöskri allt framferðið mega þeir ekki gefast upp við að reyna eftir mætti að vísa hæstv. ríkisstj. til réttari vegar en þess sem hún hefur nú fetað og getur ekki leitt til neins annars en ófarnaðar sem allir hv. þm. og þjóðin sjálf veit að er upphaf og endir þess, hvort við búum við góðan hag í þessu landi í náinni framtíð. Það er hið mikla mál verðbólgan og áflogin við hana. En ég fæ ekki betur séð en svo sé í hverju einasta atriði fjármálalegs eðlis, og það skiptir auðvitað öllu máli, að stefnt hafi í þá átt að magna verðbólgudrauginn þannig að vandræði okkar aukist að miklum mun og voru þó ærin fyrir.