17.04.1980
Sameinað þing: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1972 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í þessum umr. utan dagskrár hafa útvarpsumr., stefnuræða og eldhúsdagsumr., verið dregnar inn í.

Ég vil fyrst taka fram, að það er tilhæfulaust með öllu að sú frestun á 3. umr. um tekjuskattsfrv. í Ed., sem útvarpa átti í kvöld, en henni er frestað, standi í nokkru sambandi við það, hvort ég tek þátt í þeim umr. eða ekki. Ég hef ekki óskað eftir því og ekki farið fram á að verða ræðumaður í þeim útvarpsumr. Til þessarar frestunnar liggja allt aðrar ástæður, eins og gerð hefur verið grein fyrir.

Út af öðrum útvarpsumr., um stefnuræðu forsrh., sem hv. síðasti ræðumaður gerði að umtalsefni, ætti að vera óþarft fyrir hv. þm. eða aðra að vera að endurtaka fyrri rangfærslur og misskilning í því efni, þar sem það liggur fyrir í yfirlýsingu og úrskurði hæstv. forseta Sþ. fyrir nokkru að ákvæði þingskapa um stefnuræðu og útvarp hennar eigi ekki við nú. Þetta liggur fyrir. Þeim úrskurði hefur ekki verið hnekkt. Að vísu komu fram einhverjar raddir um að krefjast þess að bera úrskurð hæstv. forseta undir atkv. þingheims, en þeirri ósk hefur víst ekki verið framfylgt eða hún afturkölluð. Þetta liggur fyrir. Situr síst á hæstv. forseta Nd. að vefengja þannig úrskurð kollega síns í Sþ.

Eldhúsumr. verða síðar á þessu þingi, væntanlega nokkru áður en því lýkur. Þar komum við að því, að eins og nú standa sakir í stjórnmálum eiga ákvæði þingskapa þar ekki við. Hæstv. forseti Sþ. og skrifstofustjóri Alþingis hafa þegar rætt það við þingforseta hvernig æskilegt væri að haga þeim umr. og að gerð yrðu afbrigði frá þingsköpum í því sambandi. Mun síðar verða rætt við formenn þingflokkanna um það mál. Og það kemur að sjálfsögðu hér til álita. E. t. v. verður um það samkomulag, e. t. v. þarf þingheimur að skera þar úr. Hins vegar er hugsanlegt, ef ætti að framfylgja við eldhúsumr. bókstaflega ákvæðum þingskapa, sem byggja á öðru ástandi en nú er í stjórnmálum Íslendinga, að eldhúsumr. yrðu háðar án þess að forsrh. kæmi inn í þær umr., og býst ég við að allir séu sammála um að það væri óeðlileg tilhögun. Þess vegna verður annaðhvort að semja um það milli flokka, hvernig eigi að haga þeim eldhúsumr., eða þá að úrskurður forseta Sþ. og/eða atkvgr. í Sþ. skeri þar úr.

Þetta var varðandi ummæli sem hér hafa verið höfð varðandi útvarpsumr. En ég endurtek að ég hef ekki borið fram neina ósk um að koma endilega inn í 3. umr. um tekjuskattsmálið í Ed. og stendur frestunarósk hæstv. fjmrh. ekki í neinu sambandi við það.

Sumir hv. þm. hafa gagnrýnt það mjög harðlega að ríkisstj. sé svo vegvillt í skattamálum að hún þurfi að fresta umr. hvað eftir annað og endurskoða tillögur sínar. Ég vil benda á það, sem allir þm. vita í rauninni, að ástæðan til þess, að erfitt reynist að komast að endanlegri niðurstöðu um skattana, er eingöngu sú, að á þessu ári taka gildi skattalög sem sett voru vorið 1978 af þáv. ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, þegar Matthías Á Mathiesen var fjmrh., og um þau varð sæmileg samstaða hér á þingi. Það eru svo margvíslegar breytingar í þeim skattalögum, sem nú koma í fyrsta sinn til framkvæmda, og slík óvissa að slíkt hefur aldrei gerst á Íslandi áður við setningu skattalaga. Ýmsir kunnir og reyndir löggiltir endurskoðendur, sem vanir eru f:amtölum, hafa látið í ljós opinberlega að þeim sé ákaflega mikill vandi á höndum og ógerningur fyrir þá í mörum efnum að segja fyrir um hvernig hin nýju skattalög verka, bæði að því er snertir atvinnufyrirtæki og einstaklinga. Ofan á þessa margvíslegu óvissu bætist að skattaprósentur í skattalögunum frá 1978 eru ákveðnar miðað við staðgreiðslu, því að sú var bjartsýnin hjá höfundum, þegar þau voru undirbúin og sett, að menn héldu að staðgreiðsla skatta gæti verið komin á um leið og þau kæmust til framkvæmda.

Það hefur ekki orðið. Það gerir að verkum að tekjuskattsstiginn í þeim lögum á ekki við og það er vissum örðugleikum bundið og krefst ýmissa áætlana að reikna út hverjar prósentur eru nú, þegar ekki er komin á staðgreiðsla, hliðstæðar þeim prósentum sem þar var byggt á. Það eru sem sagt skattalögin frá vorinu 1978, þau sem nú koma í fyrsta sinn til framkvæmda, sem valda allri þessari óvissu.

Varðandi tekjuskattsstiga þá, sem stjórnarflokkarnir hafa lagt fram nú, vil ég í fyrsta lagi taka það fram, að í því sambandi hafa verið viðhafðar hinar mestu blekkingar af hálfu stjórnarandstæðinga. Landsfólkinu er talin trú um að hér sé um einhverjar stórkostlegar skattaþyngingar að ræða og skattapyndingu. (HBl: Það er rétt.) Það er eðlilegt að hv. þm. Halldór Blöndal, sem veður hér uppi dag eftir dag með blekkingar, haldi því fram að þetta sé rétt.

Samkv. þeim tekjuskattsstiga, sem nú liggur fyrir, er það ljóst í fyrsta lagi, að varðandi meðalfjölskyldu með almennar launatekjur, fyrst og fremst láglaunafólkið, lækka skattarnir verulega. Ef við tökum t. d. hjón með tvö börn með venjulegar tekjur, við skulum segja nokkuð ríflegar verkamanntekjur frá síðasta ári, verður skattur þeirra, þ. e. hlutfall skatts af tekjunum, lægri en hefur verið í fjölda ára. Hins vegar kemur það svo í ljós við nánari athugun að sumir hópar gjaldenda mundu hækka í sköttum. Það hefur verið ljóst frá upphafi varðandi hjón þar sem eiginkonan hefur haft háar tekjur, vegna þess að í rúm 20 ár hefur gilt sú regla að þá hefur eiginkona fengið skattfrjálsan helming tekna sinna. En með þeim breytingum, sem gerðar voru með skattalögunum 1978, var ákveðin sérsköttun hjóna og þessi sérregla felld niður. Það var því augljóst eða átti að vera augljóst frá upphafi að í slíkum tilfellum mundi skattgreiðsla hjóna geta hækkað. — En það eru aðrir hópar sem í ljós hefur komið að mundu hækka í skatti, og þeir útreikningar, sem gerðir hafa verið af reiknistofnunum og í tölvum, eru oft og tíðum og hafa að undanförnu verið háðir svo mörgum óvissum forsendum og áætlunum af þeim ástæðum, sem ég hef greint, að það koma, ég vil segja: því miður, upp aftur og aftur dæmi sem menn höfðu ekki gert sér nægilega grein fyrir. Þessi er ástæðan til þess að hæstv. fjmrh. taldi rétt að fresta 3. umr., til að færi gæfist á að kanna þessi atriði nánar og reyna að ráða þar bót á.

Um leið og sumir hv. þm. lýsa hér með sterkum orðum hneykslun sinni á þessari frestun hefur þó einstaka þessara ræðumanna lýst ánægju sinni yfir því að það eigi að kanna þessi mál nánar. En ég vil undirstrika það, sem ég sagði áðan, að orsökin til þessara frestana og til þessa vanda eru skattalögin frá 1978 sem fela í sér mikla óvissu, margt sem erfitt er að áætla eða segja með vissu fyrir um. Þetta er ástæðan fyrir þeim vanda sem við höfum verið í og erum að vissu leyti í sambandi við skattstiga nú.

Ég geri ráð fyrir því, að hvað sem ákveðið verður um skattstigana, um persónufrádrátt, barnabætur og annað nú á þessu þingi hljóti þar að verða um bráðabirgðaákvarðanir að ræða, vegna þess að það verður vafalaust óhjákvæmilegt, þegar menn sjá hvernig skattaálagningin samkv. lögunum frá 1978 kemur út í reynd, að endurskoða meira og minna af þessum hlutum.

Hv. síðasti ræðumaður fór um það mörgum orðum að allt færi í handaskolum og úr böndum hjá núv. ríkisstj. og að hún geri fátt annað en að ausa bensíni á verðbólgueldinn, eins og hann komst að orði. (Gripið fram í). Ég vil fyrst benda á að ríkisstj., sem tekur til starfa 8. febr. s. l., verður að sjálfsögðu fyrst og fremst að glíma við þann vanda að undirbúa og fá afgreidd fjárlög. Til þess hafði hún skamman tíma, en nauðsyn að láta það ekki dragast. Ríkisstj. setti sér það mark að nýtt fjárlagafrv. yrði samið og lagt fram 10. mars eða sem sagt u. þ. b. mánuði eftir að hún tók til starfa, og voru þó ýmsar tafir á þeim tíma, svo sem Norðurlandaþing. Sú áætlun stóðst. Í annan stað setti ríkisstj. sér það mark að fá fjárlög afgreidd á Alþ. fyrir páska. Sú áætlun stóðst líka. Ég tel að hér hafi fyrst og fremst verið af hálfu fjmrh. og starfsmanna hans mjög vel að verki staðið. Þessar áætlanir ríkisstj. hafa fyllilega staðist þrátt fyrir margvíslegan vanda og skamman tíma. Öðrum málum hefur að sjálfsögðu verið reynt að þoka áfram eftir því sem unnt hefur verið. Ég held að það sé ekki neitt sannleikskorn í þeirri fullyrðingu að hér hafi allt farið í handaskolum og mistekist á þessum tíma. Ég held þvert á móti að á þeim röskum tveim mánuðum, sem ríkisstj: hefur starfað, hafi tekist bæði að undirbúa og sumpart fá samþ. ýmis mikilvæg mál.

Nú eru þeir sammála um það, hv. ræðumenn, bæði Sverrir Hermannsson og Vilmundur Gylfason, að nú stefni allt í ófæru, og þeir mikla það fyrir sér að væntanlega muni vísitalan hækka svo mjög 1. maí og 1. júní að kauphækkun muni verða um 12%. Þeir býsnast mjög yfir þessu. En hver er ástæðan til þess að svo horfir að verðlagshækkun verði svo mikil á næstunni? Meginástæðan er auðvitað sú, að bráðabirgðastjórnin, sem var hér í 4 mánuði, sló á frest og dró ákvarðanir um hin mikilvægustu mál, þannig að þegar loksins komst þingræðisstjórn á laggirnar 8. febr. var uppsafnaður eða samansafnaður vandi margra mánaða sem auðvitað þurfti að leysa. Þessi er ein meginástæðan til þess að framfærsluvísitalan og væntanlega verðbótavísitalan hækka svo mjög á næstunni. Þetta er hv. þm. mjög vel ljóst, og ekki ætti hæstv. fyrrv. ráðh. Vilmundi Gylfasyni að vera það óljósara en öðrum.

Ef hins vegar er litið á hvað hv. þm. Sverrir Hermannsson hefur lagt til mála eða hans nánustu samherjar til þess að draga úr verðbólgu verður þar fyrst fyrir að lagt er til að minnka tekjur ríkissjóðs og auka útgjöld. Það liggur fyrir, að þeir hafa lagt til að draga verulega úr tekjum ríkisins. Þess hefur ekki orðið vart, þrátt fyrir fyrirheit eins og þeir vitna oft í í stefnuskrá, að þeir hafi lagt fram tillögur um lækkun útgjalda. (Gripið fram í: Eigum við ekki að hafa það sem sannara reynist.) Utan eina tillögu um að lækka niðurgreiðslur um 5 milljarða. Það er líklega ein helsta andverðbólguráðstöfunin að lækka niðurgreiðslur á búvörur um 5 milljarða til að hækka þá framfærslu- og verðbótavísitöluna um nokkur prósent. (Gripið fram í: Er búið að heimila það?) Þetta liggur allt saman fyrir í þskj. og ræðum. Þetta er aðaltillagan sem frá þeim hefur fram komið í því efni. Menn eiga væntanlega eftir að heyra enn einn lesturinn frá hv. þm. Halldóri Blöndal hér á eftir. Því er rétt að rifja þetta upp um leið og haldið er fram hinum örgustu blekkingum um stórfelldar skattahækkanir og þegar talað er um að verðbólgan aukist í tíð þessarar stjórnar meira en ella, því að tillögur þessara hv. þm. mundu leiða annars vegar til aukinnar verðbólgu með lækkuðum niðurgreiðslum og hækkaðri framfærsluvísitölu og hins vegar stórkostlegs halla á ríkissjóði enn eitt árið, sem eins og allir vita er ein af meginástæðunum til verðbólgunnar á undanförnum árum.