17.04.1980
Sameinað þing: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1977 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)
Umræður utan dagskrár
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég mun nú halda áfram ræðu minni, þó að heimturnar séu ekki nema 10% af ríkisstj. Ég veit ekki hvort á að taka þær með álagi af því að það er forsrh. Það gæti þá kannske orðið 12.1%, sem er þekkt tala.
Ég hafði hugsað mér að þakka þeim manni, sem sitja á í þeim stól sem auður er næstur á vinstri hönd frá mér séð, fyrir svör hans við þeim fsp. sem ég bar fram, þó það væri tiltölulega lítið á þeim að græða. Það virðist vera ljóst að ríkisstj. hafi verið með hugann svo bundinn við að draga úr óvissunni hjá sjálfri sér að óvissan hjá fólkinu í landinu hafi ekki skipt neinu verulegu máli. Það kom fram í máli ráðh. að hann og liðsmenn hans vildu gjarnan fá tíma núna til að skoða málin örlítið nánar. Í gær taldi hæstv. ráðh. enga ástæðu til þess að hugsa. Í dag er hann orðinn mjög hugsi. Það getur í sjálfu sér verið nokkurt umhugsunarefni fyrir okkur. Ég tel að það sé gleðilegt fyrir okkur Alþfl.-menn, ef sú krafa okkar að láta fara fram útvarpsumr. hefur orðið til þess að hæstv. fjmrh. og kannske ríkisstj. öll hafi byrjað að hugsa í gærkvöld og telji nú ástæðu til að hugsa enn þá frekar.
En það er eitt í þessu máli sem ég held að sé ástæða til að gera sérstaklega að umræðuefni. Hæstv. ráðh. hafa viljað halda því fram, og einkum og sér í lagi fjmrh., að það væri einhver mismunur á þeim útreikningi, sem hefði verið framkvæmdir í Reiknistofnun Háskólans, annars vegar og þeim, sem birtist á blöðum frá ríkisskattstjóra, hins vegar. Ég tók það fram í inngangsræðu minni við upphaf þessarar umr., að svo væri ekki. En ég vil ítreka að það er ljóst af þeim útreikningum, sem hafa verið framkvæmdir af Reiknistofnun Háskólans, að um verulega skattþyngingu sé t. d. að ræða á einstæðu foreldri með eitt barn. Þetta liggur alveg ljóst fyrir og hefur legið ljóst fyrir í þeim gögnum sem hæstv. ríkisstj. og stjórnarliðar hafa haft fyrir sér allan tímann. Og þá er ekki nema tvennt til: annaðhvort hefur verið hugmyndin að læða þessu í gegn og níðast þannig á þessum lágtekjuhópi ellegar þá að mennirnir hafa ekki lesið gögnin. Hér stendur alveg svart á hvítu, að á bilinu 2–3 millj. kr. í tekjum hjá einstæðu foreldri með eitt barn muni skattbyrðin vaxa um 63 þús. kr. að jafnaði — þegar menn eru með kannske rétt um 200 þús. kr. á mánuði. Og það er líka alveg ljóst að á næsta tekjubili, frá 3–4 millj., muni skattbyrðin vaxa að jafnaði um 119 þús. kr. Það er líka ljóst um þennan hóp í heild, einstæða foreldra, samkv. þeim tillögum sem menn hafa verið með fyrir framan sig útreiknaða, að heildarskattbyrðin á þeim hefur átt að vaxa um 180 millj. kr. eða tífaldast, fara úr 20 millj. upp í 200 millj. Þetta liggur ljóst fyrir í þeim útreikningum sem ríkisstj. hefur látið framkvæma.
Ég rakti við umr. í Ed. hverjar afleiðingar þetta hefði í einstöku dæmi, sem ég hef rakið fyrr í þessari umr., af einstæðu foreldri með eitt barn og 3 millj. brúttótekjur. Það er tvöfölduð á því skattbyrðin og kannske rúmlega það. Í staðinn fyrir um 270 þús. kr., sem fari til að mæta útsvari og til útgreiðslu, er sú upphæð komin niður í 120 þús. kr. Þetta er auðvitað nákvæmlega það sama og kemur fram í útreikningunum frá ríkisskattstjóra sem hæstv. fjmrh. virðist hafa gefið sér tóm til að líta aðeins í í gærkvöld, væntanlega þegar hann var að búa sig undir útvarpsumr. — Þar kemur fram nákvæmlega það sama t. d. fyrir einhleypan, að þar er skattbyrðin stórlega aukin. Hér er tekið dæmi, sem er mjög nálægt því dæmi sem ég hef rakið, af framteljanda sem er með 3.1 millj. í brúttótekjur. Hann fer úr 122 þús. upp í 190 þús. Það liggur við að tvöfaldist á honum skatturinn.
Mönnum hefur alls ekki þurft að koma þetta á óvart. Það er aumingjalegt af hæstv. fjmrh. að kenna Reiknistofnun um eða telja að það sé eitthvert misræmi á milli þessara útreikninga. Þeir eru í fullu samræmi hvor við annan og það sem meira er, hverjum og einum væri í lófa lagið að reikna þetta einfalda reikningsdæmi. Hvað eru 20% af 2.7 millj. að frádregnum persónuafslætti og barnabótum? Hvað eru 25% af sömu tölu að frádregnum persónuafslætti og barnabótum? Þetta er hægt að reikna á einni til tveimur mínútum. En það verður ekki séð að hæstv. fjmrh., nema hann hafi ætlað að læða þessu í gegn, hafi nokkurn tíma gefið sér tóm til þess að líta á hvernig þessi hópur kæmi út í skatti, a. m. k. lætur hann svo nú að hann komi af fjöllum, og hefur hann þó gjarnan viljað telja sig sérstakan talsmann þeirra sem minni máttar eru í þjóðfélaginu. Fyrir kosningarnar töluðu Alþb.-menn mikið um að vernda kjörin, sérstaklega hjá hinum lægst launuðu. Nú hefur það verið berað, hver aðferðin er til að vernda kjörin. Það á að tvöfalda skattinn á þeim sem lægstar hafa tekjurnar.
Hæstv. fjmrh. réðst með miklum fúkyrðum á Alþfl. rétt áður en hann stökk úr salnum og lét þess getið að hann mundi ekki láta sjá sig framar. Þetta hefði í sjálfu sér gefið tilefni til þess að ég hefði gert aths. við dagskrá, en ég lét það ógert. Hann talaði um að það væri ljóti flokkurinn Alþfl., sem legði eitthvað upp úr því sem hann segði, sem væri tilbúinn til þess að fara úr ríkisstj. ef hann næði ekki fram stefnumálum sínum. Það er kannske von að maðurinn sé reiður, því þessu er allt öðruvísi farið með Alþb. Þar er boðað að þeir standi vörð um kjörin fyrir kosningar, en ettir kosningar er þeim gersamlega sama um hvernig t. d. þeir tekjulægstu koma út, eins og áður nefnt dæmi sannar, eða þá að þeir hafa ekki einu sinni nennu í sér til að gá að því, hvernig þessir hópar koma út samkv. þeim skattstiga sem þeir eru að leggja til að verði samþykktur. Þetta er lýsingin á Alþb. Þetta eru þeirra vinnubrögð. Það eru stólarnir sem gilda, en ekki stefnumiðin.
Ég sé líka ástæðu til að gera verulegar aths. við þá ræðu sem hæstv. forsrh. flutti áðan.
Hæstv. forsrh. gerði í fyrsta lagi mikið úr því, að erfitt væri að finna hliðstæðu við það hvernig skattstigi skyldi vera nú, vegna þess að í lögunum frá 1978 hefði hann verið miðaður við staðgreiðslu. Það er náttúrlega út í hött að vera með svona málflutning, vegna þess að sá samanburður, sem við erum að gera, er við skattstigann, sem í gildi var síðast, og hins vegar þann skattstiga sem verið er að smíða. Staðgreiðsluskattstiginn skiptir engu máli í þessu sambandi, hefur ekki nokkurn skapaðan hlut með þetta mál að gera. — En maður hefði getað haldið að einhverjir ráðh. í hæstv. ríkisstj. hefðu a. m. k. getað reiknað svona einfalt dæmi eins og ég hef hér rakið fyrir þá, 20% mínus tvær tölur, til þess að gá að því hvað kæmi út. Það er sá samanburður sem menn þurfa að gera.
Hæstv. forsrh. talaði um það sérstaklega áðan, að skattar lækkuðu á láglaunafólki. En hvað er það sem við höfum verið að tala um í Ed. seinustu tvo dagana og svo aftur í dag? Er það ekki láglaunafólk sem hefur 3 millj. í tekjur? Ég spyr forsrh.: Hvar er þá láglaunafólk ef það telst ekki láglaunafólk sem hefur 3 millj. kr. í tekjur, einstæðir foreldrar eða einhleypir? Ég hefði haldið að það teldist til láglaunafólks. Sú staðhæfing að skattar lækki verulega á láglaunafólki er því fráleit og á engan hátt rétt á sér. (Forsrh.: Ræðumaður ætti að fara rétt með það sem ég sagði. Ég talaði um meðalfjölskyldu, hjón með tvö börn.) Ég hef ekki lokið máli mínu, forsrh.
Forsrh. talaði um það almennt, að skattar lækkuðu á láglaunafólki, og síðan tók hann sérstakt dæmi af hjónum með tvö börn, en hann minntist ekki einu orði á þann láglaunahóp sem hefur verið sérstaklega til umr. í dag.
Síðan er talað um óvissar forsendur og áætlanir hjá Reiknistofnun sem einhvern sérstakan vanda í þessu máli. Það er alveg sama hvað því líður, vegna þess að dæmið er svo einfalt að hvert barn í seinni hluta barnaskóla getur í sjálfu sér reiknað það og séð að sama kemur út og við höfum verið að tala um undanfarna daga. Það er þess vegna ekki hægt að rekja þetta til skattalaganna frá 1978, og það er ekki hægt að kenna Reiknistofnun um, vegna þess að í rauninni liggur það allt saman fyrir í gögnum Reiknistofnunar þó í meðaltölum sé. Öllum hefði átt að vera í lófa lagið að reikna það dæmi fyrir einhvern einstakling.
Hæstv. forsrh. vildi gera mikið úr afrekum ríkisstj., henni hefði tekist að setja saman fjárlög og fá þau afgreidd, ríkisstj. hefði sett sér það mark að fá fjárlög afgreidd. Þetta er háleitt mark. Það hefði kannske verið svolítið háleitara að vera með eitthvert mark um það hvernig fjárlögin ættu að líta út. Það var ekki minnst einu orði á það.
En það var annað í máli hæstv. forsrh. ákaflega athyglisvert. Hann var að tala um að meginástæðan fyrir því, að lítið gengi hjá ríkisstj., og ástæðan fyrir því, að verðlagshækkanir færu núna upp í 12%, væri hvernig ríkisstj. Alþfl. hefði haldið á málum og skotið málum á frest. Þetta er hin mesta firra. Það mátti skilja á máli hæstv. forsrh. að verðbólgan væri svona mikil núna af því að hún hefði verið of lítil í stjórnartíð Alþfl. En ef þetta er leiðin hefur verðbólgan væntanlega orðið þó þetta mikil hjá krötunum af því að hún var of lítil í ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar, og hún hefur væntanlega orðið of mikil í ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar af því að hún var of lítil í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, og verðbólgan hefur orðið of mikil í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar af því að hún var of lítil í þeirri vinstri stjórn sem réð þar áður. Samkv. þessari kenningu væri líklega lítil sem engin verðbólga hjá okkur ef vinstri stjórnin á árunum 1971–1974 hefði haft vit á að hafa svo sem eins og 300% verðbólgu. Þá væri okkur líklega bara borgið. Það sér auðvitað hver heilvita maður að svona kenning stenst ekki með neinu móti. Þetta er falskenning vegna þess að verðbólgan fæðir verðbólgu af sér.
Núv. ríkisstj. hefði verið í lófa lagið að notfæra sér það að ríkisstj. Alþfl. hafði þó tekist að ná verðbólgunni verulega niður, eða úr 10–13% í 6–8%, eftir því hvaða mælikvarði er notaður. Þá var niðurtalning verðbólgunnar hafin. En núv. ríkisstj. komst að þeirri niðurstöðu að endilega þyrfti að hleypa skrið á verðbólguna. Og hver haldið þið svo að árangurinn af því verði? Jú, sú verðbólguskriða, sem ríkisstj. er nú að bæta ofan á alveg sérstaklega, fæðir af sér nýja verðbólgu, og kröfurnar munu aukast vegna þeirrar viðbótar sem ríkisstj. er að bæta við. Sú verðbólguviðbót fæðir af sér aðra verðbólguviðbót. Sannleikurinn í þessu máli er nefnilega alveg öfugur við það sem hæstv. forsrh. hélt fram áðan.
Það verður ekkert auðveldara, það verður langtum erfiðara að hefja niðurtalninguna seinna, eins og virðist vera hugmynd ríkisstj. Það skyldi þó ekki vera að ríkisstj. komist að því líka á næsta verðlagstímabili að hún hafi ekki haft nógu mikla verðbólgu á þessu seinasta verðlagstímabili og verði þess vegna að hleypa enn þá meira fram hjá næst.
Nei, sannleikurinn er sá, að niðurtalningin var hafin í ríkisstj. Alþfl. Hún var hafin með aðhaldi á öllum sviðum. Hún var hafin með aðhaldi í ríkisbúskapnum. Þar var haldið fast um taumana. Hún var hafin með því að flytja fjárlagafrv. sem hefði verið raunverulegt viðnám gegn verðbólgunni. Hún var hafin með aðhaldi í peningamálum, t. d. því að vextir voru hækkaðir einnig 1. des. til þess að sparifé væri verndað og sparnaðar ykist í þjóðfélaginu. En hjá núv. ríkisstj. er öllu á öfugan veg farið: Peningamálastjórn er lítil sem engin, sparnaður mun dragast enn frekar saman í þjóðfélaginu, ríkisbúskapurinn er þaninn upp úr öllu valdi. — Það er auðvitað svo í verðlagsmálunum að þar þarf aðhald líka, aðhald sem menn finna fyrir. En menn undu við það aðhald sem við tileinkuðum okkur í ríkisstj. Alþfl. Og það þarf enginn að halda að hægt sé að ná árangri í verðbólgumálunum öðruvísi en menn finni eitthvað svo lítið fyrir því. En sú ríkisstj. undanlátseminnar og slappleikans, sem nú ríkir, hefur kosið að láta undan. Ríkisforstjórarnir í SÍS og viðskiptajöfrarnir vilja auðvitað fá meir í sinn hlut. En þá mun verðbólgan líka halda áfram á fullri ferð.
Sannleikurinn er auðvitað sá, að ríkisstj., sem nú situr, hefur tekist alveg lygilega vel að magna upp þann vanda sem er í þjóðfélaginu. Ein fyrstu verk ríkisstj. voru þau, að það þyrfti sérstaklega að skila aftur vinnslustöðvum landbúnaðarins tveim prósentustigum, sem hafði verið liður í því hjá ríkisstj. Alþfl. að allir tækju þátt í viðnáminu gegn verðbólgunni, líka vinnslustöðvar landbúnaðarins, þær yrðu líka einhverju að fórna. Núv. ríkisstj. komst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að þessu yrði auðvitað að skila aftur. Og hvað gerist daginn eftir? Fiskverðssamningum er sagt upp og kom engum á óvart. Og síðan sat hæstv. ríkisstj. í því vikum saman að reyna að koma saman nýju fiskverði. Skriðan var sett af stað. Þannig hefur þetta gengið koll af kolli.
Við Alþfl.-menn höfum flutt tillögur um að lækka tekjuskattinn og við höfum flutt tillögur um lækkun útgjalda á móti á ýmsum sviðum, og sá tillöguflutningur okkar hefur byggst á því, að það verði að vernda kjör fólksins í landinu á sama tíma og hugmyndin er a. m. k. að reyna að ná tökum á verðbólgunni og sérstaklega eigi að vernda kjör hinna lægst launuðu.
Ég hafði í rauninni ekki hugsað mér. að fara að tala hér almennt um efnahagsmálastjórn ríkisstj. En sá málflutningur, sem hæstv. forsrh. og fjmrh. höfðu í frammi, gefur fyllsta tilefni til þess að halda langtum lengri ræðu um þá ógæfu, um þá óstjórn, sem hér ríkir, og hvernig ríkisstj. hefur tekist að glutra niður þeim áfanga, sem var að nást í aðhaldi gegn verðbólgunni, og hvernig ríkisstj. heldur á hinum ýmsu þáttum efnahagsmálanna, hvort heldur er peningamála, ríkisfjármála eða verðlagsmála. Það er leitt að svo illa skuli komið sem raun ber vitni.
Í þessu sambandi er kannske ekki úr vegi að minnast örlítið á ummæli sem hv. þm. Lárus Jónsson viðhafði hér um að Alþfl. hefði ekki fylgt Sjálfstfl. í tillögum um skattalækkanir. Við fluttum eigin till., sömu tillögur og við töluðum fyrir fyrir kosningar, sömu tillögur og fjárlagafrv. byggðist á. Þessar sömu tillögur um skattalækkanir höfum við flutt í Ed. og þær verið felldar. Sjálfstfl. var með fulla leiftursókn fyrir kosningar, en núna í umr. um fjárl. eða í umr. um skattstigana er það bara eins þriðja leiftursókn sem er boðuð. Tillögur Sjálfstfl. fara þannig eftir aðstæðum hverju sinni, en okkar tillögur hafa verið raunhæfar og miðast við að hægt væri að mæta þeim með lækkun útgjalda með skynsamlegu móti.
Ef hæstv. fjmrh. hefði látið sér nægja fyrri ræðu sína hefði hann kannske haldið höfði bærilega varðandi það sem er að gerast. En hann sá sérstaka ástæðu til þess að ráðast á Alþfl. í seinni ræðu sinni í algerri málefnaþurrð ráðh. Hann var eiginlega í fyrri ræðunni öllu auðmjúkari en hann var í gær eða fyrradag þegar þessi mál voru til umr. í Ed. Þá talaði hann með miklu offorsi um að það þyrfti að ljúka þessari umr. sem fyrst og allur málflutningur okkar Alþfl.-manna væri út í hött. Hann var öllu auðmjúkari núna. Nú var ástæða til þess að hugsa sig um. En það, sem var athyglisvert í ræðu hæstv. fjmrh., var kannske ekki hvað síst að hann fékkst ekki til þess að lýsa yfir að ósanngjarnt væri að skattpína sérstaklega einstæð foreldri með eitt barn og 3 millj. í brúttótekjur, t. d. ekkju með eitt barn og 3 millj. í brúttótekjur, eða einhleyping. Hann fékkst ekki til að lýsa því yfir, að það væri ósanngjarnt, og var þó sérstaklega að því spurður. Þar standa þau ummæli fjmrh. frá því í umr. í fyrradag í Ed., að hann teldi að það væri hvergi ósanngjarn munur á þeim tillögum, sem hann væri með, og því, sem reiknast mundi samkv. gömlu skattalögunum. Þar standa þau ummæli hans, að einstæðir foreldrar hafi notið sérstakra fríðinda áður og verið þá eins konar forréttindahópur og það væri einhver lagfæring sem hann þyrfti að gera á því. Ég átti von á að ráðh. sæi sig um hönd og lýsti yfir að hann hefði komist að því að þetta væri ekki sérstaklega sanngjarnt.
Meginþættir þess, sem hefur komið fram í þessari umr., eru tiltölulega fáir. Það vorn hrokafull svör sem voru veitt í fyrradag við gagnrýni á skattstigafrv. En þegar hæstv. fjmrh. og ríkisstj. fara að búa sig undir að mæta alþjóð og í útvarpsumr. að kröfu okkar Alþfl.manna renna á þá tvær grímur. Það er rangt að það sé einhver mismunur á útreikningum Reiknistofnunar og ríkisskattstjóra og eitthvert misræmi þar á milli. Það er það skjól sem hæstv. fjmrh. er að reyna að búa sér til núna. Mér þykir lítilmannlegt að kenna stofnun úti í bæ um að hann hafi hugsanlega komist að einhverri annarri niðurstöðu. Það er bara tvennt til. Annaðhvort þorðu stjórnarliðar ekki að verja gerðir sínar frammi fyrir alþjóð ellegar þeir hafa aldrei lítið á þá útreikninga, sem framkvæmdir voru í Reiknistofnun, og aldrei gert svo lítið sem reikna eitt lítið reikningsdæmi um hvernig þeir, sem verst settir eru í þjóðfélaginu, koma út gagnvart þeim skattstiga sem þeir eru að leggja til að verði samþykktur. Hvort heldur sem þeir eru að renna af hólmi með þessa skattpíningarstefnu eða hafa aldrei haft framtak í sér til að gá að því, hvað þeir væru að gera, er það í sjálfu sér vitnisburður um vinnubrögðin í ríkisstj. og það hugarfar sem þar ríkir. Ef hæstv. ráðh. hafa aldrei lítið á þessa útreikninga og aldrei gert svo lítið sem reikna eitt lítið reikningsdæmi af þessu tagi held ég að það hefði verið einfaldast að þeir hefðu játað yfirsjón sína og lýst yfir að auðvitað væri það rétt, sem þm. Alþfl. hefðu verið að segja síðustu dagana, að þarna væri verulegur munur og hann væri ósanngjarn og hann yrði að leiðrétta.