21.04.1980
Neðri deild: 62. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 17. apríl 1980.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Bogi Sigurbjörnsson skattendurskoðandi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Ingólfur Guðnason,
5. þm. Norðurl. v.“
Bogi Sigurbjörnsson hefur áður átt sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa á nýjan leik.