21.04.1980
Neðri deild: 62. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)

Umræður utan dagskrár

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Mér heyrist að hér hafi verið kvartað undan því, að nefndir þingsins hafi ekki starfað eðlilega, og því miður heyrist mér að menn setji allar nefndir undir sama hatt. Ég er m. a. formaður sjútvn. í þessari hv. deild. Sú nefnd hefur fengið fjöldamörg mál til meðferðar af ýmsu tagi frá fleiri en einni ríkisstj. Öll þessi mál hafa verið afgreidd úr þeirri nefnd um leið og kostur hefur verið á að ganga frá þeim. Þar hefur aldrei neitt mál legið óafgreitt og er ekki enn.

Herra forseti. Vegna þess að menn töluðu þannig um nefndir, að það mátti skilja að eins væri ástatt í þeim öllum, þá vildi ég leyfa mér að taka þetta fram fyrir hönd þeirrar nefndar sem ég veiti forstöðu í þessari hv. deild.