22.04.1980
Sameinað þing: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í B-deild Alþingistíðinda. (1863)

228. mál, listskreytingar ískólum

Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Ég hef borið hér fram fsp. til hæstv. menntmrh. um listskreytingar í skólum, en í lögum um skólakostnað hefur í alllangan tíma — eða alla vega frá árinu 1967 — verið ákvæði þess efnis, að heimilt sé að verja 2% af áætluðum byggingarkostnaði skólamannvirkis til listskreytinga. Lagagreinin, sem um þetta fjallar, þ. e. 10. gr. laga nr. 49/1967, um skólakostnað, hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Menntmrn. getur, að fenginni umsögn sveitarstjórnar, ákveðið listskreytingu skólamannvirkja og telst kostnaður, sem af því leiðir, til stofnkostnaðar. Má verja í þessu skyni fjárhæð er nemur allt að 2% af áætluðum stofnkostnaði skólamannvirkis miðað við reglur byggingadeildar, þó aldrei hærri fjárhæð en 500 þús. kr. til hvers einstaks skóla að viðbættri hækkun samkv. byggingarvísitölu.“

Í lögum um grunnskóla frá 1974 er sambærilegt ákvæði og þarf ég ekki að rekja það nánar hér. Ástæða þess, að slíkt ákvæði var sett í lög á sínum tíma, held ég að liggi nokkuð í augum uppi. Þetta eru að sjálfsögðu tvíþættir hagsmunir, annars vegar hagsmunir ríkis og sveitarfélaga að auðga umhverfi sitt með listaverkum, — og ef hið opinbera á ekki að hafa frumkvæði að slíku starfi þá verður varla til þess ætlast af öðrum, — og í hinn stað eru hér vafalaust hafðir í huga hagsmunir listamanna einnig, að þeir geti fengið verkefni við sitt hæfi á þennan hátt sem þeir fái greitt fyrir. Ég býst við að a. m. k. mörgum listamönnum sé þetta mun hugnanlegri aðferð til lífsframfæris heldur en að þiggja svokallaða listamannastyrki sem ríkisvaldið úthlutar.

Ég skal viðurkenna að kveikjan að þessari fsp. eru fréttir í blöðum ekki alls fyrir löngu þess efnis, að deila hefði komið upp milli menntmrn. og ákveðins listamanns, Einars Hákonarsonar, um tillögu sem hann hafði gert að listskreytingu fyrir skóla fyrir þroskaheft börn sem verið er að reisa í Safamýri í Reykjavík. Hann mun hafa gert till. að veggskreytingu sem að hans sögn er innan við þessi 2% mörk af kostnaði, en rn. hins vegar hafnað þessari till. hans. Hér var um að ræða mósaíkmynd á útvegg. Hins vegar mun það nú vera í höndum hæstv. menntmrh. að taka endanlega ákvörðun um þetta. Mér er ekki kunnugt um hvort sú ákvörðun liggur fyrir, en þætti vænt um að fá það upplýst hér einnig nú. Mér er þó tjáð að þessari byggingu hafi verið haldið áfram af fullum krafti og úr því sem komið er sé mjög erfitt að koma þessu verki fyrir, þar sem búið sé að slá upp fyrir þeim vegg sem það átti að koma á.

Ég skal ekki hafa þennan formála lengri, en fsp. er svo hljóðandi:

Í lögum um skólakostnað er ákvæði þess efnis, að menntmrn. geti varið allt að 2% af áætluðum stofnkostnaði skólamannvirkis til listskreytingar. Spurt er: Hvernig hefur ákvæði þetta verið framkvæmt s. l. 5 ár? Hvaða skólar hafa verið listskreyttir í samræmi við ofangreint ákvæði? Hvaða skólar hafa ekki notið slíks og þá af hvaða ástæðum?