22.04.1980
Sameinað þing: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2015 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)

112. mál, útboð verklegra framkvæmda

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Birgi Ísl. Gunnarssyni fyrir að koma fram með þessa fsp. sem ég held að sé ástæða til þess að sé rædd hér. Því miður gefst ekki mikill tími til þess í jafnþröngum tíma og er þegar fsp. eru ræddar í hv. þingi

Á 100. löggjafarþinginu flutti Ellert B. Schram till. til þál. um verklegar framkvæmdir kostaðar af ríkissjóði og á vegum stofnana ríkisins með sjálfstæðan fjárhag, þar sem lagt var mjög ákveðið til að fylgt yrði þeirri meginreglu, sem kemur fram í 13. gr. laga nr. 63 frá 1970, sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson lýsti hér áðan. Í grg. með þessari þáltill. rekur þm. mjög rækilega helstu rökin fyrir því, að til útboða er gripið, og bendir þar jöfnum höndum á ný rök og reynslu þeirra fyrirtækja og sveitarstjórna og opinberra fyrirtækja sem hafa reynslu í þeim efnum.

Það er ljóst, eins og reyndar hefur komið fram, að verk til útboða eru venjulega betur undirbúin. Eftirlit er með framkvæmd verktaka, en er aftur á móti lítið sem ekkert þegar ríkisstofnanir eiga í hlut. En þá er það venjulega þannig að hönnun, framkvæmd, eftirlit og úttekt eru í höndum sömu stofnunar þegar þær framkvæma verkin. Það er ljóst, að gera verður áætlun og ákveða fjárþörfina fyrir fram þegar boðið er út. En þegar stofnanir framkvæma verk er fjárveiting oft í lausu lofti og óvíst hvenær verk fer að bera arð. Og í beinu framhaldi af þessu er það kostur við að ákveða fjárþörf með þessum hætti, að þegar í upphafi verður fjárveitingavaldið að ákveða hvað eigi að gera og hvað ekki. Þetta reyna hv. fjvn.-menn á hverju ári þegar verið er að skipta fjármunum á einstakar framkvæmdir í landinu. Það er alþekkt fyrirbæri, að mikil dreifing á fjármunum verður yfirleitt til þess að lítil arðsemi fæst út úr framkvæmdunum.

Hér gefst ekki tími til þess að ræða til nokkurrar hlítar þetta merkilega efni. En ég vil gera það að mínum lokaorðum að skora á hæstv. samgrh. að beita sér fyrir því, að sú meginstefna, sem mörkuð var í áðurgreindum lögum um opinberar framkvæmdir, verði látin ná fram að ganga og það sé viðurkennt einnig í lagaframkvæmdinni, að hér á landi sé risinn upp verktakaiðnaður sem geti tekið við því hlutverki sem ríkisstofnanir hafa haft með höndum og hefur orðið til þess að hjá þeim hefur hlaðist upp mannafli og tæki sem gætu nýst miklu betur í höndum aðila sem hefðu meiri hreyfanleika og sveigjanleika í starfi.